creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, May 24, 2003

Gallup skuli hringja á svona óskikkanlegum tíma.. vöktu mig kl hálf 12.. en sem betur fer er ég með einn takka á símanum sem setur þá á silent.. datt ekki í hug að hafa bara no ringtone þegar þeir hringdu.. en set það strax á þá núna.. þar sem að í gær hringdu þeir kl hálf 11 um kvöldið.. veit ekki hvað þeim vantar mig svona mikið.. og gæti ekki verið meira sama..

Já.. og svo er áreiðinlega búið að finna út hvernig kínverska veikin byrjaði.. allt útaf því að þessir helvítis kínverjar borða ketti.. og einhver kattategund var með þessa veiki í sér.. sem gerði það að verkum að þetta byrjaði að berast á milli manna.. og allt af því að kínverjar éta ketti.. þá eru hundruði manna búnir að deyja.. og meira að segja ein sýkt í norðulöndunum.. þannig að farið að ganga núna um með dæmið.. svo þið smitist ekki.. :)

Larry King show.. var með skemmtilegt fólk hjá sér í þættinum áðan.. ég óvart fór á þessa stöð.. og sá því miður hver vann í American Idol.. afhverju var ekki hægt að hafa svona.. warning screen dæmi á þessari stöð sem stöð2 hefði geta sett upp.. svo ef mar myndi klikka á þetta.. þá kæmi "Varúð sigurvegarinn í american idol er núna á þessari stöð" þannig að mar myndi drífa sig að halda áfram að sörfa.. helvítis LARRY KING!!
Stina at 6:28 AM

Friday, May 23, 2003

Það er ekkert gaman að þessum fegurðarsamkeppnum.. sérstaklega ekki Ungfrú ísland.. í þessari keppni eru allir keppendur voðalega stirðir.. og labba um eins og þeir séu með spýtu uppí rassgatinu á sér.. brosa um leið og þeir líta í áttina til dómarana.. svona sérstök moment í stað þess að vera bara brosandi.. geta ekki dansað þegar það á að dansa.. dansa bara með spýtuna ennþá uppí rassgatinu á sér.. eina góða við þess keppni núna í ár.. var að ég er loksins sátt ivð manneskjuna sem vann.. reyndar var ég líka sátt við Ragnheiði árið 2001.. en.. ekki Manúelu.. og ekkert á undan... ég er ósátt við eitt.. það er tilfinningadæmið hjá þeim sem vinnur.. ég vinn fá gömlu góðu tárin þegar það er sagt nafnið.. og titringinn.. ég vil að þær grenji.. vegna þess að þær voru valdar Ungfrú ÍSLAND.. ég myndi gráta.. endurheimtum tárin.. og höldum okkur í að velja þær sem mér líkar.. í fyrsta sætið.. :)
Stina at 5:04 PM

Og er nú búið að Íslenska Austurríkis textann.. og er hann svona

---------------------------------------

Mér líkar við flest dýr á þessari jörð
en mér líkar best við litlar kanínur og birni.
Bráðum eiga öll dýrin eftir að deyja en Adam í bóli
með Evu upptekin við að endurskapa

Kanínur lifa í skóginum.Kettir í skömmtum
og kakkalakkar,lifa undir flísum
Litlar kanínur hafa stutt tríni
og kettlingar mjúka loppu
Og mamma Hollý elskar ullina sína
frá afrísku lamadýri

Munurinn á öpum og prímötum,er
ekki meiri en spagettí og pasta
en þeir sem vilja vita meira um dýr
skulu læra lífræði eða sjá upplýsingarnar
á heimasíðuni minni

Sum dýr hafa vængi
en önnur hafa klær
sum lifa úti
en önnur í dós

---------------------------------------------


Þetta lag er bara mesta snilld sem ég hef heyrt lengi.. eins og ég hef sagt hérna 2var.. eða 3var áður.. ÁFRAM AUSTURRÍKI!! :D
Stina at 11:09 AM

úff.. að geta tekið til í þrjá tíma.. er þónokkuð mikið.. þó þetta hafi mest bara verið yfirborðsdrasl.. þá tókst mér að taka þetta á þremur tímum.. án pásu.. reyndar henti teppinu út.. og það tók langan tíma. var pikkfast undir sófanum.. svo tók ég ísskápinn í gegn.. myglaður fiskur þar inni.. og örbylgjuofnin.. ótrúlegt hve skítugur hann getur orðið.. eða ofaná honum.. núna sé ég að það er ekki fallegt að fólk skuli reykja hérna inni.. allt það hvíta inní eldhúsi er gult.. en ég endaði tiltektina á því að telja allar dósirnar sem við eigum.. svo það sé hægt að henda þeim í endurvinnslu í dag.. en ég er pottþétt á því.. að hausar fá að fjúka ef það verður eitt ryk á stofuborðinu.. eða eitt dagblað inná klósti.. þetta var nógu erfið tiltekt..
jæja.. kl er 8.. held að það sé komin tími á svefn á mig.. :)
adios
Stina at 1:18 AM

Thursday, May 22, 2003

Jæja.. eftir að hafa fengið nýju digital myndavélina.. þá hefur mar verið að mynda eitthvað.. og svona.. stundum leyft einhverjum að prufa.. þannig að það eru komnar inn 15 nýjar myndir af.. fjölskyldunni
Stina at 7:18 PM

Það er ekkert smá óþæginlegt að mar skuli lenda í bílslysi slow motion..
fyrir einhverjum tveimur árum.. lenti ég í bílslysi.. sem var nú reyndar ekkert voðalega mikið.. þó svo við hefðum þeyst alveg yfir akrein og snúið við.. beint á skilti.. en.. þetta gerðist allt í slow motion.. og mar getur ekki gert neitt.. mar sér þetta í slow motion samt gerist þetta rosalega hratt og mar er að reyna að færa sig einhvern veginn svo ekkert gerist en mar getur það ekki.. þetta er virkilega ógeðslegt..
Jæja.. mér er orðið ógeðslega heitt.. ætla í ís bað..
adios!
Stina at 4:28 PM

Kannski ég sé voðalega einmana að logga mig inná spjallið á þessari síðu eurovision.tv en hey.. ég er bara að tékka á því hvað fólk ætlar að kjósa.. og það er greinilegt ða gaurinn minn er ekki alveg að meika sense þarna úti.. ég var að lesa bloggið hjá Gísla Marteinn og Loga og hann er víst að gera allt það fáranlegasta sem hann getur gert.. hann bauð öllum á fund í einhverju porti.. og setti þar niður egg.. og ætlaði að labba yfir þau.. án þess að brjóta.. svo setti hann á sig hænugrímu og hljóp um allt.. hann er samt brilli.. ÁFRAM AUSTURRÍKI!!
Birgitta að fá góð atkvæði þarna úti.. henni er þó allavega spáð í 10 fyrstu sætin.. spurning hvort mar ætti að fara í eurovision drykkjuleikinn þar sem mar drekkur jafn mörg stig og ísland fær..?
t.A.T.u.. alveg að skíta á sig.. ein datt á sviðinu í æfingunni.. ein var hás.. og gat ekkert sungið.. þær ætla að gera eitthvað suprise á sviðinu.. þannig að fólkið er búnað grípa til góðra ráða.. sýna bara æfingarmyndbandið ef það verður eitthvað klúrt á sviðinu.. frábært *klapp klapp*
Stina at 4:00 PM

Wednesday, May 21, 2003

Ég hef tekið eftir því.. þegar það er hægt að vera eitthvað teiti hjá mér.. þá eignast ég fullt fullt af vinum.. aldrei jafn margar símhringar í símanum mínum.. aldrei jafn mikið af fólki að tala við mig.. vááh.. ég ætti kannski bara að flytja út og kaupa mér vini.. PARTÝ HJÁ MÉR ALLAR HELGAR!!
Stina at 1:48 PM

Tuesday, May 20, 2003

Jæja.. allt í gangi útaf Júróvisjón núna.. Gísli Marteinn og Logi Bergman.. komnir með Júróvisjón blogg..
Ansi skemmtilegt að lesa um t.A.T.u á því.. þar sem þær eru ekkert smá vissar um sigur samt sem áður algjörlega ða skíta á sig.. svo rakst á ég.. síðu þar sem hefur greinilega verið hægt að spjalla við keppendurna.. og ætla að sýna ykkur myndir af Birgittu.. spjalla á netinu.. Birgitta og Vignir , again og takið eftir þessu massífa blómi sem hún er með á öxlinni , Birgitta á blaðamannafundi , allt íslenska liðið á blaðmannafundinum , Á þessum tímapunkti , samkvæmt Loga og Gísla tók , íslenska fólkið uppá því að syngja fyrir blaðamennina .. eða með réttu Vignir og Regína kannski Birgitta hafi raulað eitthvað með.. það kemur ekki fram.. ..
Vildi bara leyfa ykkur fan-unum að fylgjast með henni án þess að leita.. :)
Endum þetta á smá myndum af þeim sem ég held með í Júróvisjón.. Alf.. frá Austurríki.. ,
MASSÍFUR "HATTUR"
Stina at 3:04 PM

Ég var að hugsa um það hvað ég og Hulda vinkona mín gerðum mikið til að geta farið á djammið hverja helgi þegar ég var 17 ára.. þar sem við vorum ekki með vinnu.. og þurftum einhvern veginn að fjármagna þetta..
Við fórum til ættingja og vini til að athuga hvort þeir ættu ekki dósir handa okkur svo við gætum farið með þær í endurvinnslu og keypt okkur landa...
Við fórum að selja SÁÁ álfa.. þar sem mar fékk eitthvað smá fyrir hvern álf sem mar seldi..
Þegar við vorum á næturrúntinum okkar á virkum dögum stoppuðum við af og til þegar við sáum dósir til að setja í safnhrúguna afturí til að fara með á föst..
Eða það var notað gamla góða aðferðin á foreldrana til að fá lánað pening..
Svo var líka passað eins og maníak á virku dögunum til að fá sem mesta peninginn..
Ótrúlegt hvað mar gerði.. :) sem minnir mig á það ég þarf að fara með dósir..
Stina at 6:54 AM

Djöfull væri ég fegin núna ef allar íslenskar myndir væru með textum.. er komin með bullandi eyrnabólgu á einu eyranu.. hitt eyrað er bara með hellu frá því að ég fór á eitthvað dansiball... og get ég ekki losnað við hana.. þannig að reyna að tala við mig núna.. er voðalega erfitt.. ég segi allavega 3var sinnum ha? áður en ég næ því sem fólk er að reyna að segja við mig.. þar sem þau ákveða að tala voðalega lágt.. gera sér ekki grein fyrir því að ég er ekki heyrandi núna..
Stina at 6:09 AM

Monday, May 19, 2003

Ég er alls ekki sátt við úrslitin í Survivor.. Jenna.. gellan sem gerði ekki RASSGAT þurfti endilega að vinna.. og vinnur rétt á eftir að hún svíkur gaurinn minn Butch.. valið á milli þessara grenjugellu sem gerði ekkert annað en að þrífa nærfötin sín svo hún gæti lifað af þessa 39 daga.. og Matthew.. sem sveik líka gaurinn minn :( þá hefði ég nú frekar viljað að Matthew hefði unnið.. fannst hundleiðinlegt að sjá silíkonbombuna hoppa um að gleði af því að Jenna vann.. piff..

Annars flottasta auglýsinginn sem ég hef séð núna uppá síðkastði.. er auglýsinginn sem er notað byrjunardæmið úr Brady Bunch.. man ekki hvernig lagið var.. eða endirinn.. eða reyndar hvað kom í staðinn fyrir Brady Bunch.. en þetta var snilld :D
Stina at 3:55 PM

