creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, January 04, 2003

Papar & Andrea Gylfadóttir - Hún söng dirrindí
Vaknaði snemma.. alveg massíft þunn.. þó ég hafi nú ekkert drukkið neitt mikið í gær.. og alls ekki verið lengi.. kom heim til mín kl hálf 2.. lét þetta alveg nægja.. nenni ekki þessu djammi lengur.. hef reyndar sagt þetta mjög oft.. en held ég ákveði að standa við þetta núna.. ég skal bara vera hérna hjá ykkur vinum mínum.. tjá mig meira og svona.. :) þetta laugardagskvöld verður tekið í að spila.. var einmitt að bjóða henni Elínu heim í spil.. langar líka svoldið að horfa á best of popppunkt..
Ég er ekkert skárri en litlu krakkarnir sem fíla dansandi jólasveina.. ég get alltaf dillað mér við þá.. algjör snilld.. nema þegar þeim er nauðgað.. einn hérna sem fær spilun allavega 10 sinnum á dag.. mest til að skemmta Margréti Lind.. hún hlær alltaf eins og meiníak og dillar sér eins og mofó..
En búnað láta irkið falla.. eða er svona að reyna.. fór seinast á það níu í morgun.. og ekkert síðan.. komin reyndar með fráhvarfseinkenni.. kannski að hætta smá saman.. ekki bara strax.. úff.. er hægt að fara í irkmeðferð.. látið mig vita ef svo er.. annars.. ég ætla að fara að.. þrífa gamlar teskeiðar eða eitthvað..
adios!
Stina at 7:09 AM

Friday, January 03, 2003

Ewan McGregor and Alessandro Safina - Your Song
Ég náði til að vakna kl 7 í fyrradag.. veit ekkert hvað var að me´r mar.. eða jú.. fékk martröð.. búnað fá það núna síðustu 3 daga í röð.. ég sem fæ aldrei martraðir.. en þær komu víst með nýja árinu.. sem mér hefur ekkert fundist byrja skemmtilega.. ég rosalega ""happy happy joy joy"" hafa þetta í tveim gæsalöppum þar sem ég er akkúrat andstæðan.. en.. hef samt sem áður alveg gert fullt af hlutum.. ákvað að fara í vörutalninguna í vinnunni.. sem ég hef ekki gert í fimmtán ár.. bara til að fá mér meiri pening.. þraukaði þar í fimm og hálfan tíma.. án svefns.. nema.. þrjá tímana sem ég nældi mér í.. þannig að mar var orðinn svoldið pirraður.. líka bara butt leiðinlegt að vera að telja þessa hluti í þessari búð.. svo ákvað ég að pikka Elínu upp í leiðinni heim.. til að geta gert eitthvað sniðugt saman.. fengum okkur massíft góðan mat úr brauðbók hagkaups.. sem æji gaurinn gerði.. Jói Fel.. ég ætla að fara að lifa á þessu mar.. svo.. fórum við að spila.. við spiluðum séð og heyrt.. ég, elín, systir mín og Halldór frændi.. ég endaði 3ja seinust.. og leyfði Halldóri að vera seinastur.. :) mar veit bara ekkert hva ðmar á að segja í slúðrinu.. ég ákvað bara að segja þeim frá því að Oprah Winfrey væri að reyna að eignast barn.. sem er svona mest.. veit ekki.. þeim fannst það mest fáranlegt þar sem hún er að vera 47 ára.. eða er það.. en.. ég náði til að færa mig framar um 2 reiti ;) i can do it!!
svo núna var ég að vakna kl 9.. ákvað að fara að sofa snemma svona til að breyta aðeins um.. en annars held ég að ég sé á leiðinni á djammið í kvöld.. allavega var það planað fyrir einhverjum mánuði síðan eða svo.. þannig að ég þarf að tékka á því hvort það sé ennþá.. en annars.. e´g ætla að fara að hringja í vinnuna mína.. sakna þeirra..
adios!
Stina at 1:42 AM

Wednesday, January 01, 2003

..::TILVERAN::.. <--- hún er ekkert geðveik.. hún er svöl.. hún er flott.. HÚN ER IDOLIÐ MITT!
Stina at 6:11 PM

Gleðilegt Nýtt Ár!!
Annars eins og ég sagði í nótt.. þá var bara farið til hennar Gyðu.. byrjuðum sem bara 3 þarna.. Ég, Gyða og Daði.. við með flautur, hatta og innisprengjur.. og svo kom fólkið þegar leið á nóttina.. vorum þarna.. í mesta lagi.. 10 manns.. ekkert neitt risapartý.. en náttla mjög fínt bara að vera svona fá.. þá getur mar verið með í umræðunni.. :) svo var ákveðið að fara í ógeðisdrykk.. þar sem ég gleymdi að taka með mér drykkjuspilið mitt.. og reyndar líka af því að Gyða keypti sér eitthvað áfengi sem var butt vont.. og gat ekki drukkið.. þannig að við urðum að þjást.. Daði tók camparið og hellti þessu ofaní sitt glas sem var með smá bjórleifum.. skipti þessu á milli nokkrum sinnum.. svona til að gera þetta alveg goslaust.. og "gott" svo var hellt bjór útí þetta.. og gos"bjór" bacardi eða eitthvað.. kastað snakki ofaní þetta.. og.. þá var þetta tilbúið.. minnir að það hafi ekki verið neitt annað í þessu.. svo var þessu hellt í 4 glös.. svo það þyrfti nú ekki ein manneskja að drekka þetta allt.. og að sjálfsögðu lenti ég í því að þurfa að drekka.. en mar nennir ekki að vera eitthvað vælandi "ég get þetta ekki bla bla bla" þannig að mar drífur þessu bara ofaní sig.. ;) svo var þetta komið útí mjólkurdæmið.. og.. þurfti hann Kalli cradle að drekka það.. hann er náttla "muskler" þannig að hann hellti þessu ofaní sig.. og ég endaði með að þurfa að draga hann með mér.. en ekki varð ég neitt mikið full.. nema kannski þegar ég kom heim.. þá var mar líka að fá sér meiri bjór.. og fékk sér að sjálfsögðu að éta... awww.. yndislegur matur.. ég ætla alltaf að fá bæjons skinku á gamlárskvöld.. ALLTAF... svo rotaðist mar.. var bara að vakna núna kl 20.. fékk mér minn svefn.. en.. þá er að það að halda sér í góðu skapi.. og fá sér að éta.. :)) kannski mar finni sér eitthvað til að gera..
adios!
Stina at 12:38 PM

Tuesday, December 31, 2002

Papar - Og þá stundi Mundi
ég skemmti mér alveg konunglega þetta kvöld... var mest eiginlega heima hjá Gyðu.. fórum í ógeðisdrykk.. ég lenti reyndar í því að drekka bara.. campari, bjór, snakk og eitthvað.. en næst á eftir mér var mjólk, bjór, campari, og vískí.. subbulegt dæmi.. ég tók samt þátt eins og sönn trukkalessa.. :)) en ég ætla að sofa.. meira á morgun :)
Stina at 11:22 PM

Monday, December 30, 2002

Gunnar Ólason - Komdu Um Jólin
Jæja.. síðasti dagurinn bara komin.. ég reyndar ekkert farin að sofa.. ákvað að horfa á bend it like beckham.. og svaf ekkert eftir.. kannski af því að hún skemmdi heilan minn svoldið.. fyrirsjáanleg og.. tja.. ekkert neitt fyndin eiginlega.. hló af smá hlutum af þessu.. mæli ekkert með því að vera að leiga þessa mynd.. stutt í hana í sjónvarpið.. :)
Svo er það áramótaskaupið í kvöld.. ég gat svoleiðis hlegið úr mér augun seinast.. fannst þetta svo virkilega fyndið.. reyndar missti af fyndnasta atriðinu þegar ég hljóp á klóstið að pissa.. :/ en.. við tókum þetta upp og það var horft á þetta næstu daga.. og hlegið.. ég var samt svona mest sár hve það var níðst mikið á honum Árna Johnsen-i... :/ hann fékk sinn skammt af gríni í þessu skaupi.. máttu eiga það að "þú brást mér" (du hast) dæmið í brekkusöngnum fékk nokkur hláturtár til að koma.. :) en.. samt sem áður er ég mest sátt við það að þeir Hallgrímur Helgason, Skari Skrípó og Hjálmar Hjálmason skulu vera með þetta aftur.. þó ég hafi tapað í séð og heyrt útaf þeim! Gleymdi því bara í smá stund hvað þeir hétu.. ég bíð spennt eftir þessu.. og vona að áfengið verði ekki fyrir manni.. :) svo er það maturinn.. pabbi var að tala um að það yrði bæjons skinka.. man ekkert eftir að hafa smakkað það.. en vona að þetta verði mjög gott þar sem við höfum oftast fengið hamborgarahrygg líka gamlárskveldi.. langaði ekki að missa hann.. en.. krossa puttana..
Það verður líka ekkert keypt sprengjur í þessu húsi þennan dag.. við höfum síðust ár verið það misheppnuð með sprengjufólk.. að við treystum okkur ekki til í þetta.. höfum þurft að hlaupa alloft inní blokkina með stærstu sprengjuna á eftir okkur.. og eitt skiptið.. þurftum við að hlaupa svo langt af því að hún straukst við okkur öll.. og sprakk svo inni.. hættulegt þetta.. en.. við kaupum kannski bara kökur.. þær geta varla komið inn á eftir okkur.. nei annars ég er að tala um þessa misheppnuðu fjölskyldu.. :) en..
adios!
Stina at 11:58 PM

NOFX - Idiot son of an asshole
Ég er farin að sofa meira en sólin.. fór að sofa á þeim skikkanlega tíma kl 2 í gær.. til að geta nú vaknað snemma og gert eitthvað sniðugt.. hringja í bankan fara í ríkið og eitthvað svoleiðis dæmi.. svo vaknaði ég kl 14.. semsagt búnað sofa í 12 tíma.. hringdi í bankan.. en gat ekkert farið í ríkið.. á ekki bót fyrir boruna á mér.. en ég á áfengi.. ;) get alveg drukkið úr mér allt vit á morgun.. aumingja þeir sem þekkja mig *evil laugh* svo fékk ég heimsókn frá henni Huldunni minni.. ákváðum að gera eitthvað sniðugt saman.. svona til að gera eitthvað saman ;) fórum til hans Gunnars til að skoða fiskana hans.. og sáum hve Hulda og Stína hafa stækkað.. ná okkur uppað öxl.. fljótir þessir "krakkar" að stækka.. svo þurftum við að fara heim.. svona er þetta útivinnandi fólk.. getur voðalega lítið gert.. ég ákvað að leggjast uppí rúm þegar ég kom heim.. leiðinlegt ekkert að gera og svona.. og viti menn.. ég steinsofnaði.. svaf alveg til 20.. þannig að ég verð komin með minn svefn á morgun.. :) þá verður farið náttla í partý-ið til Gyðu kl 1.. :) og svo bara.. tjúttað fram á rauða nótt.. þetta ræðst allt þessa nótt.. vil ekkert vera að gera plön þar sem það hefur oftast eyðinlagt gamlárskvöldið mitt.. en
Adios! :)
Stina at 2:25 PM

Sunday, December 29, 2002

Þórunn Antonía - Those Little Things
Ég fór að pæla í því þegar ég sat á klóstinu í vinnunni í dag.. með klósettpappírinn.. ég hélt alltaf að arkirnar væru svona kassalagaðar.. ekki lengri í eina áttina.. kannski það sé bara klósettpappírinn sem ég var að nota.. getur vel verið að hinar séu kassalagaðar.. en.. ég hélt þetta yrði þæginlegra af þetta væri kassalagað.. þá getur mar brotið þetta betur saman.. :)
Ég var að lesa slúðurblað í vinnunni.. man ekki hvað það heitir.. minnir að það hafi verið OK! þar kom grein um Ozzy Osbourne.. voru teknar myndir af honum þegar hann var að versla.. og var bara einn.. svo að endanum stóð hann uppvið vegg.. og var að reyna að stimpla númerið hjá driverinum sínum inn.. en náði til að gera það vitlaust nokkrum sinnum þannig að hann þurfti að stoppa vegfaranda til að hjálpa sér.. afhverju notar hann ekki taldæmið.. eða kaupir sér síma með svona tal dæmi.. þar sem hann segir bara nafnið.. og það hringist í það.. fyrst hann á svona rosalega erfitt með að pikka inn.. eða fær sér prik eins og hómer.. hann á nú alveg nóg af peningum.. hann gæti nú líka bara ráðið sér tælending til að stimpla inn númerin fyrir sig.. en hann er aftur á móti algjör snillingur.. ég fíla hann.. :)
Annars var ég nú bara að koma heim úr bíó-i.. fór á heimildarmyndina um hlemm.. ég get nú ekki dæmt um það hvort hún sé góð eða léleg.. þetta er ekkert þannig mynd.. þetta er náttla bara um líf nokkra einstaklinga.. alveg rosalega sorglegt bara.. var einmitt tileinkuð þeim sem dóu á meðan á tökum stóðu.. sem var allnokkrir.. veit ekki hve lengi tökur stóðu.. en einn karl þarna.. fannst mér heldur furðulegur.. strætóbílstjóri.. eða var strætóbílstjóri.. hann kallaði sig sjálfan þjóðernissinna.. en.. talaði samt aðeins áður en hann sagði það.. um að næla sér kannski í eina austurlenska af því að þær væru svo fínar.. og skemmtilegar.. og hann vildi fá sér eina unga.. og svo rétt á eftir.. þá var hann að tala um að það væri alltof mikið af þessu liði hérna.. bla bla bla.. afhverju er hann að segja hlutina svona til skiptis.. talandi um það að fólk ætti að standa fyrir því sem þau segja.. og.. það sem þau vilja.. þetta var furðulegur gaukur.. :) en.. þetta var samt sem áður mynd sem fólk ætti að sjá.. sjá hvernig ísland er virkilega.. þetta litla land í svona dæmi.. piff.. :) en jæja..
adios!
Stina at 2:13 PM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs