|
| home | Myndir | email | msn | designs | blogger | |||||||
Archives 10/20/2002 - 10/27/2002 10/27/2002 - 11/03/2002 11/03/2002 - 11/10/2002 11/10/2002 - 11/17/2002 11/17/2002 - 11/24/2002 11/24/2002 - 12/01/2002 12/01/2002 - 12/08/2002 12/08/2002 - 12/15/2002 12/15/2002 - 12/22/2002 12/22/2002 - 12/29/2002 12/29/2002 - 01/05/2003 01/05/2003 - 01/12/2003 01/12/2003 - 01/19/2003 01/19/2003 - 01/26/2003 01/26/2003 - 02/02/2003 02/02/2003 - 02/09/2003 02/09/2003 - 02/16/2003 02/16/2003 - 02/23/2003 02/23/2003 - 03/02/2003 03/02/2003 - 03/09/2003 03/09/2003 - 03/16/2003 03/16/2003 - 03/23/2003 03/23/2003 - 03/30/2003 03/30/2003 - 04/06/2003 04/06/2003 - 04/13/2003 04/13/2003 - 04/20/2003 04/20/2003 - 04/27/2003 04/27/2003 - 05/04/2003 05/04/2003 - 05/11/2003 05/11/2003 - 05/18/2003 05/18/2003 - 05/25/2003 05/25/2003 - 06/01/2003 06/01/2003 - 06/08/2003 06/08/2003 - 06/15/2003 06/15/2003 - 06/22/2003 06/22/2003 - 06/29/2003 06/29/2003 - 07/06/2003 08/03/2003 - 08/10/2003 |
Að sofna með tyggjó uppí sér eftir djamm.. er ekkert voðalega gáfulegt.. allavega tók mig hálftíma að taka síman minn upp í morgun.. og þegar ég loks náði honum upp þá festist ég við hann.. meðan höndin mín var föst við rúmið.. ég var öll útí tyggjó-i..
Jæja.. ég var að fá í póstinn bréf frá Vinstri Grænum.. þar sem það kom bara heilt fréttablað.. plús blýantur.. og á þessum blýant stendur.. "Ég kýs Réttlæti X-U" að fá þetta bréf frá þeim.. með þessum blýant.. var ekkert að ýta undir það að ég myndi kjósa þá.. valið var á milli þeirra og Frjálslynda Flokksins í byrjun.. eða ég er ætla bara að halda mig við Frjálslynda Flokkinn.. og var það þessi setning sem heillaði mig mjög mikið í stefnu þeirra..
Alltaf fréttir mar meira og meira af Aaron úr Bachelor.. jæja.. ég var búnað heyra það að eftir að hann hætti með Helene.. þá hafi hann farið að hafa samband við Gwen og hina.. man núna ekki hvað hún heitir.. en það er bull.. hann byrjaði að deita gellu.. núna í Janúar.. og sú gella er Audra Lynn og hefur hún setið t.d. fyrir í Playboy og eru myndir af henni á netinu.. en honum er alveg sama.. segir að það "turns him on" þar sem hún sé með svo flottan líkama.. að sjálfsögðu ætti hún að sýna hann.. og það sem flestum.. þannig að honum er alveg sama þótt það séu myndir af henni naktri á netinu.. en annars er ekkert að marka þennan gaur.. hann fór nú í Bachelor.. þannig að fjölskyldan hans.. fær ekkert meira sjokk útaf honum.. býst ég við :)
Ég snéri gjörsamlega sólahringnum mínum við með þessu Dj Sammy djammi.. en ef ég hefði ekki gert það.. þá hefði ég aldrei ættleitt mörgæsina ÁrnaJohnsen á neopets
Ég rakst á myndina sem var á glasinu sem ég gaf Sæsa í afmælisgjöf.. þannig að mar sýnir ykkur hana..
Survivor í kvöld var nokkuð gott.. ég er sátt við það að þau skyldu reka þennan Alex gaur í burtu.. og taka svo næst Heidi.. og svo Jennu.. þetta er allt pakk sem átti að vera löngu farið.. leyfa Butch eða Christy að vinna þetta..
Sjaldan hef ég verið jafn þunn og í dag.. vaknaði kl 12 til að fara i vörutalningu.. og þar var bara hlegið af mér.. þar sem ég var ennþá ekkert smá full.. og hafði víst hringt niðrí vinnu þegar ég kom heim af djamminu.. sem betur fer man ég ekkert eftir því hvað ég var að bulla.. svo var bara eytt deginum í svefn.. og þegar ég vaknaði.. hélt ég bókstaflega að ég væri að deyja.. en allt kom fyrir ekki.. ég er ennþá hérna.. :) en ég allavega sleppti því að fara á djammið í kvöld.. bara svona til að eyða einum frídegi ekki þunn.. þannig að kvöldið fór í það.. þar að segja eftir að ég vaknaði.. að horfa á vídjó.. þar sem mynd með Jennifer Lopez var víst leigð.. og var þetta nokkuð góð mynd.. má litla stelpan sem lék í henni.. fá óskarinn fyrir þetta.. :D svo eftir það.. fór ég að skoða heimasiður.. hjá frjálslynda flokknum.. og vinstri grænum.. og er ég eiginlega orðin bara pottþétt á því að kjósa X-F heillaði mig mun meira..
Mar skellti sér á Dj Sammy í gær.. svona af því að mar fékk frímiða og þetta var snilld.. fínt að vera þarna á Broadway.. ennþá betra að vera á Astró.. fékk VIP miðan hjá Guðnýju systir.. settist þarna upp.. og það fyrsta sem tekur á móti mér er captein morgan flaska þannig að ég sturtaði því í mig.. :) og blandaði geði við allt þetta "fræga" fólk.. svo endaði mar með því að skella sér inná hótelherbergi með þessu liði.. massíft stuð.. þar tók á móti manni blá smirnoff flaska.. þannig að mar sat bara allt kvöldið og drakkt frítt áfengi.. svo endaði þetta í einhverju dæmi.. ég að dissa einhvern útlenskan karl.. hann að dissa mig á móti.. þannig að ég sparka í hann.. og hann rýkur út.. man ekkert eftir þessu.. en er stolt af þessu :D dont diss me :) nei annars var þetta eitthvað bara bull.. man hvortið er ekkert eftir þessu.. en skemmti mér alveg konunglega.. mæli með að allir fari á næsta svona djamm..
|
Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..
| ||||||