|
| home | Myndir | email | msn | designs | blogger | |||||||
Archives 10/20/2002 - 10/27/2002 10/27/2002 - 11/03/2002 11/03/2002 - 11/10/2002 11/10/2002 - 11/17/2002 11/17/2002 - 11/24/2002 11/24/2002 - 12/01/2002 12/01/2002 - 12/08/2002 12/08/2002 - 12/15/2002 12/15/2002 - 12/22/2002 12/22/2002 - 12/29/2002 12/29/2002 - 01/05/2003 01/05/2003 - 01/12/2003 01/12/2003 - 01/19/2003 01/19/2003 - 01/26/2003 01/26/2003 - 02/02/2003 02/02/2003 - 02/09/2003 02/09/2003 - 02/16/2003 02/16/2003 - 02/23/2003 02/23/2003 - 03/02/2003 03/02/2003 - 03/09/2003 03/09/2003 - 03/16/2003 03/16/2003 - 03/23/2003 03/23/2003 - 03/30/2003 03/30/2003 - 04/06/2003 04/06/2003 - 04/13/2003 04/13/2003 - 04/20/2003 04/20/2003 - 04/27/2003 04/27/2003 - 05/04/2003 05/04/2003 - 05/11/2003 05/11/2003 - 05/18/2003 05/18/2003 - 05/25/2003 05/25/2003 - 06/01/2003 06/01/2003 - 06/08/2003 06/08/2003 - 06/15/2003 06/15/2003 - 06/22/2003 06/22/2003 - 06/29/2003 06/29/2003 - 07/06/2003 08/03/2003 - 08/10/2003 |
Ætli það sé einhver keppni í gangi sem ég veit um ekki um.. keppni hver er seinastur að kaupa sér páskaegg.. allavega þá kom manneskja inn kortér yfir 11.. til að kaupa páskaegg handa tveimur börnum sínum.. og bara eitt páskaegg eftir.. skemmtilegt fyrir þessa krakka að vakna á morgun.. og fá ekkert páskaegg.. koma í skólann þar sem allir eru að metast um það hver fékk stærsta eggið.. en þeir fengu ekki neitt.. svona er þetta þegar fólk er að draga þetta svona að kaupa páskaegg.. það bitnar bara á krökkunum.. samt sem áður byrjuðum við að selja páskaegg fyrir tveimur vikum síðan.. jæja.. svo er sumt fólk bara.. en þó of mikið af fólki.. :)
Ég nenni ekki að skrifa akkúrat núna.. þar sem það er föstudagur.. og ég ætti með réttu að vera byrjuð að drekka.. en finn ekkert fólk.. skrifa á morgun.. en skoðið þetta bara á meðan www.bastard.com
Þegar ég vaknaði í morgun.. þá fann ég ekki lykt af pönnslum ég fann lykt af brunnslum.. Halldór frændi hefur áreiðinlega verið að sýna fimi sína í pönnslugerð.. og endað með því að brenna þónokkuð af þeim.. en samt sem áður óþæginlegt þegar brunnslu lyktin læðist undir dyrakarminn og böggar mann þegar mar er sofandi.. mar verður eitthvað svo pirraður í maganum.. en núna ætla ég skella mér í fyrstu ferminguna sem ég hef farið í síðan ég fermist.. og byrjar þetta allt núna.. 13 systkynabörn.. 13 FERMINGAR.. 13 GJAFIR!! fokk!
Mar tekur meira eftir því hve sorglega vini mar á þegar þeir eru farnir að skrifa í gestabækur á "frægum" hljómsveitum á Íslandi.. eins og sést á forsíðunni hjá
Það er stórhættulegt á þessum tíma að fara að gefa öndunum brauð.. þó svo reyndar mánuði áður var það mun hættulegra.. ég ákvað að fara að gefa öndunum brauð í gær.. þar sem ég hafði ekkert að gera.. gat valið milli þess að vera í tölvunni.. eða gefa öndunum brauð.. og valdi ég bara það seinna.. svo þegar mar kom niðrá tjörn.. tók hólgóma önd á móti manni.. mest allan tíman stóð hún nálægt manni svo hún myndi pottþétt fá meira brauð en hinir.. og reyndar vorkenndi maður henni svo mikið fyrir að vera hólgóma að mar henti hálfum brauðpoka í hana.. en annars í endanum á brauðgefinu.. þá voru tvær endur farnar næstum því að éta mann. þar sem mar var ekki nógu snöggur að gefa þeim brauðið.. svo þegar brauðið var búið.. þá endaði mar með því að hlaupa í burtu..!
Núna síðan ég skrifa þetta í sambandi við Jackass liði.. hafa um 193 manneskjur komið inná síðuna mína.. en samt sem áður enginn sagt hvað þeim finnst um þetta.. verið að fá svona gaura til landsins.. sem gera allt til að fá athygli.. þannig að sjálfsögðu var hægt að búast við að eitthvað myndi gerast.. þó kannski ekki beint að þeir myndu berja stelpu.. og hver veit hvað annað hefur skeð.. ekki er ég fyrsta manneskjan sem fréttir svona hluti.. :)
Jackass show sem var bannað börnum innan 16 ára.. og svo.. sem var
Að vakna við það að fólk er rífast um það hvort Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri grænir eða Frjálslyndi flokkurinn sé betri.. er ekki neitt voðalega gott.. og um leið og ég labba fram er spurt mig hvað ég ætla að kjósa.. þar sem ég var alveg rosalega pirruð að vakna við þetta.. þá sagði ég "ÞAÐ VEIT ÉG EKKERT!! ÞAÐ ER EKKERT GAMAN AÐ VAKNA VIÐ SVONA UMRÆÐU!!" svo.. fór ég inní herbergi og andaði aðeins.. og labbaði fram aftur.. og svaraði.. "æji ég var að hugsa um vinstri græna" og þá byrjaði allt.. fólkið byrjaði að bjóða mér gull og græna skóga.. til að kjósa "rétt".. mér var boðin bjórkassi ef ég myndi kjósa Sjálfstæðisflokkinn.. Bláa Smirnoff flösku úr fríhöfninni.. ef ég myndi kjósa eitthvað annað en Sjálfstæðisflokkinn.. núna er ég bara að hugsa hvað ég eigi að velja.. :)
Ég horfði á Djúpu Laugina aftur í kvöld.. þar sem Jackass voru þar.. og langaði mig mest að sjá bara hvernig þýðinginn var í byrjuninni þar sem ég missti af smá hluta.. en.. gaurinn númer eitt.. lék sig alltaf svo.. útúr heiminu.. lét alltaf eins og hann tæki ekki eftir því að það væri verið að tala við hann.. og að hann væri númer eitt.. og það sem hann sagði oftast þegar hann fattaði það var.. "oh i was just thinking about sex = ég var bara að hugsa um hestamennsku" svo sagði Steve O.. þegar hann var búnað fá að vita að þetta var allt þýtt yfir á Íslensku.. "how do you think they translate when we say fucking in the ass = hvernig ætli það sé þýtt okkar ástir og örlög" fyrstu fimm mínúturnar gat mar hlegið af þeim.. næstu fimmtíu og fimm mínúturnar hló mar af textanum.. en þó þeir hafi farið rosalega í taugarnar á mér þarna.. þá fóru ungfrú Ísland.is gellurnar ennþá meiri í taugarnar á mér.. það hefði alveg mátt velja eitthvað annað en þær til að koma fram og spyrja þá.. þó ekki Betu Rokk eins og einhver sagði á huga.is það á bara að koma henni í burtu frá þessu sviðsljósi.. hún er sú sem er í þessum hóp kvenna sem *ritskoðað* sig þegar "frægt" fólk kemur til landsins.. megi hún bara sitja heima hjá sér og borða lambakjöt.. :)
Birgitta Haukdal komin með pólska fanclub heimasíðu og ekki bara það.. heldur er líka komin Iceland Fan-Central.. allt er nú til.. spurning hvort við þurfum að fara að rýma til á næsta ári? svo við getum haldið Júróvisjón keppni.. og þá eru fleiri útlendingar sem mar getur reynt að hössla.. þar sem það virðist vera það eina sem ég fæ.. ef ég fæ það.. :D
Jæja.. spurning hvort þeir eru að fara að endursýna Djúpu Laugar þættinum sem Jackass var .. í kvöld.. eða hvort það komi gamli.. ef þetta er Jackass þátturinn horfið þá á textann.. :D
Núna er allavega lúkkið orðið aðeins öðruvísi á þessari síðu.. hvernig finnst ykkur? þó svo mar fái ofbirtu í augun þegar mar er að klikka á commentkerfið.. en það er ekki eins og það gerist eitthvað oft hjá ykkur.. ;)
Núna í augnablikinu.. er ég að reyna að breyta síðunni aðeins.. kom allavega með á hliðina "Useless Fact Of The Day" ooog.. ég er að niðurhlaða Djúpu Laugar þættinum með Jackass gaurunum.. bara svo mest til að sjá textan.. þar sem ég einhvern veginn fattaði ekki að þetta væri textað svona brilliant.. ennþá að melta ecstasy = sólhattur
|
Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..
| ||||||