Saturday, March 01, 2003
Loksins er ég komin heim.. þegar ég var að fara útúr bílnum var ég viss um að ég þyrfti að fara í endurhæfingu.. ætti pottþétt erfitt með að labba.. er líka búnað sitja í bílnum í 3kltíma.. svona er þetta líka þegar mar er edrú á bíl á laugardagskveldi.. annars fór þetta kvöld mest í það bara að slóra.. kíktum í partý til Heiðars.. þar sturtaði ég í mig.. 4rum bjórum.. svo var þetta orðið heldur dautt.. þar sem við sátum eiginlega bara.. 5 allt kvöldið.. einn strák.. og fjórar stelpur.. fílaði það engan veginn.. nenni ekki að hanga bara með stelpum.. en við stungum af þegar Heiðar settist við hliðná okkur.. og setti löppina uppá hina.. og táfýlan yfirtók alla aðra lykt... þá fann Elín eitthvað annað partý.. sem bara stelpur voru í.. en ég fann einhverja til að tala við.. þótt ótrúlegt megi virðast.. eftir þetta tók 3 tíma bílferðin við.. vorum á bílnum hennar systur minnar.. þannig að við urðum að sækja hana eftir hennar djamm.. búnað hringja í hana nokkrum sinnum.. og loks náði hún til að ropa því útúr sér að að hún ætlaði að halda áfram að djamma.. og þá lá leiðin heim.. þar sem ég var farin að sjá rúmið mitt í hyllingum.. vorum komnar að Staldrinu þegar Elín ákveður að segja.. "Djöfull væri týpískt ef Guðmunda myndi hringja núna og biðja okkur um að sækja sig" strax eftir þessa setningu hringir síminn minn.. og það koma ekki margir til greina þar sem ég fæ aldrei símhringar.. en.. þetta var Guðmunda að biðja okkur um að koma niðrí bæ að sækja sig.. og svo gleymdi hún töskunni sinni inná Spotlight.. þannig að leiðin lá þangað.. svo loksins heim..
Alveg gífurlega hættulegt fólk í bæði umferðinni.. og bænum um helgar.. löggan svínaði fyrir framan okkur.. gella ætlaði að keyra á okkur.. og svo hálka sem lét bílinn aðeins leika sér.. gaur sem labbaði fyrir bílinn.. og skeit alveg gjörsamlega á sig þar sem það munaði hársbreidd að við hefðum keyrt á hann.. fólk var líka bara að njóta þess að labba fyrir okkur.. líka á töffarabíl.. :) svona var mitt laugardagskvöld.. og ég missti af boxinu.. sem ég var búnað bíða eftir í þónokkurn tíma.. :(
Yellow Submarine.. akkúrat á 1.35.. þá er alveg eins og það heyrist.. "Hljómsveitin er íslensk" tékkið á þessu.. :)
Stina at 10:10 PM
En svona snúa sér aftur að gærkveldinu.. byrjaði að drekka um svona 12 leytið.. þar sem ég ætlaði ekkert að fara á djammið.. svo fór mar til Gumma.. og sat þar til 2 hálf 3.. fórum svo í bæinn.. þar ætluðum við að fara á Nellys.. en þar sem einhver strákur hefur ákveðið að lenda í slag þetta kvöld.. þá byrjaði þetta í slagsmálum.. eitthvað sem mar var að slíta.. og svo endaði ég bara á gauknum.. hitti þarna Ladyj-ið.. hékk með henni.. svo kom Gummi þangað... og var þar í smá stund.. en.. kvöldið endaði bara á gauknum.. lét bara múttuna koma og sækja mig.. og fór heim.. vaknaði svo massíft þunn í morgun.. hélt ég myndi deyja.. :(
Annað hvort tala ég voðalega strákalega.. eða Hallilitli frændi minn stelpulega.. í hvert skiptið sem ég svara í síman heima hjá honum.. þá er sagt við mig "er mamma þín þarna" þannig að ég læt bara eins og ég sé Halli.. og segi "nei hún fór út.. Kristín er að passa"... svo meira að segja hefur hann sagt mér að þegar hann hefur svarað í síman heima hjá sér.. þá hefur verið sagt við hann "er þetta Kristín" eða eitthvað þannig.. Annars held ég frekar að ég tali strákalega.. svona trukkulessulega.. Gyðu Sól lega frekar..
Stina at 10:44 AM
Friday, February 28, 2003
Fyrir utan að vakna kl 7 í morgun.. og tala við þetta skemmtilega lið sem er vakandi.. þá er ekkert skemmtilegra... ég reyndar var að skríða af djammi sem ég átti ekki að fara á.. en ég vildi ekki beila á Sæsa (sem endaði með að mæta ekki) og Gumma.. þannig að ég fór á djammið.. eyddi reyndar bara 3000krónum.. sem er ekkert það mikið.. Elín skammtaði á mig áður en ég fór.. og ég skemmti mér ágætlega.. var bara með Ladyj inná gauknum.. þar sem þar var eitthvað ace ventura kvöld..
en á morgun.. ætla ég að vakna snemma.. kaupa gjöf handa Töru dóttir hennar Gyðu.. og versla mér föt í spútnik..
adios!
Stina at 10:21 PM
Thursday, February 27, 2003
ahhh gleymdi aðalatriðinu.. fyrir utan að ætla að segja ykkur 2 villur í myndinni The Ring.. þá ætlaði ég ekki að segja neitt.. ég ætlaði bara að láta ykkur vita af 2 villum.. vegna þess að ég hef ekki fengið tækifæri til að segja neinum frá þessu.. það er þannig..
Þegar konan lendir í því að vera ýtt ofaní brunninn.. þá.. gerðist það.. að það er verið að loka fyrir hann.. en.. hann lokast ekki alveg.. heldur myndar hring.. og hvernig fór hann að því.. ef það átti að mynda hring þarna.. þá hefði lokið dottið ofaní.. og hún hefði ekki lengur verið í myndinni.. en það gerðist ekki...
Svo með þennan brunn.. hún sá hann í myndinni.. og ákveður.. að fara þangað sem brunnurinn er.. sem er einhver staðar útá eyju.. þarf að fara þangað með skipi og læti.. og svo gerist allt þar á eyjunni.. og hún ákveður að fara aftur uppí bústaðinn þar sem krakkarnir voru... svo tekur hún eftir því að það er hola í gólfinu.. og hvað birtist undir holunni..? brunnurinn sem var á eyjunni.. :) það var búið að byggja yfir hann annars staðar.. en samt var hann á eyjunni..
já frábærar villur þetta.. ykkur sem langaði ekki að heyra þetta.. sorrý.. ég gat ekki haldið þessu lengur inní mér.. mátti ekki tala um þetta hérna heima af því að þau voru ekki búnað sjá þessa mynd.. og gat ekki beðið í kltíma meðan þau eru að klára hana.. varð að segja einhverjum þetta.. en samt sem áður.. þá er þetta ekki það mikið.. :)
adios again.. :)
Stina at 5:36 PM
Að fólk skuli ekki getað ropað útúr sér Silfur litaðan extra.. í staðinn fyrir Gull litaðan extra með hvítu.. ég var í hálftíma að leita af þessum Gull litaða extra.. hélt að manneskjan hefði ruglast á appelsínu gulum.. af því að það er hvít í kringum það.. en nei nei.. þá var bara verið að meina Silfur litaða..
Annað dæmi í dag.. karl sem bað um winston light.. í hörðum.. svo þegar ég rétti honum þær.. þá segir hann við mig.. "MEÐ FILTER!!" ég alveg.. ehhh.. "þetta er með filter" þá.. reynir hann að koma sér útúr þessu með því að segja að hann reyki ekkert.. jarí jarí jarí..
Annars skreið ég framúr kl hálf fimm í dag.. fór líka að sofa kl 8 í morgun.. mátti ekkert missa af Skímó í Íslandi í bítið.. getur vel verið að fólk rifji upp eftir nokkur ár.. "Hvar varst þú þegar Skímó var með comeback" og þá vil ég getað sagt "Brosandi fyrir framan sjónvarpið" í stað þess að hafa verið að velta mér uppí rúmi til að fá góðan svefn.. Skímó eða svefn.. SKÍMÓ! :)
Núna er ég að pæla í því hvort ég eigi að fara á djammið um helgina.. eða bara planta mér fyrir framan sjónvarpið.. gæti alveg notað peningana í mun þarfari hlut en að djamma.. but i need the alcahol... :) spurning um að skokka bara niðrá höfn.. og hjakkast á nokkrum rússum fyrir nokkra bjóra.. kemur í ljós..
adios!
Stina at 5:16 PM
Yfir allt hlustendarverðlaunadæmið.. var þessi manneskja sú flottust þarna
alveg tvímælalaust.. hann notaði gáfur í viðtalinu sem var tekið við hann áður en þetta allt byrjaði..(tróð inn auglýsingu fyrir ísbúðina sína) fyrir utan það að brosa mjög fallega til þeirra sem horfðu á þetta..
misheppnasta manneskjan þarna.. náði til að ropa útúr sér að hann væri "glenntur og spenntur" fyrir þessi hlustendaverðlaun.. þar sem hann ætlaði bara að segja spenntur.. en ropaði útúr sér glenntur.. og þurfti að koma sér útúr því.. :)
fallegasta parið sem mætti þangað.. mikill aldursmunur.. byrjuðu saman þegar hann komst ekki einu sinni inná staði.. og.. það styttist í að hún fari að komast inná staði fyrir Elliheimilin.. alveg 2 ár í það að hún verði 30.. meðan hann skríður inná 20 aldurinn.. en.. þau komu ekkert fram þarna.. kannski í viðtali áður.. sá það ekki.. en þau eru flottasta parið á hlustendaverðlaunum..
ef þið horfið svoldið lengi á hana.. þá minnir hún svoldið á Bólu úr stundinni okkar.. nei ekki svoldið.. hún er frekar snýtt útúr nösinni á henni.. en.. ég læt þessa mynd enda.. Going vinning.. :)
adios!
Stina at 9:45 AM
Wednesday, February 26, 2003
Ég er búnað vera að niðurhlaða lögum með The Datsuns svona mest bara af því að ég tók eftir því ða þeir eru að spila á Roskilde.. og langaði aðeins að komast inní þetta.. lögin sem þeir gera.. eru svoldið svona gamaldagsleg.. ekki nema að ég sé að niðurhlaða gömlum lögum.. mér finnst þeir vera með svona.. guns´n roses stíl í sér.. en samt.. meira svona.. jáh.. ég fæ ekki nafnið á bandinu í hausinn á mér.. þannig að ég get ekki skrifað það.. :)
Annars finnst mér sniðugt.. ef Bylgjan.. Íslenska stöðin 91.9.. Steríó og Radíó Reykjavík.. tæku sig til og myndu hafa Hlustendaverðlaun fyrir sína stöð.. þá fáum við að minnsta kosti 4 hlustendaverðlaun í viðbót.. og Írafár gæti nælt sér í meira af verðlaunagripum.. svo kannski bara að bæta við bakvið .is og þá erum komin ennþá fleiri hlustendaverðlaun..
Hafa þetta bara allt í sitthvorum mánuðinum.. Radíó x í janúar.. Fm 957 í febrúar.. Bylgjan í mars.. Íslenska stöðin í apríl.. svo smá pása útaf júróvisjón.. svo Steríó í júní.. og Radíó Reykjavík í júlí.. kannski bæta inní þetta Útvarp Latabæ.. leyfa litlu söngkrökkunum líka að vinna.. þá yrði sko Jóhanna Guðrún eins og Írafár á hlustendaverðlaunum áðan.. hún myndi hirða öll verðlaunin.. hún og kiðlingarnir.. kannski voðalega fáir á þeim aldri líka í augnablikinu að reyna eitthvað fyrir sér í söngnum..
Ég hef hvortið er ekkert betra að gera.. svo ég styð fleiri hlustendaverðlaun.. og .is.... :)
Stina at 6:50 PM
Jæja.. bjóst mar ekki alveg við þessu? Írafár að hirða öll verðlaunin.. mest var ég þó ósátt með að þau skyldu hirða verðlaunin fyrir bestu heimasíðuna.. þar sem þeirra heimasíða er alls ekki sú flottasta.. www.írafár.is.. sú flottasta af þessu er tvímælalaust.. www.sálinhansjónsmíns.is.. en annars.. bjóst bara alveg við að hún myndi vinna kynþokkafyllsta söngkonan.. þó svo ég hefði alveg vilja sjá þeim verðlaunum í hendurnar á Hanna gaurnum hennar.. svo tóku þau.. besta hljómsveitin.. lag ársins (sem var "ég sjálf".. alls ekki gott lag.. ketsí er það samt sem áður.. en betri lög voru þarna)... myndband ársins(allt sem ég sé.. af íslenskum myndbandagerðurum.. þá fannst mér if með landi og sonum mun betra.. en.. svo voru quarashi með mjög flott myndband..sem var gert af útlenskum gutta).. plata ársins(þau náttla seldu eins og mofós af sínum disk.. þannig að þau eiga þetta alveg skilið.. mín vegna).. og söngkona ársins (ekki mikið úrval af söngkonum þarna.. Rakel Sif úr buttercup og Íris úr ber.. og þá hefði ég frekað viljað láta Rakel Sif vinna þetta.. hún fer minnst í taugarnar á mér af þessum beyglum).. þetta var bara orðið virkilega leiðinlegt.. mamma mín var meira segja farin að blóta.. fannst þetta vera orðið of mikið fyrir þessa hljómsveit.. þar sem hún þolir ekki Birgittu Haukdal.. og eiginlega bara enginn í minni fjölskyldu.. en því miður gerðist það ekki að hún missteig sig á sviðinu.. einu verðlaunin sem þau náðu ekki til að fá sem þau voru tilnefnd fyrir.. það voru bestir á balli.. sem skiptu flestar hljómsveitirnar mjög miklu máli.. ég var sátt við að Í svörtum fötum hafi unnið þau verðlaun.. vegna þess að það er mjög gaman af þeim á balli.. þó svo ég hefði verið ennþá sáttari ef Á móti sól hefði unnið þetta.. en.. skárra að einhver annar en Írafár nældi sér í þetta.. Hipp Hopp ársins.. var Quarashi.. og voru þeir reyndar farnir þegar þeir unnu þetta.. nema Ómar.. þar sem hann var að taka upp Popp og Coke þarna bakvið (sem mér finnst ekki hafa átt að heita popp og coke þar sem þessi þáttur nær aldrei gamla popp og coke) Söngvari ársins.. var hann Jónsi í svörtum fötum.. það var alltílæi.. en svo koma.. nýliðar ársins.. og það var Daysleeper sem vann það.. og þar var ég ekki sátt.. ég hefði frekar viljað fá Leaves til að vinna þessi verðlaun.. en mun meira spilað af Daysleeper á fm.. þannig að það ýtti kannski undir það að þeir unnu.. annars veit ég það ekki.. flottur endir.. virkilega flottur endir.. SKÍTAMÓRALS COMEBACK!!
Annars var Pétur úr ding dong.. algjör snillingur þarna.. og.. áskorunin hjá 70 mín var akkúrat tekin upp þarna.. Simmi kom fram í brjóstahaldara og g-string næbbum.. sexí.. ójá.. þetta var mjög vel gert hjá Fm957.. mjög mikil Mtv stæling.. en.. samt vel gert.. þó svo að Tískulöggan Svavar.. hafi mismælt sig alveg mjög mikið í niðurtalningunni.. en það má alls ekki gleyma því að hann Bubbi Morthens vann heiðursverðlaunin þetta árið.. fínt það.. þó Björgvin Halldórsson hefði mátt taka þau... en það gerist næst.. ;)
Stina at 4:23 PM
Fríið í vinnunni í kvöld.. er búið að byrja vel.. reyndar vakin kl hálf 13 í dag.. til að fara að gera eitthvað.. en þar sem nóttin mín fór í að horfa á einhverju grenjusvertingja mynd með Wesley Snipes.. þá.. þraukaði ég ekki að gera neitt í dag.. reyndar vissi ég ekki einu sinni í nótt að það væri til grenjusvertingjamynd með Wesley Snipes.. hélt að hann léki alltaf svona.. tough guy.. en í þessari mynd.. þá var hann góði gaurinn sem gerði einhverja kellu ólétta eða reyndar kelluna sem hann var með.. og.. byrjaði svo að drekka.. hjálpaði henni ekki neitt.. og svo varð þetta svona álíka sorglegt og grenjað á gresjunni.. hún missti plötugaurinn sinn.. hann missti vinnuna.. gekk ekkert hjá þeim.. jarí jarí jarí.. en ég náði samt sem áður að þrauka þessa mynd.. og hún endaði kl 8.. það var þá tíminn sem ég fór að sofa..
Þegar ég var vakin kl hálf 13.. þá ákvað ég að skokka aðeins fram.. heyrði í svo mikið af fólki.. svo blasti bara við mér.. heile familíen.. ég ekkert smá morkin í sofuboxerum með ænstæn greiðslu.. sem var mjög fínt.. vildi frekar hræða krakkana í burtu frá mér en að halda á þeim.. var svo þreytt.. svo sat ég bara og talaði við Möggu systir um kvikmyndir, roskilde, kvikmyndir, tónlist, simpson, kvikmyndir.. svo núna er ég bara nývöknuð aftur.. að biða eftir Hlustendaverðlaunum Fm 957.. byrjar eftir 2 tíma.. en það nennir enginn að tala við mig á msn.. þannig að ég er farin..
adios! :)
Stina at 11:14 AM
Tuesday, February 25, 2003
Það er naumast hvað sumir hafa verið að hugsa eins og ég í sambandið við uppistandið hjá Robba Bæjarenda.
Manneskja sem skrifaði í velvaka núna um daginn.. vildi fá að vita hvert hann ætti að leita til að fá gasgrímur ef það skyldi koma stríð... ég spyr bara að því sama.. hvert eigum við að fara..? :)
Ég ætlaði að vera svo dugleg í dag.. vakna eldsnemma.. og hringja niðrí Stúdentaaa... þarna Exit.is.. til að tékka á því hvort þau væru með pakkaferðir á Hróaskeldu.. en.. nei.. það eru þau ekki með.. heldur bentu okkur á að kaupa hjá IcelandExpress farið.. greinilega einhver samvinna þar í gangi.. en ég náði reyndar ekki að vakna snemma til að hringja þangað.. var að horfa á About Schimdt í nótt.. þraukaði að disk 3.. þar sem við föttuðum að við höfðum dl einhverju sem vantaði alveg massífan búta í.. sofnaði semsagt kl hálf 9 í morgun.. og vaknaði kl 16.. þá gat ég hringt.. sem var reyndar ekkert of seint.. en.. þetta gerir það bara að verkum að við reynum að tékka á því hve mikið miðin kostar útí Danmörku til að láta ættingja þar kaupa það bara fyrir okkur.. (if your from Denmark can you check it out for me what the roskilde ticket costs there.?) og panta svo farið á IcelandExpress.. svo.. ég er að fara á Hróaskeldu.. :) dagurinn fór svo sem ekkert í neitt mikið.. fór með Guðmundu og Margréti Lind á læknavaktina áður en ég fór að vinna.. þar sem Margrét Lind hefur nælt sér í barkabólgu.. og fékk asmasprautudæmi við því.. eða eitthvað sprautuhylkjadæmi..
og svo fór ég að vinna..
Það komu reyndar litlar skátastelpur í vinnuna.. og buðust til að gera eitthvað fyrir mig.. og aðra viðskiptavini.. vegna þess að þau áttu að sýna góðmennsku.. til að fá einhvern borða (eða eitthvað að borða haha) eða eitthvað í skátunum.. mjög gaman af þeim.. duglegar stelpur.. :)
En á morgun er Hlustendaverðlaun Fm 957.. held það sé eiginlega möst að sjá það... sjá.. hver hreppir öll verðlaunin.. eða mest að krossa puttana yfir að Birgitta Beyglan fái ekkert.. eða.. nú bara að hún missstigi sig á leiðinni á sviðið þarna.. og geti ekki farið til Lettlands.. múhahhaa!!
Og btw.. TAKK HULDA.. ÞAÐ ÁTTI AÐ VERA TIL ÞEMUR!!!
Stina at 5:55 PM
Monday, February 24, 2003
Já þótt ótrúlegt megi virðast þá vann ég scrabble áðan.. en spyr ykkur samt.. er til orðið Þemur? og segir mar.. "Þeman er 90´s"? látið mig bara vita.. :)
Svo komu útlendingar að versla hjá mér í dag.. og ég held þeir hafi verið frá.. Rússlandi.. eða.. einhverju mjög útlensku landi.. löppuðu og spurðu mig.. eða.. sýndu mér orðið "Hen" sem er orð á ensku.. ég kveikti náttla ekkert á perunni.. ekki heldur manneskjan sem ég var að afgreiða.. þannig að ég öskraði bara á þau "Leave me alone motherfuckers" og sýndi þeim puttann.. nei.. sagðist bara ekkert geta hjálpað þeim.. þar sem ég vissi ekkert hvað þau voru að tala um.. en bætti þeim þetta upp með því að setja í poka fyrir þau.. svo fór ég að tala um þetta á leiðinni heim.. og systir mín spurði mig hvort þau hafi ekki bara verið að meina hæna.. þá fékk ég ljósaperu fyrir ofan mig.. þau voru einmitt ða versla kjúkling.. þannig að næst þegar einhver spyr mig um Hen.. þá get ég bjargað þessu.. :)
Jæja.. þá er þetta allt komið í ljós.. hvaða festival ég og Elín tökum í sumar.. ætli við byrjum ekki á Roskilde ætli mjög margir að fara þangað.. sleppa semsagt Þjóðhátið í Eyjum og skella sér á Roskilde.. líka höfum ekkert séð þau bönd sem eru búnað staðfesta núna.. sem eru Metallica, Iron Maiden, Queens Of The Stone Age, Coldplay.. og svo eitthvað.. en á Reading.. þá Metallica líka, Audioslave, System of a down, JJ72, Linkin Park.. og eitthvað.. allt hérna
Jæja.. þetta er fínt.. og ef einhver af ykkur er að fara á Roskilde.. eða Reading.. Skemmtið ykkur.. og mætið snemma á Reading til að þurfa nú ekki að lenda í því að vera lengst í burtu.. og vera í hálftíma á leiðinni staðinn sem sviðin eru.. það lentu ég og Elín í..
adios!
Stina at 5:28 PM
Rosalega getur verið leiðinlegt að versla.. og sumt afgreiðslu fólk alveg rosalega grumpy.. samt sem áður.. oftast þeir sem eru skráðir undir verslunarstjórar eða.. vaktstjórar sem eru mest grumpy.. gaman að versla hjá svoleiðis fólki.. en annars.. það er nú ekki eins og það sé gaman að vinna svona vinnu þannig að i dont blame them..
Ég var akkúrat að vinna í dag.. og oftast brosi ég svona.. moe (simpson) feik brosi.. sem frekar hræðir viðskiptavinina heldur en að láta þeim líða betur.. skiptir mig engu máli.. bara minna að gera hjá mér.. og ég get sokkið ofaní slúðurblöðin.. en.. ég ætla að kveikja í húsinu eða eitthvað.. fólkið getur ekki orðið meira pirrað en það er núna.. ef það væri hægt að sleppa við einn dag... eða mar getur upplifað í blackout.. þá væri ég til í að það væri mánudagur hjá mér.. allir pirraðir af því að vinnuvikan er að byrja.. og gjörsamlega ekkert í sjónvarpinu.. Bob geldof hafði svo sannarlega rétt fyrir sér í laginu.. "i dont like mondays" :)
Stina at 11:48 AM
Sunday, February 23, 2003
Þar sem allir bardagarnir í gær enduðu snögglega.. og allt það.. þá var sýndur bardaginn hjá Mike Tyson og Nielsen.. sem mér fannst nokkuð snilldarbardagi.. minnti mig svoldið á það þegar Hómer gerðist boxari.. og stóð alltaf bara kyrr.. lét höggin dynja á sig.. og svo þegar manneskjan á móti honum varð orðin þreytt.. þá ýti hann honum og vann.. svoleiðis fannst mér Nielsen vera.. reyndar vann ekki.. en.. tók höggunum.. og gerði voðalega lítið meira.. hann var svona.. fallega vaxinn eins og Hómer.. þannig að mar nokkurn veginn dáleiddist í titringnum á fellingunum hans.. en annars var hann alveg mjög góður.. eða.. á mar kannski að segja Mike Tyson ekki alveg í góðu formi í þessari keppni.. þar sem Nielsen þraukaði útí fjórðu lotu.. Flottur á því þessi Dani.. ;)
Þegar fólk grætur í bíómyndum og sápuóperum.. þó sérstaklega sápuóperum.. þá er það of mikið feik.. þetta lekur bara niður.. eins og þegar mar sjálfur grætur.. þá verða augun.. rosalega rauð.. og mar verður bara gjörsamlega grátbólgin.. þetta rennur ekkert bara svona niður úr augunum.. og mar er að gráta.. fyrst byrja augun að vera rauð.. fór akkúrat að hugsa um þetta þegar ég horfði á Pink myndbandið.. Family Portrait.. litla stelpan þar.. er alveg algjör snilld.. hún grenjar ekki feik.. hún er með rauð augu.. og.. með.. þennan grenjusvip.. ekki bara eitthvað.. grett.. og tár niður.. æji.. annars langaði mig bara að tjá mig um þetta af því að mér finnst þetta fáranlegt.. en sumir geta ekki gert þetta betur.. þó svo þau reyni að hugsa um köttinn sem dó þegar þau voru lítil.. :)
Dagurinn minn annars búnað vera þreyttur.. Elín ákvað að hringja í mig.. fimm sinnum í gemsan til að vekja mig.. eða alveg þangað til að hann varð batteríslaus.. en... hún var bara rétt byrjuð að vekja mig.. næst tók heimasíminn við.. og þá endaði mamma með því að vakna.. ekkert alveg í góðu skapi.. þar sem hún var að vinna næturvinnu.. og Elín leit í heimsókn.. kl var 14 þegar hún kom.. og hún var að fara núna kl 23.. við borðunum nammi.. eða má segja ða hún hafi borðað allt nammið.. hún reyndar ákvað að kaupa handa mér morgunmat.. sem var coke og kókósbolla.. sem ég reyndar gat ekki borðað.. finnst ekkert gott að fá mér nammi í morgunmat.. þannig að hún át hana.. og sína.. og 2 chunky hvít kit köt.. og fékk sér meira nammi hjá Hrafni.. endaði svo afvelta uppí sófa með æluna í hálsinum.. svo endaði mar bara með því að horfa á popptíví.. ekkert í sjónvarpinu.. og núna hef ég ákveðið að skella mér í svefnin.. ég er svo þreytt.. að ég gæti sofnað? :)
adios!
Stina at 3:21 PM