creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, April 12, 2003

Þetta eru snilldarþættir.. eða brot eða eitthvað.. Happy Tree Friends :)
Stina at 10:07 PM

Flott djamm í gær.. mar svona rétt skreið heim til sín um níuleytið.. þegar sumir ákváðu að drepast þegar mar var í heimsókn.. rétt er það að kvennfólk taki við sér þegar "frægir" útlendingar eru í heimsókn.. fór á astró í gær.. vissi reyndar ekkert að jackass gaurarnir væru þarna.. en það kom í ljós þegar klukkan var orðin 2.. þá endaði allt þetta Jackass lið.. þarna niðri.. af því að þeirra tími í VIP herberginu... hefur áreiðinlega verið búinn.. :) en.. þetta var fínt djamm.. þó mar hafi ekkert mikið náð athygli hjá fólkinu sem mar sat við borðið með.. af því þeirra augu beindust bara á Jackass
Æji skrifa meira á eftir.. :)
Stina at 2:11 PM

Friday, April 11, 2003

Rakst á snilldarbrandara á netinu..
Einu sinni var lítið bláber að hágráta fyrir utan mc´donalds og
þá stoppaði maður hjá því og spurði: hvað er að?
þá sagði vínberið: ég kann ekki að hjóla..


Annars byrjaði föstudagurinn minn kl fimm í nótt.. bara svo spennt yfir því að það sé komin helgi.. ætla að fara að drífa mig í ríkið og svona.. til að geta drukkið úr mér allt vit í kvöld.. bara spurning hvað mar á að gera.. :) ætla allavega að leggjast niður og glenna mig fyrir framan alla innganga á skemmtistöðum bæjarins.. FULLT AF ÚTLENDINGUM KOMNIR!! :)
Stina at 3:01 AM

Rut af http://rut.bloggari.is reddaði mér Muse laginu úr söngvakeppni sjónvarpsins.. sem mér fannst vera algjör snilld.. náðu þessu svo vel.. þannig að ég ætla að leyfa ykkur að ná í það líka.. Sigþór Árnason - Vöðvasafn
Stina at 12:16 AM

Thursday, April 10, 2003

Ég heiti Kristín Eva.. hef áhuga á sjaldgæfum töppum, frímerkjum og hestum.. ég er DV.. :)
Stina at 5:17 PM

Fékk fleiri mail frá Poppkort.is var bara byrjuð að mailast við konuna sem vinnur þarna.. þurfti að láta hana útskýra allt fyrir mér.. meina.. ég á nú hvort eð er eftir að hitta hana meira þegar ég vinn.. :)
Hitti einn frægan Íslending í vinnunni áðan.. Örn Árnason.. og hann elska ég að afgreiða.. átti reyndar svoldið erfitt með það núna.. þar sem ég sá hann áður en hann labbaði á kassann minn.. og sá alltaf Núma úr spaugstofunni í honum.. þannig að ég einbeitti mér meira að því að hlæja ekki en að afgreiða hann..
Næst er það að reyna að komast sem áhorfandi í djúpu laugina.. þar sem mar hefur ekki efni á að fara á Jackass.. né Scooter.. Scooter reyndar butt dýr.. 3900kr.. þetta er svipað og 3kippur af bjór.. og þá frekar kýs ég þær.. :)
Stina at 5:00 PM

Ef ykkur langar að tala við mig.. þá er hægt að skrá sig inná spjallborðið hjá Ofi/a og tala við mig á spjallinu að neðan.. :) eða bara sleppa því.. líka hægt að tala um fullt af skemmtilegum hlutum á þessu borði.. t.d. ÞJÓÐHÁTÍÐ I EYJUM.. og Árna Johnsen.. :)
Stina at 9:24 AM

Wednesday, April 09, 2003

Ég náði hérna til að fá mér lagið sem VMA var með í söngvakeppni framhaldsskólana.. nokkuð vel að fíla þetta lag.. þess vegna ætla ég að leyfa ykkur að niðurhlaða því líka.. Elska þig enn hægri klikka og gera save target as :)
Stina at 7:47 PM

Ég þoli ekki þetta poppkort.is dæmi.. ef ég get ekki skráð inn myndirnar mínar.. þá fæ ég sent ímeil um leið og ég get það um að það séu 2 með sömu myndirnar.. ég náið akkúrat til að skrá inn 10 myndir áðan.. og fékk þá 10 ímail sem stóð í þetta:
Kæri poppkorts eigandi,

Komið hefur í ljós að tveir eru skráðir með þetta kortanúmer, vinsamlega skoðaðu
og athugðu hvort að rétt númer hafi verið skráð inn. Ef að villa hefur verið
slegin inn, þá eyddu út fjögurra stafa númerinu við viðkomandi mynd og sláðu inn
rétt númer, smelltu svo á Skrá nýjar myndir.


Ég veit að ég geri stundum mistók.. en ekki 10 sinnum.. ég skrái ekki 10 vitlaus númer.. ég sendi þeim kannski heldur of leiðinlegt bréf til baka.. sagði þeim að ég væri ekki sjónskert og jarí jarí jarí.. mar á víst að bíða með að skrifa svona.. þar til reiðin er farin.. en samt.. msn-ið mitt tók kippt.. 10 email strax.. ég er ekki einu sinni með svona mörg email inní inboxinu mínu... :)
Stina at 7:41 PM

Ég held að í fyrralífi hafi ég verið kæfð með kodda í flugvél rétt á meðan hún var að hrapa.. þar sem þetta er það sem hræðir mig massíft.. flugvélar.. og að vera kæfð með kodda.. þess vegna í þessu lífi ætla ég að klára stúdentið.. og koma mér í nunnuna.. vera voðalega kristin og góð.. og fríka svo út í næsta lífi.. vera svakalegt slut.. algjört bitch.. og verða alþingismaður.. góð samblanda.. :)

Stina at 11:21 AM

Tuesday, April 08, 2003

Var að horfa á Popptíví áðan.. og það er alveg ótrúlegt hve mörg myndbönd eru leiðinleg.. sum myndbönd eru þannig.. að þó mar fíli lagið.. þá er bara hægt að horfa á það einu sinni.. vegna þess að það er svo leiðinlegt.. ég t.d. sá Audioslave - Like a Stone áðan.. í fyrsta skiptið.. flott lag.. en myndbandið er ekkert sem hægt er að segja að sé gott.. allan tíma situr hann á stól.. og syngur.. meðan er sýnt hann.. svo hina meðlimina.. ekkert neitt spes.. flottustu myndböndin eru þau sem ná til að lýsa algjörlega laginu.. Leiðinlegasta myndbandið sem ég hef séð er alveg tvímælalaust pappakassamyndbandið.. en jæja.. mér datt þetta bara svona í hug.. þar sem myndböndin eru orðin alveg gríðarlega leiðinleg núna.. :)
Btw.. fyrir ofan Veðurgelluna mína.. er rate this site dæmi.. endilega gerið það.. :)
Stina at 8:47 PM

Það virðast allir vera að blogga.. hérna er bloggið hjá RuPaul.. núna líður mér betur.. þegar ég veit að fræga fólkið er líka að þessu.. ég gæti orðið fræg.. og bloggað.. :)
Stina at 6:49 PM

Hafði ekkert að gera þegar ég kom heim úr vinnunni.. þannig að ég ákvað að fara á Brandur Enni síðuna og panta mér allt sem hann hefur gert.. bara svona.. uppá funið.. reyndar borgaði það ekkert.. en vona samt sem áður að það komi.. ég get alveg borgað honum í blíðu.. fíla.. þá mun yngri.. en ég er.. og mun eldri..
Annars er svona lítið á spjallinu við hliðná af því að ónefndur aðili *horfir á Kalla* ákvað að taka eitthvað kast á þessu.. og skrifa bara stafi.. af því að hann var að tékka á því hvort þetta virkaði.. sem að sjálfsögðu þetta gerir.. en ég samt sem áður þurfti að stroka það allt út.. þannig að verið dugleg að skrifa þarna svo þetta sé ekki svona alsbert..
Svo í nótt setti ég upp birthday counter þarna fyrir neðan.. svo þið getið óskað mér til hamingju með afmælið eftir 341 dag
adios
Stina at 6:38 PM

Í hvert skiptið sem illa lyktandi manneskja labbar framhjá mér.. þá get ég ekki haldið í mér andanum.. ég get alveg haldið í mér andanum ef einhver blæs sígarettureyk framan í mig.. eða eitthvað svoleiðis.. en ef illa lyktandi manneskja labbar framhjá mér eða ég afgreiði hana.. þá get ég það bara ekki.. frekar fer ég að anda meira.. og finn því lyktina ennþá meira.. og þá fer ég svona að kúgast inní mér.. þar sem það er ekkert heillandi að sjá afgreiðslu manneskju kúgast fyrir framan sig.. af því að mar lyktar svo illa.. svo er fólk ekkert lítið að hafa fyrir því að koma vel lyktandi inní búðina.. ég veit ekki hver fann uppá því að fólk skokkaði í teygjuefni.. hjólabuxum og því dæmi.. það lyktar alveg massíft ógeðslega þegar fólk hefur skokkað í því 3 km.. og fólkið reyndar líka.. svo langar þeim í svalandi drykk úr búðinni.. áður en þau fara heim í sturtu..

Annars var ég ekkert rosalega sátt við Survivor í gær.. ég vil ekkert að þetta endi þannig að það verður bara kvennfólk eftir.. þoli ekki þetta kvennfólk sem er þarna.. trukkalessan Deena er ekki alveg hátt í áliti hjá mér.. og beinagrindinn Heidi má alveg missa sig þarna.. ég vil að Butch taki þetta.. hann er flottur innan um allt þetta leiðinlega lið.. :)

Stina at 10:31 AM

Monday, April 07, 2003

Ég þoli ekki þegar mar er búnað vera í smá stund í sturtu.. og fattar svo að mar er komin í lærabað.. þar sem hár eru búnað stífla niðurrennslið.. og þá þarf mar að fara að beygja sig niður.. og týna upp einhver hár eftir manneskjurnar á undan.. uppúr rennslinu.. sem getur líka orðið svoldið erfitt.. ef flækjur eru komnir í hárið.. og mar þarf að fara að toga.. svo loks tekur mar upp þessa hárkollu sem er blönduð pabba, mömmu, systir og bróðurs hári.. hvaðan sem það kemur.. þegar það er loks búið.. þá koma þessu líka massífu læti.. sem er ekki alveg nógu gott þegar mar er að fara í þessu sturtu kl fimm um nóttina.. kannski mar ætti bara að gerast gáfulegri.. og kroppa upp hárin áður en mar fer í þessa blessuðu sturtu.. en jæja.. þetta er eitt af mörgum hlutum sem ég þoli ekki.. :)
Stina at 9:37 PM

Fór í Trivial Pursuit.. og rakst þar á spurninguna "Í hvaða Evrópulandi er þorpið Llanafairpwllgwyngyllgogerchwyrndrobwilliantysiliongogogoch, sem er lengsta staðarnafn í heim?" þetta er kannski mjög spurning til að spurja sjálfur þó svo það taki alveg kortér að lesa þetta upp.. en að lenda á þessu.. alltílæi reyndar núna vegna þess að ég veit að þetta er Wales en samt sem áður ekki sniðug spurning til að hafa í þessu.. þar að segja ef mar er með manneskju sem mar þarf virkilega að lesa allt upp fyrir.. :)
Stina at 6:06 PM

Ég sofnaði hálfpartin með 70 mín í sjónvarpinu í morgun.. sem gerði það að verkum að mig dreymdi þá.. eða nú reyndar bara Audda.. þar sem hann labbaði framhjá bílnum mínum þegar ég sat í aftursætinu að bíða eftir pabba.. og ákvað að verða eins og stelpurnar sem voru að hlaupa á eftir honum.. sem heillaði hann.. þannig að hann gaf mér poppmynd af sér og skrifaði aftan á númer.. og þar fyrir neðan.. "Þetta númer er ekki til".. manni er ekki bara hafnað í real life af "frægum" Íslendingum..
Stina at 11:23 AM

Sunday, April 06, 2003

Í alla nótt hef ég verið föst í einum leik.. búnað vera að spila við bróðir minn í honum alveg frá kl 12.. og núna er kl að verða sex.. þessi leikur heitir á góðri ensku couronne ég á áreiðinlega eftir að vera föst í honum þegar ég vakna líka.. þannig að ef þið nennið að spila við mig.. þá er ég oftast inná beginners 3.. undir nickinu creepz.. :)
Stina at 10:46 PM

Mig langar að komast í himnaríki þegar ég dey.. þess vegna ætla ég að skrifa þennan lista.. :)

1. Þegar ég var í sjöunda bekk (minnir mig).. þá leigði mamma vinkonu minnar sér ljósabekk.. svo kom frænka hennar í heimsókn til að fara í ljós.. og við þoldum hana aldrei.. þannig að við sátum fyrir utan gluggan meðan hún var í ljósunum og hlóum af henni.. þó svo þetta hafi ekki verið besta sjón sem ég hef séð þá bara Sorry þú manneskja.. og takk fyrir að draga ekki fyrir gluggann..

2. Árið ´95 unnu ég og bróðir minn.. 2 miða á Uxa.. og seldum systir minni hann.. þar sem við vorum bara 11 ára.. sem btw. ég hef aldrei fengið borgað fyrir.. en.. við máttum alls ekki segja mömmu og pabba frá því að hún hafi farið af því ða þau voru úti.. og hún lét konuna í íbúðinni á móti í blokkinni passa okkur.. en svo var það einhver sem kjaftaði frá þessu.. þannig að allt brjálaðist.. og var brjálað út árið.. sorrý.. það var ég.. :D

3. Þegar ég var sex, sjö ára gömul.. þá var ég og bróðir minn að rífast... og ég sparkaði gífurlega fast í lærið á honum.. þannig að hann hljóp grátandi inní herbergi.. og meðan hann var inní herbergi.. var ég að plana jarðaförina hans.. þar sem við áttum að nota kistuna hans sem veisluborð í jarðafarapartí-inu hans.. og það átti að vera alveg svakalegt partí.. hérna.. ég myndi aldrei nota kistuna þina sem veisluborð.. frekar sem sæti.. en sorrý.. :)

4. Gunnar Sævar (Rúnki) ég skyrpti ofaní uppáhaldsdrykkjuvatnarflöskuna þína.. þegar þú fórst á klóstið einu sinni.. reyndar mjög langt síðan.. en.. hey.. þegar ég gerði þetta.. þá var ég bara pirruð útí þig.. og naut þess að horfa á þig drekka þetta.. þú ert ekki dáinn ennþá þannig að þetta hefur ekki verið neitt mikið eitrað munnvatn né hor.. en sorrý.. :)

5. Þú manneskja sem ég var einu sinni í sveit hjá.. ég þoldi þig ekki neitt.. þannig að ég klíndi hori í koddann þinn.. ég ætla ekki að segja sorrý vegna þess að ég þoli þig ekki ennþá þó ég hafi ekki hitt þig í nokkur ár.. þetta var bara gott á þig!


Þegar mar byrjar að gera svona lista.. þá gleymist allt.. þannig að ég ætla að láta þetta nægja.. bið ykkur hin fyrirgefningar seinna.. :)
Stina at 2:46 PM

Takk Hjördís fyrir að senda mér þessa mynd.. minnir annars bara að þú hafir gert það.. er svo vinsæl.. allir að senda mér email þess vegna gleymist voðalega fljótt frá hverjum ég fékk hvað.. en annars er ég ekkert voðalega sátt við þessa mynd.. brosti aðeins.. þangað til að ég rakst í það sem stóð fyrir neðan hann.. þegar fyrrverandi háttvirtur þingmaður er ekki nefndur með nafni.. bara tölustöfum (þó svo að þetta hafi átt að vera fyndið þá bara þoldi ég aldrei bjarnabófana þeir voru alltaf svo vondir).. svo var nú líka alveg hægt að setja myndalegri mynd af honum þarna.. nei.. annars er þetta yndisleg mynd af honum.. Árni ég elska þig :* og Hjördís.. TAKK!
Stina at 2:20 PM

Ótrúlegt hvað fólk er að skrifa á google.. og finna síðuna mína.. "nellys butt" og þá kom síðan mín upp með einhverjum öðrum.. :)
Ég elska að fara á Spotlight á djamminu.. skoða allt fólkið þar inni.. mar getur eytt heilu kvöldinu bara sitjandi þarna inni.. og sjá nýja og nýja manneskju sem mar vissi að væri samkynhneigður.. eða fær sjokk af því mar hélt að hann væri það ekki.. :) þó svo mar pæli ekkert í því að fólkið sem sér mann inni.. heldur náttla líka að mar sé hinsegin.. en það er alltílæi.. skiptir mig engu máli þótt fólk haldi að ég sé lesba..
Ekkert mikið búið að gerast hjá mér í dag.. svaf til fimm.. missti af afmæli sem mér var boðið í.. en kökurnar enduðu samt sem áður hjá mér.. góðar kökur.. plús það að ég sleppti við það að vera umkringt krökkum í 3 tíma.. þó svo reyndar þegar afmælið var búið.. komu þau öll hingað.. þannig að ég slapp kannski ekkert voðalega vel..
Stina at 12:36 PM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs