creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, May 10, 2003

Það var tekið kosningarlabbur núna rétt áðan.. svona til að merkja x fyrir framan f-ið.. og þurftum við að segja bróðir mínum þetta allan leiðina.. að setja x-ið fyrir framan þann bókstaf sem hann ætlaði að kjósa.. þar sem hann náði til að eyðinleggja sitt atkvæði seinast með því að setja það fyrir aftan.. þó svo allar auglýsingarnar séu með x-f, x-d og það.. :)
En þegar stefnan var tekin á staðinn sem ég átti að kjósa á.. og var þetta allt raðað eftir hverfisheitum.. labbaði þarna inn.. og sagði nafnið mitt.. og hvar ég byggi.. kemur þá ekki aðeins karlmannslegri rödd "hvað heitir hún aftur" þannig að ég lít þangað.. og blasir ekki bara við mér ANNA KRISTJÁNS.. ég fékk gjörsamlega sjokk.. og stamaði nafnið útúr mér.. og labbaði flissandi inn.. ef það hefði verið einhver flokkur sem væri með bókstafinn A.. þá hefði ég pottþétt óvart sett x-ið þar.. gat ekki hugsað um neitt annað.. svo þegar ég var búin.. ákvað ég að gera bróðir minn vandræðalegan.. þar sem ég var með myndavél á mér.. og sá að hann var að fara að setja miðan ofaní.. og öskraði þá í áttina að honum "bíddu hrafn ég ætla að taka mynd af þér" gaurinn gjörsamlega fríkaði og setti miðan ofaní eins og speedy gonsales.. :D
Stina at 6:05 AM

Ég hef fengið 2 sms í dag.. í sambandi við hvað ég eigi að kjósa.. og reyndar eitt látið mig vita afhverju ég mátti ekki eiga Frjálslynda barmerkið hjá þessari manneskju sem fór útí morgun.. þar sem hann svaraði mér ekki áður en hann fór vegna þess að hann var að útskýra afhverju hann kaus frjálslynda flokkinn.. og sagði "vegna þess að ég er frábært, fyndinn og fallegur!" og ég sagði "þú veist ða þetta getur líka verið fífl!" þá rauk hann út.. og þess vegna fékk ég sms í morgun "Kristín ég er framsækinn maður.. þess vegna kýs ég f.. fiskinn minn nammi nammi namm" og svo skoðaði ég hitt.. þá stóð "Mundu að kjósa rétt.. D fyrir Drottinn" þannig að ég svaraði bara til baka.. "nei ég kýs f fyrir fólkið, framtíðina og fyrirheitnalandið" og fékk svo ekkert viturlegt til baka.. kannski ég sé búnað snúa þessari manneskju við.. og hún sé orðin f manneskja.. :D
Stina at 4:56 AM

Friday, May 09, 2003

Við keyrðum framhjá X-F skrifstofu áðan.. þar sem mig vantaði barmerki.. til þess að sýna fólki að ég væri búnað ákveða mig.. stoppuðum þar fyrir utan.. og sáum að það var verið að fara að loka.. þannig að ég öskra "áttu nokkuð til barmerki handa mér?!" hann alveg bíddu og svo "nei þau eru öll búin" svo ég sagði bara "Ok" og ætlaði að halda áfram.. þá öskrar annar kallinn þarna "viltu ekki bara gerast félagi!!" ég alveg.. "nahhh mig langaði bara í barmerki" samt sem áður.. mig langaði að gerast félagi.. en þeir voru bara að loka hurðinni.. ooog.. barmerkin búin.. it´s so sad.. :(
Afhverju eru ekki komnir fleiri Friday´s staðir? eins og þetta er nú vinsælt.. og sérstaklega á föstudögum.. fór þangað áðan til þess að halda uppá afmælið hennar Gyðu með smá svona útað borða dæmi.. en neiii.. var ekki bara rammstein röðin þarna.. og ekki nenntum við að standa í henni.. þannig að kvöld fór í það að rúnta og finna einhvern annan stað.. sem gekk ekkert voðalega vel..
Stina at 4:49 PM

Það sem er með því leiðinlegasta sem ég geri.. er að fara í strætó.. þó reyndar að það hafi verið svoldið seint hjá þeim að setja bækur á milli sætana svo fólk hafi eitthvað að gera.. en þá var þetta samt sem áður sniðugt.. lenti líka á sæti þar sem Galdra Stelpurnar bókin var.. hafði engan áhuga að lesa hana.. og akkúrat hinu megin við mig var Myndasyrpan.. eða.. Syrpan.. þarna disney dæmið.. mig langar mjög mikið færra rassinn minn þangað yfir.. en var bara of löt.. :)
Stina at 12:11 PM

Það eru gjörsamlega allir byrjaðir að blogga.. spurning um að hætta því bara núna.. þar sem allir eru að þessu.. og mar er ekki öðruvísi.. svo líka ef mar fer á djammið.. þá koma 3 mismunandi sögur á bloggunum.. þar sem ég er gjörn á því að ýkja.. Dipsí gjörn á því að segja þetta í litlu dráttum.. og Sæsi alveg díteils.. annars voru Sæsi og Dipsí (Gulla) að fá sér blogg líka.. og getiði séð þau hérna.. Sæsi og Dipsí (Gulla) en haldið ykkur bara við mitt.. :D Má ekki gleyma Bizzanun.. hann er með svona "hálfgert" blogg.. en mar þorir voðalega lítið að segja eitthvað um hann.. né "bloggið".. þar sem mar fær það þá bara mun betur til baka á síðunni (þess vegna kalla ég hann ekki Magna).. og þetta er hans síða.. Bizzi
Stina at 7:23 AM

Thursday, May 08, 2003

HAHA.. Þetta er betra að rís auglýsinginn.. :D


Stina at 7:24 PM

Snilldarauglýsing ---> og brjálaður krakki
Stina at 3:04 PM

Mar fær aldrei nóg af þessu minningargreinar"villum" :D

„Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvenfélag.”

„Kristín sigldi léttan byr í ólgusjó lífsbaráttunnar, heilsteypt og sterk. Nú hefur Kristín tekið á sig náðir.”

„Dauðinn sneiddi af systkinunum.”

„Enda lét hún ekki deigan síga fyrr en í rauðan dauðann.”

„Þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Þessi orð komu mér í hug er ég minnist afa. Hann var á 93. aldursári þegar hann lést.”

„Hann skrapp úr vinnu til að fara í þrekprófun í Hjartavernd, en kom þaðan liðið lík.”

„En jólaboðin hjá Betu breyttust í gegnum árin. Börnin gengu út hvert af öðru.”

„Helga lést svo þennan dag kl. 4. Helga hafði ætlað sér að eyða þessum degi í annað.”

„Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til að kveðja þennan heim.”

„Ágústa giftist ekki og eignaðist ekki börn í venjulegum skilningi þess orðs.”

„Drottinn minn gefðu dánum ró og hinum líkin sem lifa.”

„Hann giftist eftirlifandi eiginkonu sinni og átu þau tvö börn.”

„Gönguferðin þeirra varð styttri en menn vonuðu. Banvænn sjúkdómur beið hennar bak við stein og sló hana fljótt til jarðar.”

„Hún hafði það sterka skapgerð að smávegis rigningarsuddi setti hana ekki úr jafnvægi.”

„Hann var sannur Íslendingur og dó á 17. júní.”

„Það er löngu vitað mál að bestu og skemmtilegustu vinina eignast maður í lúðrasveitum.”

„Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstandendum skaðann.”

„Tók hann fráfall konu sinnar mjög nærri sér vegna barnanna.”

„Þar voru m.a. María Rögnvaldsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir frá folafæti. Enda þótt María væri þá hálfslæm í fæti lék hún við hvern sinn fingur.”

„Og má segja að ekki setti hún svo skál með tvíbökum á borð að ekki stafaði af því mýkt og listfengi.”

„Orð þessi eru skrifuð til að flytja Sveini (líkinu) kveðju og þakkir frá tengdafólki hans og ekki síður frá tengdamóður hans, þótt nú nálgist 20. árið frá fráfalli hennar.”

„Hún bjó manni sínum gott heimili og ól honum 9 hraust börn, þar af tvö á sjómannadaginn.”

„Á þessum fjölbreytta lífsferli sínum kynntist Guðjón mörgum mönnum af ýmsum þjóðernum, þ.á.m. Indíánum og Kínverjum. Hann lærði tungumál þeirra að meira eða minna leyti, einkum þó ensku og Norðurlandamálin.”

Stina at 12:04 PM

Ég hef tekið eftir því að það er voðalega lítið talað um Olgu Færseth núna.. eða bara frá því að hún var valin
Besti leikmaður símadeildar kvenna 2001 valin (var með tveimur n-um en það er bara villa hjá DV) af leikmönnum deildarinnar.
Markadrottning Símadeildar kvenna 2001 og handhafi gullskósins.
Besti leikmaður Símadeildar kvenna 2001 hjá DV-Sport.
Besti leikmaður fyrri umferðar Símadeildar kvenna 2001 hjá Dv-Sport.
Besti leikmaður seinni umferðar Símadeildar kvenna 2001 hjá Dv-Sport
.
Hver er Olga Færseth núna? og er hin gellan búnað koma sér framfyrir Olgu.. búnað stela allri athyglinni af henni? HVAÐ ER AÐ ÍSLANDI?!
Stina at 9:37 AM

Wednesday, May 07, 2003

Alltaf gerast fleiri og fleiri hlutir sem halda mig við tölvuna.. fyrsta lagi ættleiddi ég mér mörgæsina Árna Johnsen.. gleymdi honum reyndar í viku.. þannig að hann dó næstum því.. en ég hef bætt honum það upp með því að gefa honum fullt af pítsu.. og neocola.. :) svo varð ég gerð að Stjórnanda.. á www.koddinn.com sem er netspjall.. og hef ég fengið fullt af velkomin skilaboðum til mín.. en ég vil samt sem áður endurtaka þakkar ræðuna mína sem ég hélt í dag á spjallinu.. svona til að koma þessu öllu til skila..
" takk takk.. *hneigir sig*
ég vil þakka mömmu fyrir að hafa keypt tölvu handa mér.. og pabba fyrir að banna mér að vera lengi á netinu sem ýtti mér útí það að verða lengur en hann leyfði.. bróðir mínum fyrir að kenna mér á internet explorer.. og Ofi fyrir að hafa skrifað í gestabókina mína.. svo ég endaði á þessu spjalli.. without you guys i would be nothing! takk.. :) "

Ef þið eruð í vafa ennþá um hvað þið eigið að kjósa.. setjið þá x við f.. svona.. í stað þess að skila auðu.. og hugsa til mín.. ég myndi setja x við f fyrir ykkur.. :) ég vil fá texta á íslenskt sjónvarpsefni..!!
Stina at 6:38 PM

Ég fékk senda 2 pósta frá flokkum í gær.. og var það frá sjálfstæðisflokknum og framsóknarflokknum.. og mega þeir í framsókn eiga það.. að auglýsingarnar og það sem þeir senda er alveg massíft fyndið.. það fylgdi tölvuleikur með póstinum frá framsókn.. og var það kappakstursbílaleikur.. þar sem allir flokkarnir voru í kappakstri á velferðamálabraut.. nýtt afl.. komst ekkert áfram.. meðan mar sjálfur var framsókn og brunaði þessa 4 hringi á undan öllum.. sjálfstæðisflokkurinn var aðeins 2 hringum á eftir.. samfylkinginn var svona svipað og sjálfstæðisflokkurinn... frjálslynd þremur.. vinstri grænir.. aðeins á eftir þeim.. og nýtt afl komst ekki einu sinni yfir byrjunalínuna.. djöfull dó ég úr hlátri.. svo þegar mar vann þetta.. þá hoppaði upp gluggi.. "Framsóknarflokkurinn vann Velferðarmálin að sjálfsögðu!" :)
Stina at 8:27 AM

Á mar að nota föstudaginn í það að drekka á kostnað flokkana? er allavega komin með einn flokk sem er með teiti á föst.. á hverfisbarnum..
"Kosningapartý á föstudag
Föstudaginn 9. maí halda ungir sjálfstæðismenn kosningapartý á Hverfisbarnum. Gleðin hefst kl. 21, frambjóðendur verða á svæðinu og Gullfoss og Geysir spila frá miðnætti. Léttar veitingar verða í boði til að byrja með og allir eru velkomnir!"

Svo tekur mar bara röltið.. :D


Stina at 6:00 AM

Tuesday, May 06, 2003

Btw niðurhlaðið þessu msn ---> Dopemsn :)
Stina at 12:26 PM

Það var gamall karl sem hló af mér í vinnunni í dag.. hann byrjaði svona að tala eitthvað aðeins við mig.. hefur pottþétt séð það á mér að ég væri voðalega skemmtileg.. en byrjaði samt umræðuna á því að spurja mig að því hvort ég hefði aldur til að kjósa.. já náttla.. sagði bara jáh.. þannig að hann spurði mig hvort ég væri búnað ákveða þetta.. og búnað skoða þá þetta allt hjá öllum flokkunum.. ég sagði bara við að hann að ég hafi farið í gegnum heimasíðurnar hjá þeim öllum og lesið þetta.. og væri búnað ákveða mig.. þá bjóst hann við því að ég væri að fara að kjósa eitthvað af þessum stóru flokkum.. eða.. samfylkinguna og sjálfstæðisflokkinn.. þannig að ég sagði "nei ég ætla nú bara að kjósa frjálslynda flokkinn" eftir þessa setningu.. bjóst ég við því að hann yrði ekki eldri.. að ég þyrfti bara að fara að gera mouth to mouth við hann þarna á gólfinu.. aldrei verið hlegið jafn mikið af mér í vinnunni.. nema þegar ég var með fastan límmiða aftan á mér sem stóð á 50%afsláttur.. svo endaði hann með því að segja.. "þeir koma áreiðinlega engum manni inn" og labbaði svo hlæjandi út.. þannig að ég stóð eftir.. og táraðist.. :(
Stina at 12:24 PM

Monday, May 05, 2003

Ég hef komist að því að ég þarf virkilega að láta pumpa úr mér eyrnamerginn.. í dag þegar ég var að fara að fá mér vatn inní eldhúsi.. öskraði systir mín að mér "Gefðu mér appelsín" og fannst hún vera að segja "Gefðu mér vatn Kristín" og er þetta reyndar mjög líkt.. þannig að ég labbaði fram með vatn handa henni.. og fékk ég bara setninguna "uhhmm takk" fattaði náttla ekkert..
Svo tróð ég mér inní umræðu á laug.. þar sem var verið að tala um einhvern Gumma.. og fannst mér endilega eins manneskjan væri að segja Bími.. og er það ekkert neitt voðalega líkt.. :) margt meira sem ég hef heyrt vitlaust og ætla ekkert að vera að segja.. ;)
Stina at 4:12 PM

Skrýtið.. það hefur alltaf verið fjalla um það ef íslensk manneskja birtist eitthvað í bíómyndum eða auglýsingum eða eitthvað.. en einhvern veginn hefur fólk alveg horft framhjá Berglindi Ólafsdóttir.. fyrst var minnst á það þegar hún var fylgikona á sviðinu á Óskarinum.. en núna hefur hún t.d. leikið í Animal myndinni.. var þar gellan í greifingjarauglýsingunni.. og tók ég eftir því núna að hún lék í Off Centre þætti á Stöð2 var þar einhver súpermódel gella.. og hefur hún birst í mun fleiri myndum.. kannski vegna þess að þetta er orðið of mikið.. hún farin að koma of mikið í sviðsljósið þarna úti.. að fólk nennir ekkert að pæla í þessu lengur.. eða.. þá vegna þess að hún var ekkert voðalega mikið í umfjöllun hérna á landinu fyrr en hún kom á Óskarinum.. en Ingvar E. Sigurðsson byrjaði náttla að leika í mörgum myndum hérna.. og svo birtist í þessari kafbátamynd.. og er að fara að leika í einhverjum þáttum.. þetta finnst mér bara skrýtið.. :)


Stina at 11:43 AM

Jæja.. ekki gat ég haft lengur hitt commentkerfið.. þarf að byrja að borga eftir 15 daga.. or someth.. :/

Eitt sem mér finnst fáranlegt.. það eru sígarettupásurnar í vinnunni.. ef þú reykir ekki.. þá ertu ekki að fá neina pásu.. en ef þú reykir.. þá máttu skokka út að reykja alveg uppí fimm sinnum á dag.. spurning hvort mar ætti að byrja að reykja bara svo mar geti verið með í að fara í svona pásur.. eða vinnufólkið fari að gera þetta aðeins sanngjarnara fyrir fólk sem reykir ekki.. fyrir utan að það stendur alltaf á umsóknum.. "reykiru?" er það til að fá að vita hvort þessi manneskja þurfi þessar pásur eða ekki?
Stina at 8:58 AM

Sunday, May 04, 2003

Gleymdi að hafa það inní að Kalli hafi verið með okkur í gær.. og að sjálfsögðu náði hann til að toppa kvöldið með því að brjóta klósettið hans Geira.. ég var farin þá.. mar hefði líka dáið úr hlátri ef mar hefði verið þarna.. HVERNIG TEKST MANNESKJU AÐ BRJÓTA KLÓSETT?
Stina at 12:03 PM

Jæja.. mar hefur ekkert látið heyra í sér þessa helgi.. þar sem hún fór bara í að djamma og vinna.. fór á föstudeginum á Skímó á Gauknum.. með Gullu, Geira, Sæsa, Steina og Jónu.. það var mjög skemmtilegt.. þó það toppi eiginlega ekkert Á móti Sól djammið á miðvikudeginum.. en annars Skímó klikkuðu aðeins.. komu í húsið um eitt leytið og byrjuðu að spila 2.. hlé svo í langan tíma.. spiluðu aftur í smá stund.. og svo var þetta búið.. en mar skemmti sér samt sem áður alveg mjög vel.. og var líka orðin vel fullur þegar mar labbaði útúr þessum stað.. komin heim um sjö leytið.. og drapst þá.. síðan var vaknað í vinnuna kl 9.. og unnið til 16.. farið heim.. lagt sig í klukkutíma.. og farið aftur á djammið.. og þá sátum við heima hjá Geira.. ég, Gulla og Sæsi.. og drakk ég þá bara til 3.. og fór svo heim að sofa.. og vaknaði svo 9 í fyrramálið í vinnunna.. Svona var helgin mín.. annars í dag var afmælið hjá Margréti Lind og kom mar beint í það þegar mar kom heim úr vinnunni.. frábært að hafa fullt af litlum öskrandi krökkum í kringum sig..
En það eru komnar fleiri hljómsveitir á Hróarskeldu.. og er ég orðin verulega sátt.. og eru það.. Zwan, Stone Sour, The Cardigans, Massive Attack, Murderdolls og NAS.. svo var ég að fatta það að ég verð þarna úti í 2 daga eftir hátíðina.. en er ekkert búnað pæla í því hvar ég eigi að sofa þá.. :) og er ég búnað finna setningu sem ég ætla að hafa á bolnum mínum sem ég geri áður en ég fer út.. "Mamma styrkir djammið mitt" :D
Stina at 11:34 AM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs