Saturday, December 28, 2002
Íslensku Dívurnar - Hugurinn fer hærra
Ég er orðin Ragga Bjarna wannabe.. nei annars.. ég tók eftir því að alltaf þegar ég stend á kassanum að bíða eftir að einhver komi.. þá stend ég eins og Raggi Bjarna.. svo.. held ég sé komin með parkison veikina.. allavega á mjög erfitt með að afgreiða fólk með það.. sérstaklega ef ég er að týna peningana úr höndunum á þeim.. næstu fimm kúnnar fá að sjá hendurnar mínar titra.. eins og þær vilji bara herma eftir.. :/ en.. ég þarf að fara að sofa.. working tomorrow.. þarf að vakna kl 9.. ég á eftir að gráta þegar ég vakna.. get ekki vaknað svona snemma.. en..
adios!
Stina at 5:15 PM
Friday, December 27, 2002
afmælið
Hérna eru myndir af fólkinu sem fór í afmælið til hennar systir minnar.. svona til að sýna ykkur hve fallegt fólkið var.. á svo eftir að setja fleiri á netið.. :)
annars skellti ég mér á djammið í gær.. hitti engan frægan.. :/ en.. fór til ladyj.. sátum þar.. drukkum og alle græjur.. svo þegar kl var orðin 3.. þá skaust ég í "partý" til frænku minnar.. og bauð.. mági mínum þangað.. eða "Mági" djammaði aðeins með honum og vinum hans.. fólkið greinilega ekkert að fíla þá.. kannski af því að þeir voru of skemmtilegir.. eða.. náðu til að vera skemmtilegri en þetta fólk.. gaman að fara í "partý" til fólks sem er virkilega dautt.. og óhresst.. en.. ég fór þaðan kl 6.. og.. kom svo heim skrautleg.. og talaði víst við mömmu voðalega mikið.. trúnó eða eitthvað.. :/ man bara ekkert eftir því.. hún minntist bara á það í dag.. að ég hafi verið að tala við hana í nótt.. svo fór ég á irkið og allt.. sem mar á ekkert að vera að gera.. en.. það er samt gaman að eyða þynnkudeginum í það að lesa logfile-a.. og svo.. horfa á ice age.. og.. ég á eftir að horfa á ikingut.. :/ en.. now is the time.. :)
Stina at 1:48 PM
Wednesday, December 25, 2002
Einu sinni voru 2 buxur úti að labba og sá svo aðrar buxur sem voru að brjóta af sér og voru gripnar. Þá löbbuðu hinar 2 buxurnar að og sögðu "Ykkur voru Nær buxur"!!!
þessi brandari er sá fyndnasti sem ég hef heyrt í langan tíma..
svo ákvað ég að auglýsa síðuna mína.. bara svona.. til að fá meiri tölu á teljarann minn.. og fékk þá þessa setningu..
[03:59] |belja| hey sá þetta url í spjallinu á popptíví um daginn
[03:59] |belja| sniðugt
ég er að hugsa um að hætta að senda i þetta.. sendi einmitt í gær líka.. á aðfangadeginum.. kl 18.. reyndar bara af því að Halldór frændi sagði mér að gera það.. sendi..
|creepz| beware the búgíman is coming down the stromp
þá fékk ég fullt af sms-um fólk að láta mig vita að ég ætti ekkert líf.. ég lét þau bara vita að halldór gerði þetta.. fólk að spyrja hvort ég hafi sent þetta.. sagði bara að halldór hafi gert þetta.. :) þetta fékk símann allavega til að lifna við aftur.. og rykið til að detta af.. :)
Stina at 8:38 PM
Ríó Tríó - Fyrir Sunnan Fríkirkjunna
Það var nú alveg óvenjulega gaman í gær.. þó ég hafi ekki nennt jólunum.. vaknaði kl 10.. skutluðum bróðir í vinnuna. hlógum aðeins af honum fyrir að vera að fara að vinna til að láta hann vera í smá góðu skapi þarna í vinnunni.. svo fórum við bara að versla.. keypti mér ný jólaföt ;) svo kom ég bara heim og dreif mig að horfa á skrípó var búnað gleyma því.. :/ svo horfði ég á skrípó með krökkunum.. og.. hoppaði svo í sturtu, naut þess að taka minn tíma.. þannig að ég var eina manneskjan sem fór í sturtu fyrir matinn :) borðuðum við þennan alveg gríðarlega góða hamborgarahrygg.. hefði alveg nennt að taka allt kvöldið í það.. en pabbi var farinn að iða, langaði svo að drífa sig að opna pakkana.. þannig að ég ákvað að drífa mig að éta fyrir hann.. svo voru pakkarnir opnaðir.. ég fékk.. frosk sem heldur á símanum manns, bolla með mynd af belju á og myndaalbúm frá henni Huldunni minni.. ;) táslusokka frá Gyðu.. massíft flottan budweiser bol frá Elínu.. Konfekt frá 11-11.. tölvustól frá Guðmundu systir (fjölskyldan búnað röfla lengi um það að ég sé of mikið í tölvunni en gefur mér tölvustól.. ýta aðeins meira undir það að ég haldi áfram :) ) kjól frá honum bróðir mínum, 5000kr frá mömmu og pabba, party og co frá möggu systir og fjölskyldu.. (sem ég btw vann í gær með glæsilegum sigri) og svo fékk fjölskyldan sameiginlega séð og heyrt spilið ( og það vann ég líka í gær.. hjálpaði mest að ég átti að taka þátt í fyndnasti maður íslands í þessu.. og vissi ekkert hvað ég átti að gera.. þannig að ég ákvað að lesa upp brandara sem ég hafði rekist á í spilinu sem Davíð Oddsson sagði.. en klikkaði alveg gjörsamlega á því.. las þetta upp sem spurningu þannig að allt liðið gjörsamlega dó þarna úr hlátri.. og ég hló náttla með líka til að vera ekki jafn vandræðaleg.. en ég fékk 3 stig fyrir þetta þannig að ég komst lengra og vann!!).. seinna um kvöldið var svo horft á vídjó.. eða þá var kl orðinn hálf 3 búnað spila og svona svo lengi.. en ég þraukaði 20 mín af myndinni og steinrotaðist inní herbergi.. náði alveg til að sofa það fast að ég var að vakna núna kl hálf 3.. og.. það er gaman.. er að fara fram að gera eitthvað af viti.. skoða gjafirnar hjá Margréti Lind.. og leika mér kannski við hana.. :)
adios!
Stina at 7:18 AM
Monday, December 23, 2002
Erpur Eyvindar Og Steindór Andersen - Stikluvík
GLEÐILEG JÓL FÓLK..
SJÁUMST EFTIR JÓLIN.. :)
Stina at 4:11 PM
Sunday, December 22, 2002
System Of A Down - CUBErt
Var að lesa blogg þar sem manneskja var að tala um auglýsingar.. og hvað sumar eru fáranlegar.. þar nefndi hún t.d. þráðlausu auglýsinguna.. ég ætla að gera lista líka yfir hvað mér finnst fáranlegt í auglýsingum.. ég hef sagt sumt áður en læt það samt flakka.. :)
M&M: Þar fór m&m kall í flugvél.. og flugfreyjan eitthvað að böggast í honum.. svo endaði auglýsinginn á setningunni "Bráðnar í munni en ekki í hendi" ef ég hefði búið úti þá hefði ég getað farið í mál við m&m vegna þess að ég hef oft lent í því að enda með einhvern bláan, rauðan eða gulan lit á hendinni útaf því að þetta bráðnar í hendinni á manni.. :)
Fanta: Þar sitja krakkar í einhverjum gervihnattardisk.. og ropa í dæmið.. svo fólk heldur að það séu geimverur.. heyrir alltaf ropið.. en ekki hláturinn.. sem er alveg fáranlegt.. og þetta var reyndar líka bara leiðinleg auglýsing.. kom svo önnur á eftir.. þar sem geimverur voru að gera það sama.. en.. aldrei heyrist hláturinn.. skrýtið..
Siminn: þegar gaurinn er að fara á bakinu um allt húsið sitt og svo í tölvuna til að geta fyllt á frelsið í tölvunni.. þetta er auglýsing sem mar getur bara horft á einu sinni.. virkilega langdregin og leiðinleg.. hvað er málið með þetta "fara á bakinu" dæmi?
Tilda: tilda auglýsingarnar eru ekkert að gera sig.. þessi nýjasta með möndlunum.. byrjar ein að hoppa ofaní grautinn sem er búin til úr tilda hrísgrjónum.. og öskra "tilda!!" og þá koma allar hinar á eftir.. þegar ég sá þetta.. þá langaði mig "rosalega" í tilda hrísgrjónagraut..
Ég ætla líka að koma með auglýsingar sem eru virkilega ða gera sig.. auglýsingar sem ég get hlegið endalaust að..
Olís: auglýsinginn sem þeir eru að segja frá því hvernig þeir þjálfa sína menn.. ég hló mest af því þegar gaurinn gleymdi kortinu sínu.. og afgreiðslumaðurinn hljóp heillengi á eftir bílnum öskrandi "Þú gleymdir kortinu!!" þetta var virkilega snilldar auglýsinginn..
Cheerios: "Gleymdu ekki mikilvægustu hlutunum" eða eitthvað svoleiðis.. þegar manneskjan gleymdi bensíndæminu í.. var svona heldur þreytt.. mar hló einu sinni tvisvar af því.. en svo var það bara búið.. þegar gaurinn gleymdi að fara í sundskýluna.. það var svona eiginlega búið.. útaf því að þetta skeði í veggfóður.. en.. þegar gamla konan er að ryksuga.. það er virkilega fyndið.. ryksuga alla skrifstofuna en fattar ekki að ryksugudæmið er ekki fast við.. :)
Möppuauglýsinginn: þar sem gaurinn var að selja möppurnar eða eitthvað.. og.. gerði hálfpartinn grín af öðrum auglýsingum í leiðinni.. það var gaman að horfa á svoleiðis auglýsingu.. auglýsingu sem gerir grín af auglýsingum.. :)
annars.. Gleðinlega Þorláksmessu.. :) borðið nóg af skötunni fólks.. :)
adios!
Stina at 10:01 PM
Bubbi - Romeo og Júlia
Ég fann mér jólaföt!! leiðinlegt reyndar að versla.. labbaði bara inní hagkaup.. tók það sem ég sá fyrst.. og labbaði út.. nennti þessu engan veginn.. of margir.. of sveitt.. jólasveinar valhoppandi þarna í kringum mann.. Helga Möller að raula einhver lög.. þegar hún byrjaði að syngja "Lítið Jólalag" þá hugsaði ég bara "that´s it" og fór.. þetta var orðið of mikið fyrir mig.. fólk að panikka gat varla keyrt útaf stressi.. en.. svo þurfti systir mín að gerast sá brainiac að týna lyklunum sínum í hagkaup.. þannig að ég þurfti að hlaupa þangað inn aftur.. það var algjörlega punkturinn yfir i-ið.. þannig að ég dreif mig að leiga spólu.. tók The New Guy.. sem var nú bara nokkuð fyndin.. þótt ótrúlegt megi virðast.. þar komu nokkur þekkt andlit inní.. t.d. Vanilla Ice, Tony Hawk, og einhverjir sem ég man ekki.. :) svo tók ég simpson spólu.. svona til að horfa á eitthvað annað en spólurnar sem ég á.. alveg fínt. .horfði á hana áður.. og horfi á hana aftur á eftir.. :) en.. ég þarf að fá minn svefn fyrir vinnudaginn á morgun.. þar sem það verður áreiðinlega brjálað að gera.. :)
adios!
Stina at 7:36 PM