|
| home | Myndir | email | msn | designs | blogger | |||||||
Archives 10/20/2002 - 10/27/2002 10/27/2002 - 11/03/2002 11/03/2002 - 11/10/2002 11/10/2002 - 11/17/2002 11/17/2002 - 11/24/2002 11/24/2002 - 12/01/2002 12/01/2002 - 12/08/2002 12/08/2002 - 12/15/2002 12/15/2002 - 12/22/2002 12/22/2002 - 12/29/2002 12/29/2002 - 01/05/2003 01/05/2003 - 01/12/2003 01/12/2003 - 01/19/2003 01/19/2003 - 01/26/2003 01/26/2003 - 02/02/2003 02/02/2003 - 02/09/2003 02/09/2003 - 02/16/2003 02/16/2003 - 02/23/2003 02/23/2003 - 03/02/2003 03/02/2003 - 03/09/2003 03/09/2003 - 03/16/2003 03/16/2003 - 03/23/2003 03/23/2003 - 03/30/2003 03/30/2003 - 04/06/2003 04/06/2003 - 04/13/2003 04/13/2003 - 04/20/2003 04/20/2003 - 04/27/2003 04/27/2003 - 05/04/2003 05/04/2003 - 05/11/2003 05/11/2003 - 05/18/2003 05/18/2003 - 05/25/2003 05/25/2003 - 06/01/2003 06/01/2003 - 06/08/2003 06/08/2003 - 06/15/2003 06/15/2003 - 06/22/2003 06/22/2003 - 06/29/2003 06/29/2003 - 07/06/2003 08/03/2003 - 08/10/2003 |
Útvörp sem þarf að stilla á hliðinni.. með svona rauðu dæmi sem þarf að lenda á útvarpstöðinni.. er alveg ónýtt fyrir mér.. ég hitti aldrei á rétta stöð.. og í eitt skiptið hélt ég að ég væri að hlusta á það sem ég var búnað reyna að finna lengi.. þangað til einhver labbaði inn.. og tók eftir því að þetta var stöðin akkúrat lengst hinu megin við.. finnst að það ætti að taka þetta úr umferð.. eða gætu alveg eins farið að koma með handsnúnu útvörpin aftur.. eða þá bara fólkið hérna heima.. að fara að fjárfesta í aðeins tæknilegri útvörp :)
Ég hafði ekkert að gera núna í kvöld.. þar sem ég komst ekki niðrí bæ til að kíkja á Astró djammið sem þar var.. þannig að ég skoðaði bara Private.is auglýsinguna mína og fann svona nokkrar tilkynningar sem ég hef sett inn.. sem mig langaði aðeins að sýna ykkur.. allavega þá tilkynningu sem ég er að segja við fólk að það sé alltílæi að vera háður netinu
Mar nældi sér í miða á Dj Sammy í dag.. með því að gera sig af fífli í beinni á 895.. en hey.. ég græddi þó allavega miðana sem mig langaði í.. þannig að djammið sem átti ekki verða þessa helgi verður.. þó mar eigi ekki bót fyrir boruna á sér.. annars var það eitt sem mér fannst svoldið fáranlegt með þessa miða sem þeir voru að gefa þarna.. þeir voru að gefa VIP miða.. semsagt fara í limma, út að borða, frían captain morgan allt kvöldið og hanga með Dj Sammy fólkinu.. og þann miða unnu systir mín og vinkona hennar..saman.. þó þeir vissu ekkert af því.. vegna þess að þær að sjálfsögðu héldu að þetta væri miði fyrir 2.. en.. svo kom það í ljós að þetta var bara fyrir einn.. semsagt ein manneskja á að fara út að borða.. í limma.. ein.. skemmta sér ein.. getur vel verið að þetta sé með Dj Sammy fólkinu.. en samt.. að þurfa að fara einn.. :)
Ég tók eftir því þegar ég mætti í vinnuna í morgun.. að fólkið sem ég vinn með hefur enga trú á því að ég geti vaknað snemma án erfiðleika.. það fyrsta sem ég fékk að heyra þegar ég kom "hvernig gekk að vakna" ég svaraði bara "alveg fínt.. vaknaði bara kl sjö í morgun" þá heyri ég öskrað "YEAH RIGHT!"
Það sem ég gleymdi að minnast á, var að hún Gulla (dipsy) ákvað að vera rosalega prófesínal í því hvernig mar drekkur tequila.. eða með hvaða fylgihlutum.. það sem hún kom með var.. appelsína og bökunarkakó.. og ég get svo svarið það.. að þetta bökunarkakó var ÓGEÐSLEGT.. hvað þá bara að hafa nesquick bæði var þetta ógeðslega vont.. en Gulla fær ALDREI aftur að ákveða hvað verður með tequilanu mínu.. ekki fyrst hún mallar einhverju kjekóttu bökunarkakó-i ofan á appelsinuna mína.. :)
Að hitta Spánverja sem er upsest við ljóst hár.. er rosalegt.. allavega skipti það reyndar mig engu máli þar sem ég litaði mitt brúnt.. en ég fór með Gulla (dipsy) á djammið.. í endanum á því djammi, rákumst við á Spánverja sem lét ekki Gullu vera.. og eitthvað var hún að röfla um að hann hafi elt okkur þegar við settumst uppí taxann.. en ég var ekkert að hlusta.. fyrir utan að hann kunni ekki einu sinni að tala ensku.. röflaði eitthvað á spænsku sem við skildum ekki.. og er ég nokkurn veginn bara fegin.. langar ekkert að vita hvað kom útúr honum.. :)
Í nótt uppgötvaði ég það...
Nei nei.. er ekki bara minnst á Íslandsferð Chelsea Clinton í National Enquiere.. og það sem mér fannst fyndnast við þessa grein.. að það var tekið fram að hún hafi þurft að standa í biðröð fyrir utan Hverfisbarinn í klukkutíma.. eða eins og þetta var orðað "Chelsea went to the hot bar in Iceland called Hverfisbarinn and had to wait there outside to get in for an hour" veri hún þó allavega fegin að það var ekki minnst á það að það hafi ekki verið heimild inná kortinu hennar í Pennanum :D
Núna er kl orðin sjö.. og ég er búnað vera að vesenast í síðunni minni í alla nótt.. nennti ekkert voðalega mikið að fara að sofa eftir að hafa horft á Maður eins og ég var svona í alveg hálftíma að melta endinn.. svo endaði ég bara með því að snúa mér að einhverju öðru.. endirinn.. var það lítið að meika sense fyrir mér..
Meira að segja kettir eru farnir að blogga.. hérna fann ég síðu sem Kötturinn Erik á.. svoldið lélegur að blogga.. en hey.. gaman að lesa þetta.. :)
Það sem fólk ætti að taka sig saman að gera núna.. er að texta allar íslenskar myndir.. það kemur alveg mjög oft fyrir að mar er að horfa á íslenska mynd.. en skilur samt sem áður ekkert hvað er verið að segja.. kannski vegna þess að það er alveg mjög oft lélegt hljóðið í leikurunum, tala lágt og óskýrt.. þess vegna að sjálfsögðu ætti þetta að vera textað.. eins og þegar mar er að horfa á myndirnar á RÚV.. þá er hægt ða fá texta í gegnum textavarpið.. en samt sem áður er hann oft lélegur.. þýtt bara sumt.. og dettur mjög mikið út.. þannig að í næstu mótmælagöngu.. verð ég fremst með skilti sem stendur á "TEXTUM ALLT ÍSLENSKT!!"
Held að stefnan verði tekin á Reading festival í sumar.. allavega eru komnar mjög flottar hljómsveitir í þann lista.. t.d. System of a down, Metallica, Linkin Park, Blink 182, The White Stripes, Placebo, Beck, The Streets, svo kemur hún Courtney Love.. jæja.. flott væri það að sjá þetta.. :)
ég rakst á eina setningu á netinu.. sem einhver hefur greinilega verið svo gáfaður að spurja að á irkinu.. eeeeða.. bara reynt að vera fyndin og það tókst :
|
Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..
| ||||||