EF KARLMENN RÉÐU HEIMINUM
1. Það yrði margfalt auðveldara fyrir pör að hætta saman.. mar myndi klappa
henni á rassinn og segja "gangi þér betur næst"...
2. Ófrjósemispillur myndu fylgja með bjórkippum
3. Valentínusardagurinn yrði færður til 29. Febrúar.
4. Ruslið færi með sig sjálft út.
5. Verzlunarmannahelgin yrði 4 sinnum á ári.
6. Fólkið sem sér um þáttinn "milli himins og jarðar" yrði allt bundið
aftaní steypubíl og keyrt framaf bryggju í beinni útsendingu í
ríkissjónvarpinu
7. Einu þættirnir aðrir en "Ensku mörkin" yrðu "Ensku mörkin - frá öðru
sjónarhorni"
8. Í staðinn fyrir bjórbvömb fengir þú bjórvöðva
9. Það yrði ekkert mál að leigja sér skriðdreka.
10. Kvenfólk yrði alltaf nakið þegar það kæmi fram í sjónvarpi
11. Þegar löggan myndi stoppa þig til að sekta þig þá yrði það svona..
Lögga: Veistu hversu hratt þú keyrðir?
Þú: Úff... það eina sem ég veit að ég sullaði bjórnum mínum útum allt.
Lögga: Góður! 75% afsláttur fyrir þig!
12. Allir karlmenn fengu 4 sjénsa áður enn þeir yrðu dæmdir í fangelsi fyrir
nokkurn hlut.
13. Það myndi sjálvirkt slitna sambandið í símum eftir 30sekúndur.
14. Allir vinningshafar í öllu myndu fá að drepa og éta alla keppinautana
sem töpuðu!
15. Það yrði fullkomlega löglegt að stela sportbílum ef bara að þú skilar
þeim fullum af bensíni daginn eftir
16. Ef kærastan þín þyrfti virkilega að tala við þig á meðan það er leikur í
sjónvarpinu, þá myndi birtast lítil mynd af henni neðst í horninu á
sjónvarpinu í hálfleik.
17. Að kinka kolli og líta á úrið myndi gilda sama og að segja "ég elska
þig"
18. "Sorry, ég varð svo obbosslega fullur í gær!" yrði lögleg ástæða fyrir
því að vera seinn í vinnuna.
19. Í lok vinnudags myndi heyrast í flautu, þú myndir hoppa útum gluggann,
renna þér niður á bakinu á risaeðlu og beint inní bílinn þinn.... einsog
Fred Flintstone


word
Stina at 12:30 PM

Jæja.. hvað haldið þið ? :D






Hvað kemst Birgitta Haukdal langt í Júróvisjón?







  

Free polls from Pollhost.com



Stina at 8:57 AM

Sunday, May 18, 2003

Ég á að skipuleggja Gæsapartý.. er komin með nokkrar hugmyndir.. sem ég veit að hún drepur mig útaf en hey þetta er skemmtilegt.. ég þarf samt að fá fleiri hugmyndir.... einhver sem getur komið með hugmyndir.. og ekki eitthvað svona kósí dæmi.. eitthvað sem gerir hana að fífli :)
Stina at 12:53 PM

Frábært.. get ekki sett inn useless fact of the day.. þar sem að þegar ég ætlaði að save-a þetta.. þá kom bara "sorry your template is too long for us" :)
Djammið í gær var flott.. set inn fullt af myndum um leið og þær koma til mín.. myndum af Gullu (dipsí) að dansa djarfan dans fyrir framan gaur á boxerum.. og þetta gerði hún til að fá eldhúspartý diskinn gefins.. myndum af Begga í sóldögg.. þar sem hann var að spila á Gauknum í gær.. svo bara myndum af mér og Gullu á eyrnasneplinum.. og Geira.. en hann hvarf svo fljótt að ég efast um að það séu einhverjar myndir af honum.. hvarf á svipuðu leiti og þegar við löbbuðum útaf Glaumbar.. þar sem það var ekki frír bjór lengur.. þó þetta hafi verið svoldið lítill frír bjór.. fékk eitthvað um 5 dósir.. en fullt af "frægum" fm-um.. og nóg séð af Magna.. þar sem hann er á dvd-inu á Eldhúspartý dæminu..

digital myndavél á fimmtudaginn.. great! :)
Stina at 12:40 PM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs