creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, February 15, 2003

Jæja.. það verður ekkert meira próf dæmi.. þoli það ekki sjálf þannig að ég ætla ekki að hafa það.. en ég fór á djammið í kvöld.. leit aðeins með Sæsa til Jóa í seljahverfið.. og já Gulla ég skilaði kveðjunni ;) svo byrjaði fólkið að koma.. þegar ég var tilbúin til að horfa á söngvakeppni sjónvarpsins.. fékk það þó allavega live frá Elínu.. brast í grát þegar ég frétti að Birgitta Hórdal eins og Elín vill kalla hana vann.. næ því ekki alveg.. þar sem ég náði til að hlusta á lagið sem hún söng.. og það var butt leiðinlegt.. virkilega butt leiðinlegt.. en jæja.. ég ákvað samt að drekka.. og það var það að drekkja sorgum mínum.. komst ekki inná celtic cross.. þannig að ég endaði inná nellys.. og takk þið 3 gaurar sem reynduð að redda mér inn :* ég skemmti mér fínt inná nellys meðan sumir voru of fullir.. og þetta er ekki til þín Sæsi.. ;) og þar var ég til hálf fimm.. þannig að ég sit núna og skrifa þetta.. mun tjá mig eitthvað meira á morgun.. er butt þreytt.. aftur.. en.. nenniði að prufa nýja comment kerfið mitt.. var að setja það upp.. af því að hitt var bilað.. adios peoples.. :)
Stina at 8:36 PM


Which Piercing are you?

Svona eitt í lokin.. rétt fyrir djammið.. :) sjáumst í bænum fólk? ef ég þrauka það langt.. allavega búin að fá nógan svefn.. búnað sturta mig.. alveg rosalega fín.. :) með becks í annað hvor hendinni.. veit ekki muninn.. :/
adios..
Stina at 1:02 PM

Held að mamma sé farin að kalka svoldið.. hún kemur inn með síman til mín.. þegar Elín hringdi.. svo leið hálftími.. og hún veit ekki hvar heimasíminn er.. þannig að hún ýtir á.. leita af símanum heima.. takkann.. þannig að ég varð ýta á fullt af tökkum á sínum til að láta hann þegja.. og endaði með því að þurfa að skokka fram.. og vaknaði þá..
fór aðeins í rúnt niðrí bæ.. ætlaði að fara að kíkja í búðir.. en fattaði auðvitað ekki að þær lokuðu kl 16.. og var komin niðrá laugarveg kl 16:15.. :/ ákváð þá bara að skreppa í tölvulistann og kaupa mér einhverja tóma diska til að geta horft á fleiri myndir.. sem minnir mig á það.. ég horfði á The Ring í gær.. massíf mynd.. þetta er algjör snilld.. en held hún sé betri ef mar fer á hana í bíó.. náttla miklu betri hljómgæði.. massífara þegar bregðu atriðin koma.. ég allavega.. leit ekki í spegilinn á klóstinu eftir þessa mynd.. rétt byrjuð að gera það núna.. svo.. horfði ég líka á simpson.. og steinrotaðist kl 8 í morgun.. yfir simpson.. fékk bókstaflega ekki minn svefn.. þannig að ég verð að leggja mig.. ef ég er að fara að gera eitthvað í kvöld.. kemur allt í ljós.. :)
adios!
Stina at 10:08 AM

Friday, February 14, 2003

Íslendingabókin getur verið nytsamleg stundum.. t.d. ef mar ákveður að næla sér í gaur á djamminu.. og vill ekkert vera að hoppa uppí rúm með manneskju sem gæti verið skyldur manni.. bara setjast fyrir framan tölvuna rétt áður en bólferðin verður.. og biðja hann um fullt nafn.. ef hann er í sjötta.. eða sjöunda ættlið.. þá má mar hjakkast á honum að vild.. en.. svona fimmtu og fjórði.. er ekkert rosalega sniðugt.. en samt.. hver vill ekki hjakkast á frænda sínum.. :)
Annars hef ég verið að gera margt sniðugt.. reyndar bara fyrir framan sjónvarpið.. bauð Elínu í heimsókn.. og þótt ótrúlegt megi virðast.. þá lifðum við ekki bara á óhollustunni í kvöld.. ég keypti mér MELÓNU.. :) og reyndar ís, kókósbollu og kex.. tyggjó líka.. leyfði Elínu að klára ísinn.. þó hann væri góður.. en bara í hófi.. þetta var svona.. útlenskur ís.. með einhverju extra súkkulaði.. mjög klígugjarn til lengdar.. en.. það sem fór á skjáinn hjá okkur var.. The osbournes náttla.. og svo setti ég Rosemary´s baby í tækið.. meðan Elín svaf.. og náði til að horfa á 2 diska af henni.. sem var alveg snilld.. fíla þessa mynd.. en þegar ég var komin sem mest inní myndina.. og setti 3ja diskinn í.. þá gat tækið ekki spilað hann.. hann var bara frosinn.. þannig að ég get ekki klárað rosemary´s baby í kvöld.. :( og verð því að finna mér eitthvað annað til að horfa á.. kannski ég horfði bara á Bandits.. <--- gratjías míabella mynd mar!
Stina at 7:16 PM

"Æ tjú tjú tjúss jú"
Skemmtilegur dagur í dag.. var reyndar bara að vakna.. drakk of mikið vatn fyrir svefnin.. þannig að ég hljóp á klóstið kl hálf 15.. og svo þegar ég labbaði til baka.. þurfti ég óvart að ná augnkontekti við Margréti Lind.. þannig að hún byrjaði að skríða og ég hljóp inní herbergi.. svo loks lokaði ég hurðinni.. en heyra hana ennþá skríða.. svo kom þögn.. og þessi líka háu öskur.. sat hún grenjandi fyrir utan hurðina mína og byrjaði að berja.. þannig að ég gafst upp.. og ákvað að vakna fyrir hana.. hélt svo á henni.. og fékk koss.. svo sat ég uppi með hana.. henti henni fram til mömmu.. en hún kom alltaf skríðandi aftur.. hlakkar ekki til þegar hún lærir að labba.. þá fæ ég áreiðinlega engan frið fyrir langþráðan svefnin minn að degi til.. en.. eins og pabbi segir.. "mar þarf ekki svefn þegar mar er á lífi.. fær nóg af honum þegar mar dáin" mig langar samt ekkert að sofa þá.. þá ætla ég að vera að bögga fólkið sem er á lífi.. múhahaha..
Jæja sturtu tími.. það er líka langþráð.. :)
Stina at 7:29 AM

Thursday, February 13, 2003

Which rugrat are you? múhahaha! :)
annars hata ég þessi test.. orðið of mikið af þeim.. í hvert skiptið sem mar skoðar einhverjar heimasíður þá eru einhver svona test þar.. ég veit ekki hvað ég er ekki.. ég lazy strumpur, angelica núna, rave bangsi.. man ekki meira.. reyni að blocka þetta út..
en annars TIL HAMINGJU MEÐ VALENTÍNUSARDAGINN HULDA MÍN tími ekki að kaupa nammihjörtun þannig að þú færð frekar svona heimasíðuskilaboð frá mér :)

Morgundagurinn verður tekin með trompi.. ég ætla að vakna snemma.. semsagt eitthvað um tvö leytið.. bíða eftir að Hulda hringi í mig.. svo ætlum við til hans Gunnars borða pizzu.. kíkja áreiðinlega til hennar Gyðu eftir það.. svo ætla ég að reyna að redda mér í tölvulistann og kaupa einhverja diska svo við getum klárað að skrifa þessar myndir sem við höfum verið að downloada.. svo verður sest niður fyrir framan sjónvarpið með Elínu og tekið Lord Of The Rings maraþon.. áreiðinlega stolist til að kaupa smá snarl með.. samt verður það aldrei smá þegar Elín er með.. bið að heilsa ykkur.. ætla að eyða þessu kvöldi í Gangs of New York.. eða Jackass.. :)


Stina at 6:00 PM

Undercover Brother er mest snilldarmynd sem ég hef séð lengi.. kannski af því að míkrafóninn var alltaf í andlitinu á þeim.. held það hafi ekki klikkað í einu atriði að hann var komin í hárið hjá þeim.. eða læddist upp í myndavélina.. veit ekki alveg hvort að þetta hafi átt að vera svoleiðis.. en þetta var heldur furðulegt.. líka af því að þetta voru ekkert lítið áberandi míkrafónar.. einn sem var með gulu bandi kringum sig.. sem kallaði á mann.. svo kom einn rosalega loðinn og bleikur.. annars var mjög loðinn.. minnti mig helst á hundinn hennar Huldu.. :) Við hlógum semsagt mest af þessu.. og reyndar af gaurnum sem leikur í Night at the Roxbury.. litli gaurinn.. hann er algjör snillingur.. en annars.. þá er þetta snilldarmynd..
Svo er söngvakeppna dæmið í sjónvarpinu á laugardaginn.. ég hef ekki heyrt eitt einasta lag úr þessu.. en hef fengið að heyra að Botnleðja sé með besta lagið.. ég væri alveg til í að sjá þá keppa þarna úti fyrir okkur.. en.. ég ætla samt alveg áreiðinlega að fylgjast með þessu.. kemur allt í ljós.. ef valentínusarpizzan hans Gunnars fer vel í mig.. :)
Já svo er fólk búið að vera að tala rosalega mikið um Mikjál Jackson heimildarmyndina.. og tala um hve mikill viðbjóður hann er.. og hann sé pottþétt barnaníðingur.. en ég verð að segja.. að ég er ekki á sama máli.. hann er pottþétt EKKI barnaníðingur.. hann er bara barn ennþá.. hann fékk aldrei að upplifa æskuna.. alltaf syngjandi.. þurfti að útiloka sig frá jafnöldrum sínum.. gat aldrei leikið sér með þeim.. barin af pabba sínum.. þannig að gaurinn er að taka þetta upp núna.. er bara eilífðarbarn.. eins og hann sagði.. þá er hann Pétur Pan.. þetta með að leyfa krökkunum að sofa hjá sér.. það er bara eins og sleep over.. eins og við öll gerðum þegar við vorum lítil.. mér fannst reyndar alveg mátt sleppa þessari heimildarmynd.. vegna þess að mig langaði ekki að vita að hann væri svona ónýtur eftir þetta.. hann var bara stimplaður konungur poppsins hjá mér.. og er það reyndar ennþá.. en mar er alltaf með þetta fast í hausnum á sér.. en fyrst þetta er byrjað.. þá bíð ég bara eftir.. Michael Jackson heimildarmyndinni hans.. það sem við fengum ekki að sjá hjá Martin ????... og plús það.. núna er diskarnir hans að seljast eins og mofós.. sem er flott.. ÁFRAM MIKJÁL!
Jæja.. ég ætla í vinnuna.. reyndar búnað bíða eftir því að geta farið að vinna.. seinasti dagurinn svo helgarfrí.. er ekki búnað fá svona langt frí lengi.. og.. já.. kíkjið á þessa heimasíðu.. ein af Önnuh og ef þú ert að lesa þetta Annah.. þá vantar commentdæmi hjá þér.. vegna þess að ég er mjög lítið sammála mörgu þarna.. :) eða allavega hentu inn gestabók..
adios
Stina at 10:22 AM

Wednesday, February 12, 2003

Ég get svo svarið það.. Njósnarar að elta mig.. njósnarar hans Jóhannes í bónus.. fyrst reyndar héltum við að þetta væru hommar.. búnað vera rosalega lengi inní búðinni.. og stóðu voðalega nálægt hvor öðrum.. bjóst við að þeir væru hommar sem væru nýbyrjaðir að búa saman.. en svo kom í ljós annað þegar þeir röltu að kassanum.. "við erum samkeppnisaðilarnir ykkar og langar að vita ýmislegt" ég gat ekki annað gert en panikkað og sagði þeim allt.. meira að segja númerið mitt ef þeim langaði að vita meira..
Annars voðalega lítið að gerast hjá mér.. bíð bara eftir amazing race.. svoldið lengi að drífa sig að byrja.. oooog.. ég fer á árshátíð á afmælisdeginum mínum.. vil samt frekar kalla þetta afmælishátíð.. fæ vonandi fullt fullt af pökkum.. þið sem eruð hjá kaupás og eruð að lesa þetta.. skiljið pakkana bara eftir í andyrinu.. ég næ í þá þar.. takk þið eruð frábær :*
"ég myndi gera akkúrat það sama fyrir ykkur" *leggur áherslu á gæsalappirnar*
adios!
Stina at 4:40 PM

Takk fyrir góðar viðtökur á spurningunni..!! ekki segja mér að af þessum 25 fólks sem joinuðu í dag.. að bara 2 af þeim fari með lesblað á klósettið.. nú eða þori að svara þessari spurningu.. piff.. og ég kalla ykkur vini mína.. þó ég reyndar viti ekkert hver þið eruð..
Annars fór nóttin mín í það að horfa á myndina Catch me if you can.. fyrsta myndinni sem ég og bróðir minn kláruðum að download-a.. þannig að þetta var frekar skemmtilegt.. og myndin var nú frekar góð bara.. þó ég hafi þurft að ýta á pausu af og til til að fletta uppí í ensku - íslensk orðabókinni..
Gerði það reyndar ekki.. en.. rosalega talar Tom Hanks óskýrt.. ég er ennþá að melta það hvað hann var að spurja að í flugvélinni.. en.. mæli með þessari mynd.. :) ætli nóttin í nótt fari ekki í 8 Mile.. þar sem það var önnur myndin sem við kláruðum.. eða.. Gangs of New York.. :) kemur allt í ljós.. þarf víst að fara að vinna áður..
Það er náttla komin miðvikudagur.. mar þarf að fara að hugsa um það hvað mar ætlar að gera um helgina.. selja sig á Ölver kemur sterklega inn.. náði til að henda öllum peningunum mínum í vaskinn seinustu helgi.. vaskinn = barþjónn.. svo er næstum því mánuður í afmælið mitt.. þannig að ég vil fá peninga í afmælisgjöf.. :)



Stina at 8:39 AM

Tuesday, February 11, 2003

En þið heppin núna.. ég var næstum búnað missa puttana mína.. en sem betur fer gerðist það ekki.. ég þurfti nebbla að ná í fánana fyrir utan 11-11 áðan.. og erum við að tala um óveður.. ég stóð alltaf á sömu hliðinni.. var líka komin með ænstæn greiðslu þar megin.. og massíft blaut.. en mér var það kalt á puttunum að þegar ég náði öðrum fánanum niður.. þá fattaði ég ekki einu sinni að hann var að fjúka í burtu í grasinu.. var búnað vera að halda dauðataki í hann.. en fann ekki fyrir því þegar hann læddist í burtu.. en núna er ég komin heim.. og er brjáluð.. mamma vill ekki nudda á mér lappirnar.. hvað með það þótt ég hafi verið í skónum í 5 tíma.. og ekki búnað skipta um sokka í viku.. það er heilbrigt!
Þið fólk sem lesið á klósettinu megið svara þessar spurningu.. þegar þið farið á klóstið.. og hafið ekki fundið neitt að lesa.. en það er bunki fyrir framan ykkur.. haldiði inní ykkur þangað til þið finnið grein til að lesa.. eða látiði þetta bara flakka án þess að vera að lesa eitthvað? og ef þið eruð búnað lesa allt sem er í bunkanum.. lesiði þá utan af shampoo brúsanum.. eða skoðiði utan af klósettpappírsrúllupakkan?
þið viljið kannski að ég svari þessu fyrst.. ok..
Ég held í mér alveg þangað til að ég finn eitthvað að lesa.. sama þótt ég þurfi að berjast lengi við hann.. og lendi stundum í því að hann neiti svo að koma út þegar greinin er fundin..hef líka lent í því að hann fer út.. en ég klippi þá bara á þegar hann er hálfnaður.. en ef ég finn ekki grein.. þá næli ég mér í það næsta sem er við hliðná mér.. kann næstum því shampoo innihaldslýsingarnar utan af..
svona.. núna er það ykkar turn.. :)
Stina at 5:35 PM

Stórhættulegt að gefa bra bra brauð núna.. fór með Guðmundu og Margréti Lind áðan.. og fyrst tóku þær á móti okkur.. sérstaklega mér af því að ég hélt á brauðpokanum.. labbaði svo að aðalstaðnum.. og fékk bara andarhópinn á eftir mér.. þá leið mér eins og mömmu.. andarmömmu.. sem mér fannst alltílæi.. þangað til.. ég fór að gefa þeim brauðið.. ég tók reyndar fyrst upp vídjócameruna.. til að taka upp Margréti Lind.. fyrsta skiptið sem hún gefur bra bra brauð.. en það eina sem kom fram á myndavélinni.. voru öskrin hjá Guðmundu af því að þær gogguðu eins og meiníaks í hana.. og hún þurfti að flýja með Margréti í burtu.. henti semsagt pokanum í mig.. og ég sat uppi með þær.. en hugsaði bara "that´s it" þegar 2 svanir ætluðu að ráðast á mig til að fá brauð.. og hljóp í burtu.. og þær náttla allar á eftir mér.. þannig að ég stoppaði hjá húsinu lengra í burtu.. með þá bara bra bra í kringum mig.. og henti brauðsneiðunum í þær til að losna við þær.. meðan ein öndin elti Guðmundu og Margréti langleiðina útí bíl.. og kom svo til baka til mín.. og ætlaði að ráðast á mig.. þannig að ég kláraði brauðið og dreif mig útí bíl.. við vorum reyndar 2 fólks að gefa akkúrat á þessum tíma.. Strákur með dóttir sína líka.. og hann labbaði uppað okkur og sagði "Ég þori ekki að vera hérna lengur.. stórhættulegar.. ég er farinn!" en þegar ég og Guðmunda fórum skildum við eftir Konu með 2 krakka.. spurning hvernig þau þraukuðu þetta.. :) allavega mæli ég ekki með því að fara að gefa bra bra brauð núna.. þó náttla þær hafi mest verið svona brjálaðar af því hve fáir eru að fara.. bara svangar.. :/
Stina at 9:45 AM

Monday, February 10, 2003

Til hamingju með afmælið Halldór frændi :)
Stundum vildi ég að það væri ennþá til bara svona takka"sími" sem mar þarf að pikka inn það sem mar er að segja.. og síminn hringi ekki.. flestu símtölin sem ég fæ.. fæ ég þegar ég er nýsofnuð.. ekki oft sem ég sef.. :)
En spilakvöldið var að enda hjá mér.. eða hjá minni fjölskyldu.. fórum í party og co.. og hver haldiði að hafi unnið.. ÉG! og Elín reyndar líka með mér.. en það var alveg vitað fyrirfram að ég myndi vinna.. er það góð í öllum spilum.. heppin í spilum óheppin í ástum.. :) en.. lítið bara á þetta.. sorglegt en "satt"?
Stina at 4:21 PM

Halli litli frændi minn.. ákvað að næla sér líka í bloggsíðu.. þannig að ég var að dunda mér eitthvað í morgun.. og þó síðan sé voðalega lík hennar Huldu.. þá er það ekki mér að kenna.. :) hann bað um það!! ----> kíkjið á hana
Jáhá.. öllu tekur nú fólk uppá að gera á irkinu.. t.d. gaurinn sem ákvað að hella í sig lyfjum online.. hérna eru logfile arnir svo greinin sem kom nokkrum dögum seinna og þar er verið að tala um það hve fólkið var svona nokkurn veginn heimskt að gera ekkert til að hjálpa honum.. hann sem sat fyrir framan webcam að overdose-a.. þegar fólk er að segjast ætla að drepa sig á irkinu.. þá tekur mar því ekkert alvarlega.. það er allavega einu sinni á dag sem manneskja talar um að gera það.. hann hefði alveg eins getað verið að leika sér.. og svo fólk farið að hringja á 911 og þetta væri bara bullcrap.. svo voru þau ekki með nógu miklar upplýsingar um hann.. en samt fjölskyldan hans ekkert happy yfir að þau skyldu ekki reyna að hringja í þau og vekja þau.. af því að það hefði alveg getað bjargað.. svo lengra kemur það fram.. að hann tók það mikið magn af lyfjum að það hefði áreiðinlega ekki verið að hægt að bjarga honum.. nokkrir á þessari spjallrás voru náttla að ýta undir að hann myndi gera þetta.. auðvitað eru þau bara að gera þetta í djóki af því að þau halda að hann myndi ekki gera þetta.. en.. ég nenni ekki að velta mér uppúr þessu.. hann ákvað að gera þetta.. og það í webcam.. sem er bara sjúkt..
Mar veit margar sögur af irkinu hérna á Íslandi.. þannig að það er gott að mar er laus við þetta.. og ég segi bara.. til ykkar sem eruð "svöl" á irkinu.. Ofbeldi leysir engan vanda sama þótt það hafi verið tekið af þér op á einhverri rás!
spilakvöld í kvöld..
adios! :)

Stina at 10:30 AM

Sunday, February 09, 2003

Ég fattaði áðan.. að í gær á gauknum.. þurfti hrappur.is endilega að valhoppa um með myndavélina sína sem mar tekur ekkert rosalega vel eftir þegar mar er í glasi.. svo fór ég að skoða síðuna hans.. og hann var nú adeilis snöggur að setja þetta inná.. sem betur fer var mar ekkert að pósa neitt.. þannig að ég er alveg sátt.. líka bara 2 myndir af mér þarna.. en ennþá fleiri af henni Dipsí.. ;)
Annars hefur dagurinn minn ekkert verið neitt spes.. þynnkan náði hámarki um fimm leytið þannig að ég var að henda mér inní rúmið hennar systir minnar og velta mér aðeins þar.. svo þurfti Elín að njóta þess að hringja í mig.. og á endanum var símanum hent inn til mín.. ég muldraði eitthvað þreytulega í síman til að geta haldið áfram að sofa.. svo varð ekkert úr því.. þannig að ég fór bara að spila við hann pabba minn í trivial pursuit.. og hver ætli hafi unnið *bendir á sig* að sjálfsögðu ÉG! Reyndar búnað fara svo oft í barnaspurningarnar að ég kann þær utan af.. en hey.. ég hafði ekki heyrt nokkrar af þessum spurningum áður.. þar voru gáfurnar að verki.. þó ég hafi ekki getað svarað þeim.. líka ekki spurningar sem eiga heima í BARNAspurningunum.. svo leigðum við.. The sweetest thing.. rosalega er sú mynd ekki skemmtileg.. hún átti nokkrar hláturkafla.. en annars bara bullcrap.. og þá get ég nú sagt að Titanic hafi verið skárri..
"Hvað er 23.des oftast kallaður" "Jóladagur!!" <--- spurði systur mína spurningar í trivial í fyrradag.. :)

Stina at 4:31 PM

Ekki kemst mar framhjá þessari helvítis þynnku.. mar er líka alveg butt svangur.. en getur samt einhvern veginn ekki borðað.. svo bara matreiðsluþættir í sjónvarpinu.. maginn minn er gjörsamlega að éta sig að innan.. en rosalega er gaman af Á móti sól á djamminu.. man reyndar ekkert voðalega mikið eftir þeim.. var bara að dansa..þetta hefði alveg eins getað verið geisladiskur bakvið mig.. :) en það var dansað vel og lengi.. og svo var farið á amsterdam.. get ekki sagt að það hafi verið til góðs.. en.. ég komst allavega hjá því að labba niður stigana þarna.. sem mar fagnaði á staðnum.. en daginn eftir er ekkert jafn mikið fagnað.. hægt að leika sér að telja marblettina á löppinni.. sem er ágætis dægrastytting.. :) já.. Stefán Hilmarsson.. takk fyrir að gefa Dipsí bjór.. takk fyrir að gera hana fyllri en hún var.. einn bjór getur drepið.. bara spurning hvað margir komu á undan þessum eina.. en takk samt.. ;)
Jæja.. svefn meðan einn tveir og elda er.. finnst hann ekki jafn skemmtilegur og þegar Siggi Hall var með hann.. Siggi Hall er náttla bara snillingur.. og bara gaman að fara sem áhorfandi hjá honum þegar hann var með þáttinn.. kannski útaf áfenginu.. ;)
adios!
Stina at 9:35 AM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs