Saturday, April 05, 2003
Einhver sem var voðalega fyndinn og skráði afmælisdaginn minn inní dæmið.. eins og ég sé þurfi að fá reminder þegar ég er að fara að eiga afmæli.. ekki eins og ég sé ekki að telja það niður.. :)
Rakst á þetta blogg áðan sem einhver Árni Torfason skrifaði.. algjör snilld.. og að sjálfsögðu byrjar kvennfólkið að væla yfir hve ljótt þetta var af honum að skrifa þetta.. og jarí jarí jarí.. ætti að taka þær og gefa þeim eitt gott spark.. til að láta þær þegja.. þoli ekki svona kvennfólk.. ætli konurnar úr vestubænum eigi ekki eftir að setja upp undirskriftalista á netinu til að kæra hann fyrir þessi orð.. kvennFÓLK ER FÍFL
Afmælið í gær var fínt.. mar varð svoldið subbufullur en.. það er ekkert að því.. ég skemmti mér samt.. en geisladiskarnir mínir eru ennþá niðrá Gauk.. obbosí.. Pottþétt Júróvisjón.. og Júróvisjón diskurinn bara með lögum frá Íslandi.. þetta er allt sem átti að vera í Júróvisjón partý-inu mínu í maí..
Svo missti ég af allri sjónvarpsdagskránni í gær.. vonum bara að þetta verði allt endursýnt.. svo enginn deyi.. :)
Jæja undirbúa sig fyrir meiri drykkju..
adios
Stina at 10:16 AM
Thursday, April 03, 2003
Ég er með jafnlélegt afmælisminni og karlmaður.. þannig að skráðu afmælisdaginn þinn hérna.. svo ég viti hvenær þú átt afmæli.. og get óskað þér til hamingju..
takk takk..
Stina at 7:36 PM
Ég var að skoða Leoncie síðuna.. þar sem ég hef ekki gert það lengi.. og rakst þá á nýtt.. og fannst þetta voðalega spes.. ætla á sýna ykkur þetta..
"Q: What is the ugliest experience that you have had in your entire life?
A:When my Sexy Loverboy was stolen, this year and broadcasted without my permission on ruv- the government owned tv station- on new years eve, and credited to some icelander. I was furious, demanded an apology, but instead a pathetic group of icelandic racists, sent me racist e-mails, racist abuse and murder threats, which is all documented at the police station. It was MY music that was stolen. These pathetic,talentless racists here had no business abusing me. When they did that, I gave the Ku-klux-klan here, a taste of their own medicine for bothering me for over 17 years. Anyone would! In January 2003, the tv-station-rúv and other media here documented that 10% of the people in iceland were on mental drugs. I most certainly have no intention of being the scapegoat of someoneelse's insanity or unbridled jealousy. The media in Iceland is always promoting white Windbags and amateurs in the music business".
Ef Íslenskt fólk tæki nú uppá því aðgera það sama og hún.. annars ætla ég ekkert að vera að setja neitt útá hana.. leyfi ykkur að sjá um að tjá ykkur um þetta.. til þess eru nú commentkerfin.. :) og.. já hérna.. ef ykkur langar í Leoncie lag.. þá skal ég með glöðu geði senda ykkur það..
Stina at 6:13 PM
Ég ákvað að setja inn nýja síðu.. sem ég rakst á.. þegar ég fór í vefhringjarleiðangur... og hef ég farið fimm sinnum á þessa síðu síðan ég rakst á hana.. veit ekkert hver þetta er.. en það er gaman af þessu hjá honum.. ----> Heimur Ofurmennisins
Stina at 5:59 PM
Það er áreiðinlega gaman að fá mig í afmælið sitt.. gef svo "skemmtilegar" gjafir.. en hey þetta er ódýrt fyrir mig.. á morgun er ég einmitt að fara í afmæli.. og sú manneskja fær.. mynd af ? í ramma.. .. :) getur vel verið að manneskjan verði ánægð með það..
Annars er ræningjafaraldur í gangi núna.. mín búð hefur verið rænt.. alveg 5 sinnum á tveim vikum.. og sem betur fer ekki meðan ég er þarna inni.. nema einu sinni..
en.. ég þarf að fara að sofa snemma... mikið djamm þessa helgi.. fyrir utan vinna.. :D
adios
Stina at 4:37 PM
Wednesday, April 02, 2003
Einhver hérna sem hefur skráð sig í Plúsinn og unnið þessar 20þúsund krónur?
Annars rakst ég á hérna lista yfir margar Disney myndir.. og hef ekki pælt í þessu áður.. en flest allar eru svona án foreldra myndir.. eða þeir deyja í myndinni.. ég ætla að leyfa ykkur að sjá þennan lista.. ég breytti honum þónokkuð.. en.. var hann samt sem áður tekinn annars staðar.. :)
Treasure Planet - Pabbinn farinn
Lilo & Stitch - Munaðarlaus
Tarzan - Foreldrarnir dóu, hann lifði af <-- en Jane átti hún einhverja mömmu?
Mulan - Eina manneskjan í Disney heiminum sem lifir með móður, föður og ömmu! (hundar ekki teknir með) <-- ég er ekki alveg sammála þessu.. þar sem Lísa í undralandi átti bæði mömmu og pabba.. veit ekki með ömmu.. en.. hún átti allavega fjölskyldu.. :)
Hercules - Svipað og Superman nema að foreldrar hans eru á lífi og eru Guðir
The Hunchback of Notre Dame - Munaðarlaus, ólst upp einn þarna með ímynduðu vinunum <-- Skilin eftir af móðir sinni fyrir utan kirkjuna þar sem hann var svo vanskapaður.. Presturinn lokaði hann inni uppí kirkjuturni þar sem hann vann við að hringja kirkjuklukkunum.. hélt að hann hafi bara talað við prestinn og fuglana.. ekki ímyndaða vini..
Pocahontas - Var einhver móðir? <--- Hún átti líka ömmu
The Lion King - Pabbinn deyr
Aladdin - Munaðarlaus og skrítinn pabbi <-- Kom pabbinn eitthvað fram í fyrstu myndinni? Held að hann hafi komið í þriðju og seinustu myndinni.. þar sem hann var konungur þjófanna..
Beauty and the Beast - Bara skrítinn pabbi
The Little Mermaid - Átti hún enga móðir?
Oliver and Company - Munaðarlaus köttur
The Many Adventures of Winnie the Pooh - Áttu þessi dýr enga foreldra og hvað var þetta bleika dýr? Mjótt svín í röndóttri peysu? <--Bleika dýrið heitir Piglet.. þannig að ég býst við því að það sé svín en litla Kengúran átti mömmu.... frekar spyr ég hvaða dýr er Bangsimon.. eða.. er hann lifandi bangsi? innan um öll þessi dýr? þar sem hann var næstum því búnað rakna upp í einni myndinni.. :)
The Jungle Book - Skilinn eftir hjá úlfum, huggó!
The Sword in the Stone - Var strákurinn alinn upp af spúki töframanninum?
101 Dalmatians - 101 dalmatíundar, frekar 90ogeitthvað munaðarleysingjar!
Peter Pan - Foreldrarnir á fylleríi á meðan sjóræningjar elta börnin uppi, hver lætur stóran hund með húfu passa börn? Pétur Pan og öll börnin þar voru líka munaðarlaus.
Cinderella - Pabbinn dó hún alin upp af Stjúpmömmu og átti Stjúpsystur
Bambi - Mamman skotinn af vondum veiðimönnum, pabbinn has issues
Dumbo - Einstæð fílamóðir, tekin frá henni
Pinocchio - Gamall maður, svo desperate að hann tálgar sér strák úr viðardrumb <-- og hann lifnaði við.. krakkar ef þið tálgið strák úr viði þá getur hann kannski lifnað við..
Snow White and the Seven Dwarfs - Vond Stjúpmamma..
Guffi á son, Max, hver er móðirinn?
Toy Story, bara mamma og bróðir
Sleeping Beauty, Pabbi og Vond Stjúpmamma
Þetta er allt og sumt..en ég hef tekið eftir því að aldrei hefur neinn átt vondan stjúppabba nú eða bara stjúppabba í þessu.. og það hefur enginn átt góða stjúpmömmu í þessu.. sem gerir það bara að verkum að krakkar misskilja stjúpmömmu dæmið.. að það sé bara til vond stjúpmamma.. mér fannst orðið stjúpmamma þegar ég var lítil benda á að manneskjan væri vond.. og í þessum myndum hef ég tekið líka eftir því að vonda fólkið er alltaf með dökkt hár.. jæja.. sjaldgæft greinilega að heil fjölskylda ali upp barnið í þessum Disney myndum.. :)
Friend <--- yndislegt að fá svona.. þó mar hafi fengið þetta frá einhverjum sem mar þekkir ekkert.. en hey.. ég fékk þó svona.. :)
Stina at 5:53 PM
"Það var í gæsapartýi verðandi brúður, kvöldið fyrir giftingu. Inn í
veisluna kemur strákur. Þau eru stödd í eldhúsinu og "gæsin"
nokkuð hífuð gengur að honum og hvíslar. Mig langar að sofa hjá þér,
þetta er síðasti sjens, komdu upp og vertu með smokk! Hún fer síðan út
úr eldhúsinu og strák er brugðið. Hann er ekki með smokk á sér, en
ísskápurinn er opinn og hann sér bjúga í skápnum. Hann tekur
bjúgað og afhýðir það og fer síðan upp. Þar er "gæsin" tilbúin og hann
notar hýðið, en í hita leiksins rennur það fram af og þjappast þar inní.
Hann er ekki að segja henni frá því, en á brúðkaupsnóttina þegar
brúðhjónin eru að gera það, finnur brúðguminn fyrir einhverju inni
í henni. Hann stoppar, þreyfar með fingri og tekur hýðið út og
virðir það fyrir sér. Hvað er þetta? Henni bregður mikið og segir; Ætli
þetta sé ekki meyjarhaftið mitt!
Þú ert svei mér heppin, síðasti söludagur er á morgun!!!"
Ansi sniðugur brandari sem mér var sendur.. Hann fékk mig til að brosa aðeins.. annars hefur ekkert sniðugt gerst í vinnunni minni í dag.. nema það.. að Rís auglýsinginn sem Birgitta leikur í virðist frekar höfða til eldra fólksins heldur en yngra.. það kom 70tug kona í vinnuna.. og spurði mig um súkkulaði sem.. svo reyndi hún að hugsa hver væri að leika í henni.. þannig að ég greip frammí og sagði "Birgitta Haukdal" "Já alveg rétt.. mig langar í súkkulaðið sem hún er að auglýsa.. hún allavega heillaði mig.. eru ekki margir að kaupa þetta af því að hún leikur í henni" ég muldraði bara "jújú.. mjög margir" þar sem ég er ekkert ánægð með að hún skuli hafa áhrif á það að svona margir skuli kaupa þetta.. en.. samt finnst mér voðalega skrýtið að það skuli vera meira af eldra fólki.. en svona er þetta.. :)
Stina at 3:58 PM
Það heldur betur hljóðbært inní þessari íbúð sem við búum í.. ég gæti farið í mál eins og var í gangi einu sinni.. kona sem kvartaði undan því að manneskja fyrir ofan eða neðan sig.. hafði mök 3var á dag.. og lýstir fyrir Jóhönnu Sigurðar hljóðunum og allt... jáh.. þessi manneskja sem kvartaði.. hefur heldur betur ekki haft neitt að gera.. fyrst hún gat tekið eftir því hve oft þau höfðu mök.. :D en annars.. þá hef ég heyrt manneskjuna fyrir ofan mig.. leika sér með karókítæki.. nú eða bara nauðga boyzone diskunum sínum.. fyrir neðan mig.. get ég skemmt mér með þeim uppi.. meðan þau halda partý niðrí.. þau gætu alveg eins verið inní íbúðinni minni.. og á sumrin.. tekur manneskjan í næstu blokk kastið.. og hlustar á einhver lög.. í hæstu stillingunni.. þannig að ég við hliðná.. get joinað honum.. þess vegna eigum við ekkert græjur.. alveg nóg að þau eigi þær.. :D
Ég fékk sms.. einhvern tíman í morgun.. boðin í afmæli.. þar sem ég las það hálfsofandi.. þá fór mig að dreyma afmælið.. rosalega skemmti ég mér vel.. nema.. ég vaknaði hálfsveitt eftir þennan draum.. þar sem ég fann engan frían bjór.. jú.. ég fann einn frían bjór innan um fótboltasambandið.. sem var þarna.. meðan var ég að skoða alla gaurana.. svaka gaurar.. verst þeir voru bara í draumnum.. en.. ég bið ykkur sem ætlið að senda mér sms.. sendið eftir kl 17.. þá er ég vöknuð.. nenni ekki að dreyma það sem stendur í sms-inu.. :)
Stina at 9:30 AM
Tuesday, April 01, 2003
ef þetta er ekki kallað algjör snilld fyrir fólk sem hefur ekkert að gera í tölvunni -----> þetta <--- þá veit ég ekki hvað er kallað snilld..
Stina at 6:30 PM
Frábært að Guðmunda skuli hafa tekið vídjókameru með sér þegar við gáfum öndunum brauð hérna áður fyrr.. eða.. reyndar fyrir tveimur mánuðum síðan.. við vorum að horfa á þetta núna.. og djöfull dóum við úr hlátri.. þetta er svo sorglega fyndið.. að það er ekki eðlilegt.. jæja.. ég er ekki sátt við að það sé til vídjókamera á þessu heimili..
Amazing Race endaði hörmulega.. að mesta grenjuskjóðan.. og leiðinlegasta manneskjan skuli vinna.. ég heimta endurtekningu!
Ég var víst ekki sú eina sem gleypti við aprílgabbi í dag.. við vorum 2 í minni búð.. eða þó reyndar.. ég og eftirlitskallinn.. hann ætlaði að fara að næla sér í eitthvað frítt sem rak á land með gámnum sem átti að fara til Íraks.. þar til að hann rakst á hvaða dagur var á leiðinni út.. hann má allavega eiga það að vera það heppinn að taka eftir því áður en hann fór út.. :D
Jæja.. ég vil að þessi dagur verði strokaður út..
adios.. :D
Stina at 1:40 PM
Ég lenti í fyrsta apríl gabbi í nótt.. djöfull langaði mig að berja bróðir minn.. hann vakti mig í nótt með því að segja "Kristín, George Bush var að halda ræðu áðan.. og var skotinn!!!" ég náttla fékk algjört sjokk.. settist upp.. kl fimm um nóttina.. "ertu ekki að djóka í mér.. og hvað er hann dáinn?" hann alveg "fréttafólkið á stöð2 er komið.. og það er breaking news alls staðar" ég beið eftir að hann myndi kveikja á sjónvarpinu.. til að sýna mér þetta.. en fattaði engan veginn að það væri fyrsti apríl.. og bjóst líka alveg við því að það væri búið að skjóta hann.. ekki eins og hann sé vinsælasta manneskjan í dag.. svo liðu fimm mínútur.. og hann búnað lýsa þessu öllu.. "hann var skotinn í bringuna" og eitthvað.. þá ropaði hann útúr sér að þetta væri apríl gabb.. ef ég hefði verið með einhvern stóran harðan hlut nálægt mér.. þá hefði hann pottþétt fengið hann í sig.. en ég ákvað frekar bara að leggjast niður og fara að sofa.. þurfti reyndar að einbeita mér að segja þegiðu við hann.. vegna þess að hann stóð áfram yfir mér til að gera grín af mér.. "ég veit alveg að mar á að fá manneskju til að hlaupa yfir þröskuld en ég varð samt að gera þetta" þetta var mjög trúverðulegt..!
Núna er ég strax byrjuð að undirbúa mig fyrir næsta fyrsta apríl..!
Stina at 6:03 AM
Monday, March 31, 2003
Er þessi helvítis blogspot að klikka.. núna þegar ég fer á síðuna mína.. þá kemur gamla lúkkið upp.. stundum væri ég nú til í að vera betri í tölvum en ég er.. og setja upp síðu sem er með urlinu.. www.creepz.is.. hve flott væri það.. :D
Stina at 8:08 PM
Ég hef verið að taka til á síðunni minni.. henda þeim linkum útaf sem geyma blogg sem aldrei eru updeituð.. mér finnst virkilega leiðinlegt þegar ég er að sörfa á netinu.. eða í gegnum blogg.. og finn þá bara.. einhverjar síður sem eru aldrei updeitaðar.. ég ákvað líka að henda inn nýjum link.. vegna þess að ég kíkji af og til á það blogg.. og er það hjá henni Dagný Ástu.. stattu þig í að updeita þetta blogg þitt stelpa.. :D
Og ég var að koma mér í einhvern vefhring?
jæja bless.. :D
Stina at 7:57 PM
ég var búnað vera að pæla í því lengi hvar ég hefði séð þennan dreng.. ég hef nebbla verið það "heppin" eða heppin.. að sjá hann ALLSTAÐAR.. og aldrei hef ég komið því fyrir mér hvar ég sá hann fyrst.. en.. svo í mínu daglegu sörfi á netinu.. þá rakst ég akkúrat á mynd af honum.. þar sem hann keppti í djúpu lauginni.. hérna.. sem betur fer fattaði ég það.. svo ég hætti að pæla í þessu.. ligg andvaka og sveitt allar nætur að pæla í þessu.. :(
Ég hef verið að yfirfara vegginn minn.. the Wall of Fame.. henda og svona.. en það var ekkert sem ég gat hent.. tók samt sem áður eftir því að ég sagði ykkur ekki allt.. vantaði sæðisdrepandi kremið.. og nafnspjaldið sem Robert Marshall gaf mér.. :D en ég ætla líka að bjóða ykkur.. ef ykkur langar að komast á Wall Of Fame vegginn minn.. þá megiði senda mér mynd af ykkur í mailið mitt.. myndin fer hingað :D Hjálpið mér að hafa eitthvað betra að gera en að sörfa á netinu og finna svona tilgangslausar myndir sem voru þó ekki tilgangslausar fyrir mig.. með því að senda mér myndir vegna þess að veggurinn er akkúrat bakvið tölvuskjáinn minn..
adios
Stina at 6:59 PM
Það eiginlega klikkar ekki að þegar ég fer á forsíðuna á www.blogger.com þá er eitthvað íslenskt blogg á hliðinni.. sem er eiginlega bara gott.. þar sem ég hef ekkert mikið að gera.. og get þá lesið þetta.. :D
En annars rakst ég á leik á öðru bloggi.. og ákvað að spreyta mig aðeins í þessu.. manneskjan sem var með þetta.. komst bara í level 17.. en mér tókst að komast í level 75.. og reynið að toppa þetta.. Locate Lenny
Gangi ykkur vel.. :D
Stina at 4:49 PM
Ég hef komið upp Wall of Fame inní herberginu mínu.. og á veggnum mínum er.. Olga Færseth, Rautt Dvergurinn, Karl Bretaprins, mamma hans og synir, Milli Vanilli, U2 frá 87, blað sem Hrafn skrifaði með massífum villum, smokkur úr eyjum og ÁRNI JOHNSEN! :D
en jæja.. matartími.. og ég ætla að leyfa meiru að gerast áður en ég blogga meira
adios :D
Stina at 12:04 PM
Sunday, March 30, 2003
Rétt fyrir partý sem ég ætla að halda.. eða djamm sem ég var að fara í.. man ekki hvort.. keypti ég mér hægðarlosandi lyf.. til að missa "óvart" ofaní glasið hjá einhverjum.. en.. ég gleymdi þeim.. svo núna var ég að finna þau.. og lesa leiðbeiningarnar og innihaldslýsingarnar.. og í þeim stóð..
Ofskömmtum: einkenni: Niðurgangur
Ég get ekki sagt annað en.. ég hló af þessu.. að ofskömmtun hægðarlosandi lyfs getur valdið niðurgangi... ég hélt að hægðarlosandi lyf ættu að gera það.. eða allavega að mýkja hægðirnar.. nafnið á lyfinu.. er líka algjör snilld.. Toilax.. :D
Ég hef verið að taka til í herberginu mínu í alla nótt.. og rakst á margt skemmtilegt á meðan.. meðal annars fullt af myndum af Take That.. og svo Díönu Prinsessu.. klippti út allar myndirnar af henni þegar hún dó.. og móðir Teresu til að geta átt þetta.. þegar ég væri gömul og sýnt börnunum mínum.. held samt að þetta verði farið í ruslið bráðum.. ég fann líka ritgerð sem ég gerði.. í 9unda bekk.. sem ég ætla að skrifa hérna til að sýna ykkur hve vel ég skrifaði.. og hve vel ég geri ritgerðir.. hún heitir Ormur og Hreiðar gamli og fyrir hana fékk ég 6.
Hreiðar og Ormur eru mjög góðir vinur. (i)
Hreiðar á heima í kjallaranum í íbúðinni hans Orms.
Hann er gamall og á engan að þegar hann lendir á spítala mætir Ormur í eitt skiptið með köttinn hans til hans og allt sjúkraliðið þarf að hlaupa á eftir honum.
Hann þurfti að fara upp á spítala af því að hann fékk hjartaáfall. (krabbamein)
Þegar Ormur kom í heimsókn til Hreiðars var hann alltaf góður og skemmtilegur.
Hann talaði við hann öðruvísi en annað fólk, hann var ekki með nenna (-n +i) stæla bara talaði eins og manneskja.
Ormi fannst gott að geta talað við Hreiðar og honum þótti vænt um hann.
Ormur er 17 ára gamall og hann reykir og drekkur.
Og svona endaði ritgerðin.. og alls ekki finnst mér skrýtið að ég hafi fengið 6.. eða jú reyndar.. hefði átt að fá lægra fyrir þetta.. :) en hey.. þetta er samt flott ritgerð.. :D
jæja.. er að fara að vinna snemma á morgun.. þarf að fara að sofa..
adios :D
Stina at 9:41 PM
Rosalega væri mar til í að fara á Glastonbury hátíðina núna í ár.. var að skoða yfir hljómsveitinar og með þeim helstu eru.. R.E.M.,Radiohead, Counting Crows, The Doors, Supergrass, Muse ( hef séð þá.. og man ekki betur en að þeir hafi verið nokkuð góðir ), Dolly Parton, The Rolling Stones, Eminem, The Foo Fighters (þeir eru algjör snilld á sviðinu..) , Fatboy Slim, Moby, Prince, Dave Gahan, Sugababes, Massive Attack, Starsailor og Tori Amos en samt.. þetta er ekki neitt alveg.. massíft snilldarhljómsveitin.. en mar er samt sem áður alveg til í að sá þetta.. og þá mest R.E.M annars er sumt af þessu ennþá bara rumours.. :D og ég get ekkert farið á þetta vegna þess að þetta er á svipuðum tíma og Roskilde.. svo kannski skellir mar sér á Reading þar verður Metallica.. og svo í rumours er.. Audioslave, System Of A Down, Linkin Park, Limp Bizkit, JJ72.. nokkuð fínt bara.. :D getið lesið allt um festivölin hérna
Jæja.. einn brandari sem ég rakst á spjallborðinu hans Ofi
Einu sinni var björn . Hann vann að því baki brotnu að fá einhverja birnu
til lags við sig, en án árangurs, því engin birna í öllum skóginum líkaði
við hann. Hann var þar af leiðandi ákaflega viðskotaillur og aumingja
kanínan fékk svo sannarlega að finna fyrir skapstyggð hans því hann sló
hana sífellt í höfuðið í geðvonskuköstum sínum. Dag einn birtist
töfrafroskur og hann bauð þeim að velja 3 óskir. Með frekju og yfirgangi
fékk björninn því framgengt að fá að velja fyrstu óskina : "Ég óska þess að
allir birnir í þessum skógi, nema ég, verði birnur". PÚFF! Ósk hans hafði
ræst. Þá var komið að kanínunni : "Ég óska þess að eignast hjálm svo að
björninn geti ekki lengur lamið mig í höfuðið" PÚFF! Óskin hafði ræst.
Næsta ósk bjarnarins var : "Ég óska þess að allir birnir í skóginum við
hliðina verði líka birnur" PÚFF! Óskin hafð ræst. Kanínan hugsaði sig nú
vel og vandlega um og sagði svo : "Ég óska þess að eignast mótorhjól" PÚFF!
Óskin hafði ræst. Síðasta ósk bjarnarins var : "Ég óska þess að að allir
birnir í heiminum, nema ég, verði birnur og að þær elski mig allar". PÚFF!
Óskin hafði ræst. Kanínan setti nú á sig hjálminn og settist á mótorhjólið,
og í þann mund sem hún brunaði burtu öskraði hún : "Ég óska þess að
björninn verði hoooommmmi!!!"
Og emjaði ég úr hlátri þegar ég las hann.. :D
Stina at 5:15 PM
Söngvakeppni Framhaldsskólana.. var alveg fínt.. þó það hefði mátt spóla yfir þetta á köflum.. þó helst hefði mátt bluría andlitið á konunni sem var að lýsa þessu.. eða alveg slökkva á henni.. þeir hafa áreiðinlega getað fundið einhverja aðra betri til að lýsa þessari söngvakeppni.. og trúi ég varla því að þessi kona sé þulur.. þó svo þær séu allar mjög leiðinlegar.. en í sambandi við úrslitin.. þá hefði ég verið sáttari við það ef Muse hefði verið í fyrsta sæti.. vegna þess að hann náði þessu alveg mjööög vel.. þessi sem var í fyrsta sæti var alveg með góða rödd.. en alls ekki gott lag fyrir hana.. svo man ég ekki fleiri sætin.. en eins og family potrait lagið á íslensku.. það var fínt.. þar til hún þurfti að ropa útúr sér "bróa".. þá fór hún með það.. Heaven.. mér fannst það ekkert voðalega gott.. og.. Jim carrey lagið.. var hörmung.. það hefði mátt réttdræpa þessu manneskju.. annars á endanum var ég farin að horfa á þetta með einu auga.. var orðin svo þreytt.. og nennti ekki að horfa á þetta..
En bjórinn lagaði allt... það var slátrað fimm bjórum og kíkt niðrí bæ.. á Dillon.. og Grandrokk.. :D urðum að kíkja á þessa staði.. til að finna gamlan sveittan gaur til að splæsa á okkur.. bjórglasi.. :)
annars.. þá er þetta allt öðruvísi en ég skrifaði þetta fyrst.. vegna þess að mér tókst að ýta á einhvern takka sem gerði það að verkum.. að allt hvarf.. þannig að ég þurfti í fyrsta skiptið í langan tíma að nota heilann.. og byrja uppá nýtt.. þannig að það má lesa svo litla reiði þarna ofarlega.. en það er mest útaf beyglunni sem var að kynna.. og takkanum ;D
adios
Stina at 12:14 PM