creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, March 08, 2003

Ok síðasta færslan var skrifuð strax eftir djammið.. þannig að ég ætla að leiðrétta hana.. :)
Við fórum reyndar á djammið í gær.. eitthvað sem ég ætlaði ekki að gera.. ætlaði bara að sitja róleg heima og sötra bjór með einhverju spili.. en endaði á Ice ventura kvöldinu á Gauknum.. þar var drukkið.. og drukkið.. hittum við Ladyj-ið.. og eitthvað lið með henni.. og litum svo heim með 2 af vinum HENNAR.. ég þekki þá ekkert.. hef reyndar bara hitt þá einu sinni.. annars var hluti af þessu réttur þarna fyrir neðan.. þeir héltu að þeir væru að komast í eitthvað gott.. en.. svoleiðis bulli nenni ég ekki.. og Dipsí nennti þessu ekki.. við sturtuðum bara í okkur bjórunum sem þeir áttu.. og stungum af.. litum aftur niðrí bæ á Gaukinn en þá var allt orðið svo dautt.. þraukuðum ekki þar nema í áreiðinlega hálftíma.. kltíma.. svo var bara tekin mömmutaxi heim.. hoppað í náttföt.. og farið að sofa.. hjúfrað sér að dipsí-inni.. í staðinn fyrir einhvern gaur..
btw.. ég sá næstum því Irmu (box"gellu") á Gauknum.. trukkalessa frá andskotanum..
en þetta var annars skemmtilegt kvöld.. mikið drukkið.. mikið talað.. en við hefðum alveg eins getað sleppt því.. kannski sniðugast.. að vera ekkert með svona upphitanir..
næsta helgi verður betri.. og Dipsí.. takk aftur fyrir afmælisgjöfina :*
Annars er ég að fara á boxið í kvöld.. loksins sem einhver býður mér á svona.. þó það sé pabbi frænda minna.. og ég fékk miðana til að fara með þeim.. þá var mér samt boðið á þetta.. af karlmanni.. :) en jæja..
adios!

Stina at 7:39 AM

Friday, March 07, 2003

ÓTRÚLEGT.. við fórum á djammið áðan.. þar hittum við gaura sem við þekkjum.. en þeir náttla sure á því að við höfum áhuga.. sem við þurftum að telja þá í 4 tíma að við höfðum ekki.. þó við höfðum kíkt með þeim heim til að kíkja í annað partý.. sem þeir náttla héltuð að væruð hössl.. en við urðum að stinga þá af..
en gaurar eru gaurar.. ég er farin að sofa
adios
Stina at 9:16 PM

Ég er í fríi þessa helgi.. var svo góð að skipta við bróðir minn.. ef hann myndi taka helgina.. og hvað er að gerast þessa helgi? ekki neitt..
Jú mar gæti skellt sér á Írafár á gauknum á morgun.. kannski mar geri það.. ég er nebbla svoldið skotin í Birgittu Haukdal.. fékk auglýsinguna af henni gefins í vinnunni.. reyndar bara til að bögga systur mína.. hengja hana uppá vegg.. þegar hún er sofandi svo hún fái martröð.. múhahhaa :D
Ég ætla allavega að skella mér í ríkið núna og kaupa mér smá bjór.. svo hugsa ég málið.. Dipsí ef þú ert hérna.. þá máttu alveg koma í bæinn á morgun á smá djamm.. eða bara í kvöld.. ég væri alveg til í smá upphitun fyrir næstu helgi.. :)

Annars hef ég ákveðið að láta það eiga sig að brosa.. ég brosi reyndar voðalega sjaldan.. en þegar ég geri það.. þá virðist fólk fælast í burtu.. getur verið af því að ég hef ekki tannbursta mig í 2 mánuði.. en ég efa það.. svo er sagt að bros láti mann líða betur.. ekki í mínu tilfelli, frá og með deginum í dag.. er ég farin í brosverkfall.. og þetta verður jafn auðvelt fyrir mig og bíóverkfallið.. þar sem ég þoli ekki bæði.. :)
adios!
Stina at 10:59 AM

Thursday, March 06, 2003

Jæja.. ég hef verið að leika mér svoldið að gera síðuna flottari.. og núna spyr ég ykkur fólk.. og vil að þið svarið..
hvernig finnst ykkur bíómyndir og stjörnur.... og playlista dæmið?
er þetta eitthvað sem ég ætti að hafa?

Stina at 8:33 PM

Ég ákvað að skoða aðeins hverjir eiga afmæli á sama dag og ég.. og fyrst ber að nefna

7unda forseta Bandaríkjanna Andrew Jackson

Þessi hefur unnið tvenn grammy verðlaun fyrir besti leikarinn :)

Judd Hirsch sem er þekktur fyrir að hafa leikið í myndinni Taxi

Svo er það maður sem fæddist 15. mars.. og dó 21 mars..

þetta er hann MacDonald Carey
Hann lék mörg gestahlutverk í þáttum.. t.d. einum vinsælum hérna á Íslandi.. það er Murder She Wrote.. með Jessicu Flatcher..

Svo er Grateful Dead bassaleikarinn líka það heppinn að eiga sama afmælisdag og ég.. :)

Phil Lesh heitir hann

En ég held ég hendi þeim manni sem ég er stoltust af að eigi sama afmælisdag og ég..
og það er hann
FABIO!!


Þetta sýnir sig bara mjög vel.. við sem eigum afmæli 15.mars.. erum falleg, hæfileikarík, getum orðið forsetar og bassaleikarar.. unnið með Jessicu Fletcher.. og módelast..

Stina at 8:27 PM

"ohh i cant wait to get out of this car.. Hey go kart!!"
Ef ég er ekki komin með argandi gyllinæð þá er þetta bara dofi í rassinum.. mar verður að fara að rífa sig uppúr sófanum oftar.. gera eitthvað meira en að planta sér fyrir framan einhverja svona raunveruleikaþætti.. Bachelor þátturinn var ekkert svo rosalega spes.. sýnir bara hve sumt kvennfólk er vitlaust.. grætur yfir þessum karlmanni.. hvað voru þær að fara ef þær höndla ekki svona.. þeir geta náttla farið að hafa líka svona lesbu og homma þátt.. þar sem trukkalessurnar ráðast á hvor aðra fyrir kvennmann.. og karlmennirnir píkuskrækja á hvorn annan fyrir karlmann.. það myndi fá met áhorf.. verst að við íslendingar skulum vera svona lítil þjóð.. erfitt fyrir okkur að setja svona þátt í gang.. eins og mar hefur bara séð í djúpu lauginni þegar hommar eða lesbur eru.. þá þekkja þau eiginlega öll hvort annað.. það er ekkert jafn skemmtilegt.. en ég ætla að henda þessari hugmynd til einhverrar virtar rásar útí útlandinu.. :)

Jæja.. núna ætlar Stínan að baða sig loksins.. og henda sér uppí rúm.. velta sér í þennan einn og hálfa hring sem hún getur í rúminu.. og fara svo að sofa.. :)
adios!
Stina at 3:02 PM

O DEAR GOD NO!!! kallinn sem gerði hockey pockey lagið var að deyja :(

En annars nýtt í fréttum frá því seinast.. þá fer Birgitta Haukdal víst fyrir okkur út.. og tekur lagið meira að segja á ensku.. þetta kom allt í fréttunum áðan.. ;(
vonum bara að hún flækjist í einhverju índjánaskrauti hjá sér og brjóti á sér löppina.. "BREIK A LEGG" Birgitta "okkar" en.. vonum bara að útkoman á laginu verði flottari á ensku.. og þegar það verður búið að breyta þessu svo þetta verði ekki líkt hinu laginu.. og segjum henni að fara í einhvern Öskudagsbúning.. svo fólk þekki hana ekki.. getum ekki gert útlensku fólki þetta..

adios!
Stina at 11:05 AM

Ég sem hef ekkert haft að gera í dag.. fór að hjálpa systur minni við að gera eitthvað í barnalands síðuna hennar Margrétar
Fór svo að flakka og á þessu flakki um barnaland.is rakst mar á 2 síður.. hjá systrum sem eru 5 og 6 ára.. og þar lýsir sér mar hve mikið Birgitta Haukdal er dýrkuð hjá þessum ungu krökkum.. síðurnar eru hérna og hérna frábært líka að það sé hægt að fá svona Birgittu Haukdal bakgrunn hjá þeim.. ég kann ekki ða setja það á heimasíðuna mína.. en hún er svo sannarlega komin í wallpaper hjá mér.. tók meira að segja Árna Johnsen út fyrir hana..

Annars hefur mar verið að heyra um það að lagið sem Birgitta á að syngja fyrir okkur í júróvisjón fari ekki.. ég held að það sé bara bullcrap.. held að þeir munu ekki hætta við að senda það.. munum bara ekkert keppa á næsta ári.. sem er alltílæi... ég held þá bara með Dönum.. þeir hafa alltaf komið með betri smelli en við.. Olsen bræðurnar... og svo.. "I´m never gonna let you go.. thou you hurt my feelings.. you bring back memories all the times.." smellir.. meðan við rétt svo skríðum inná þetta með.. "hægt og hljótt" og eitthvað fáranlegt.. stundum skammast mar sín fyrir að vera Íslendingur.. en mar getur ekki gert neitt í því.. :)

Jæja.. ég ætla að setjast fyrir framan sjónvarpið.. og telja niður tíman sem er þangað til að Bachelor byrjar.. <-- þetta er ekkert til að skammast sín fyrir.. ;)
adios!
Stina at 8:34 AM

Ég gat ekki horft á framhaldsmyndina í gær.. "grét" svo mikið.. alveg butt vont að vera með kvef í auganu.. það var líka til þess að ég var að segja nei við ísbíltúr.. labbaði samt útí Bónus til að kaupa eitthvað fyrir okkur sem eru heima meðan settið er í bústaðarferð.. það var hörmulegt..

Rosalega er Árni Johnsen að gera góða hluti þarna á Kvíabryggju.. allir að fara að fá lúxus rúm.. og brekkusöng á hverju kvöldi.. kannski mar reyni að troða sér þangað inn.. fyrir utan að það var allt gert voðalega flott fyrir Árna Johnsen áður en hann kom þangað. .málað.. og allt tekið í gegn..
GO ÁRNI GO!!

Bachelor í kvöld..

adios!
Stina at 6:04 AM

Wednesday, March 05, 2003

Ég las áðan í fréttblaðinu um Eurovision lagið okkar Íslendinga.. svo kom þetta í Ísland í bítið.. ég allavega var ekki búið að heyra það mjög vel hve líkt þetta var.. en þegar þau byrjuðu að spila þetta þarna hjá stöð2.. þá var þetta bara nákvæmlega eins.. mér finnst að þau ættu að leggja þetta lag niður.. og taka það sem kemur á eftir.. eða senda þessa sem var í 3ja sæti.. hún var víst mjög góð söngkona.. og lagið mjög flott.. sendum allt nema Birgittu Haukdal.. gaman hefði verið að sjá.. Leoncie á sviðinu þarna.. eða Skímó.. allavega undirskriftalisti í gangi núna.. um að senda eitthvað annað.. :)
ARGH... FRAMHALDIÐ ER BYRJAÐ..
ADIOS!!
Stina at 1:11 PM

Dagurinn í dag er búnað vera nokkuð góður.. fyrir utan það að ég sé veik.. en.. Margrét Lind ákvað að byrja að labba núna rétt áðan... held að henni hafi mest bara vantað athygli og ákveðið að þetta hafi verið besta leiðin til að fá hana.. það var alveg rétt hjá henni.. Guðmunda.. fór að hringja í allt og alla til að segja þeim frá þessu.. meðan sat Margrét Lind á gólfinu hlæjandi..

Annars náði ég til að festast í þessari helvítis framhaldsmynd í gær.. eitthvað lestarkjaftæði.. lestin gat ekki stoppað.. "i think it was called the bus that could slow down" og.. þau ætluðu að taka hana bara af teinunum.. en svo kom það fram að það var kjarnorkusprengja í henni.. sem enginn vissi af.. nema þeir sem stálust til að setja hana í lestina til að minnka kostnaði eða eitthvað.. og.. lestin átti eftir að koma í Denver.. þar sem allt fríkaði út.. svo endaði þetta akkúrat á því þegar hún fór inní Denver.. sem gerir það að verkum að mar þarf að horfa á þetta aftur í kvöld.. eeen.. það var lokað fyrir stöð2 í dag.. :(

Ég rakst á gamalt myndband með Tom Jones á Skjá einum áðan.. þar sem hann var að syngja lagið "It´s not unusal" talandi um hönk.. þessi manneskja sýnir bara að fallegt fólk getur fríkkað meira.. hann hefur svo sannarlega orðið myndarlegri með aldrinu.. það komu á seinasta ári tónleikar með honum í sjónvarpinu.. þar sem hann var að spila með fullt af öðrum böndum.. og einmitt tók það upp.. og hef horft á það af og til síðan þá.. flottar mjaðmasveiflur.. Tom Jones er eitthvað sem mun alltaf vera.. ég er strax byrjuð að safna næbbum sem ég myndi henda í hann þegar ég fer á tónleika með honum.. :)

Svo er Bachelor á morgun.. vúhú.. núna fara allar gellurnar að rakka hann niður.. æji.. ég er farin að sofa..
adios!
Stina at 7:24 AM

Tuesday, March 04, 2003





Þú ert Davíð Oddsson:

Þér finnst þú vera frábær og flestir aðrir
aumingjar (nema Össur; hann er dóni). Þú ert oft hnyttin(n) og
skemmtileg(ur) en þeir þættir týnast þó í valdhrokanum sem er að sliga þig.

Taktu "Hvaða stjórnmálaleiðtogi ert þú?" prófið






Jáhá.. SVONA PRÓF ættu að vera á hverju strái.. þetta eru skemmtileg próf.. hitt er bara bull.. :) og.. ég læt fjölmiðla vita að þú hafir reynt að múta mér.. þú..!
Stina at 6:01 PM

Ég veit það er óþarfi að minna ykkur vini mína á þetta.. en.. það eru 10 dagar í afmælið mitt.. og á þeim degi fer ég á Árshátíð hjá Kaupás.. mest eiginlega bara til að geta sagt fólki frá því.. að ég hafi haldið fjölmenna veislu.. og bið þá sem koma á þessa Árs/afmælishátíð að skilja gjafirnar eftir í andyrinu á Broadway.. ég kippi þessu bara upp með mér þegar ég fer heim.. en á þessari Árshátíð.. verða Í svörtum fötum að spila.. það er í lagi.. mar á hvortið er ekkert eftir að vera þarna þá.. mar drífur sig áreiðinlega bara í bæinn.. þar sem áfengið á Broadway er butt dýrt.. en ágætt að fara þangað.. þó svo.. mín búð eigi að vera með skemmtiatriði.. og allir í henni að vera með.. :/ ég þori ekki að ganga í gegnum það aftur.. þar sem ég og Hulda "slóum" í gegn á árshátíð hjá SS hérna áður fyrr.. fórum uppá svið og sungum "Frystikistulagið" meðan einn gaur strippaði.. og.. við hálfpartinn vorum púuð niður af sviðinu.. því miður eru til myndir af þessu.. en um að gera að drekka bara nóg. :)

Viltu Læra Íslensku var að enda núna rétt áðan.. þetta eru mest snilldarþættir sem ég hef séð.. þó svo gellan tali eins og hún sé að tala við smákrakka.. "Og Haninn galar.. Gagalagú!!" en samt sem áður.. snilld að horfa á þetta.. og hef ég núna séð 3 þætti af þessu.. þegar þau fóru í strætó, skóbúð og í fjölskyldu og húsdýragarðinn.. og yndislegt hvernig gaurinn hennar Selmu leikur vel útlending.. "Já skott.. skooootttt.. sem er loðið og mjúkt.. skott"

adios!
Stina at 5:08 PM

Ég er búnað finna ráð til að losna við allar heimsóknir sem ég fæ.. segi þeim bara að ég sé veik.. náði til að losna við nokkrar í dag.. þó svo ég sé ekkert rosalega sátt við það.. mig langar alveg að fá fólk hingað til að stjana við mig.. veit samt sem áður alveg að það yrði ekki gert..
Óheppinlegt að fá kvef í augað.. sérstaklega þegar mar er að horfa á sjónvarpið.. það er eins og mar sé virkilega viðkvæm manneskja og grætur af öllu.. ég bara má ekki brosa.. þá spýtast tárin eins og niagra fossar í allar áttir.. þannig að ég reyni bara að vera með fýlusvip..
Annars var ég að fá fréttir af Árna Johnsen á kvíabryggju.. hann er víst bara að meika sense þarna.. á hverju kvöldi tekur hann fram gítarinn og spilar fyrir fólkið.. þannig að það er brekkusöngur á hverjum degi..(væri mar nokkuð á móti því... naha! :) ) og.. fólkið sem er þarna.. mun ekki fara til eyja það sem eftir er af ævi þeirra.. sérstaklega ekki ef þau fylgja honum í þessi 2ár þarna..
Árni Johnsen bara flottur á því
Adios!

Stina at 4:01 PM

Amazing Race.. það er eitthvað sem ég má ekki missa af.. sérstaklega þá útaf gamla fólkinu.. ég mun fara á heljarinnar fyllerí ef þau vinna þetta race.. og ef þau drepa litlu beygluna hana Flo
Annars var ég voðalega dugleg í dag.. vaknaði í vinnuna kl 12.. og var að koma heim núna um hálf átta leytið.. :) horfði semsagt á auglýsinguna af Birgittu Haukdal í alveg 7 og hálfan tíma.. :/ en það fær mig bara til að þola hana ekki meira.. sá hana áður en ég fór að vinna.. þar sem hún var að kynna íslenska listann á popptíví.. og svo hleyp ég beint í fangið á henni í vinnunni.. eða.. auglýsingarspjaldið..
Ég er orðin wannabe.. ég fann loksins þá manneskju sem ég vildi vera wannabe.. það mun vera Formaður Fátækra hún Sigrún.. næst þegar þið sjáið mig.. verð ég rauðhærð með krullur.. og bleikan varalit..
Btw Annah er komin með bloggsíðu.. og hún mun vera hérna
Adios..
Stina at 1:09 PM

Svona fyrst ég var byrjuð að tala um auglýsingar og auglýsingarspjöld.. þá verð ég að setja útá mjólkursamsöluauglýsingarnar.. sérstaklega þá Lgg auglýsinguna.. þar sem manneskja er að fá sér sopa af Lgg.. og mar sér alveg að það sé ekkert í þessu.. líka bara aksjónið þegar hún drekkur.. var nú alveg hægt að setja vatn ofaní þetta.. svo manneskjan gæti drukkið þetta raunverulega.. manni verður nú ekkert bumbult á því að drekka nokkrum sinnum fullt Lgg dæmi af vatni.. :)

Survævor var nokkuð skemmtilegt í gær.. eða.. svona.. alltílæi að horfa á þetta.. ég bara verð of spennt þegar það kemur að friðhelgiskeppninni og það..
Sátt við það hve vel stelpunum gengur.. hefði nú ekki verið sniðugra að hafa fallegra fólk í þessu.. butt ugly gellur þarna.. sem þeir eru reyndar slefandi yfir.. svo fara þrjár af þeim að þvo hvor annari.. afhverju geta strákarnir ekki gert það líka.. ég væri alveg til í að horfa á 3 stráka þvo hvor öðrum..

Vinnan kallar..
Adios
Stina at 3:34 AM

Monday, March 03, 2003

Það er mest pirrandi að vakna yfir nóttina með stíflaðra nef en andskotinn.. ég var með það stíflað nef.. að koddinn minn varð ekki bara útí slefi.. heldur líka hori.. þegar mar getur ekki andað með nefinu.. þá opnar maður munninn.. og slefar.. svo.. lekur útúr nefinu líka.. en.. þetta gerði það að verkum að ég svaf "frábærlega" í nótt.. og vaknaði svo beint í vinnuna.. þar sem ég endaði með því að tala óskýrara en ég geri venjulega.. þannig að ég var að endurtaka mig oftast fimm sinnum.. týpískt líka að þegar ég er að reyna að vera rosalega dugleg í vinnunni.. og taka aukavaktir.. þá verð ég veik.. en ég held ég mæti alveg áreiðinlega..

Það er komið stærra Rís súkkulaði í búðirnar núna.. og á auglýsingaspjaldinu.. er Birgitta Haukdal á einhverjum kæjak eða eitthvað.. að borða súkkulaðið.. eða má segja að hún sé bara að bíta í það.. sem mér finnst eiginlega fáranlegt.. auðvitað átti að vera búið að taka bita af þessu.. þessi auglýsing er frekar pínd.. og alveg sér mar að hún eigi pottþétt ekki eftir að fá sér þennan bita.. fyrir utan það að hún heldur ekki einu sinni á því súkkulaði sem er að auglýsa.. hún heldur á minni gerðinni.. en hún ætti að sjálfsögðu að halda á því sem er auglýst.. :)

Survævor.. fyrir mig.. núna..
adios!

Stina at 11:58 AM

Sunday, March 02, 2003

Til Hamingju með Bolludaginn eða á mar að segja gleðilegan? :/
Þessi dagur er einn sá viðbjóðslegasti dagur sem ég veit um.. allir að fylla sig af bollum.. sem eru ekki einu sinni góðar.. allavega lenti mamma í þeirri heppni með okkur systkynin þegar við vorum lítil.. að við borðuðum þetta ekki.. ég held samt sem áður að ég sé sú eina sem borða þetta ekki ennþá.. heillar mig bara engan veginn bolla full af rjóma.. og sultu.. ég slapp þó líka við salmónelludæmið hérna fyrir nokkrum árum.. :)

Svo á þriðjudag.. er sprengjudagur?.. ég er ekki alveg með þetta á hreinu.. en.. þann dag er ég sátt við.. saltkjöt er alls ekki neitt voðalega vont.. meina.. einu sinni á ári er í lagi.. þannig að ég borða þetta.. þó ég efist um að ég fái þetta núna í ár.. foreldranir ætla að stinga af uppí sumarbústað yfir þessa daga.. :/

Öskudagurinn er á miðvikudaginn.. og þann dag elska ég.. þegar ég er ekki að vinna.. annars mætti hann alveg missa sig.. nenni ekki að hlusta á þessa krakka syngja sama lagið aftur og aftur.. og eru það oftast bara 2 lög sem þau taka.. Gamli Nói.. og Fiskibolludósalagið.. þar sem þau eru svo stutt.. en.. í fyrra var tekið Bent Nálgast fyrir mig.. það var flott.. gaman að hlusta á þessa krakka syngja það.. ég hætti nú ekki þessu öskudagsdæmi fyrr en ég var 14 ára.. væri samt alveg til í að halda þessu áfram.. en hver vill hlusta á 19 ára stelpu syngja fyrir nammi.. ég held ég myndi bara emja úr hlátri.. en annars
Til hamingju/Gleðinlegt með alla þessa daga..
Stina at 6:01 PM

Eyddi deginum í þreytu.. þó fór ég samt í afmæli til dóttir hennar Gyðu.. sem varð 1.árs núna 27 febrúar.. það var rosalega gott að fá svona kökur.. og allt það.. líka að kíkja aðeins út meðal fólks.. þó svo mar hafi ekki nennt að stoppa lengi.. meðan The Bachelor var í sjónvarpinu.. var ég að deyja í sófanum.. svo butt þreytt.. leyfði bara Elínu að leika sér í Snood.. meðan ég dottaði.. en ég náði samt sem áður að horfa á þáttinn.. og.. hvað mikið bull þetta er.. ég byrja líka alltaf að elska manneskju sem ég er hrifin af eftir vikukynni þó svo ég fái ekki að tala við hann.. bara sjá hann meðan annað kvennfólk reynir við hann.. æji þessi þættir eru bull.. en fá mig samt sem áður alveg til að horfa á sig.. :)

Svo var ég að pæla þegar ég var að horfa á Boomtown.. eða eitthvað... þá var hann að hlaupa í burtu frá byssuskotum.. og koma þær allar á eftir honum.. eða.. þeir skutu alltaf bakvið hann.. semsagt hittu hann ekki... en.. afhverju er ekki skotið fyrir framan hann.. þar sem hann nær til að hlaupa í skotin?
But then again.. þá er þetta þáttur.. :)

Gaman að sjá svipinn á fólki þegar það hlustar á þetta sem ég benti þeim á í laginu Yellow Submarine <--- sem þið getið niðurhlaðað hérna..hægri klikka og gera save target as :) og hlustað á.. endilega segið mér ef þið heyrið eitthvað annað útúr þessu ;)
Þá meina ég það sem ég sagði neðar.. "Yellow Submarine.. akkúrat á 1.35.. þá er alveg eins og það heyrist.. "Hljómsveitin er íslensk" tékkið á þessu.. :)"


Stina at 3:43 PM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs