Saturday, March 22, 2003
Ég ákvað að skoða aftan á Poppkortin.. og tók þar eftir því að sumstaðar voru spurningar... og ég ætla að leyfa ykkur að lesa svörin hjá Rakeli Magnúsdóttir
Gælunafn: Rakel
Fæðingardagur og ár: 4. Nóvember 1987
Stjörnumerki: Sporðdreki
Áhugamál: Bretti, Bregða, Tala við fólk, Hjálpa fólki og svo auðvitað söngur
Uppáhalds Kvikmynd: Don´t be a menace
Uppáhalds Tónlistarmaður: Vilhjálmur Vilhjálmsson
Uppáhaldsbók: Draumaráðningarbókin og Símaskráin...nota hana mest.
Uppáhaldsdrykkurinn: Pepsí
Einhverjir sérstakir hæfileikar: Sé allt það jákvæða (sé líka árur)
Hvað langar þig í: Tímavél
Hvaða fimm orð lýsa þér best: Ég er mjög þrjósk, góð, ákveðin, skynsöm, hjálpsöm.
Hver er þinn versti ótti: Dauðinn
Poppkort eða Kreditkort: Poppkort
Ef þú mættir velja þér legur: hvort myndiru velja skemmtilegur eða yndislegur: Skemmtileg
Mottó: Ég gefst ekki upp þó á móti mér blási!
Já.. skil ég það nú mjög vel að hún sé hötuð í skólanum sínum.. :D
Jæja.. ég vona bara að hún stundi voðalega mikið áhugamálið sitt.. að bregða.. og.. lesi símaskrána vel og lengi..
adios!
Stina at 7:34 PM
Eftir að mamma kom inn aftur.. þá hef ég verið að nálgast sigursætið í Poppkort.is keppninni.. núna er ég komin í sæti númer 53 og held áfram að versla Pepsí þetta hefur verið sá besti popppakki sem ég hef fengið.. þar sem ég nældi mér í Á MÓTI SÓL gaurana... reyndar sú mynd sem blasti fyrst við mér var mynd af Audda úr 70mín svo að sjálfsögðu bættist önnur Írafár mynd í þetta drasl en hef verið það heppin að sleppa algjörlega við Birgittu Haukdal.. þó mar megi ekki vera með svona attitjútt.. ef mar ætlar nú að vinna.. :D næst.. birtist andlit sem ég hafði aldrei séð áður.. og svo fór ég að lesa betur á þetta.. þá var þetta Igore þessi líka "yndislega skemmtilega" hljómsveit? sú beygla sem var á því spjaldi heitir Rakel Magnúsdóttir endaði þetta svo ekki bara á 70 mín gaurunum Sveppa og Audda... en.. ég mun halda áfram að kaupa mér poppkort.. til að þess að næla mér í fyrsta vinnininginn.. sem er..
1. VERÐLAUN:
ÓGLEYMANLEG TÓNLEIKAFERÐ Á HLJÓMLEIKA MEÐ BLUE Í FYLGD FLOTTUSTU POPPARA ÍSLANDS
GSM-SÍMI MEÐ STAFRÆNNI MYNDAVÉL FRÁ SÍMANUM-GSM
PEPSI OFURPOKINN (INNIHELDUR: GSM-INNEIGN FRÁ SÍMANUM-GSM, 2 DORITOS SNAKKPOKA, KIPPU AF 0,5 L PEPSI AUK ÁRITAÐS RISAPOPPKORTAPLAKATS)
Stina at 6:35 PM
Jæja.. mar varð nú að kaupa sér einn pakka af poppkort myndum.. bara til að skoða þetta.. og að sjálfsögðu fékk ég írafár.. ekki eina mynd.. heldur tvær.. var það þessi af bandinu árita.. svo mynd af hljómborðsleikaranum þeirra.. Andra Guðmundssyni... tvær myndir svo af í svörtum fötum.. ein fótboltamynd af Jónsa.. svo bandsmynd af þeim "öllum".. svo þurfti þetta að enda á einhverri tískumynd kom.. ég mér á listan á Poppkort.is með þessum fimm myndum.. og er ég núna.. að rembast við að komast úr sæti 82.. þess vegna er mamma núna útí búð að kaupa Pepsí handa mér..
adios!
Stina at 2:46 PM
Skreið heim til mín.. frá því að passa fyrir systir mína.. kl 11 í morgun.. ekkert búnað sofa.. og með massífan svefngalsa.. eða nei.. ég var bara svona fyndin.. :)
Sjaldan hef ég orðið jafn pirruð á þessum litlu strákum sem ég var að passa.. ég leit af þeim.. í fimm mínútur.. og eru þeir nú.. 7.. og 5 ára.. svo þegar ég leit á þá aftur.. þá höfðu þeir tekið vídjótækið sem var inní herbergi.. og voru að reyna að setja það í samband frammi.. þannig að ég þurfti að fara að taka þetta allt úr sambandi.. og.. segja þeim að fara með þetta inn aftur.. þá byrjuðu öskrin þar.. af því að þeim langaði að stinga þessu í samband við sjónvarpið.. nei nei.. ég varð ekkert voðalega pirruð.. bara svoldið
Annars var ég vakin núna.. rétt áðan.. til að horfa á Birgittu Haukdal taka Open Your Heart ég gat reyndar ekki horft á það.. um leið og ég labbaði fram.. heyrði ég "open your heart" og ég leit á skjáinn.. þar blasti við mér.. risa stórt neonskilti með nafninu BIRGITTA... þá hugsaði ég bara.. "Við vinnum!!!" og fór inní herbergi aftur.. helvítis beyglan.. annars var ég að heyra að Tatu myndi keppa fyrir Rússland.. það verður gaman að sjá hvernig þær verða.. á næbbunum.. naktar.. eða bara.. í skólabúning.. úff.. ef ég væri lesba.. þá væri ég slefandi núna..
Jæja.. Jennifer Lopez kallar.. Jenny from the block... :D
adios!
Stina at 12:50 PM
Friday, March 21, 2003
hehe.. yndislegt að fá að fylgjast með svona misheppnuðu sambandi.. þá meina ég sambandið hjá Aaron og Helene.. tók eftir því á síðunni hennar Hjördísar að.. þau séu ekki lengur saman.. bjóst mar alveg við því að þetta samband myndi ekki endast.. þar sem hún hlær svona butt leiðinlega.. :D og.. heyrði ég meira á síðunni.. að hann væri að hafa samband við Gwen og Brooke núna.. vona bara að þær láti hann nú alveg eiga sig.. :)
Jæja.. mig langaði að blogga um það sama og Hjördís
Adios
Stina at 10:15 PM
Elska þegar fólk er að reyna að ná í mig.. þó það sé verslunarstjórinn minn.. það sýnir allavega það.. að það er hugsað um mig :D
Annars skreið ég fram úr um hálf 7 leytið í kvöld.. var búnað vera að fylgjast með stríðinu með öðru auganu í nótt.. en ekkert spennandi að gerast þar.. fyrr en 2 tímum áður en ég vaknaði.. þá fyrst fóru þeir að sprengja inní borginni.. svaka action.. en ég hefði áreiðinlega bara panikkað ef ég hefði séð það.. þannig að það var best að það gerist meðan ég svaf.. var samt vakin kl 10 í morgun til að fá að heyra það að 16 bandarískir menn hafi dáið útaf þyrluslysi... það gerðist reyndar meðan ég var vakandi.. þannig að ég vissi það..
Þessu föstudagskvöldi ætla ég að eyða í að passa fyrir hana systir mína.. gera eitthvað góðverk einu sinni og sleppa þessu djammi.. þó mig langi massíft að fara á djammið.. en á engan pening.. :)
Jæja.. adios.. :D
Stina at 6:24 PM
Thursday, March 20, 2003
Bachelor í kvöld.. var ekki alveg að ná til mín.. hann valdi gelluna sem ég hefði aldrei valið.. hló leiðinlega, var leiðinleg.. en hún var samt sem áður svoldið myndarleg.. og hann á hana reyndar skilið.. hann er svo leiðinlegur sjálfur.. svo ég segi bara Til Hamingju Helene og Aaron..
Ég er búnað eyða tímanum síðan Bachelor endaði.. að skoða Hróarskeldumyndir.. af svæðinu og svona.. og er ekki alveg viss um það.. hvort við séum að koma á einhverjum góðum tíma til að ná fínu tjaldsvæði.. lendum í Kaupmannahöfn.. um hálf 10 um kvöldið.. 25 júní.. og á þeim degi í fyrra leit tjaldsvæðið svona út.. og það er dagur.. en jæja.. mar er samt sem áður að fara :D lentum ekkert á góðu tjaldsvæði í fyrra á Reading.. þó við mættum snemma.. enduðum við hliðná trjám.. sem fullt að drekaflugum áttu heima í.. *hrollur* og var pissustaður þeirra sem nenntu ekki að labba á kamrana..
En fleiri búnir að bóka sig.. afrísk hljómsveit.. og eitthvað.. :)
Væri mar ekki til í að "Hittana niðrí bæ"
adios!
Stina at 3:47 PM
Nóttin fór í það að fylgjast með stríðinu með Halldóri Frænda og Mömmu..
Ég og Halldór frændi vorum búnað ákveða að hlaupa út rétt fyrir eitt.. með flugeldar og sprengja þær upp þegar kl yrði akkúrat eitt.. til að hræða Íslendingana.. en það varð ekkert úr því.. held að Halldór frændi hafi bara ekki nennt að ná í flugeldarnar.. þannig að kvöldið fór í Bush brandara hjá okkur.. Leyfa ykkur að heyra einn sem Halldór Frændi sagði.. "Saddam is hiding in Bush"
hehe..
Jæja.. seinasti þátturinn með Bachelor er í kvöld.. þannig að ég þarf að setjast niður og búa mig undir hann..
adios :D
Stina at 11:40 AM
Wednesday, March 19, 2003
Jæja.. er ekki um að gera að leyfa George Bush og Colin Powell að syngja aðeins fyrir mann ----> Time to Bomb Saddam <---- Lag sem mar fær á heilann..
en annars ætla ég ekkert að tjá mig um þetta dæmi.. nóg að heyra um þetta í öllum fjölmiðlunum..
Ég hef ekkert gert í dag.. jú.. ég fékk að skipta á tveimur kúkableyjum.. í röð.. af því að systur minni var flökurt.. og gat ekki gert það.. gubbupestin
að ganga á mínu heimili.. og.. fékk svo eina litla Margréti Lind
hangandi í mér allan daginn.. þannig að dagurinn fór í lestur, svefn.. og að sparka litlum krakka í burtu frá sér..
Muna: Panta miða til Færeyjar á Ólafsvöku.. gleymi þessu alltaf
og skoða síðuna mína daglega sjálf.. þannig að ég mun muna þetta
Jæja adios.. ætla að fara að reyna að eignast vini á Hot Or Not
Stina at 3:26 PM
Eitt sem ég þoli ekki.. og það er Comet.. eitthvað drasl dæmi sem kemst alltaf einhvern veginn í tölvuna mína.. og smitar allt útfrá sér.. og fer svo ekkert.. þó svo ég noti allt clean dæmi á það..
tekur sér mest eiginlega bara bólfestu í explorer-inum.. til að gefa mér fleira dæmi til að ýta á þarna fyrir ofan... en mig langar það ekkert..
Dagurinn í dag hefur mest allur farið bara í það að lesa..
og sofa..
.. ég hélt áfram að lesa Adolf Hitler söguna.. þetta er svona mest bara komið þar sem Þorsteinn Thorarensen (höfundurinn) er að segja frá því hvernig aðstæðurnar voru þegar Hitler fæddist.. hvernig Þýskaland skiptist.. hverjir réðu.. margt af þessu sem ég vissi ekkert af.. t.d. að Hitler var hræddur við blóð.. Og eitt heimspekingarrit notaði hann sem hálfgerða Biblíu.. og það var heimspekingurinn Schopenhauers sem skrifaði það.. en annars.. er ég nú bara komin á blaðsíðu 22.. og á þá eftir.. að lesa að 458.. :D þannig að margt fleira á eftir að koma mér að óvart..
Miðvikudagur er leiðinlegur dagur.. það er ekkert í sjónvarpinu.. oog.. reyndar stutt í helgina.. en þetta er vinnuhelgin..
Já.. svo fékk ég flugmiðana til Copenhagen í gær.. þannig að núna verður mar bara að bíða eftir að Hróarskeldumiðarnir komi til landsins.. og þá er mar komin með þetta allt :D fleiri hljómsveitir búnar að vera að bóka sig.. en.. samt sem áður ekkert spes bönd.. Blur er komin.. hefði nú alveg mátt sleppa henni.. en ég þarf að ekki að sjá hana.. Darren Emerson.. alveg til í að sjá hann.. hann var einmitt í Underworld.. Dave Gahan.. Depeche Mode.. FLOTT.! Svo kemur Gus Gus.. og Björk Guðmunds.. sem skiptir mig engu máli þótt hefði ekki komið.. eeen.. það er ekki bara eitt svið :D
Adios!
Stina at 12:08 PM
Tuesday, March 18, 2003
Jébbs.. ég á mér ekkert líf.. en.. hver á sér eitthvað líf þegar hann er veikur.. ég allavega hef bara eytt mínum degi í að horfa á eitthvað raunveruleikadæmi.. fylgst með Amazing Race.. og aldrei hef ég verið jafn sátt.. það hefði mátt henda þessum módel
tvíburum í burtu fyrir löngu.. og reyndar líka grenjuskjóða
gellunni.. þessi gellu ætti að mega berja.. nei.. hún ætti að vera réttdræp.. hún er svo butt leiðinleg.. að ég tengi stundum míkrafón við sjónvarpið til að reyna að öskra á hana.. en.. hún fer vonandi næst.. og þá standa Ian og Terry (gamla fólkið) og Gerald og Ken (hommabræðurnir) eftir.. þá veit ég ekkert með hverjum ég á að halda..
En góða nótt..
Stina at 5:09 PM
Ég neita því ekki að ruslakarlarnir séu flottir.. og að ég öfunda þá við að vinna þessa vinnu.. en þurfa þeir samt að koma til mín svona snemma.. ég gat ekki sofnað fyrir þeim kl 11 í morgun.. sem betur fer voru þeir rétt að enda þegar ég lagðist inn..
Annars átti ég voðalega erfitt með það að sofna í gær.. ein nösin mín það stífluð að mamma á eftir að festast við koddann sinn þegar hún kemur heim aftur
.. það gerði það allavega að verkum að ég veit byrjunina að uppvaxtarárum Adolfs Hitlers.. þar sem ég teygði mig bara í bókina "Að Hetjuhöll" .. tók allavega eftir því þegar ég byrjaði að lesa.. að það var voðalega langt síðan ég las seinast.. ég þurfti að halda puttanum við svo ég myndi ekki týna staðnum sem ég var að lesa á.. eða byrja á blaðsíðunni aftur.. af því að ég gerði það ekki..
Jæja.. ég ætla að fara að sinna fólkinu.. þar sem það vakti mig.. af því að þau héldu að ég væri dáin..
adios!
Stina at 10:08 AM
Monday, March 17, 2003
Ég þoli ekki Heidi í Survivor.. er samt sem áður alveg pottþétt á því að hún verði vote-uð næst.. ef þau fá ekki friðhelgið.. allavega að sýnishornunum úr næsta þætti að dæma.. þeir allir að verða "ástfangnir" af Christy (heyrnalausu gellunni) sem er flott.. ég þoli ekki Heidi annars þoli ég ekki hópinn sem Alex og Shawna eru í.. mest bara útaf Shawnu.. hún varð alltí einu svo ánægð þegar strákarnir komu.. enginn heimþrá.. langaði ekki að fara.. rosalega skotin.. þannig að ég vona að hinn hópurinn vinni.. þó Heidi sé í honum
Stina at 1:05 PM
Vaknaði við það í morgun að systir mín kom inn með fréttablaðið vegna þess að Hrafn bróðir minn.. var að spóka sig í miðju blaðsins.. eða akkúrat á blaðsíðu 14.. hann náttla rifnaði úr montni þegar hann sá þetta... og ákvað að gerast Fjölnir Þorgeirs fréttablaðsins.. þannig að þið eigið eftir að sjá hann troða sér inná fleiri myndir þarna..
Ég hef verið að bíða eftir að sjá Rís auglýsinguna í sjónvarpinu með Birgittu Haukdal alveg frá því að það var byrjað að sýna hana.. en einhvern veginn næ ég alltaf til að horfa framhjá henni.. horfði í eitt skiptið á hana.. en sjá hana samt ekki.. veit ekki hvort ég eigi að telja mig bara heppna yfir að hafa ekki séð hana.. er bara búnað heyra diss um hana.. en mig langar nú samt sem áður að sjá þessa beyglu.. var akkúrat að heyra hvað Júróvisjón lagið heitir á ensku "Open Your Heart" "Hlakka" til að heyra það..
Jæja það er mánudagur.. ég verð að bíða fyrir framan sjónvarpið eftir Survivor svo ég missi ekki af því..
adios!
Stina at 11:22 AM
Sunday, March 16, 2003
Ég elska Simon Cowell úr American Idol.. Hann nýtur þess að dissa fólkið sem er að syngja niðrí rassgat.. algjör snilld... en Paula Abdul hún er ekta kelling.. á voðalega erfitt með að segja fólki frá því ef það er hörmulegt.. en sem betur fer er hún ekki ein að dæma þetta.. aftur á móti fannst mér lagið með Ruben Studdard.. brilliant.. ég vona að hann eigi eftir að vinna þetta.. þó svo ég eigi eftir að sjá alla hina.. ég hélt fyrst með Enríkó Íglesías gaurnum sem komst ekki áfram.. því miður.. þannig að núna.. er ég með Ruben :D
Getið dl laginu hans hérna ----> Ruben Studdard - Don´t You Remember <--- hægri klikka og gera save target as :D
jæja.. svefn..
adios!
Stina at 6:40 PM
Sjaldan hef ég verið jafn þunn og í dag.. mér leið ógeðslega.. drukkum líka í næstum 12 tíma.. þannig að mar var orðin subbulegur...
Ég fékk einhvern afmælisdrykk frá vinnunni á Broadway í gær... og afmælissönginn :D en þessi drykk var alveg butt áfengur.. fyrir utan náttla að við vorum með 2 pela sem við blönduðum útí vatnið okkar.. og ég held að við höfum alveg stútað þeim.. svo fórum við að dansa.. ég man ekkert við hvaða lög.. man ekkert eftir þessu.. nema að við stungum af til að fara á Gaukinn.. og þar var Sssól.. minnir að það hafi ekkert verið varið í þá eins og bara um daginn.. þeir eru bara búnir.. taka of mikið af þessum nýju lögum.. og þau lög kann mar ekki..
Annars í fyrsta skiptið í fimmtán ár.. eða svo.. sem ég fékk einhverja pakka :D Halldór frændi bakaði köku handa mér.. sem var massíft góð.. Elín gaf það í skyn að ég lyktaði illa með því að gefa mér sápur :) og Dipsí gaf mér sjalið sem hún heklaði fyrst.. fékk líka tröllastyttu frá Möggu systir.. hún sagði áður en ég opnaði þetta "það er bara hugurinn bakvið þetta" ég vil reyndar ekki vita hvað hún hugsaði þegar hún sá þetta og keypti þetta.. :D
Mjög skemmtilegt afmæli hjá mér.. :) reyndar með þeim skemmtilegustu lengi.. jæja.. Hlemmur er að fara að byrja..
adios!
Stina at 2:39 PM