|
| home | Myndir | email | msn | designs | blogger | |||||||
Archives 10/20/2002 - 10/27/2002 10/27/2002 - 11/03/2002 11/03/2002 - 11/10/2002 11/10/2002 - 11/17/2002 11/17/2002 - 11/24/2002 11/24/2002 - 12/01/2002 12/01/2002 - 12/08/2002 12/08/2002 - 12/15/2002 12/15/2002 - 12/22/2002 12/22/2002 - 12/29/2002 12/29/2002 - 01/05/2003 01/05/2003 - 01/12/2003 01/12/2003 - 01/19/2003 01/19/2003 - 01/26/2003 01/26/2003 - 02/02/2003 02/02/2003 - 02/09/2003 02/09/2003 - 02/16/2003 02/16/2003 - 02/23/2003 02/23/2003 - 03/02/2003 03/02/2003 - 03/09/2003 03/09/2003 - 03/16/2003 03/16/2003 - 03/23/2003 03/23/2003 - 03/30/2003 03/30/2003 - 04/06/2003 04/06/2003 - 04/13/2003 04/13/2003 - 04/20/2003 04/20/2003 - 04/27/2003 04/27/2003 - 05/04/2003 05/04/2003 - 05/11/2003 05/11/2003 - 05/18/2003 05/18/2003 - 05/25/2003 05/25/2003 - 06/01/2003 06/01/2003 - 06/08/2003 06/08/2003 - 06/15/2003 06/15/2003 - 06/22/2003 06/22/2003 - 06/29/2003 06/29/2003 - 07/06/2003 08/03/2003 - 08/10/2003 |
Ohhhh!! að sofna með reykingarlagið á heilanum.. vakna svo með það.. og heyra það strax í sjónvarpinu.. eins og þetta lag er nú "skemmtilegt".. þó heilinn minn sé ekki sammála.. hann dillir sér alveg við þetta.. ég allavega veit að bara svo ég þurfi ekki að heyra fjölskyldumeðlimina mína syngja þetta lag framan í mig.. þá læt ég sígarettuna eiga sig.. þetta er búið að koma í veg fyrir að ein manneskja reykir allavega.. ætlaði heldur ekkert að gera það.. :)
Þegar ég sá auglýsinguna með górillu sem ruglaði á hárinu á gaurnum yfir alla nóttina.. hélt ég að það væri alveg áreiðinlega ekki hægt að vakna með hárið svona gífurlega úfið.. ég ætla aldrei að hugsa það aftur.. ég vaknaði með afró greiðslu.. fékk jafn mikið sjokk og gaurinn í auglýsingunni þegar hann leit í spegilinn.. en var ekki með neitt gel við hendina.. sem ætti greinilega að vera þarfa hlutur á hverju heimili.. eða bara sleppa því að fara að sofa með blautt hár.. annars endar mar með því að þurfa að vakna og bleyta það aftur.. og fara svo útí frostið og verða veikur.. PANT BLEYTA ÞAÐ!! :)
Jæja.. er ekki komið gott með þennan handfrjálsabúnað.. getur fólk ekki lengur labbað inní búð án þess að vera með þetta á hausnum.. ég bara þoli ekki þegar fólk kemur inní búð.. með litla handfrjálsabúnað á hausnum sem mar tekur ekki eftir... og talar svo við "sjálfa" sig.. stundum tekur mar uppá því að tjatta á móti.. og gerir sig að algjöru fífli.. eða stendur kyrr og segir ekkert þegar fólkið er að tala við mann af því að mar heldur að það sé að tala í búnaðinn sinn.. eins og með bankana.. þá er bannað að tala í síman meðan það er verið að afgreiða mann.. afhverju er ekki tekið uppá því líka í búðum? jæja.. ég er hætt að kvarta.. ætla að koma mér fyrir í sófanum með ávexti.. all the hollustu.. :) og hugsa um það að opnunartíminn í 11-11 sé orðin hálf 12.. :(
Fólk sem er að versla hjá manni.. láta eins og mar sé smábarn.. allavega tala við mann eins og mar sé bara barn.. þannig að ég geri það á móti.. og spyr oft að því hvort þeim langi ekki að teikna á meðan ég raða í pokana þeirra.. :)
The Others er mynd sem Hrafn keypti sér í fyrradag.. og hún má eiga það.. að hún er mjög mikil snilld.. fyrst þegar ég sá hana.. fannst mér hún frekar langdregin.. og alls ekki að fara neitt.. en.. svo í endanum.. var þetta allt að meika sense.. þannig að þegar mar sér hana aftur.. þá er mar meira að fylgjast með því sem er að gerast.. af því að þá veit mar meira um hana.. og veit aðstæðurnar.. þannig að þegar mar sér sum atriðin.. þá hugsar mar.. "Jááhh..!" þannig að þessi mynd leynir á sér.. og er alveg massíft góð.. :) ég reyndar hef ekki komist að því að horfa´a Lord Of The Rings Two Towers.. óskarsútgáfuna.. ætli mar geri það ekki bara á sunnudaginn.. ég er mest svekkt yfir því í gær.. á kökuspurningu í trivial pursuit.. að ég hafi ekki vitað hvað fyrsta myndin hét.. mér finnst of lítið talað um þetta.. þannig að ég hef einhvern annan til að kenna um.. ég sá þetta alveg fyrir mér á ensku.. en gat ekki ropað þessu útúr mér á íslensku.. leiktöf hjá mér.. :/ þannig að munið þetta.. ef þið eruð að fara í barnaspurningarna í nýja trivial pursuit ;)
YES!! loksins get ég eitthvað í trivial pursuit.. notuðum barnaspurningarnar áðan.. þó ég hafi tapað.. þá var ég samt góð í þessu.. að ég skuli hafa fattað að Ítalía væri landið sem liti út eins og stígvéli á landakortum.. ég var hneyskluð á sjálfri mér.. pabbi náði til að vinna þetta.. sem er ekkert skrýtið.. það erfiðasta fyrir hann var það léttasta fyrir mig.. bleiku spurningarnar.. svo kom Elín á eftir honum.. en það var bara af því að hún fékk léttar spurningar.. ég fékk líka þá spurningu á köku.. "Afhverju sjá vampýrur ekki spegilmyndina sína í speglinum" ég hélt að það væri af því að þær væru dauðar.. en það er af því að þær eru ekki með neina sál.. :( þannig að þarna missti ég köku sem hefði geta leitt mig til sigurs.. en núna ætla ég að reyna að draga Guðmundu í hringjardróttinsspilið.. eða horfa bara á lord of the rings two towers.. :)
Takk Gunnar fyrir myndirnar.. þú bjargaðir alveg gærkvöldinu :*
Mar vaknaði gífulega "sprækur" í morgun.. en.. alltaf gera barnaafmæli daginn.. ég svoleiðis hámaði í mig kökur.. og tók svo eftir því að allir krakkarnir voru að perla.. ég sem elska að perla.. þannig að ég dreif mig að borða þessar kökur sem voru ekki jafn áhugaverðar lengur.. og perlaði.. sat og perlaði þangað til við fórum.. en.. ég einmitt tók mynd af því sem ég perlaði.. og sýni ykkur.. þar sem ég náði til að perla þessa líka flottu kanínu.. :) svo þurfti ég að fá lánað fjölskylduútgáfuna af trivial pursuit þar sem það er ekki hægt að draga mömmu í hina gerðina.. ætlaði að prufa að reyna að fá hana til að spila við okkur fyrst það eru barnaspurningar í þessu.. þó hún geti þær áreiðinlega ekki heldur.. á leiðinni ákvað ég að stytta okkur stundir.. þar sem það er butt leiðinlegt að keyra frá keflavík.. þannig að ég spurði Guðmundu og Huldu spurningar á leiðinni meðan Margrét Lind svaf.. og.. Guðmunda náði til að toppa allt.. það kom spurningin "Hvaða dýr er með stærstu hornin" og Guðmunda ákvað að vera rosalega gáfuð og sagði "Fíll" nýbúnað ropa þessu útúr sér þegar hún fattaði að fíll er ekki með horn.. þetta eru tennurnar hans.. og skammaðist sín.. meðan við hlóum.. þó svo þetta hafi verið gáfulegt.. þá náttla toppar ekkert Hrafn og hans svör úr viltu vinna milljón.. en.. svo var komið heim.. og horft á simpson á dvd.. þar sem Hrafn náði til að skrifa nýjustu seríuna á disk.. og núna er ég að suða í fólkinu að koma að spila.. fyrst mar er nú með fjölskyldu trivial pursuit..
Jæja.. ég get ekki neitað því að þetta áfengi sem ég fékk me´r í gær.. gerði mig fulla.. mjööög fulla.. ég reyndar var orðin það full.. að ég ákvað sjálf að færa mig útí vatnið.. og.. ákvað sjálf að drulla mér heim.. þar sem ég sá ekki frammá að ég gæti verið skemmtilegur félagi í bænum.. :) btw sorry leigubílstjóri :* mamma var ekki að vinna þannig að ég valdi þig.. en ég elska þig samt :** en annars var þetta skemmtilegt kvöld.. fórum á players í vinnudjammið.. og ég.. KRAKKINN.. þurfti að vera stimpluð yngst hjá dyravörðunum.. svo hinum krökkunum yrði ekki hent út.. mjög frábært.. þar sem ég þurfti að hafa augu bakvið mig meðan ég var að stelast til að drekka það sem ég borgaði fyrir.. svo fór ég tvisvar í pool.. og vann í mínum haus.. þar sem ég hjálpaði þeim með sínar kúlur.. aldrei gat ég hitt mínar kúlur ofaní.. en um leið og ég skaut.. þá þurftu fullt af þeirra kúlum að fara ofaní.. pool-lega séð þá vann ég ekki.. en mín-lega séð.. þá vann ég.. :)
|
Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..
| ||||||