creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Friday, January 17, 2003

Ég er algjörlega ónýt manneskja.. var að horfa á Íslandi í bítið.. þar var verið að fjalla um málið hans Árna Johnsen og verið að tala um hve ónýtur hann hefur verið eftir þetta.. hann gengur til geðlæknis og sálfræðings.. hann hefur fengið vægt hjartaáfall.. :( ég er bara í sjokki.. ef ég hefði kost á því ða knúsa hann.. þá myndi ég gera það.. og ef ég verð einhvern tíman það efnuð, gáfuð og menntuð.. þá mun ég stofna "babyfroðu" fyrirtæki.. og hann fær að vera í vinnu hjá mér.. fyrst það er svona erfitt fyrir hann að fá vinnu.. Árni Johnsen minn ég elska þig :*
En annars er þessi dagur búin að vera þreyttur.. helvítis Formaður Fátækra kom að versla hjá mér í dag.. mig langar svo að gefa henni eitt hnefahögg.. en.. ég kasta bara alltaf kvittununum í bakið á henni þegar hún labbar út.. vona að þetta festist á henni til að þyngja hana.. svo hún eigi erfiðara með að labba sína leið.. *evil laugh*

Stina at 11:37 AM

Thursday, January 16, 2003

Ákvað að setja inn hérna url.. til að vote-a Leoncie í júróvisjón fyrir okkur.. hvernig líst ykkur á það.. ég væri til í að fá hana.. held hún myndi vekja mikla athygli.. og yrði þar á meðal mjög góð auglýsing fyrir íslensku þjóðina.. Setjið núna ykkar undirskrift undir hjálpumst að að fá hana í júróvisjón.. sem myndi gera þetta miklu skemmtilegra.. :)
svo náttla megiði líka skoða það sem ég hef verið að hugsa um nokkuð lengi.. og kannski ef þið hafið svör við einhverju að endilega segja mér þau.. :) click here :)
Stina at 4:18 PM

Ein manneskja sem ég þoli ekki.. er FORMAÐUR FÁTÆKRA.. hún kemur alltaf að versla hjá mér.. kom seinast í dag.. röflandi um allt og alla.. eins og hún fari bara útí búð til að röfla.. hún er ástæðan fyrir að ég er með svona lágt sjálfsálit.. hún öskrar alltaf á mig :( nei nei.. mar verður bara alltaf að kyngja því sem hún er að segja við mann.. má ekki segja neitt á móti.. þess vegna væri gott ef ég væri tónlistarmaður.. eða rithöfundur.. þá gæti ég fengið útrás í því.. :) en.. annars get ég bara lagt hendur á bróðir minn.. nóg útrás í því.. Ég var að leigja mér myndina Fálkar.. ég ætla að fara að setja hana í..
adios!
Stina at 3:04 PM

Wednesday, January 15, 2003

Váh hvað ég var engan veginn að þrauka að vakna kl 15 í dag.. ég hélt ég myndi deyja.. náði til að tala hann bróðir minn til um að fara að vinna kl 10 - 15.. svo kæmi ég og tæki við.. og ynni til 23.. meikaði bara engan veginn að mæta kl 15.. þannig að ég kom kl 15:17.. ;) Tíminn alveg rosalega lengi að líða.. þangað til penna gaurinn kom með blaðabunkan.. þá gat ég farið að gera eitthvað annað en að horfa útí loftið.. svo lítið að gera á þessum tíma sem ég byrjaði að vinna á.. mjög skemmtileg blöð sem komu.. OK!, hello, now, og eitthvað.. ég var að lesa þetta alveg til lok vinnu.. þannig að á morgun hef ég ekkert að gera.. og hinn.. djö.. tek bara með mér bók eða eitthvað.. :)
En svo verður vinnudjamm hjá mér.. 8. feb. það er semsagt næsta skiptið sem ég fer að djamma.. ætla að reyna að þrauka þetta mar.. búnað plana að spila.. kíkja til Gunna S og svona þessa helgi..
Já svo var ég að leiga mér myndir.. einhver buttuð mynd sem ný.. man ekki hvað hún heitir.. en mæli ekki með henni.. :)
svo leigði ég.. SIMPSON GREATEST HITS! :) þannig að ég ætla að henda fólkinu frá skjánum núna.. og láta þau horfa á simpson í staðinn fyrir þessa buttuðu mynd.. sem ég náttla mæli ekki með.. *bros*
adios!
Stina at 4:48 PM

Tuesday, January 14, 2003

Kl orðin hálf 3.. aðfaranótt miðvikudags.. búnað eiga mjög skemmtilegan dag.. ætli samt það skemmtilegast í dag hafi ekki bara verið þegar kl varð 18.. þá var ég búin í vinnunni.. og gat "skokkað" heim að fara að sofa..
198 dagar til Þjóðhátíðar 2003
sem völvan í séð og heyrt spáði að yrði eitthvað slæmt.. :/
en.. ég ætla að fara að gera bloggsíðu fyrir hana Huldu mína..
adios..
p.s. ég ætla að gefa út bók á næsta jólabókaflóði.. með öllum þessum bloggum mínum..


Stina at 6:40 PM

Monday, January 13, 2003

Don't let Krusty's death get you down, boy. People die all the time. Just like that. Why, you could wake up dead tomorrow. Well, good night.
Það sem veltur uppúr krökkum stundum.. ég stóð á kassanum í dag.. og inní búðina labbar kona með 2 krakka.. hún labbar aðeins hraðar en þau.. og bíður svo eftir þeim hjá namminu.. skokkar einn krakkinn til hennar og segir "Mamma ætlaru að týna börnunum þínum?" ég náttla emjaði úr hlátri í hausnum á mér..
Svo litli frændi minn.. hann tók uppá því að fara að segja brandara.. þegar hann var yngri.. búnað vera að segja einn brandara mjög oft.. og sjálfur komin með leið á honum.. þannig að hann ákvað að breyta honum.. "einu sinni var mamman og barnið að fara yfir götuna.. og þá kom bíll og keyrði yfir barnið.. þá sagði mamman "koddu þarna tómatssósan þín!!" bara snilldarbrandara.. svo þegar viltu vinna milljón var að byrja.. þá var hann rosalega spenntur yfir því.. og var alltaf að segja okkur að "fillti fillti milljón" væri.. en jæja.. ég ætla að reyna að draga Elínu.. í scrabble..
adios!
Stina at 10:47 AM

Sunday, January 12, 2003

Ef þetta er ekki bara mesta snilld sem ég hef lesið í langan tíma.. :)

Davíð:
Fíflið þitt, ég óttast ei
Ingibjörgu þessa.
Hún er klikkað kellugrey
og kvennalistaskessa.

Össur:
Mikið ertu ofsahræddur
Ingibjörgu við
þína að sýna sár og mæddur
subbulegu hlið.

Davíð:
Þú ert dóni, þú ert perri
þú hefur sett X hjá R-i
og eflaust kosið asnann Sverri
enda ertu eitthvað verri!

Össur:
Veldur tjóni víst á Fróni
vondur kóni leiður
Erkiflónið Davíð dóni
drýldinn trjónir reiður.

Davíð:
Pabbi þinn er sóða-svín
og sjálfur ertu kommi
mamma þín er brussu-brýn
og bróðir þinn er... geimvera.

Össur:
Iðkar dyggðir djöfulsins
Díkóds greiðir tap
Stelur frá höfundi stafrófsins
stundar dónaskap.

Davíð:
Össur er auli
og algert hræ
þó bjáninn bauli
ég bara hlæ!

Össur:
Ömurlegi íhalds-skúnkur
ógeðslegi fjandi.
Fúllyndari fituhlunkur
finnst ei hér á landi.

Davíð:
Einn má finna fúllyndari
fituhlunk en mig
daunverri og dramblátari;
drullusokkinn þig!

Össur:
Ruddalegi róni
ropa máttu hæst.
Dónalegi dóni,
dramb er falli næst.

Stina at 5:09 PM

Mar hefur svo sannarlega gert alveg öfugt við áramótaheitið sitt.. sem var að minnka drykkjuna.. ég tók alveg alla helgina í drykkju.. byrjaði allt með því að Annah keypti sér 5lítra bjórkút sem hún gat ekki drukkið ein.. og að sjálfsögðu bauðst ég til að hjálpa.. hvað gerir mar ekki fyrir vini sína (gæsalappir) svo endaði mar á spotlight.. djammað þar til.. æji ég man það ekki.. þegar ég var búnað drekka 2 glös inná spotlight.. þá kemur blackoutið.. svo man ég bara eftir einhverju smá.. og vaknaði svo.. :) og þá fékk ég fiðring í að djamma meira.. lagði mig aðeins.. og "skokkaði" svo til Ladyj.. sat þar í einhvern tíma.. og fórum svo á victor, glaumbar og enduðum á spotlight.. þegar leið á kvöldið.. var ég orðin virkilega dofin eitthvað.. var bara róleg.. en drakk :) og svo var skellt sér heim um sexleitið.. til að geta vaknað í vinnuna kl 9.. virkilega langur vinnudagur.. ekkert að gera.. ég var reyndar ekkert þunn.. bara hress.. en vældi allan tíman um það hve tíminn væri lengi að líða.. aumingja manneskjan sem vann með mér.. ;) núna er ég að pæla í að bæta upp þann svefn sem ég átti að fá mér í nótt.. og vakna svo til að horfa á "Ég Lifi" þáttinn..
adios!
Stina at 8:31 AM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs