Friday, March 14, 2003
Bachelor í gær.. HÖRMUNG!! ég bjóst við seinasta þættinum.. but nooo... ég líka endaði með því að öskra.. og blóta... en.. ég hef þá eitthvað til að bíða eftir.. :D
Í morgun sendi mamma mig í sprautu.. áreiðinlega bara af því að hún veit að ég er skíthrædd við sprautur.. hef alltaf haldið því fram að ég eigi eftir að deyja af því að þau sprauta óvart lofti í mig.. en þetta var heilahimnubólgusprauta.. þannig að það er flott að vera bólusett fyrir þessu..
Fór útað borða á Hard Rock áðan..svona í tilefni afmælis míns.. fór með henni Gyðu.. og um leið og við settumst.. var tónlistin hækkuð í botn.. og Hard Rock stelpurnar byrjuðu að hlaupa um allt Hard Rock með flautur og stjörnuljós.. þá hélt ég að Gyða hafi farið með mig eitthvað annað en á Hard Rock.. :/ en ég passa mig þó allavega að koma mér ekki á Klepp.. :D Langaði samt sem áður massíft að fara á djammið þegar ég var búnað borða þarna.. en hélt í mér.. langar að vera hress á morgun..
þarf að vakna snemma til að fara í ljós.. til að gera mig fína..
Dipsí þú ert yndi :*
adios
btw ég á afmæli í dag.. :D
Stina at 4:57 PM
Thursday, March 13, 2003
Jæja.. loksins er ég komin í gott skap til að nenna að tjá mig hérna...
Dagurinn í dag var nokkuð góður bara.. ég og Dipsí flökkuðum á milli fullt af tölvubúða til að skoða Digital myndavélar.. þó svo ég hafi ekkert voðalega mikið verið að skoða þær.. eina sem komst í hausinn á mér voru gemsarnir.. svo náttla fór ég að athuga með árshátíðarföt.. en.. fann ekki neitt.. fann svona fínan kjól inní skáp.. þannig að þetta er allt reddað.. mcdonalds mátti ekki sleppa makkaranum.. svo var bara farið heim og látið sér leiðast..
Það virðist vera að fimmtudagur fari voðalega illa í starfsfólk í dag.. flest allir að svaðalega "glaðir" en ég skil þau svo sem.. ég sleppti við deginum í dag með því að taka aukavakt fyrir bróðir minn í gær.. þannig að mér líður vel.. jæja Elín komin..
adios!
Stina at 12:28 PM
Gat ekki fundið mér neitt til að fara í á árshátíðina.. svo ég verð líklegast bara að vera nakin.. sem skiptir mig engu máli.. og mun ekki vorkenna neinum að þurfa að sjá mig nakta.. aumingja þau bara að vera að borga 2000 kr inná þessa árshátíð..
Jæja.. seinasti þátturinn af bachelor í kvöld.. ég ætla að fara og gera eitthvað.. þó ég viti ekkert hvað það getur verið..
bless
Stina at 10:38 AM
Wednesday, March 12, 2003
Fjölskyldan mín verður mjög söngmikil þegar hún á að taka til.. og tekur uppá því að semja lög um það hvað þau eru að þrífa.. eins og t.d. bróðir minn eitt kvöldið þegar hann var að þrífa hor eftir sig.. þá tók hann uppá því að semja stutt en.. gott lag um það.. og ég ætla að leyfa ykkur að lesa það... :D
Hor hart Hor..
Við náum í tusku og ajax
og þvoum
Hor hart Hor
jæja.. ég ætla að fara að sofa snemma.. verð vakin áreiðinlega of snemma af henni Dipsí.. til að versla eitthvað fyrir árshátíðina..
adios! :)
Stina at 5:53 PM
Ég þoli ekki karlmenn með tyggjó.. eða bara fólk sem er með tyggjó.. sérstaklega þegar það tyggur það eins og það eigi lífið að leysa.. getur ekki verið með það uppí sér.. og sleppt því að smjatta á því þegar það talar.. en.. samt sem áður finnst mér þetta mun ósmekklegra þegar karlmenn eru með það.. bara eitthvað svo hommalegt.. annars er ég háð þessum viðbjóði.. eiginlega mest af því að ég er butt andfúl.. þó svo tyggjó geri ekkert í þeim málum.. betra samt að sýna fólki að ég reyni eitthvað..
Jæja Kevin Costner fyrir mig :D
Stina at 3:55 PM
Stina at
8:14 AM
Úff.. Ég hélt ég gæti farið í nokkra hringi í rúminu.. hugsaði alltaf.. bara einn hringur enn getur ekki skaðað.. og endaði því næstum á gólfinu.. en náði að spóla mér upp aftur.. og gat ekkert sofnað eftir það.. þess vegna skrifaði ég strax niður á afmælislistan minn.. sem ég reyndar bjó til akkúrat þá.. "King Size bed sem fyllir útí herbergið mitt svo ég geti velt mér í nokkra hringi án þess að detta framúr" ég er alveg pottþétt á því að mamma og pabbi eigi eftir að kaupa þetta handa mér.. og porsche-in sem ég bað um..ohh.. ég vildi að ég væri ofdekruð stelpa með gullskeið í rassinum..
Jæja.. styttist alltaf meira og meira í ellina.. núna eru 3 dagar í það að ég verð 19 ára.. spurning hvort ég eigi eftir að þroskast eitthvað.. býst ekki við því.. þar sem ég er mjög þroskaður einstaklingur.. og erfitt fyrir íslenskan aðila að þroskast enn meira en ég er.. svo einn tveir og tíu.. :D
Þessi helgi á vonandi eftir að vera skemmtileg.. aldrei lent á skemmtilegri afmælishelgi.. hvað þá skemmtilegri árshátíðarhelgi.. svo kemur þetta allt saman núna.. en ég fer útað borða með Gyðu á föstudagskvöldið.. hef ekki guðmund hvert það verður.. en.. það kemur allt í ljós.. hugmyndirnar hennar eru nebbla svo dýrar "Lækjarbrekka, Humarhúsið, Argentína.." myndi vilja það pottþétt ef ég skiti peningum.. eða ætti ríkan lögfræðingakarl.. :)
Svo þessi Kaupás árshátíð á laug.. svona.. flott að ég skuli ekki þurfa að fara ein.. takk Dipsí :*.. en.. ég þoli bara ekki að vera innan um allt þetta verslunarstjóradæmi.. og fólkið niðrá kaupás skrifstofu.. ooog.. starfsmennina.. ég sting áreiðinlega af strax eftir fordrykkinn.. þar sem hann er áfengur.. og eina áfenga sem mar fær frítt þarna.. eða kem mér bara í blackout.. þá veit ég ekkert af þessu fólki.. :D
Vinnan kallar eftir 2 tíma.. ætla að fara að punta mig..
adios!
Stina at 7:08 AM
Tuesday, March 11, 2003
Vilhjálmur Vilhjálmsson hlýtur að snúa sér í gröfinni sinni núna.. hef tekið meira og meira eftir því hve vinsælt það er hjá íslensku söngfólki að taka lög eftir hann.. og ég er ekki sátt.. mér finnst þetta mest bara nauðgun á snilldarlögum.. sérstaklega má þó Sigga Beinteins eiga mestu nauðgunina.. þar sem hún tók Lítill Drengur.. á geisladisknum sem var gefin út til minningar um hann? þar var voðalega mikið um nauðgun.. en hún fær fyrsta sætið á þeim disk.. svo kemur Bjarni Ara á eftir henni.. ætli mér hafi ekki fundist Sóldögg standa sig best.. þeir tóku Bíddu Pabbi.. og þetta var mjög vel tekið á þeim.. en.. mér finnst samt sem áður.. að þessi lög eigi bara að fá að vera hjá honum.. hann tók þetta best sjálfur.. og það nær enginn til að toppa þetta.. :)
Æji mér fannst ég svo fyndin í vinnunni áðan.. en ég nenni ekki að ræða það..
Annars hef ég ekki bloggað jafn mikið og ég hef alltaf gert vegna þess að ég þarf að halda uppi svona "bloggi" fyrir hana litlu frænku mína Margréti Lind líka.. en það er kallað á góðri íslensku.. vefdagbók endilega skoðið þetta vegna þess að mamma hennar fer daglega á þetta til að tékka á því hve margir hafa farið inná síðuna.. og skrifið í gestabókina.. það þarf nebbla lítið til að kæta mömmu hennar.. :D
Stina at 5:37 PM
Ég var að skoða heimasíður áðan.. vegna þess að ég hafi ekkert að gera.. og rakst á þessa síðu á pentagon draslinu What up...dawg mig langaði mest bara að sýna okkur hana útaf "ljóðinu" sem blasti við mér þegar ég fór á hana..
Ekki vil ég þreyta það
mök með þroskeheftum
heldur vil ég fara í bað
og þvo þessar hugsanir í burtu
hehe.. þetta er svo subbulega fyndið ljóð.. þó það sé ekki fyndið.. :D
Stina at 9:50 AM
Alveg ótrúlegt hve dýrt er að fljúga til Kaupmannahafnar.. við vorum reyndar búnar að finna okkur flugmiða í gær á 13þúsund.. en gátum ekki pantað það af því að við vorum ekki með neitt Visa kort.. svo þegar ég lít á sama aftur um kvöldið.. þá var það komið uppí 19þúsund.. og núna.. nokkrum tímum seinna.. er það komið uppí 26 þúsund.. borga sig að vera alltaf með pening við hendina á Visa kortinu þegar mar ætlar að panta eitthvað svona.. :/ en samt sem áður er þetta ódýrara en á Icelandexpress og erum við að panta hjá Flugleiðum ..
Og hefur síminn minn ekki stoppað útaf þessu.. vaknaði kl 12 af því að ég átti að sjá um að panta þetta.. mig langaði virkilega að fara að gráta.. gat ekkert sofnað eftir þetta..
Jæja.. þá er mar á leiðinni á Hróaskeldu.. komin með flug.. og miða.. :D
Stina at 6:59 AM
Monday, March 10, 2003
Rosalega fer mánudagur illa í fólk.. og þá verð ég rosalega skemmtileg í skapinu með þeim.. þar sem allt er látið bitna á mér.. ég má ekki klæða mig úr sokkunum þegar ég er sofnuð.. það er öskrað á mig af því að fjarstýringinn er ekki í rúminu hjá Hrafni.. það fríkar allt út af því að ég stend ekki upp þegar það er hringt dyrasímanum af því að þetta var til mín og það var manneskjan sem sat við hliðná dyrasímanum sem æsti sig.. ef það er einhver dagur sem ég væri til í að vera í blackouti á.. þá væri það mánudagur..
Annars var ég að horfa á Sorority Boys.. sú mynd er mjög skemmtileg.. eða svona.. útreiknanleg.. en koma fyndnir kaflar í henni.. flest allar svona myndir eru útreiknanlegar..
myndir sem strákar verða reknir úr einhverju.. og ákveða að klæða sig þá í kvennmannsfólk.. verða þá ástfangnir af einhverjum kvennmanni sem þeir kynnast voðalega vel meðan þeir eru í kvennmannsfötunum.. og svo leysist allt málið.. þá þurfa þeir að útskýra fyrir gellunni.. allt.. og enda svo með henni.. en ef manni langar að hlæja eitthvað.. þá er þessi mynd alveg fín til þess..
Jæja.. ég ætla að fara að henda mér eitthvert.. skoða það sem allt var brjálað útaf á Tilveran.is í Ísland í bítið í morgun.. kannski ég sýni ykkur bara það.. það er þetta.. Bónus , Fréttablaðið , Con Air , Goodfellas og svo Baugdróttinssaga
Fólk er fífl
adios!
Stina at 2:51 PM
Ætli fimm seinustu mínúturnar í vinnunni séu ekki bara þær skemmtilegustu.. þá loksins fer mar að vera hress við viðskiptavinina.. og mar fer að brosa.. en lenti ekki í neinu óvenjulegu í vinnunni í dag.. stóð bara á kassanum, las dv, skoðaði moggann, horfði á slúðurblaðabunkan í rekkanum fyrir framan mig..
En meðferð.. það virðast allir vera að fara í meðferð í dag.. *strokað út*.. hef ekki kynnst því að meðferðir séu eitthvað að virka á fólk.. þar sem flest þetta fólk er ekki að fara af því að þau vilja fara.. og hvað gagnast það? ekki neitt.. það fer í meðferð.. kemur úr meðferð.. og fellur.. ef mar virkilega vill hætta þessu rugli.. þá getur mar gert það sjálfur.. en ef manni líður betur að hætta.. og segja fólki frá öllu því sem maður gerði.. fara og biðja fólkið sem mar gerði eitthvað við afsökunar.. þá getur mar farið í meðferð.. líka.. þessi 12.skref.. þar er eitt að biðja afsökunardæmi.. ég hef verið að heyra sögur um það að fólk hafi farið og beðið einhvern afsökunar á því.. að hún hafi einhvern tíman hlegið af hárgreiðslunni hennar.. eða þegar manneskja datt á rassinn.. ef ég myndi fara í þetta skref þá væri ég mjög lengi að biðja alla afsökunar sem ég hef hlegið af.. eða böggað.. æji.. *strokað út*.. megi fólk fara í þetta ef það langar það.. :D
Annars hefur bróðir minn undanfarnar daga verið að kalla mig trukkalessu og sagt að foreldranir hafi viljað eignast 2 stráka þess vegna alið mig upp sem strák... en þar sem ég veit að hann les þetta.. þá ætla ég að rifja upp æskuna fyrir honum..
Hann grátbað fjölskyldumeðlimina um að setja tígó í hárið á honum til að vera smart..
Hann klæddi sig í náttkjóla af því að honum fannst þeir svo þæginlegir..
Hann var með snuð þangað til að hann var fimm ára.. ekki eitt.. heldur sex..
Hann fór næstum því að gráta þegar hann varð skítugur..
Já... Hrafn það má vel vera að þau hafi reynt að ala mig upp sem strák.. kannski af því að þau sáum ekki fram á að þau myndu takast það með þig :)
Stina at 10:29 AM
Þó ég hafi vaknað kl hálf átta um kvöldið.. þá sofnaði ég aftur kl 23.. og er ennþá dauðþreytt.. en ég held það sé mest bara af því að Margrét Lind er voðalega ofvirk.. vaknaði með henni í morgun.. og hef verið að hlaupa um alla íbúð að binda skápa og skúffur saman svo hún sé ekki að gleypa peninga eða sogskálar..
Annars dreymdi mig alveg yndislega í nótt.. dreymdi að ég var að fara á ball með Skímó.. og ákvað að svindla mér leið.. inná milli einhverja húsa og girðinga.. fór þar sem fullt af kindum voru.. og steig í skítinn þeirra.. þannig að ég vakti ennþá meiri athygli þegar ég var komin á ball svæðið.. bráðnaði algjörlega þegar Skítamórall talaði við mig.. en það var bara af því að ég bað þá um að gefa mér smá áfengi.. svo vaknaði ég í svitabaði og grátandi.. en ég held að allir myndu lenda í því sama ef þeir myndu dreyma Skítamóral
Jæja.. meira um Birgittu.. Birgitta eða einhver sem tengist henni eru alls staðar sem ég lít.. ég var ekki búnað sjá helgarblað DV fyrr en ég vaknaði á sunnudeginum.. eða öllu heldur þegar ég var að labba heim til mín kl 14 á sunnudeginum.. þá leit ég aðeins í Bónus gluggan.. og þar blasti við mér Hanni kærastinn hennar Birgittu.. næstu helgi kemur hún áreiðinlega í helgarblaðinu.. en þetta er í lagi.. ég ætla ekki að labba framhjá Bónus þá..
Ég er mest fegin að hún hafi ekki verið á forsíðunni með Hanna.. kom sem betur fer bara nafnið hennar.. en ég þurfti að lesa greinina.. var illt í maganum.. og fann ekkert annað að lesa..
Stina at 3:52 AM
Sunday, March 09, 2003
Loksins vakna ég.. og loksins blogga ég.. :)
Allt að gerast í gær.. samt þó eiginlega ekkert.. vaknaði þunn og skemmtileg.. og ákvað að skella mér með Gyðu á brúðkaupsýninguna í Smáralindinni.. þetta var ekkert voðalega skemmtilegt.. ágætt að labba þarna í gegn.. en þá lenti mar líka í þessu auglýsingabæklingaflóði.. svo settumst við bara á kaffihús og röfluðum heillengi.. þangað til að ég fattaði að ég var á leiðinni á boxið.. þá var rokið út, náð í Elínu og hent sér niðrí Laugardalshöllina.. ég get sett útá eitt.. þetta voru ógeðslega óþæginleg sæti.. bara af því að ég var ekki með gullmiða sem "fræga" fólkið fær.. þá fékk ég að sitja á bláum hörðum bekk.. ég var líka pottþétt á því að það myndi koma á forsíðu DV daginn eftir að það væri gyllinæða faraldur á Íslandi..
En boxið.. það var nokkuð gott.. þó svo að endadæmið hafi verið betra.. það sem mátti ekki sýna í sjónvarpinu.. kick boxið og þetta slagsmálabox.. kannski vegna þess að gaurinn sem keppti í slagsmálaboxinum var í massíft tight hjólabuxnanæbbum og hvítum í þokkabót..
En já boxið.. mér fannst þetta voðalega íslenskt.. og.. karlmennirnir slást kellingalega.. nema seinasti bardaginn.. þar sem Ingólfur Stefánsson var að keppa.. sá bardagi var góður.. og líka bara stemmning að vera þarna.. var með 2 frændur mína og 2 frændur þeirra.. gaman að hlusta á þá öskra á þá sem voru að keppa við íslendinga.. það kom einn hollendingur sem þeim fannst svo kínverskur.. þannig að öskrin þeirra voru "Rotaðu Kínverja drusluna!!" og "Dreptu Kínverja aumingjann!!" reyndar fannst mér þetta bara mest fyndið af því að þetta var svo ekki Kínverskur gaur.. :) en þetta box lét mig iða. mig langaði svo á djammið.. var löngu búnað gleyma því að ég þyrfti að passa eftir boxið.. og skokkaði því að kaupa mér bjór þarna.. en um leið og ég stend í röðinni þá mega þeir ekki selja lengur.. búið að banna það.. labbaði ég blótandi til baka.. og blótaði restina af boxinu.. svo kom ég heim til systir minnar.. og nældi mér í nokkra bjóra.. og sat svo að sötraði bjór alla nóttina.. fín pössun þetta.. svaf líka voðalega lítið.. þannig að ég og Elín rotuðumst hérna heima.. og það líka alveg til hálf 8 um kvöldið.. loksins fékk ég að vakna við hliðná einhverjum.. :D
Verst að ég þarf að finna mér eitthvað til að dunda mér við að gera núna.. :/
adios!
Stina at 12:36 PM