creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, January 25, 2003

Ég var að horfa á Kerrang! áðan.. þar sem neðst kom.. ask bill payers for permission.. þá fór að rifjast upp fyrir mér gömlu dagarnar þegar ég horfði á Mtv.. 24/7.. en þá hélt ég alltaf að mar ætti að hringja.. og biðja um Bill Payers.. og spurja hann um leyfi.. Þótt ótrúlegt megi virðast þá var ég ekki ein um þetta.. ég ákvað að byrja að hlæja þegar ég var að segja Hrafni og Elínu frá þessu.. þannig að Elín leysti frá skjóðunni.. hún hélt þetta líka.. ég var reyndar alltaf á leiðinni að hringja í Mtv.. fegin að ég gerði það ekki.. "hello is Bill Payers there? i want to ask him for permission"
Stina at 7:24 PM

Kannski að minnast á það líka.. þar sem ég má það ekki.. Hrafn ákvað að tala aftur uppúr svefni daginn eftir Game over talið sitt.. hann var mikið búnað vera að tala um að hringja og tilkynna veikindi þar sem hann var að drepast í bakinu.. röflandi um þetta áður en hann fór að sofa.. svo loks þegar hann sofnar.. þá hættir hann ekkert.. byrjaði að tala við mig þar sem ég sat við tölvuna.. "Kristín.. mar þarf að sýna skilríki" "ha? sýna skilríki við hverju?" "ef mar er að fara að hringja og tilkynna veikindi þá þarf mar að hafa skilríki" "já.. ok" "æji ég get ekki tjáð mig" "ekkert vera að gera það þá" "váh.. ég veit ekkert hvað ég er að segja" "nei.. okey.." "æji váh ég get ekki talað" "ekkert vera að tala þá" "en mar verður að sýna skilríki" þá.. hugsaði ég bara... jæja.. best að láta greyið HALDA KJAFTI.. og sagði ekkert meira við hann.. fyrr en daginn eftir.. þegar ég var með heimsókn.. til að sjá hve rauður hann yrði.. og.. hann gjörsamlega varð eins og skítur í framan.. þá fórum við að rifja upp.. ég og Hulda.. þegar Hrafn.. var með "tala upp úr svefnin hobbí" gerði ekkert annað en það.. eitt skiptið.. var hann búnað röfla eitthvað í langan tíma.. sem ég skildi engan veginn.. nema endinn.. þar sem hann sagði mjög hátt og skýrt.. "NEI DJÓK!!".. sem hann hefur fengið að heyra seinustu árin.. :)
Langaði bara að deila þessu með ykkur.. þar sem ég mátti það ekki.. ;)
Stina at 11:55 AM

Mamma á eftir að fara yfirum bráðum ef hún heldur þessu áfram.. örbylgjuofninn var ekki alveg að gera sína hluti.. lét ekki heyra í sér.. þannig að mamma var eitthvað röflandi inní eldhúsi sem ég náttla ignore-aði bara.. þar sem hún er algjörlega vön því.. svo alltí einu kemur hún hlaupandi fram.. "Kristín Kristín það er draugur hérna inni!!!" ég alveg.. "ehhh mamma við vissum það alveg" *með svölu röddinni* hún ennþá rosalega æst.. "örbylgjuofninn byrjaði aftur á þeirri tölu sem ég stillti á áður þegar hann var hættur!!" svo settist hún niður liggur við skjálfandi ekki alveg að jafna sig.. fyrr en náttla íslendingarnir unnu portúgal.. þá var hún alveg happy happy joy joy.. en ég komst líka að því áðan.. þegar Íslendingar voru að keppa við Krata.. að mamma er virkilega auðtrúa.. leikurinn nýbyrjaður.. og hún spyr mig hvort hann sé byrjaður.. ég náttla stóðst ekki mátið.. og byrjaði að ljúga.. "Já staðan er 12 - 0" þá hoppaði hún uppúr eldhússtólnum "ha? fyrir hverjum?!?" "íslendingum" "NAUH VÁH!! VIÐ RÚSTUM ÞESSU!!" svo náttla gat ég ekki logið lengur að henni.. þó hún hafi logið lengi með tannálfinn og jólasveininn.. :) og sagði henni stöðuna.. og hún náttla settist niður.. og sagði "já mér datt það í hug" svo.. leið á leikinn.. og mamma var ekki að fylgjast með.. þó hún hafi beðið eftir þessu síðan í gær.. og.. kratar ákváðu að taka leikhlé.. þá lítur mamma akkúrat á skjáinn.. "ha? hvað er að gerast" "mamma þeir gáfu leikinn" "HA!! ÉG TRÚI ÞESSU EKKI.. ERTU EKKI AÐ DJÓKA! VÁÁHH!" við viðbrögðunum hennar.. lagðist ég í gólfið og emjaði úr hlátri.. þannig að hún vissi að ég hefði verið að spauga.. og trúði mér ekkert það sem eftir var að leiknum.. og reyndar sleit ekki augunum af honum.. til að ég gæti ekki logið meira.. :) núna iðar hún yfir leiknum Ísland - Þýskaland.. en ég ætla að fara að horfa á Joe Dirt.. og passa Margréti Lind.. :/ skemmta mér mjög vel í kvöld.. og fara svo að vinna á morgun.. :( en.. það er laugardagur.. ADIOS people.. ;)
Stina at 11:48 AM

Friday, January 24, 2003

Í fréttablaðinu í gær held ég að það hafi verið.. þá var ég að lesa grein um gosið.. náttla 30 ár liðin frá því að það var.. og.. það var verið að segja frá kaupmanni sem bjó þarna.. man ekki alveg hvað hann hét.. en segjum bara Nonni.. var búið að vera að reyna að hringja í hann stanslaust til að vekja hann.. og láta hann vita af gosinu.. en hann vaknaði ekkert.. þannig að það þurfti fólk að hlaupa heim til hans til að vekja hann.. bönkuðu á dyrunum vel og lengi.. og öskruðu "Nonni það er komið goosss!!" þá öskraði hann til baka.. "Skiljið það bara eftir hjá hurðinni"
Annars hef ég bara verið að eyða þessu föstudagskveldi.. í það að horfa á.. Friends.. svo koma einhver þáttur.. og á eftir það kom The Osbourne.. mjög skemmtilegt að horfa á hann.. þessir þættir eru alveg að gera sig.. svo eftir það voru fóstbræður.. ég náttla krossaði puttana vel og lengi.. hélt þetta væri ný seríu.. en allt kom fyrir ekki... þetta var síðasta serían.. :( en samt fyndið.. gaman að sjá þetta aftur.. þó mar eigi þetta á spólu.. en jæja.. eftir þann þátt var skipt yfir á skjá einn.. þar var djúpa laugin að byrja.. langaði bara að sjá hvernig deitið endaði hjá parinu á undan.. dónafólk að næla sér í eitthvað annað fólk.. piff.. mar verður að halda í sér fyrir framan myndavélina ;) annars.. fannst mér hitt fólkið sem var að keppa ekkert rosalega spes.. fyrst hélt ég að þessi dökkhærða væri kynskiptingur.. :/ en.. getur vel verið að hún sé það.. kannski díana ómel sé bara búnað cut-a litla vinin af.. og sé farin á deitið.. fyrsta var svoldið trukkalessuleg.. og þessi númer 2.. var.. já.. það eina sem ég get sagt er.. Tennur.. :)
gaurinn hann var svona frekar.. augljós eitthvað.. "ferðu í líkamsrækt" svona.. verið að fiska eftir því hvort þessi manneskja sé vel vaxin.. "genguru í g-string" vill hafa þær þannig.. og allt eitthvað svona.. en.. þetta var samt ágætisafþreying.. þar sem ég ákvað að djamma ekkert þessa helgi.. þetta kvöld fór mest í sjónvarpsgláp.. horfði á alla þessa þætti.. og svo kom næstum því tveggja tíma mynd af Margréti Lind gátum hlegið á köflum.. þar sem systir mín er það hugmyndarík að segja næstum því allar setningarnar aftur og aftur.. "ertu í baði?" "ertu að borða?" "ertu að leika þér?" "ertu að tala?" svo fórum við að tala um það.. að ef einhver sjónvarpsstöð stefndi á það að missa alla sína áhorfendur.. þá myndi hún sýna þetta.. þetta var mjög langdregið.. mest svona sýnt það sama aftur og aftur.. en samt gaman að horfa á þetta.. svo endaði kvöldið í því að.. bandast eitthvað.. :) föttuðum svo að kl væri orðin 5.. þannig að sumir þurftu að drífa sig heim.. sumir = Hulda.. en jæja.. þá er það svefn fyrir svona unga stelpu.. adios! :)
Stina at 9:29 PM

Thursday, January 23, 2003

Ég vaknaði mjög seint.. hefði getað sofið lengur en var vakin.. yndislegt að vera vakin til að passa.. ég tók uppá því að vaka til 11 í morgun.. var eitthvað dunda mér í tölvunni.. og fór svo að leika við hana Margréti Lind á endanum gafst ég upp.. og lagðist uppí rúm.. dreymdi ekkert sem betur fer.. en alltaf vakna ég við sms.. þó síminn minn sé stilltur á meeting.. hann titra þetta líka rosalega.. þess vegna held ég haldi mig bara við hann og láti fólk hringja oft út
Svo vaknaði ég rétt fyrir handboltan.. mér finnst að fólk ætti að hafa vit fyrir því að hringja ekki á þeim tíma sem handboltinn er á.. ekki hringir fólk í matartímum.. eða jú.. hjá mér.. en það er náttla bara ókurteisi.. ég lifði mig svo inní þennan leik.. gat ekkert verið að tala í síman líka..
Strax á eftir þessu.. byrjuðu íslensku tónlistarverðlaunin.. hvað er málið með það að láta þessi klassísku, jazz og þau verðlaun byrja.. þau eru ekkert að ýta undir áhorfið með því.. ég mátti allavega ekki horfa á það.. og svo þegar það kom það sem ég hafði verið að bíða eftir.. söngvara ársins, söngkonu og hljómsveit.. þá missti ég náttla af því útaf Bachelor.. en.. það var nú samt svoldið spennandi að fylgjast með Bachelor.. gaman að sjá hvernig þessar gellur eru.. en þeir náttla gera þetta alltaf meira spennandi með því að hafa allt þetta djúsí dæmi í auglýsingunni "Í næsta þætti af Bachelor" svo birtist þetta ekki.. þannig að mar bíður.. ég hefði nú ekkert verið á móti því að næla mér í þennan gutta.. hann er vel efnaður, flugmaður, og eitthvað bullcrap.. en á peninga.. :) allir mínir virku dagar fara í það að standa fyrir utan skólan þar sem tannlæknanemarnir koma út.. blikka þá.. flassa.. og nudda mér uppvið þá.. í þeirri von að næla mér í einn með peninga.. ég er ekki alveg beint að græða á elliheimilisröltinu mínu um helgar.. en.. komin á nokkrar erfðarskrár.. núna er það bara að sitja og bíða.. jæja.. ég er orðin butt þreytt.. Adios
Stina at 3:21 PM

Hann bróðir minn tók uppá því í fyrranótt að tala uppúr svefni.. þó mér hafi nú fundist þetta vera heldur fáranlegt.. þá var þetta ekki leikið.. þar sem hann byrjaði að hrjóta nokkrum sekúndum eftir seinustu setninguna..
Ég labbaði inní herbergi.. klukkunni sló rétt í 7.. byrjar hann að muldra eins og vanalega.. þannig að ég sagði bara "ha?" (kannski að bæta einhverju blóti í þetta til að hafa meira action í þessu) hann alveg "passaðu þig" ´ég alveg "ha? á ég að passa mig?" "já" "afhverju á ég að passa mig?" "svo ég verði ekki game over" þá var ég bara... THAT´S IT! og hljóp fram og pakkaði niður tölvunni hans.. eða gerði það nú reyndar bara í hausnum á mér.. en.. ef þetta heldur áfram.. þá verður talvan ekki lengi að fara niðrí kompu.. :)
og já.. ef ykkur vantar ástæðu til að fara ekki í vinnuna.. þá er þetta allt hérna
Stina at 1:49 AM

Wednesday, January 22, 2003

Kona nokkur sendir fötin sín í kínverskt þvottahús. Þegar hún fær þau send til baka, þá eru ennþá blettir í nærbuxunum, svo næst sendir hún miða með fötunum:

Nota meiri sápu á nærfötin

Þegar hún fær fötin sín til baka, fylgir miði frá þvottahúsinu:

Nota meiri pappír á rass.


hehehe.. fyndnasti brandarinn sem ég hef lesið á þessu ári :)
Stina at 11:17 PM

Ég fékk mér vatn með sjónvarpinu í fyrradag eins og oft áður.. og þar sem það var enginn áhugaverð mynd í því.. þá fór ég að hugsa.. hvað ef að það væri köngulóavefur í vatninu.. það reyndar væri ógeðslegt áreiðinlega.. en.. svona.. að prufa að drekka köngulóavef er svoldið áhugavert.. ætli hann bráðni þegar mar fær hann uppí sig.. hann er náttla rosalega slímugur.. mar gæti áreiðinlega búið til köngulóarkúlu.. og smjattað á henni.. en ég væri alveg til í að prufa að smakka hann.. bara svona til að tékka á því.. Rakst hérna á.. mp3 dansara.. dansar við þau lög sem þú ert að hlusta á.. verst að þetta er bara ein stelpa.. búið að hakka síðuna.. þannig að ég gat ekki downloadað mér gutta til að dansa við mp3lögin mín.. kannski mar fái bara strippara á skjáinn hjá sér einn daginn.. þá þarf mar sko ekkert að vera að horfa á adult channel ruglaða..
adios

Stina at 10:01 PM

Ég er algjörlega sammála gaurnum sem hringdi í velvakanda í dag.. Látum Árna Johnsen vera.. tökum afsökunarbeiðni hans.. hann er bara lítill strákur sem vantar mömmu sína.. pant vera mamma hans!!
Annars var ég að uppgötva að ég týndi eiginhandarárituninni hans.. fór spes ferð niðrá alþingi til að fá hana.. en..fann engan ramma.. svo hún er týnd Árni Johnsen ef þú ert að lesa þetta.. þá veistu að ég elska þig og væriru til í senda mér eitt stykki eiginhandaráritun á mynd af þér.. í speedo sundskýlum?
Stina at 5:01 PM

Tuesday, January 21, 2003

Ég var að horfa á sjónvarpið áðan.. svona láta tíman líða þar sem ég hafði ekkert að gera.. enginn vakandi á þeim tíma sem ég er búin að vinna.. eða jú kannski vakandi.. en.. eins og mamma segir "það er ókristilegt að hringja á þessum tímum" þannig að ég verð bara að gera mér eitthvað til dundurs.. og byrjaði að sörfa á milli stöðva.. meðan fólkið röflaði yfir því að ég gæti ekki verið með þetta á einni stöð.. svo rakst ég á einn brilliant þátt á stöð 1.. Lærðu Íslensku.. held ég að hann heiti.. þetta er rosalega líkt því sem er á bbc prime.. og heitir bbc learning.. ég hef oft og mörgum sinnum fest í því.. en.. festist líka virkilega í þessu.. þetta var svo fáranlega brilliant.. í dag voru þau að læra strætóferðirnar.. og hvernig mar átti að biðja um skiptimiða.. eða kaupa græna kortið.. það sem heillaði mig eiginlega mest í þessu.. var að þau bjuggu til sína sviðsmynd.. eða.. til að geta lært þetta betur.. röðuðu stólunum.. eins og þetta væri strætó.. og kellinginn byrjaði að leika hljóðin og.. vera strætóbílstjórinn.. ef ég hefði vitað af þessu.. þá hefði ég verið með spólu tilbúna.. en.. ég æfði þó allavega magavöðvana eitthvað í dag.. þessi þáttur fær.. 3 stjörnur hjá mér.. af 5 mögulegum.. mæli algjörlega með honum.. :)
Svo er það handboltinn.. hann hefur dregið fjölskylduna mína saman.. loksins höfum við eitthvað að tala um.. í þennan tíma sest ég ekki niður með Halldóri frænda og ræði irkið.. eða.. Guðnýju systir.. og ræði #trivia2.is.. :) núna er það sko handboltinn.. þar sem ég tel mig vera handboltaheilan í þessari fjölskyldu.. æfði hann nú í gamla daga.. þá get ég alltaf komið með gáfuleg comment.. sérstaklega.. þegar dómarinn dæmir eitthvað sem fjölskyldan mín mótmælir.. þá get ég hent setningum eins og.. "látið ekki svona.. þið vitið ekkert um handbolta.. þetta var réttur dómur" eða.. "hann fékk nú bara vægan dóm miða við brotið sem hann gerði.. þið vitið ekkert hvernig það á að dæma í þessu.. svo þegiði bara!" Svo er það strákarnir okkar ísinn.. hann heillaði mig svoldið.. auglýsinginn.. mjög góð.. ef ég væri ekki svona löt.. þá hefði ég hlaupið útí búð og keypt mér þetta.. svo sá ég hann líka í búðinni minni.. bara átti engan pening.. en um leið og buddan mín fyllist.. þá á ég eftir að kaupa strákarnir okkar ísinn.. alveg pottþétt.. mér finnst að við ættum alltaf að hafa svona ísa.. eins og þegar við erum að senda fólk í júróvisjón.. "Birta vinnur" ísinn.. eða.. "Nína" frostpinni.. svo.. líka fegurðarsamkeppni.. "Stúlkan okkar!" hnetutoppur.. þeir gætu nú grætt heldur betur á þessu..
adios!
Stina at 10:04 PM

Ef ég héti Stina Johnsen.. þá væri hobbitanafnið mitt.. Ruby Brandybuck of Buckland en þar sem ég heiti
Kristin Eva.. þá er hobbitanafnið mitt Esmerelda Baggins of Bywater ..
ef þig langar að vita hobbitanafnið þitt.. þá er það á.. The Hobbit Name Generator :)

Stina at 6:32 PM

Mar á ekki að vera að borða hvítlauksbrauð áður en mar fer að vinna... það er svona eitthvað sem ég hefði átt að vita.. en fattaði ekki.. fékk mér það kortéri áður en ég fór að vinna.. og kók.. semsagt var ropandi allan tíman upp einhverri hvítlaukslykt.. og eitt skiptið.. náði óvart til að blása því framan í stelpu sem ég var að afgreiða.. talandi um að vera manneskja á röngum stað á röngum tíma.. ég brosti bara fallega til hennar.. og sýndi henni "Hvítu" tennurnar.. hún hefur áreiðinlega varað fólk við sem var á leiðinni í búðina.. vegna þess að kltíma á eftir þetta.. var ekkert að gera.. ég var alveg sátt.. las bara dv.. og moggann.. :)
Stina at 5:08 PM

Monday, January 20, 2003

Ég er alvarlega að íhuga að fara í mál við framleiðendur New Guy myndarinar.. þar sem gaurinn í þeirri mynd fær sér köngulóatattú á handarbakið.. alveg á nákvæmlega sama stað og ég er með.. og fólk heldur að ég sé að reyna að verða svona New Guy stelpa.. koma mér úr nördalúkkinu.. og reyna að verða svöl.. mig langar nú bara að halda mér í þessu nördadæmi.. og.. helst.. fá nokkrar millur út úr New Guy framleiðendunum.. helvítis *ritskoðað*
adios
Stina at 6:17 PM

Jæja.. ég var að horfa á Sjálfstætt fólk í gær með Ástþóri Magnússyni.. veistu.. mér finnst þessi kall vera algjör snillingur.. sjaldan sem ég hef þraukað heilan Sjálfstætt fólk þátt.. nema með Önnu Kristjáns.. og Birgittu Haukdal.. en það var bara til að hlæja af þessu fáranlegu "kvennfólki".. En Ástþór lét mig.. vökna í augum yfir hve mikið snilldarfólk virkilega leynist á þessu landi.. ég vil fá hann í spjallþátt.. og.. HANN SEM FORSETA!!
Svo ákvað ég að horfa á Golden Globe verðlaunaafhendinguna í nótt.. Byrjaði að fylgjast með því þegar fræga fólkið kom inn á rauða dreglinum.. ég hef einu sinni labbað á svoleiðis.. en kannski ekki beint rauður dregill.. en það var eitthvað rautt.. en.. þetta hélt mér vakandi til 4 í nótt.. einu ræðurnar sem eitthvað var varið í.. var Jack Nicholson ræðan.. vissi ekki hvort hann ætti að hlæja eða vera móðgaður fyrir að vinna þessir verðlaun.. þar sem þetta var gamanmynd sem hann lék í en vann drama verðlaunin.. :), Robin Williams.. reyndar áður en Gene Hackman vann man ekki hvað þau heita verðlaunin.. var eitthvað svona.. útaf því hvað hann hefur verið lengi í þessu.. búnað leika í 91/95 myndum.. :)
Það hefði mátt cut-a á nokkrar ræður.. sérstaklega þegar Foreign Language verðlaunin voru.. hann ætlaði algjörlega ekki að stoppa.. búið að klappa svona.. endaklappinu.. en hann hélt áfram.. þá var ég bara "that´s it.." og labbaði inná klóstið.. en annars var þetta alveg ágæt verðlaunaafhending.. hefði viljað vera búnað sjá eitthvað af þessum myndum sem unnu.. en.. það kemur dagur eftir þennan.. núna er ég farin að fylgjast með handboltanum.. reyna að þagga niðrí þessum öskrum í settinu..
adios!
Stina at 9:45 AM

Sunday, January 19, 2003

Raver%20Bear
Which Dysfunctional Care Bear Are You?

brought to you by Quizilla

jæja.. kannski bara best að þið vitið þetta.. ég er raver bear.. :)
Stina at 6:12 PM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs