creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, March 29, 2003

Fór ég á spjallið hjá Ofi eftir eins dags fjarveru.. og birtist þá bara í fréttum "Styttist enn meira í þjóðhátíð.....................nýtt spjallborð komið upp um tónlist http://www.2eins.com............................skyldu Árni og Creepz spila saman á Þjóðhátíð" kannski ég ætti að svara þessu.. Já Ofi minn.. ég og Árni ætlum að vera með suprise uppákomu.. þið vitið ekki hver á eftir að spila á Húkkaraballinu.. :D


Stina at 8:59 AM

Núna eftir að músíktilraunirnar eru búnar.. og Dáðadrengir unnu þetta.. þá munu allir byrja að ganga í Dáðadrengsfötum annars hlustaði ég aðeins á Músíktilraunirnar.. og fannst þeir vera frekar góðir.. þetta var flokkað undir rapp... en.. æji þetta er allavega með þeim skástu þá sem ég hef heyrt.. :D
Það var heaven að passa í Keflavík.. eða svona.. þegar krakkarnir voru sofnaðir.. þau eiga nefnilega öll nýjustu séð og heyrt blöðin.. þannig að mar kemst í allt slúðrið.. var alveg dottin útúr þessu.. en.. ef ykkur langar að vita eitthvað í sambandi við fræga fólkið á íslandi.. og útlandi.. þá veit ég það :D
Ekkert spes annars búið að gerast hjá mér.. þegar ég er í fríi.. þá gerist ekki.. og reyndar líka þegar ég er að vinna.. jæja..
adios! :D


Stina at 6:30 AM

Friday, March 28, 2003

Scream myndirnar eru hörmung.. ég sá Scream 3 í gær.. og það klikkar ekki að þegar símin hringir og það er sagt "bla bla bla nafnið þeirra" þá færa þær sig aftur.. og byrja að anda geðveikt hratt.. ÞOLI EKKI ÞESSAR MYNDIR!
annars.. mun ég ekkert blogga meira í dag... er að fara til keflavíkur að passa..
adios! :D
Stina at 10:29 AM

Ég er ekki frá því að af lýsingunni að dæma.. að Michael Jackson og þessi séu bara nauðalíkir.. hver veit nema Michael Jackson eigi son á Íslandi.. og þetta sé hann.. :)
Annars sofnaði ég með lag á heilanum og vaknaði svo með það aftur.. var raulandi "ég er frjáls ég er frjáls frjáls eins og fuglinn er frjáls og ég skemmti mér" reyndar tókst mér að næla mér í þetta lag áður en ég fór í vinnuna í gær.. þannig að ég öfunda ekki manneskja sem var að vinna með mér þá.. þó svo þetta hafi verið seinasta vakt þessara manneskju.. einu manneskjunnar sem ég hef fílað að vinna með.. pottþétt að flytja út til útlanda bara útaf því að hann kynntist mér.. ég er nú ekki svona leiðinleg..
Jæja.. vinna í dag.. passa í kvöld.. ég er farin..
adios! :D
Stina at 2:45 AM

Thursday, March 27, 2003

Það má ekkert nýtt koma.. án þess að ég sé rokin útí búð til að kaupa það.. eða allavega að skoða það.. og þá er mjög hentugt fyrir mig að vinna í búð.. þá þarf ég ekki að hlaupa eitthvað.. en.. eins og með poppkortin... þegar ég fékk bókina í hendurnar í vinnunni.. til að skoða þetta.. þá varð ég að fá mér eina pepsí til að skoða hvort ég myndi nokkuð fá írafár.. svo endaði það í þremur pökkum í viðbót.. bara til að tékka á því fyrst ég fékk 3 írafár myndir í fyrsta pakkanum.. hvort ég myndi þá nokkuð fá Birgittu Haukdal.. og ég fékk hana ekki.. þannig að ég held áfram þangað til ég fæ hana.. eða þangað til að ég vinn ferðina út fyrir mig og Hjördísi
Svo er það draslið á Select.. ef þú verslar eitthvað þar.. þá færðu skafmiða.. þannig að þegar ég fór útað labba með Margréti Lind.. og tók eftir því að 11-11 var lokað.. þá náttla datt mér strax í hug að hlaupa útí Select.. til að fá skafmiðan.. og þar vann ég bara einhvern 40%afslátt á ostapulsu.. sem mér finnst viðbjóður.. þannig að mamma fær að nota þennan miða þegar hún fer að vinna.. en.. ég held samt áfram þangað til að ég vinn einu ferðina til London.. Hjördís koma með mér þangað líka? :D
Stina at 8:57 AM

Ég varð fyrir algjöru sjokki áðan.. ég ákvað að taka 3 svona.. internet próf.. og komst þá að því.. að mest allt sem fólk hefur sagt um mig er rétt.. þó ég vissi það bara ekki sjálf.. en.. ég ætla ekki að henda inn myndunum.. bara textanum..
Ég tók "Happy bunny próf" og fékk þetta út.. "you are the "you're so dumb" happy bunny. you are brutal in your words and enjoy putting others down" ég trúi því núna að ég sé heimsk..
Svo næsta próf var "What kind of typical high school character from a movie are you?" og Leigubílstjóri þú hafðir rétt fyrir þér... vegna þess að ég var.. "Hey dude, you are the typical stoner kid. Put down the bong and pick up a book once in a while. Try the Yellow Pages --look up Rehab." bara takk fyrir að segja mér þetta.. ég er að fara inná vog núna eftir viku..
Seinasta prófið var "Why Will You Go To Hell?" og þetta voru sjokkerandi niðurstöður... "You have been involved in a shameful online RPG, and your soul will never be clean. You've soiled the memory of a dead author and neglected yourself and other human beings for months at a time; there is no way to make up for this. The Lord has turned His eyes from you forever! Keep back, you utter trash!" eftir fíkniefnameðferðina.. þá fer ég í netmeðferð.. þó svo ég endi samt sem áður hjá honum Hitler niðrí helvíti.. en hey.. ég á áreiðinlega eftir að skemmta mér..

Stina at 4:32 AM

Wednesday, March 26, 2003

Svo hef ég margt að setja útá poppkort.is ég var komin með 10 myndir í viðbót til að hækka mig á þessum lista þarna á síðunni.. en um leið og ég var búnað stimpla þær allar inn.. þá var ekkert hægt að skrá nýjar myndir.. og þá var ég í sæti 83.. þannig að ég ákvað að bíða aðeins með þetta.. og prufaði svo aftur þegar kltími var liðinn.. en neibb.. gat þetta heldur ekki þá.. svo.. leyfði ég sólahring að líða.. og enn get ég þetta ekki.. og núna er ég komin í SÆTI 90!! semsagt.. þetta er greinilega bara að gerast fyrir mig.. þar sem fólk er alltaf að komast hærra og hærra.. ef einhver annar en ég vinnur ferðina með BLUE þá heimta ég að fá að fara með.. útaf þessu helvítis veseni..
;(
Stina at 4:23 PM

Ég fékk að heyra það í vinnunni.. að ein manneskja þar.. hatar mig.. finnst ég hundleiðinleg og tala of lítið.. ég segi nú bara veri hann fegin að ég skuli ekki tala eins mikið og ég geri stundum.. en samt sem áður.. er það annað hvort.. ég hundleiðinleg af því að ég tala of mikið.. leiðinleg af því að ég tala of lítið.. skemmtileg af því að ég tala lítið.. eða bara.. fín stelpa.. sem mætti alveg halda kjafti.. ég kýs frekar að vera hundleiðinleg í augum fólks.. sérstaklega þeirra sem ég þoli ekki sjálf.. þess vegna var bara léttir að heyra að þessi manneskja þoldi mig ekki.. þá þarf ég ekkert að vera með eitthvað feik bros til hans.. núna get ég bara ignore-að hann.. FINALLY! :D

Svo ég fann veikan blett á unglingum í Árbænum.. var að afgreiða þrjá drengi í dag.. og að sjálfsögðu skoðuðu þeir Poppkortabókina.. svo sagði einn "Hva Rottweiler ekkert í þessu.. æji.. þetta eru líka allt bara hommabönd" þannig að sjálfsögðu notfærið ég mér tækifærið og sagði "Þá ættu þeir nú að vera þarna" heyrist þá í öllum "HA?!?" þannig að ég endurtók mig.. "Ef þetta eru allt hommabönd í þessu þá ættu Rottweiler nú að vera þarna" þá byrjuðu þeir eitthvað að æsa sig.. "Þeir eru ekkert hommar, eiga allir kærustur, við þekkjum þá sko geðveikt fínir strákar.. búa hérna í árbænum" mér var náttla alveg sama um það.. og sagði bara "ég fíla þá bara ekki neitt.. fara í taugarnar á mér" þá sagði einn við mig "þeir þurfa ekkert að vera hommar þó þeir vilji þig ekki" og strunsuðu þeir þá allir út.. þannig að ég gat ekkert meira sagt.. en hefði sagt við þá "AÐ SJÁLFSÖGÐU ERU KARLMENN HOMMAR EF ÞEIR VILJA MIG EKKI!!"
Thats it :D
adios


Stina at 4:06 PM

Eftir langan göngutúr um Fellahverfið með Margréti Lind í dag.. búnað hitta dreng sem gaf mér fokkjúmerki af því að ég leyfi honum ekki að kasta snjóbolta í krakkann.. sem ég hefði átt að gera vegna þess að ég vildi ekkert fá þetta fokkjúmerki.. þá fór ég heim.. var búnað finna fullt til að skrifa á bloggið.. og þá ákveður mamma að fara að ryksuga þannig að rafmagnið fer af.. og að sjálfsögðu dettur allt út hjá mér.. en þegar ég byrjað að hugsa aftur.. þá finn ég eitthvað sem "heillar" mig alveg rosalega.. og það var heimasíða um "Birgittu Haukdal og Open Your Heart" og þar downloadaði ég myndbandinu við þetta lag.. til þess að sjá það aftur.. þar sem ég náði ekki til að melta það seinast.. horfði bara á BIRGITTA þarna bakvið hana.. ég er eiginlega alveg pottþétt á því að við íslendingar ættum að setja í sjóð fyrir hana.. og senda hana í danskóla Jóns Péturs og Klöru? Köru.. eða Klöru.. veit ekkert hvor það er.. í einu augnablikinu á þessu myndbandi.. minnti hún mig gríðarlega á aðaleikkonuna í einhverjum þætti á stöð2.. með svona.. kartöflunef.. og mjög leiðinleg.. en.. tók ég líka eftir því.. að þegar myndavélinni.. kom svona niður til hennar.. þá sló hún hendinni alltaf í áttina til hennar.. frábærir taktar, frábært útlit, frábær manneskja.. "Gangi þér bara vel" Birgitta.. og ÁFRAM DANIR!
Stina at 9:32 AM

Tuesday, March 25, 2003

Jæja.. Fyrst fréttir mar að mar væri dópisti.. og svo var sagt að mar væri klikkaður í vinnunni.. hvað er í gangi?!
Allavega var þetta þannig í dag.. að mamma sagði mér nýjustu fréttirnar.. að því hefði verið hent framan í hana að ég væri dópisti.. veit nú ekki alveg hvernig fólki datt það í hug.. en.. sumir eru flinkari við búa til sögur en aðrir.. þetta kom allt frá einum leigubílstjóra sem var alveg pottþéttur á því að hafa séð það á mér að ég væri dópisti.. og ég býst við því að ég hafi verið á leiðinni heim af djamminu.. og hve sjúkaður er mar þá? já.. en þessi leigubílstjóri fer með þetta í vinkonu mömmu minnar.. sem gleypti alveg við þessu.. og henti því svo framan í mömmu að ég væri dópisti.. manneskja sem hefur þekkt mig í 10 ár.. trúir frekar leigubílstjóra en mér.. en um leið og það er sagt við hana að mér hafi sárnað yfir þessu.. þá tók hún til baka að hún hafi einhvern tíman sagst hafa trúað honum.. sem.. sannar það enn og aftur.. FÓLK ER FÍFL!

Og því hent framan í mann í dag að mar væri klikkaður.. þetta var þannig að strákur.. sem ég hef oft séð fyrir framan 11-11.. með öllum 10 bekkjarkrökkunum.. að reyna að fá einhvern til að kaupa sígarettur handa sér.. kemur inn.. og biður um sígarettur.. þannig að ég bið um skilríki.. alltí einu er þessi strákur bara löngu komin með aldur.. en.. það sást alveg pottþétt að þetta var ekki hann á myndinni.. vegna þess að hann er það "gáfaður" að nota skilríki hjá strák sem verslar daglega hjá mér.. þannig að ég hef "aldrei" séð þetta kort.. :D en.. þegar ég neita hann um afgreiðslu.. þá fer hann að segja mér að þetta sé hann þegar hann var ungur.. og endar þetta svo á "Þú ert bara eitthvað klikkuð!!" og labbar út.. sem lét mig líða mun betur.. fékk svona.. "I GOT THE POWER" tilfinningu.. ;)

Jæja.. núna hef ég vakað í 25 tíma.. þannig að ég ætla að horfa á amazing race og fara svo að sofa..
adios :D
Stina at 11:53 AM

Þar sem mér leiddist voðalega mikið í nótt.. búnað horfa á nýjustu simpson þættina.. gleymdi að fara í bað.. vakti pabba.. oooog.. skoðaði fullt af síðum.. þá var bara eitt eftir.. og það var að skrá sig á www.ii2.org undir nickinu creepz fyrir ykkur sem vissi það ekki.. :D
en margrét er vöknuð þannig að ég er farin með hana út að labba.. í þessu "góða" veðri :D
adios
Stina at 12:33 AM

Monday, March 24, 2003

Svona meðan stríðið er í öllum fjölmiðlum... og svaka action í gangi... þá er tilvalið að hlusta á eitt barnalag.. sem kemur manni í "gott" skap.. og getið þið náð í það lag hérna.. allavega hægt að dilla sér við þetta lag.. og lærið þetta lag rétt fyrir mótmælinn niðrá lækjatorgi næst.. :D

Stina at 9:35 PM

The Master of Disguise myndin er algjör snilld.. einhver staðar var ég búnað lesa það að.. þessi mynd væri hörmung og engan veginn fyndinn.. en það sýnir það bara að mar á ekki að taka mark á því sem annað fólk segir.. og ég las um það á cdnow.com að þessi mynd hefði slegið mest í gegn hjá yngri kynslóðinni.. þá er ég bara með óþroskaðan húmór.. en ég gat hlegið endalaust af þessari mynd.. ég mæli allavega með þessar mynd.. og fer hún á jólaóskalistan minn núna :D

Í kvöld vaknaði ég við það að fjölskyldan mín var að hlæja af ræðunni hans Michaels Moore sem var sýnd í fréttunum.. þegar ég sá hana.. þá stóð ég nú bara upp og klappaði.. algjör snilld að hann skyldi láta þetta útúr sér.. og að hann skyldi halda áfram þó fólk púaði á hann.. ég skrifaði eitthvað af henni í gær.. en ég ætla að skrifa aðeins meira núna "We live in the time where we have fictitious election results that elects a fictitious president. We live in a time where we have a man sending us to war for fictitious reasons." og er restin af ræðunni hans hérna
En önnur ræða sem mér fannst líka snilld.. það var hjá honum.. Adrien Brody og vann hann Óskarinn fyrir aðalhlutverkið í THE PIANIST þegar hann tók á móti þessu talaði hann endalaust.. og þegar hann var minna en hálfnaður þá sagði hann "they're already flashing time's up" en hélt samt sem áður áfram.. og þegar þeir byrjuðu að spila tónlistina til að gefa honum meira hint um að hann ætti að drulla sér af sviðinu þá sagði hann þetta "wait one second. One second, please one second. Cut it out, cut it out." og náði til að þagga niðrí þeim.. algjör snilld.. en ef ykkur langar að þessa 4síðna A4 ritgerð skrifum að framan og aftan.. þá er hún hérna

Jæja
Adios :D

Stina at 3:31 PM

Sunday, March 23, 2003

Núna er óskarinn búinn.. og var Steve Martin alveg að gera sig á sviðinu.. ég hló eins og mofó.. einn brandari sem lét mig hlæja alla nóttina þó þetta hafi verið næstum í endanum.. og ég var lengi að fatta hann.. en hann var svona.. "There was one word they didnt change, and that word was on page 78" og þar var hann að tala um þegar hann sendi einhverjum handrit.. :D
Svo fannst mér algjör snilld þegar Michael Moore og Michael Donovan unnu fyrir BOWLING FOR COLUMBINE svona endaði ræðan hans Michael Moore "Mr. Bush. Shame on you, Mr. Bush, shame on you. And any time you got the Pope and the Dixie Chicks against you, your time is up. Thank you very much."

Jæja.. ég ætla að fara að horfa á Master of Diskæs
adios!

Stina at 9:25 PM

Þegar ég fór í vinnuna í dag.. þá skoðaði ég náttla morgunblaðið.. og þarf blasti við mér.. grein aftan á því.. grein um Blogg.. þar sem talað var um það að það væri verið að fara að kenna það í HÍ.. :D annars hljómaði þetta svona :
Milljónir manna víða um heim stunda blogg, þ.e. skrifa dagbækur sínar á vefinn, þennan víðfeðmasta fjölmiðil heims. Hér á landi má gera ráð fyrir að á annað þúsund manns stundi þessa iðju reglulega. Margir lesa þessi blogg, en vinsælustu vefleiðarahöfundarnir eins og Dr. Gunni fá 20 þúsund „heimsóknir“ á bloggsíðu sína
Nú er svo komið að það á að fara að kenna um bloggið í HÍ í íslenskuskor á vormisseri 2004. Kennari verður Matthías Viðar Sæmundsson dósent. Samkvæmt kennsluskrá er bloggið flokkað með bókmenntum síðari alda
Jáhá.. ekki bjóst mar við þessu.. annars var ég nú búnað rekast á það.. á námskeiðum.. á vegum man ekki hvað það var.. að þar væri verið að kenna Blogg.. og gat mar tekið 7 kennslustundir.. fyrir nokkur þúsund.. þá frekar held ég nú að ég læri hlutina sjálf.. og eyði peningunum í áfengi.. :)
Þessi sunnudagur.. hefur verið nokkuð góður.. þó svo að ég hafi náð til snúa öllu við í vinnunni.. var að koma úr kökum.. Halldór frændi náttla með sína massífu rjómatertu.. og ekki mátti ég eiga afgangana..
Óskarinn er í kvöld.. og er hann Michael Douglas tilbúinn með sjúkrabíl og allar græjur fyrir hana Catherine Zeta Jones.. ef hún skyldi nú ætla að skjóta krakkanum út þarna.. ég vona annars að það gerist.. hafa meiri spennu í þessu..
Jæja.. þar sem klukkan er orðin svona margt.. þá ætla ég að planta mér fyrir framan sjónvarpið og bíða.. :D
adios!

Stina at 11:23 AM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs