creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, February 01, 2003

Að fara með bróðir mínum á mcdonalds.. er eitthvað sem ég myndi forða mér frá að gera í framtíðinni.. þessi drengur.. er með þeim tregustu..
fyrsta sem hann ropaði útúr sér var að honum langaði í súperstjörnumáltíð.. sem er náttla bara stærðin.. og við sögðum það náttla við gaurinn sem var að hlusta í dæminu.. og gaurinn alveg.. já.. hvernig borgara.. og við spurðum hrafn af því.. hann alveg "súperstjörnumáltíð en ekki stærsta" og við sögðum það.. gaurinn alveg.. "hvernig borgara?" og.. ég spurði hrafn "hvernig borgara?" hann alveg "ég er með pening" þannig að.. það þurfti að virkilega öskra á gaurinn svo hann myndi skilja.. svo náði hann til að ropa útúr sér big mac.. eftir hálftíma dæmi.. en.. stóð samt fastur á því að súperstjörnumáltíð væri máltíð ekki stærðin.. og talaði um það alla leiðina heim..
En jæja.. það er djamm í kvöld.. ég ætla að éta.. og gera mig tilbúna..
Stina at 5:47 AM

Friday, January 31, 2003

Spurning sem kom upp.. í djúpu lauginni áðan..
"hvort myndir þú vilja halda framhjá.. eða láta halda framhjá þér.. og rökstyddu svar þitt"
Þær áttu allar mjög erfitt með að svara þessu.. kannski vegna þess að mar mun ekki vilja lenda í framhjáhaldi.. né vera stimplaður það að vilja frekar halda framhjá.. en ein kom með gott svar.. en samt sem áður.. fór ég að hugsa um þetta.. mar myndi nú frekar vilja halda framhjá.. vegna þess.. að ef það er haldið framhjá þér.. þá.. er það mest vegna þess að.. þú ert ekki nógu góður.. hann hefur áhuga á annari líka.. nú eða.. það sé bara.. fúttið í þessu.. að halda framhjá.. spennan og það.. eða eitthvað svona.. eða allavega mar hugsar það.. og aðrir líka.. en.. ef þú heldur framhjá.. þá er það nú bara af því að hinn er ekki að standa sig eða hitt dæmið ;).. annars.. ég veit ekkert um þetta.. ég er bara krakki :) mér datt þetta bara svona í hug.. þar sem þessi spurning kom.. en annars er ekkert það létt að svara þessu svona einn tveir og tíu.. þetta er spurning sem þarfnast umhugsunarfrest.. en ÉG MYNDI POTTÞÉTT VILJA FREKAR HALDA FRAMHJÁ!
Stina at 4:04 PM

Ég fór í klippingu áðan.. rosalega smart mar.. valhoppaði glöð út.. þess vegna verð ég eiginlega að mæla með þessari stofu.. man bara ekki hvað hún heitir.. er í Hraunbergi 4.. Galtará.. or someth.. :)
Já.. svo var ég að lesa velvakanda á staðnum mínum í dag.. þar höfðu einhverjir tveir.. strákar.. stelpur eða eitthvað.. skrifað um hringjadróttinsspilið.. segja frá því hve erfitt það væri.. ok.. til hvers að skrifa í velvakanda og segja fólki frá því að þau eru alltaf að tapa í hringjadróttinsspilinu.. á fólk að hafa samúð með þeim og hjálpa þeim? líka bara mun skemmtilegra að vera í erfiðu spili heldur en léttu spili.. gaman að taka sinn tíma í að vinna þetta.. ef mar myndi vinna þetta strax.. þá væri mar ekkert að nenna að spila þetta oft.. og.. svo fannst þeim erfitt að læra reglurnar í þessu.. ég neita því ekki það er erfitt.. fyrir fólk eins og bróðir minn.. en þetta tók mig nú ekki langan tíma.. um leið og mar er búnað spila þetta í einhvern tíma þá kemur þetta.. stundum koma þessar líka tilgangslausu greinar í velvakanda.. en jæja.. mér finnst þó skárra að það komi í stað engra.. þar sem oft er þetta bara stúttfullt af einhverjum týndum dýraauglýsingum.. og ekki nennir mar að lesa það.. :)
Stina at 6:17 AM

Thursday, January 30, 2003

Ekki gat ég horft á leikinn sem ég var búnað bíða eftir í.. nokkra tíma.. eða nú bara alveg frá því í gær.. vegna þess að ég þurfti að fara að vinna.. búnað plana gjörsamlega kvöldið.. Elín ætlaði að koma.. við ætluðum að horfa á leikinn.. svo voru náttla Myrk tónleikar líka.. sem okkur langaði líka að fara á.. en.. stundum verður mar bara að sleppa því að gera það sem mar hefur planað.. og vinna.. var líka rosalega pirruð í byrjun vinnunar.. en svo kom gutti sem ég lét bara vera á kassanum allt kvöldið.. meðan ég dundaði mér inní búðinni að raða í hillurnar og svona.. það var alveg fínt.. svo stilltum við náttla á rás 2.. fórum yfir hámarkshátalarahækkunina.. og ég hlustaði einbeit á leikinn.. en samt.. í hvert skiptið sem einhver spurði mig að því hve staðan væri.. þá gat ég ekki svarað því.. þó ég væri að hlusta einbeitt á þetta.. get bara ekki tekið eftir svona tölum nema þær séu á skjánum.. vissi samt að við værum jöfn.. eða.. þeir yfir.. eða eitthvað svona.. vissi bara ekki tölurnar.. :)
Svo var ég að uppgötva að ég er mun lofthræddari en ég hélt.. ok.. það er pain fyrir mig að fara í flugvél.. þess vegna er ekki mikið gert af því.. en.. að ég skuli fá svima og verða rosalega lofthrædd þegar´eg er að taka niður fánana í vinnunni.. það eina sem ég geri er að líta upp meðan ég dreg hann niður.. en það er samt alveg hörmung fyrir mig.. jæja.. ÚTBORGUN Á MORGUN! og svo vinnudjamm á laug.. þeman þar er bleikt.. semsagt ég þarf að fara að finna mér eitthvað bleikt til að fara í.. ef þið eigið eitthvað.. þá væri ég alveg til í að fá það lánað.. :)
adios!
Stina at 4:25 PM

Eitt kántrýlag sem ég hef nauðgað frá því að ég heyrði það.. það er með Alan Jackson og heitir Drive (For daddy Gene) :) bróðir minn náttla að dl öllu sem hann sér.. þannig að þetta kom með.. og.. ég er reyndar bara mjög glöð.. kannski ég láti gamlan draum rætast.. sem er að læra línudans.. var búnað sækja um einu sinni.. en við gleymdum bara að mæta.. :/ svo mikin áhuga hafði mar.. en.. ég er bara gráti næst.. þegar ég hugsa um það að ég gæti verið að taka sporin með þessu lagi núna.. ég skráði mig reyndar líka í gömlu dansana.. og mætti ekki.. það situr reyndar ekki jafn fast í hausnum á mér og línudansinn.. skipti mig engu máli þótt ég kunni ekki gömlu dansana.. ég lærði eitthvað af þessu í skóla.. og sýndi á 50 ára afmæli lýðveldisins.. það er kannski ástæðan fyrir því að ég ætla að verða trukkalessa þegar ég er eldri.. þar sem ég var karlmaðurinn í þeim dansi.. ég veit ekki hvort ég á að þakka þeim eða reyna að safna saman "vinum" mínum til að berja þau.. ég ætla að notafæra mér tíman sem ég hef í dag til að hugsa um þetta..
adios!
Stina at 4:27 AM

Wednesday, January 29, 2003

Að passa 3 krakka á óvitaaldrinum er hörmung.. ég náði til að henda einum inní herbergi til að sofa.. fagnaði.. labbaði svo með næsta inní herbergi.. fór fram.. þá var hinn komin aftur fram.. svona gekk þetta í alveg hálftíma.. búnað hlaupa um alla íbúðina 15 sinnum.. komin með smá vöðva í kálfunum.. en.. á endanum sagði næst elsti krakkinn sem var þarna mér það að hann ætti eftir að læra.. þá hrundi veröldin mín eins og spilaborgir allt í kringum mig.. og fór að hlusta á "Ari er inni.. Anna er inni.. Þau eru bæði inni" nokkrum sinnum.. og svo þurfti mar að kvitta undir að hafa heyrt þetta.. ég segi núna bara sem betur fer eru ekki til eyrnapinnar heima hjá mér.. það hlaut að koma að góðum notum einhvern tíman.. þó ég hafi kvartað fyrr í dag.. en.. ég manneskjan sem fer alltaf að sofa snemma.. verð að fara að sofa snemma núna líka.. þannig að
Adios!
Stina at 3:21 PM

Og ég er á lífi!! ótrúlegt að ég skuli hafa sofnað kl átta í gær.. og vaknað 12 tímum seinna.. ég var sjálf farin að halda að ég andaði ekki lengur.. eeen grét þó mest af því að ég missti af AMAZING RACE!! spurning hvort fjölskyldan er það hugulsöm að taka þetta upp fyrir mig.. ef ekki þá er það fúlisvipurinn hennar Stínu.. í fimm mínútur og svo beðið eftir leiknum.. Ísland - Pólland i think.. vona að þetta sé nú satt með að Sigfús sé á lausu.. ég ætla nú ekki að vera að eyða tímanum mínum fyrir framan skjáinn ef hann er svo með kellingu að bíða eftir sér á Íslandi.. veit að hann á barn.. en meina það er í lagi.. hægt að læsa barnaherberginu áreiðinlega.. annars verður það bara hægt þegar ég kem inní fjölskylduna.. bara.. Áfram Strákarnir Okkar.. :)

Ohhh.. ég elska svona dýramyndir.. núna meðan ég bíð eftir að Margrét Lind vakni.. sit ég og horfi á einhverja fílamynd.. kannski ég hefði átt að hafa elska í gæsalöppum.. þessar dýramyndir enda flest allar eins.. fyrst fær manneskjan dýrið í hendurnar.. hatar það.. langar ekkert að vera með það.. gerir allt til að losna við það.. svo eru þau búnað eyða þónokkuð löngum tíma saman.. honum fer að þykja vænt um dýrið.. en heldur samt áfram að fara með það á staðinn sem hann ætlaði að losna við það á.. svo þegar þau koma á staðinn.. þá getur hann þetta ekki.. tárast.. og vill hafa dýrið.. en samt búnað eyða allri myndinni í það að fara á staðinn..
nú eða dýramyndir eins og air bud.. það eru myndir sem.. ég hef ekki haft það í mér að sjá.. man ekki eftir að hafa séð neina svona.. dýraíþróttamynd.. nenni ekki að eyða þeim tíma sem hefði getað farið í eitthvað annað að horfa á þetta.. ég horfði á beethoven.. en.. fannst fyrsta bara eitthvað sem var varið í.. hef reyndar ekki séð hana lengi.. en.. flest allar myndir missa sig í framhöldunum.. ég er eiginlega bara fegin að þessi mynd byrjaði kl 8 þá þarf ég ekki að horfa á hana í dag.. :)

Jeremías og jólaskór.. afhverju var ekki látið mig vita að billy joel væri uppá spítala.. þessi gaur ól mig upp með laginu.. In the middle of the night.. í hvert skipti sem ég heyrði þetta lag.. æstist ég öll upp... og söng hástöfum.. það eru nú ekki mörg lög sem fá mig til að gera það.. en litli Billy Joellingurinn minn.. fær sko skeyti frá mér.. :*

Ég hef verið að pæla í að gefa út.. djammbækur um mig.. í barnabókastíl.. sem fá það hugmyndaríka nafn.. "Stína fer á djammið" og verða þetta svona 20 bækur.. en þá bara að gefa þetta út til forvarnar.. svo krakkar fari að hugsa sinn gang.. til að enda ekki eins og ég..hef mynd af mér dauðri framan á.. alltaf ný og ný stelling.. ef það er nú einhver útgefandi að lesa þetta núna.. og hefur áhuga.. þá er emailið mitt.. bibbafan@hotmail.com
Stina at 4:03 AM

Tuesday, January 28, 2003

Mamma mía <--- setjið nafnið ykkar inná þetta.. og sjáið svo útkomuna.. :)
fyrir manneskju eins og mig.. er hægt að festast í þessu í kltíma... :)

Stina at 4:33 AM

Ég get ekki neitað því að ég svaf óvenjulega vel í nótt.. dreymdi klúra drauma.. og vaknaði svo á lesgleraugunum hans pabba.. getur vel verið að þau hafi potast einhver staðar í mig.. sem hafi valdið klúru draumunum.. og góða svefninum.. þess vegna ætla ég að hafa þau undir mér aftur í nótt.. En af því að ég fékk að sofa til 11.. þá þurfti ég endilega að sprellvakna kl hálf 10.. svona er þessi brenglaði haus minn.. þannig að ég hef verið að sitja í allan morgun að hlusta á top ten dance moves á VH1 og bíða eftir að Margrét Lind vakni svo ég geti gert eitthvað.. þá verður sko glatt á hjalla.. í dag ætla ég að kenna henni að valhoppa.. þar sem hún lærði að skríða fyrir viku.. víííí!!
Stina at 2:28 AM

Monday, January 27, 2003

Núna er mar nýkomin frá Gunnari eða Rúnka eins og sumir vilja kalla hann en mega ekki.. Hulda var að gefa honum gullfiska sem hún átti.. en gat ekki haft.. líka þessir hjúmangus gullfiskar.. náði þó allavega til að ljúga að Gunnari að þetta væru hvalgullfiskar.. :) svo var einn svona hvítur fiskur.. sem var alveg gjörsamlega holgóma.. vissi ekki að það væru til holgóma fiskar.. en það er víst allt til.. svo fékk ég hjá honum Lilo & Stitch.. það gerði alveg nóttina.. núna fer ég ekkert að sofa.. ætla bara að horfa á hana.. ég er svo glöööðð! elska að fá svona skemmtilega myndir.. :))
jæja.. ég er farin að horfa á lilo & stitch.. adios peoples..
Stina at 5:30 PM

Yndislegt að fá símtal úr vinnunni.. að spurja hvort það sé ekki pottþétt að mar komi á vinnudjammið.. nenni bara ekki það mikið að fara á players.. en jæja.. þetta er fínt.. mar getur farið í pool og svona.. svo er Spútnik að spila um kvöldið.. ætli mar verði ekki farin þegar þeir byrja.. þoli ekki þessa hljómsveit.. áreiðinlega ágætisafþreying bara.. ég bíð bara eftir áfenginu drekk líka voðalega sjaldan.. þarf að bæta upp alla ódrykkjuna mína.. :)
Núna er mar búnað losna við foreldrana uppí sumarbústað.. þau spriklandi um í heita pottinum.. meðan mar teygir úr sér í rúminu þeirra.. mig langar samt massíft mikið uppí sumarbústað.. í eitt gott djamm.. en sumarbústaðardjömm enda alltaf skrautlega.. seinast fór ég held ég þegar ég átti afmæli í fyrra.. og það var rosalegt.. ég þraukaði föstudag mjög vel.. horfði á hitt fólkið afklæða sig.. og þá var Baldur fremstur í fylkingu.. kom uppúr heita pottinum með handklæði utan um sig.. settist svo niður.. og tók það af sér.. "Þetta er náttúrlegt" svo drapst hann í heita pottinum seinna um kvöldið.. alltaf verið að draga hann inní herbergi.. en nokkrum mínútum seinna kom hann alltaf valhoppandi fram aftur.. Svo held ég að ég hafi náð til að vera skrautlegust á laugardagskvöldinu.. ég man voðalega lítið eftir því.. drapst fyrir 12.. held ég alveg pottþétt.. og vaknaði svo hressari en allir daginn eftir.. kl 10.. meðan allir voru dauðir.. þá var ég að taka til.. og langaði að halda áfram að drekka af því að ég upplifði ekkert laugardagskvöldið.. :(
Jæja.. Elín (eins og sumir vilja ríma trélím á eftir) sumir = Hrafn.. er komin.. þannig að ég er farin..
adios!

Stina at 12:21 PM

Ég held að Hulda sé ekki sátt við þá litlu aðsókn sem hún er að fá á síðuna sína.. þannig að kíkjið á hana click here
Það er alveg ótrúlegt hve lengi ég þraukaði að sofa í nótt.. fór að sofa um 3leytið.. og vaknaði kl eitt. .hálf 2.. í dag.. reyndar svoldið þæginlegt þó ég væri ennþá butt þreytt.. ég hata þegar fólk kemur inn til mín en lokar ekki hurðinni á eftir sér.. hvað ef ég væri að velta mér nakin í rúminu.. á þá bara alþjóð að sjá það.. kannski þau séu að reyna að koma mér á framfæri í klámmyndabransanum.. ahhh.. þau eru bara að hugsa um mig.. og ég sem hélt að þau væru að pína mig..
Ég byrjaði að horfa á helminginn af Stephen King myndinni Apt Pupil.. hún var bara nokkuð góð.. það sem ég sá.. minnistætt atriði.. ætli það hafi ekki verið þegar hann ætlaði að henda köttinum inní ofnin.. en annars ætla ég ekkert að vera að segja neitt úr þessari mynd.. :) þetta atriði minnti mig svoldið á Boondock Saints.. þegar einn gaurinn var að tjá sig með látum þarna inni hjá þeim og sló svo í borðið þar sem byssan var.. og skot fór úr henni.. beint í köttinn sem splassaðist á veggnum.. djöfull grenjaði ég úr hlátri.. bjóst svo ekki við þessu.. svona atriði eru þau bestu.. og svona mest tilganglausu atriði.. eins og í myndinni Fálkar.. þegar gaurinn var inná barnum.. og einn gaur búnað vera að röfla eitthvað útí horni um að drepa sig.. ætlaði að skjóta sig í hausinn en hitti ekki.. og náði til að skjóta helminginn af eyranu af.. og hljóp út.. þá grenjaði ég úr hlátri.. en þurfti að ýta á pásu meðan Hrafn hló.. ætlaði gjörsamlega ekki að hætta að hlæja.. sjaldan sem það gerist fyrir mig þegar ég er að horfa á vídjó.. man samt best eftir því þegar það gerðist meðan ég var að horfa á Lion King.. þegar Púmba kom með einhverja setningu.. um að hann hafi ekki verið að prumpa.. og þá var mér næstum því hent inní herbergi af því að fólkið gat ekki haldið áfram að horfa á hana.. ég hló svo mikið.. það er kannski ástæðan fyrir að ég geri þetta ekki lengur.. :)
Jæja.. i´m going to let mí self leiðast.. kíkja til Gunnars í kvöld með fiskana sem Hulda ætlar að gefa honum.. svo er það endursýning af spaugstofunni.. ohhh.. hvað mér leiðist að lesa það sem ég ætla að gera.. hmmm.. mig langar svoldið að spila hringjardróttinssögu.. en.. það verður áreiðinlega vídjóleig.. einhver sniðugt mynd sem mar ætti að leiga..? sakna svoldið byrjuninar á Waynes world.. nauðgaði þessari mynd daglega í allavega ár.. en átti ekki byrjunina.. þannig að ég gat ekki talað með henni.. svo er það náttla Class act.. hún er snilld.. langar líka svoldið að sjá.. in the army now.. kannski af því að það var verið að taka yfir hana hérna.. :( hver tekur temptation island yfir IN THE ARMY NOW.. og.. amazing race.. þó það hafi verið fyrir mig.. þá þurftu þau ekki að taka þetta yfir þessa mynd... mig langar líka svoldið að sjá.. æji.. 3some.. og.. myndina með pauly shore.. og stephen baldwin.. þegar þeir festast inní kúludæminu.. man ekki hvað hún hét.. en.. jæja..
adios!

Stina at 8:26 AM

Sunday, January 26, 2003

Íslendingabókin er mesta böl á netinu sem ég hef fundið.. ég er búnað sitja yfir þessu í allavega hálftíma... og það er sjaldan sem ég tek mér svona langan tíma fyrir framan tölvuna.. :) ótrúlegt líka hve allir eru skyldir mér.. reyndar eru flest allir skyldir á þessu Íslandi.. en.. það þurfa nú ekki allir að vera svona náskyldir mér.. LÁTIÐ MIG VERA!!
Þess vegna sækist ég í útlendingana.. af því að ég veit að ég er ekkert skyld þeim.. ég er ein af þeim sem hengur niðrá Píanóbarnum og hössla.. eða hössla og ekki hössla.. ég reyni þó allavega.. ekki mér að kenna þótt útlendingarnir vilja mig ekki einu sinni.. kannski ég sé bara of sæt.. ætli ég endi ekki bara með því að sitja glennt fyrir framan öryggishliðið á beisinu.. hlýt að geta nælt mér í eitthvað.. annars.. hættum að fjölga okkur með íslendingum.. ég nenni ekki þessum skyldleika áfram.. látum þetta bara fjara út.. blöndum okkur!!
Stina at 5:51 PM

Ég segi nú bara obbobobb...
Núna næstu helgi fer Stínan á djammið eftir langt frí.. heilir 8 dagar.. sem voru lengi að líða.. fyrir utan það.. að það er ennþá.. 6 dagar í viðbót.. skrýtið að ég hafi svitnað.. og grátið uppúr svefni þessa daga.. þetta er allt að koma.. æji mar lætur það eftir sér að staupa alltaf eitthvað nýtt áður en mar fer að sofa. .en það er ekkert djamm..
En í dag.. mundi ég eftir því hve fræg ég var einu sinni.. er það reyndar ennþá.. en það hefur minnkað.. ekki stoppuð lengur útá götum og beðin um eiginhandaráritun.. það sem ég man samt best eftir.. er þegar ég var búnað vinna í þessari búð í nokkra mánuði.. og Örn Árnason.. birtist þarna til að kaupa sér eitthvað gott í gogginn.. man ekkert hvað það var.. :) svo náttla þurfti ég að afgreiða hann.. og hann fór að tala.. byrjaði reyndar að segja "Góða kvöldið" og ég roðnaði niðrí rassgat.. og flissaði eitthvað.. hugsaði.. "váh hann er að tala við mig" svo spurði hann mig að því.. hvort ég héti ekki Stína.. ég alveg "ha? jújú ef þú vilt það" neih.. ég sagði honum að ég héti það.. og þá spurði hann.. hvort hin manneskjan á kassanum bakvið mig héti ekki Hulda.. og þá byrjaði ég að svitna.. ég alveg.. "jú hvernig veistu þetta?" hann alveg "æji bara datt þetta í hug" og þá var ég orðin massíft forvitin.. "hvernig veistu þetta?" rétt áður en hann labbaði út.. sagði hann að hann væri alltaf að skoða heimasíðuna okkar.. og fyndist hún mjög skemmtileg.. aldrei hefur mér liðið jafnvel.. að vita að Örn Árnason.. AFI Á STÖÐ2! fyndist síðan okkar skemmtileg.. það líka leið yfir mig eins og hefðarfrú útí bretlandi..
svo kom hann einu sinni aftur eftir þetta.. og það var glatt á hjalla hjá okkur.. alltaf sömu brandaranir reyndar.. þar sem ég og Hulda vorum með einhverja pinna í andlitinu.. fólk forvitið um það hvort að dæmið á keflavíkurflugvelli fríkaði ekki út þegar við löbbuðum þar í gegn.. eða.. þjófvarnakerfið í búðum.. ekki vissi ég að það pípir á fólk með pinna ;) annars fattaði ég í fyrradag.. að fólk virðist ekkert fylgjast mjög vel með fólkinu sem afgreiðir það.. ég er búnað vera pinnalaus í nokkra mánuði.. og ennþá er fólk fyrst að taka eftir því núna.. kona sem ég afgreiði daglega.. kastaði þeirri spurningu framan í mig.. í fyrradag "hvað bara búnað taka pinnana úr andlitinu.. búnað þroskast.. var þetta einhver uppreisn hjá þér" ég náttla.. bara sagði já og amen við hana.. hún er einhver svona.. ofsatrúamanneskja sem fríkar út þegar Þórhallur miðill er í útvarpinu.. þannig að ég þorði ekki að segja neitt.. Já.. svo hérna.. Van Wilder myndin.. hún er ekkert spes.. mæli ekkert með henni.. mér leið eins og ég hafi samið hana.. gat talað með á köflum.. kannski ég sé bara búnað sjá of mikið af svona myndum.. ætti að segja skilið við sjónvarpið í mánuð.. en annars.. þegar ég myndi byrja að horfa á það aftur.. þá væri þetta alveg eins.. svo líka.. nenni ég ekkert að missa af nágrönnum. .þó ég horfi ekkert mikið á þá lengur.. ég sem er búnað vera dyggur aðdáandi þeirra frá því að ég lærði að lesa textan með þeim í fyrsta skiptið.. var ein af þeim sem skrifaði mótmæladæmið á stöð2.is takk takk *hneigir sig* en áður en ég missi "alla" "vinina" þá held ég að ég verði að þegja..
adios peoples!
Stina at 4:41 PM

Rosalega vaknaði ég spræk í morgun.. það var eins og ég hefði verið að djamma kvöldið áður.. en ekki verið að vaka með henni Margréti Lind þar sem hún ákvað að vera rosalega "skemmtileg" við mig.. náði til að svæfa hana.. en um leið og ég lagði hana inn.. þá fór hún að láta heyra í sér.. af því að hún vildi að ég myndi leggjast við hliðná henni.. svo gerði ég það.. þá tók hún í hálsmenið mitt.. og hélt í það.. svo ég kæmist pottþétt ekki í burtu.. svo.. loks náði ég til að komast fram.. leið hálftími þá fór hún að grenja.. en var þá búnað týna snuðinu.. þannig að ég þurfti að leggjast við hliðná henni.. og henti pelanum uppí hana.. og ákvað bara að fara að sofa.. svo alltí einu varð ég alveg rosalega blaut.. þá.. var hún búnað sjúga þannig úr pelanum að helmingurinn lak í rúmið.. og allt náttla til mín. .risa pollur í miðju rúminu.. en ég nennti ekkert að pæla í því.. tók bara sænguverið hennar af.. og setti ofaní polli.. þetta var nú einu sinni henni að kenna.. :) sofnaði.. svo loks kl 4.. vakin kl 5.. færði mig inní herbergi.. og svona 7.. vakin svo kl hálf 9 í vinnuna.. mér fannst ég svo dugleg í vinnunni.. but then again.. finnst mér ég alltaf dugleg.. svo "hljóp" ég heim til að horfa á leikinn.. mamma að fríka út í sófanum þegar hann byrjaði.. liðið sem við keppum við.. má ekki vera 2 mörkum yfir á fyrstu mínútunum.. þá erum við að tapa.. og mamma getur ekki horft á þetta.. endaði náttla með því að mamma öskraði.. "ÉG GET EKKI MEIRA!!" og labbaði inní eldhús.. búnað reykja heilan sígarettupakka.. sumir eiga bara ekkert að vera að horfa á svona..
annars held ég að ég eigi nú bara skilið að fá mér smá svefn.. hef ekki dreymt Árna Johnsen í heila 2 daga.. :/ jæja.. Adios..
Stina at 10:47 AM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs