creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, February 22, 2003

Úff.. að fá að horfa á 49 sekúndur af bardaganum.. og hann er búin.. er rosalegt.. mar er búnað planta sér fyrir framan skjáinn.. í þeirri von að Mike Tyson falli.. situr í kánþí stellingu.. og.. byrjar að horfa.. svo er hann búin.. og Mike Tyson rotar Clifford...ég ekki einu sinni náði þessu.. gerðist of hratt.. ég hélt að guttinn væri að drepast í löppinni af því að ég sá bara löppina á honum þegar hann féll.. but noooo.. svo þurfti hann líka að loka augunum.. til að undirstrika það.. og nudda því framan í mig.. að hann hafi tapað.. þetta minnir mig bara á það þegar ég sá Mike berjast við.. man ekki hvern það var.. en fann það.. það var hann Orlin Norris
negldi hann niður í fyrstu lotu.. akkúrat meðan ég skrapp á klóstið.. þá varð ég brjáluð.. og endaði með því að drekka sorgum mínum niðrí bæ.. en.. núna er bara beðið eftir bardaganum 1.mars.. hjá Roy Jones Jr.. :)
adios!
Stina at 8:30 PM

Núna er ég nýkomin heim af standup dæminu með Robba Bæjarenda.. ég get ekki sagt að hann hafi verið sá besti sem var með standup þarna.. fyrst kom Sigurjón Kjartansson.. og ef mar hefði getað notað fjarstýringu á hann.. þá hefði mar ekki gert mute.. mar hefði pottþétt fast forwardað þessu.. hefði frekar átt að vera Jón Gnarr þarna.. en.. því miður.. svo alltaf inná milli var einhver indverji að tjá sig.. það var af og til hægt að hlæja af þessu.. svo eftir hann kom Þorsteinn Guðmundsson.. hann var með af og til smelli.. hló meira af honum en Sigurjóni.. bjóst samt sem áður við því að hann myndi koma með fleiri smelli.. svo kom pása.. og þá skokkaði ég út með fólkinu að reykja.. og hálfpartin reykti sjálf.. manneskja sem reykir ekki... og stendur innan um fullt af fólki sem reykir.. er að reykja með þeim.. *syngur "ég byrjaði í dag að reykja.. byrjaði í dag að reykja"* svo þegar við fundum sætin okkar aftur.. og ég endaði með því að sitja við hliðná stráknum sem kom með okkur.. náttla.. bæld.. þar sem ég þekkti hann ekki.. og gat ekki tjáð mig að vil(L)d eins og fyrir hlé.. þá labbaði þessi indverji inn aftur.. og reyndi að vera fyndinn.. en.. sagði svo að það væri suprise gestur bakvið.. sem Þorsteinn var nú eiginlega búnað nefna að væri þarna í sínu standupi.. þannig að þetta var nú eiginlega ekkert suprise fyrir mér.. og það var Pétur úr ding dong.. þá byrjaði hláturinn fyrir alvöru.. ég gjörsamlega lagðist á gólfið og öskraði úr hlátri.. smellirnir sem hann kom með.. og þurfti að sjálfsögðu að minnast á Ron Jeremy og Betu "Rokk".. mér til mikilar ánægju.. þoli ekki þessa beyglu.. :) en.. hann var sá eini sem var beðin um að halda áfram.. svo kom einhver leim ass stuttmynd um feril Robba Bæjarenda.. sem hefði líka mátt fast forwarda yfir.. og svo birtist hann.. ef hann er fyndinn.. þá er þetta sorglegt.. jújú.. hann kom alveg með eitthvað fyndið.. en gera það ekki allir á sínum lífsferli.. ég hef meira að segja sagt brandara sem er fyndnari en allt show-ið hans.. það sem fór reyndar mest í taugarnar á mér.. var að hann hló alltaf eftir að hann sagði brandarana.. ekkert neitt svona.. Raymond úr everybody loves Raymond.. að halda inni hlátrinum sem mar sér alveg.. heldur hló hátt í míkrafóninn.. og líka þessum.. hádimmrödduðum skrækum hlátri..svo tók hann gamlan kall í alveg kortér.. æji.. hann var ágætur greyið.. ég hefði samt sem áður grátið peningana ef ég hefði borgað mig inn.. en þar sem mér var boðið á þetta.. þá er ég ánægð.. og væri til í að fara á standup bara með honum Pétri úr Ding Dong.. en.. samt sem áður.. gaman að gera eitthvað svona nýtt.. fín skemmtun.. mátt fast forwarda á margt.. en fínt.. :)
"Frægt Fólk" í salnum.. ég sá reyndar bara.. Bent rottweiler pakk.. og held ég Bæjarins Bestu pakk líka.. allavega eitthvað rapp pakk þarna inni.. uhhhmm.. körfulboltakappi.. damon.. eitthvað?.. heyrði þetta bara hjá einhverjum í kring.. og sá eitthvað brotha.. dæmi í gangi milli hans og Robba Bæjarenda.. svo var eitthvað.. útvarpsfólk þarna bakvið mig.. vantaði "aðal" "gelluna" Betu "Rokk" kannski hún hafi verið þarna í gær.. "fræga" fólkið.. fer ekki á sýningu númer 2.. það er alltaf á frumsýningunni.. :)
adios!
Stina at 6:29 PM

Ég er búnað bíða eftir Mike Tyson boxinu.. í þónokkurn tíma.. en.. samt sem áður var ég búnað gleyma því þegar ég vaknaði.. hugsaði bara um uppistandið.. svo leið á kvöldið.. og ég fór að skoða dagskránna.. þá blasti við mér.. Box.. djöfull hlakkar mér til mar.. :) langar að sjá Mike Tyson buffaðan aftur.. þoli ekki þennan gaur.. ég er meira fyrir Lennox Lewis og Holyfield.. annars flott að mar geti látið tíman líða hraðar með því að skemmta sér niðrí Háskólabíó-i..
Veit bara ekki hvað ég get gert af mér þessa 2 tíma sem eru í að uppistandið byrjar.. ætlaði að fara í staupkeppni áðan við systir mína áður en hún færi á djammið.. en.. ákvað að sleppa því.. búnað lofa sjálfri mér að vera edrú til 15.mars.. afmælið mitt.. og árshátíð hjá Kaupás þá..
Svo er á planinu að skella sér á Ólafsvöku.. og Ozzfest í sumar.. margt gott á Ozzfest.. náttla Ozzy Osbourne.. svo verður Marilyn Manson, Korn, Disturbed.. og Chevelle.. hef ekki séð fleiri bönd.. flott sem er komið.. mig hefur alltaf langað að sjá Marilyn Manson á sviði.. fyrir utan Ozzy.. :) þannig að ég vona að það verði eitthvað úr þessu.. meiri ástæða til að minnka drykkjuna.. til að eiga peninga fyrir þessu.. :)
Jæja.. klára að horfa á þessa hommamynd á stöð 2 til að tíminn líði..
Adios! :)
Stina at 1:03 PM

Frábært að fara á síður.. og sjá það séu ljóð til manns þar.. það er ekki hægt að neita því að henni Ladyj hafi leiðst í vinnunni.. :) Flott ljóð :)
Svo er ég að fara á uppistandið í kvöld.. hlakkar ekkert smá til.. búnað vera að tala um að fara á þetta lengi.. svo.. var vakið mig í dag.. "Kristín viltu koma með mér og Elínu á uppistandið í kvöld" og aldrei hef ég orðið jafn hress þegar ég er að vakna.. ég skokkaði fram.. og.. montaði mig.. og svo aftur inn.. ;) mar hefur líka ekkert að gera á þessum tíma.. seinasta helgin í mánuðnum.. og.. mar er bara að telja niður þangað til boxið byrjar í kvöld.. þannig að það er ágætt að fara á uppistandið.. koma heim.. og stutt í boxið.. :) væri samt sem áður ekkert á móti því að fá mér bjór.. en pulsa verður að næga..
adios!
Stina at 9:05 AM

Friday, February 21, 2003


þá er þessi hugmynd farin.. :/ ég verð þá bara að hafa.. "Kristín has left Iceland"
Stina at 11:23 PM

Jæja.. þá er það komið á hreint hvaða lögum nýja Júróvisjón lagið okkar líkist.. fyrsta lagið er.. Mér hlakkar svo til.. með Siggu Beinteins.. ooog.. I´ll be right here waiting for you <-- veit ekki hvað þetta lag heitir.. en þetta var sungið svona.. það var akkúrat tekið þessi brot úr þessum lögum.. og leyft manni að heyra.. svo var spilað brot úr júróvisjónlaginu.. og allt var þetta mjög líkt.. svo náði ég ekki að hlusta hvað STEF gaurinn sagði.. vonum bara að það verði gert eitthvað í þessu.. og litla væmna pjásan fari ekki..
Ég er að fíla American Idol.. sérstaklega Simon gaurinn.. Paula og Randy eru voðalega soft eitthvað.. en Simon lætur allt flakka.. reynir bara sem mest að niðurlægja þetta fólk.. og það er snilld.. ég held að ég myndi slá í gegn í þessu.. ég er með svo góða rödd.. sérstaklega þegar ég er ein.. og enginn heyrir.. þá syng ég voðalega vel..
Já.. svo næst á fókus að koma með gaurana sem eru á lausu.. það er alltaf gert svo mikið í því að koma með gellur.. engan gaura í þessu.. eða.. orða þetta rétt.. "gellur" Þessi þulur þarna.. er enginn gella.. hún er butt ugly meikdolla.. og.. Beta "Rokk" hún er herfilega ljót greyið.. ekkert skrýtið að þessar gellur séu á lausu.. hvað þá.. Manúela.. Mike Tyson er geðveikur.. sem hann sýndi ennþá meira með því að vera að splæsa í einhvern kjól handa þessari beyglu.. og hún endaði með því að vinna fegurðarsamkeppni Ísland útá allt þetta.. jæja.. ég bíð bara eftir karlmönnunum í þessu.. þó.. það verði áreiðinlega ekki neitt fríðara..
Stina at 4:43 PM

GRÆNT M&M ER KYNÖRVANDI!! hlaupið útí búð og kaupið ykkur m&m.. en farið rólega í þetta.. ef síðasta m&m í pokanum er rautt.. þá getiði óskað ykkur.. en ef það er gult.. þá eigiði ekki að mæta í vinnuna daginn eftir.. ég fæ alltaf gult.. ;) en.. brúnt er ógæfa og appelsínugult gæfa.. :) ég týni alltaf upp alla litina sem boða gæfu.. og býð svo fólki restina.. ekki það að ég sé að reyna að koma einhverri ógæfu á þau.. finnst þetta bara.. ehhh.. vondir litir..
jæja.. vinna.. adios!
Stina at 6:50 AM

Thursday, February 20, 2003

Ég hef verið að hlusta aðeins á Birgittu Haukdal lagið.. og get svo svarið það.. að þetta er nákvæmlega eins og eitthvað lag sem ég kem ekki fyrir mér hvað er.. ekki textinn sjálfur.. heldur lagið.. þegar mar hlustar á byrjunina.. þá getur mar farið að raula með einhverju lagi.. en nær samt ekki hvaða lag það er.. annars var ég að frétta að fólkið á Bylgjunni hafi verið að tala um þetta líka í dag.. en.. spurning hvort þau hafi sagt hvaða lag þetta væri líkt.. það væri nú nokkuð gott ef það kæmi í ljós.. og við þyrftum ekki að senda þessa beyglu út.. :)
Annars Hulda.. þú varst mjööög.. flott í "Fólk með Sirrý" :) ég ætla að eiga þessa spólu FOREVAH! og þá eiginlega bara til að gera grín af þér.. "Hún heitir Sara" *roðn* ;) Þið sem misstuð af þessu.. getið náð endursýningu held ég núna.. bráðlega.. þetta var endursýnt núna í dag.. og verður áreiðinlega endursýnt aftur bráðlega.. er ekki alltaf verið að endursýna þættina á þessum Skjáeinum..? :) og ef þið náið til að finna út hvaða lagi Júróvisjónlagið okkar er líkt.. þá megiði láta mig vita... helst henda þessu framan í Birgittu Haukdal..
Stina at 5:11 PM

Wednesday, February 19, 2003

Langar ykkur að heyra Eurovision lag Íslendinga? með Birgittu Haukdal í farabroddi? downloadið því þá ----> Hérna, btw hægri klikkið og notið save target as
Stina at 5:01 PM

Þegar frægt fólk kemur inní búðina þá á ég erfitt með að hemja mig.. og reyndar roðna þegar þeir segja góðan daginn við mig... fólk sem ég hef afgreitt.. eða horft á afgreiða.. t.d. áðan.. var Jói fyrrverandi 70 mín kall.. ég hef afgreitt.. Örn Árnason, Kollu úr Djúpu lauginni, Trommarann í Landi og Sonum, allt heila xxx rottweilerdraslið.. nema Erp sem betur fer.. og þessi reyklausa "hljómsveit" röflandi um að vanta munntóbak á meðan.. mann sem var með mynd af Lalla Johns í veskinu.. ég tel hann vera frægan af því að hann þekkir Lalla Johns.. svo.. Kallinn sem er stundum í Ísland í bítið.. og já.. ég hef afgreitt Þorsteinn Joð.. og ég nenni ekki að telja meira upp.. nema.. ég einu sinni afgreiddi.. mann sem var snýttur útúr nösinni á Árna Johnsen.. er sá maður ekki búnað koma að versla til mín í langan tíma.. fékk einu sinni næstum því fyrir hjartað þegar ég sá þennan mann.. hélt að draumurinn væri að rættast.. að loksins fengi að ég að afgreiða Árna Johnsen.. but noooo... :(
Ennþá bólar ekkert á svörum um það hvort Jóhanna Sigurðard. sé lesba.. ég hef ekki fundið akkúrat hennar nafn í þjóðarskránni þar sem það eru 4 blaðsíður af Jóhönnum Sigurðardóttum.. og ég veit ekkert hvar hún býr.. hlýtur að búa í raðhúsi.. eða einbýli.. þar sem sambýliskonan hennar er með nafnið sitt.. eða eiginmaður ef hún er ekki lesba.. og mar getur komist að þessu.. ég held áfram að leita.. :)
Stina at 4:05 PM

Ég fékk sent email frá Huldu vinkonu minni áðan.. massíft fyndið sem fólk hefur spurt niðrí Landssíma..
1# Ég er að flytja frá Akureyri til Reykjavíkur í eitt ár. Er hægt að
flytja gsm númerið með sér til Reykjavíkur eða eða þarf ég að fá mér nýtt
númer???

2# Nei, nei. Þetta er eitthvað bilað hjá ykkur. Ég er búinn að hafa
þetta símtæki í 40 ár, og hann fer nú varla að bila úr þessu!!!!!

3# Ég er að fara til USA á morgun, og ætla að taka GSM símann minn með.
Þarf ég að taka hleðslutækið með mér líka.

4# Þegar maður er staddur í útlöndum, og hringir heim, þarf maður að
setja 354 fyrir framan, en hvað þarf maður að setja fyrir framan þegar
maður er að senda tölvupóst erlendis frá???

5# Ég er með breiðvarpið, og horfi mest á spænsku stöðina. Hún er
svarthvít hjá mér, og ég er að horfa á matreiðsluþátt. Veistu nokkuð
litinn á kökunni sem er á skjánum núna???

6# Hvað á þetta að þýða að loka símanum. Ég gerði allt upp hjá ykkur
fyrir nokkrum mánuðum síðan.

7# Ég var að pæla í að gefa stráknum mínum LSD. Getið þið reddað því
fyrir mig? (ADSL)

8# Ég stillti GSM símann minn á þýsku, en þegar ég sendi þýskri vinkonu
minn SMS, fær hún þau bara á íslensku!!!

Annars.. eru þetta nokkuð gáfulegar spurningar.. :)

Stina at 8:33 AM

Tuesday, February 18, 2003

Þótt ótrúlegt megi virðast þá unnum við Hringjardróttinsspilið!! með Halldóri Frænda , sem er frábært.. þar sem þetta er í fyrsta skiptið sem við vinnum þetta.. og erum búnað fara þónokkuð oft í þetta spil.. en það var spilað og borðað brownies þetta kvöld.. sem ég var í fríi í vinnunni..
En ekki búnað fá neitt svar í sambandi við Jóhönnu Sigurðardóttir.. en stend þó föst á því að hún sé lesba.. hún er ekki gift karlmanni.. og er.. sögð vera í sambúð með kvennmanni... já pottþétt lesba.. ef mar hugsar aðeins um það.. þá er svoldið mikill hjónasvipur með Jóhönnu Sigurðardóttir.. og formanni samtaka 79.. eða eitthvað..
Svo byrjaði ný sería af Survivor í gær.. og.. er bara skárri en var seinast.. núna er þetta flokkað í stelpu og stráka hópi.. þannig að karlmennirnir eru grumpy talandi um hve sterkir og gáfaðir þeir eru.. meðan.. þær voru grenjandi.. veikar.. þrífandi næbburnar sínar.. og jarí jarí.. bara bimbós.. og karlrembur.. en.. samt gaman af þessu.. vegna þess að það sem sló strákana í lærið var að stelpurnar unnu friðhelgiskeppnina.. sem þurfti að nota.. einbeitingu, jafnvægi.. og að flýta sér náttla.. en þeir gátu engan veginn drifi sig í gegnum jafnvægið.. þannig að þetta var erfitt.. og skemmtileg.. en.. ég bíð bara eftir Pop Idiol þættinum..
adios! :)
Stina at 4:36 PM

Ég var að fá að heyra það að hún Jóhanna Sigurðardóttir væri lesbía.. og langar rosalega að vita hvort það sé satt.. ég reyndar gæti alveg trúað því.. en fékk að heyra það í gær.. að hún væri í sambúð með einhverjum kvennmanni.. og meira að segja gift henni.. en samt hef ég aldrei heyrt þetta áður.. vitiði eitthvað um þetta?
En annars.. við ákváðum að búa til Brownies fyrir Halldór frænda til að bæta upp hve leiðinlegur mar var við hann útaf Led Zeppelin dæminu í gær.. og vona að mar fái að kíkja í heimsókn til hans í framtíðinni.. núna er það líka Hringjadróttinsspilið.. þar sem engar spurningar eru.. og hann getur ekki klikkað á þessu..
adios! :)
Stina at 12:14 PM

Jæja.. núna er spurning hve vel þið þekkið mig... takið þetta próf..
Visit my Quiz
og það kemur allt í ljós.. :)
Stina at 10:04 AM

Monday, February 17, 2003

Ég kem af mjög gáfaðri fjölskyldu.. það kemur alltaf betur og betur í ljós þegar við förum að spila Trivial pursuit.. mamma þurfti náttla að vera eina manneskjan sem var með barnaspurningarnar.. þó við hefðum átt að láta Halldór frænda fá þær líka.. :) eða.. allavega þarf hann að fá sér sterkari gleraugu.. átti að spurja hann faðir minn að spurningu.. og byrjaði að lesa.. "Í hvaða borg er Led Zeppelin torgið"... og alltaf beið hann eftir svari.. en leiðrétti sig svo hálftíma seinna.. og byrjaði að lesa aftur.. "Í hvaða borg er Last Place torgið?" það þurfti að taka þriggja klukkutíma pásu meðan við hlóum.. svo gátum við haldið áfram og kláruðum ekki fyrr en hálf sex í morgun.. með þónokkuð mörgum leiðréttingum hjá Halldóri.. og ég vann á spurningunni.. hvaða tákn er hjá stafnum fimm á lyklaborðinu.. þannig að þarna hafiði það.. ÉG VANN :)

Stina at 7:15 PM

Frábært.. mar sér hve marga vini mar á þegar mar bíður fólki að dl Botnleðjulaginu hérna.. koma bara fleiri en hafa komið hingað.. allavega 43 þegar ég leit á þetta núna.. spurning hvort þetta verði meira.. eeen.. ég er samt sem áður ekki sátt.. ég vil að þið skrifið eitthvað í comment eða eitthvað.. látið allavega vita af ykkur hérna... ekkert gaman að tjá sig á fullu og fá enginn viðbrögð.. ég ætla ekki að tjá mig meira..
látið heyra í ykkur..
adios!
Stina at 10:39 AM

Sunday, February 16, 2003

Langar ykkur í þetta lag ----> Botnleðja - Eurovísa ? niðurhlaðið þessu þá.. *bros* á meðan ætla ég að halda áfram að reyna að finna út hvað ykkur fannst um Söngvakeppni Sjónvarpsins.. :)
Stina at 8:16 PM

Falleg skilaboð sem blasa við manni á skilaboða síðunni hans Gunnars eða reyndar "falleg".. ég varð bara hneyksluð.. og ónýt manneskja..ég veit ekki um það að ég hafi verið steypa.. ég sagði bara sannleikan.. sem virðist ekki vera neitt gott að segja.. ég sagði honum bara frá draumnum sem mig dreymdi.. og hvað með það þótt ég hafi legið uppí rúminu hjá honum.. þarf það að vera ástæðan til að loka eina staðnum sem ég get virkilega opnað tilfinningarnar mínar.. en.. ég ætla að leyfa ykkur að sjá skilaboðin sem komu á móti mér.. http://www.simnet.is/gunsi/
Stina at 6:09 PM



Forvitni bara.. :) ætla samt sem áður að posta svona vikulega einhverri könnun.. til að fá svör við því sem mig langar að vita.. en annars hefur dagurinn minn ekkert verið neitt spes.. vaknaði kl hálf 5 í dag.. og.. ákvað að gerast góð systir og passa.. tók Elínu með mér.. og við settum Listaskautsdæmi á sportrásinni á.. og fórum að pæla í því.. hvað dregur karlmenn í það að æfa listaskautadans.. eða bara ballett.. eru það þröngu búningarnir.. annars var þetta nokkuð skemmtilegt.. sérstaklega þegar kínverskur karl byrjaði að dansa við remix af hero með enríkó íglesías.. datt strax í hug karókí-ið hjá Audda og Stjána Stuð.. það var lagst í gólfið og emjað úr hlátri þegar mar sá það.. algjör snilld.. þeir eru báðir með svo brilliant rödd.. gætu haft það að atvinnu að syngja.. myndu græða heilmikið á því..:) kannski hefði bara átt að senda þá 2 saman í júróvisjón.. gætu pottþétt komist lengra en Birta.. eða Angel.. :)
þannig að næsta.. eru það Auddi og Stjáni Stuð sem fara saman í Júróvisjón.. ef við höldumst inni núna eftir að Birgitta fer.. :/
Jæja.. ég ætla að gera eitthvað af viti..
adios!
Stina at 3:43 PM

Ok.. þar sem ég er vöknuð.. og er loks komin með skýra hugsun.. þá ætla ég að tjá mig um það aftur hvað ég hata Birgittu Haukdal.. og ég voni að hún misstigi sig á sviðinu útí Lettlandi.. ég sá reyndar bara 4 lög í þessari söngvakeppni sjónvarpsins.. það var.. Ragnheiður Gröndal.. með eitthvað bullcrap Ferrari lag.. sem ég skil ekki hvernig komst einu sinni í listan hjá þessum fimmtán lögum.. svo kom.. Hreimur.. með eitthvað lag sem ég hlustaði bara á með einu eyra.. fannst það ekkert spes.. og.. svo Birgitta Haukdal.. með.. engan veginn gott lag.. og.. hvaða takta ætli hún taki á sviðinu útí Lettlandi.. kannski sömu slá í lærið og svo hendina uppí loft taktana? svo Botnleðja.. mér fannst þaða lag nokkuð snilld.. öðruvísi.. en þessir Eurovision "smellir".. munaði líka 10 þúsund á milli hjá þeim.. áttu litlu krakkarnir ekki að vera farnir að sofa á þessum tíma? æji annars er mér alveg sama.. Eurovision er bara ein góð afsökun fyrir mig til að fara á djammið.. ég hef voðalega sjaldan getað þraukað heilt Eurovision.. nema að skipta um stöð meðan butt leiðinlegt lag er.. sem eru þá flest öll.. nema Danmörk seinast.. :) það var það sem ég hélt með.. eða.. var það Danmörk í fyrra.. dont remember..
en.. ég ætla að fara að passa or someth..
adios!
Stina at 9:55 AM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs