Friday, December 06, 2002
Lónlí Blú Bojs - Lag þetta gerir mig óðan
Ekki get ég neitað að mar getur virkilega sofið þegar mar er þreyttur.. en ég fagna því að hafa náð að sofa í 9 tíma.. :) vaknaði af því að ég var vakin..
Það er búið að vera rosalega mikið af heimildarmyndum og gerð myndbanda með Írafár.. ég get ekki sagt að ég sé að fíla það.. en ég get náttla alltaf skipt um stöð.. og það geri ég.. ekki nema fólkið vilji horfa á þetta.. Birgitta Haukdal er ekki í miklu uppáhaldi hjá mér.. eða reyndar fer hún alveg rosalega í mig.. Taktarnir hennar eru alltaf alveg eins.. hún má alveg breyta um.. þetta er alltaf svona.. slá hendinni til hliðar eins og Celine Dion.. og frábært að hún sé að koma af stað svona tískubylgjum alltaf.. ég þarf ekkert að vera með.. og geri það heldur ekki.. en mar er að sjá Birgittu Haukdal alls staðar.. Mar fer í Hagkaup og gínan er bara snýtt út úr nösinni á Birgittu Haukdal.. jaa.. hún fer alveg rosalega í mig.. og.. ég nenni ekki að tala meira um hana.. ég er farin til Keflavíkur..
Adios!
Stina at 1:21 PM
What? Jæja Hófí eyjafarinn komin með bloggsíðu.. frábært.. ;) Snilld hjá henni..
en þessar bloggsíður spretta hraðar en kanínur.. það er allir komnir með þetta.. en.. þá hefur mar bara meira að gera..
Adios! :)
Stina at 5:52 AM
Björgvin Halldórsson - Ég á lítinn skrýtinn skugga
Núna er ég búnað vaka í alla nótt.. og mun ekkert blogga alla þessa helgi þar sem ég verð í nágrenni við Leoncie.. *krýpur og kyssir myndina af henni*
Þetta er búið að vera ósköp skemmtileg nótt.. og hvað þá dagur.. tók að mér að passa hana Marglynd í smá stund.. og djöfull gat hún skitið.. þessi litla manneskja skeit svo heftarlega mikið að það var ekki eðlilegt.. það fóru allavega 8 pampers þurrkur í þetta.. og ég endaði með yndislega lykt á höndunum..
Nágrannar standa alltaf fyrir sínu.. góður þáttur í dag.. ég er sátt.. og ég mun fara brosandi til Keflavíkur.. en ég þarf smá svefn fyrir þessa för.. ;)
Adios!
Stina at 4:43 AM
Thursday, December 05, 2002
Green Day - Redundant
Air hockey
bara snilldar leikur.. :) en ég nenni ekkert að skrifa núna.. er orðin of þreytt..
Stina at 10:25 PM
jacksonbaby
Þessi leikur er snilld! :)
Stina at 3:09 PM
Áfram Latibær - Siggi Sæti
Halló Halló það á víst að senda Áfram Latabæ til útlanda!!
ég ætla að segja ykkur eitthvað af nöfnunum sem ég veit að verða úti..
Glanni Glæpur - Robbie Rotten
Íþróttaálfurinn - Sportacus
Solla Stirða - Stephanie
Goggi Mega - Pixel
"Frábær" enskuþýðing á nöfnin..
Ég allavega fílaði fyrstu myndina.. eða Áfram Latabæ.. gat horft á hana 3var á dag.. svo kom Glanni Glæpur.. og allar persónurnar breytust.. og nýjir leikarar.. þá var mér nóg boðið.. hef ekki einu sinni séð hana einu sinni.. ég byrjaði á henni.. en gat ekki klárað hana.. svo átti ég mjög erfitt með að hlusta á Áfram Latabæ diskinn.. hann var svo allt öðruvísi en í myndinni.. gaman að syngja með þessu.. en manni fannst eins og mar værir að læra þetta uppá nýtt.. en.. annars.. þið megið gefa mér Áfram Latabæ í jólagjöf.. mig hefur alltaf langað í hana.. en aldrei fengið hana.. :/
Stina at 1:48 PM
Dmx - Party Up (Up In Here)
Djöfull er ég treg.. hélt það væri nótt þegar ég var sofandi.. fattaði engan veginn að kl væri að verða 17.. en að endanum uppgötvaði ég það.. og hljóp framúr.. :/
en.. edrú helgi þessa helgi.. Á móti sól á gauknum en ég er ekkert að fara þangað.. ég er að fara til Keflavíkur.. sem er mjög nálægt því sem Leoncie á heima.. :) En í keflavík mun ég gera fullt af hlutum.. :/ er að fara að passa.. en HEY spila líka.. reyna að finna hættuspilið eða eitthvað.. afhverju á ég ekki séð og heyrt spilið.. mig langar nú svoldið í það.. æji ég fæ það um jólin.. og mamma er ekki einu sinni búnað skreyta húsið.. jólin kom víst seint í ár heima hjá okkur.. oftast búið að skreyta húsið hátt og lágt á þessum tíma.. svo langar mig að baka.. ég er að pæla í að baka.. þó ég kunni það ekkert rosalega vel.. en æfinginn skapar meistarann..
Mig langar að drulla mér í svefnin aftur..
Adios!
Stina at 1:01 PM
Serðir Monster - Sjö Litlar Mýs
Jæja.. þá er komin nýr teljari.. :/ en hva.. þetta er fljótt að koma.. ég er sátt við þetta nýja lúkk.. vonandi fæ ég ekki ógeð strax af því.. mikið vesen að byrja uppá nýtt..
En núna hef ég verið vakandi í ansi langan tíma... búnað vera að horfa á bbc learning, cartoon network, ísland í bítið og fullt fullt.. gaman að horfa á Pétur Blöndal, Björn Bjarna og Ingibjörgu Sólrúnu tjá sig.. eða reyndar horfi ég bara á skallan hennar Ingibjargar.. þar sem þetta glans kallar á mann :)
Kannski mar fari að skella sér í svefnin.. búnað sturta sig.. elska nikeman eða eitthvað.. sjampóið ;)
Adios!
Stina at 12:17 AM
Wednesday, December 04, 2002
Er að reyna að fikra mig áfram í þessu nýja lúkki.. :)
Stina at 11:03 AM
Rosalega er Glitter leiðinleg mynd.. hvað er Mariah carrey að gera sjálfri sér.. mar hefði geta haldið að hún væri að leika fatlaðan einstakling.. en svo var víst ekki.. svo náttla snérist þetta bara um tónlist.. hún er alveg með góða rödd og allt það.. en váh.. alveg butt leiðinleg tónlist.. og svo var þetta svona mynd.. sem þú vissir alveg hvernig endaði bara á byrjuninni.. ég mæla allavega ekki með henni.. getið horft á hana þegar hún kemur í sjónvarpinu.. en að eyða 250kr í hana er of mikið..
Annars var ég rosalega dugleg í dag.. fór út með hana Marglynd.. ætlaði reyndar bara að gera það til að tékka hvað ég ætti mikið eftir af laununum.. búnað labba alla leiðina útí 11-11.. kemst að hraðbankanum.. en nei.. þá auðvitað þurfti prentarinn að vera bilaður..
en jæja.. ég þarf að fara að reyna að finna mér eitthvað gera til að halda mér vakandi..
Adios! :)
Stina at 9:12 AM

Who are you most likely to fuck
brought to you by Quizilla
Stina at 1:28 AM
Tuesday, December 03, 2002
Búdrýgindi - Sigga-la-fó
yndislegt að vakna svona að nóttu til.. ég skil ekki afhverju ég fór að sofa kl 12.. ég vissi að ég myndi vakna um nóttina.. en annars stuð í vinnunni..
kom svo heim.. þá var búið að leiga 24 hour party people.. náði ekki til að horfa á hana alla.. massíft þreytt.. en þetta var alveg fín mynd.. anskotans.. nenni ekki að fara að kaupa jólagjafir.. en samt komin í massíft jólaskap.. svo jólalegt hérna eitthvað.. búið að setja upp fullt af jólasveinum.. einn sem dansar við eitthvað "rokk" jólalag.. og svo eru hinir eitthvað að syngja.. þessu er nauðgað af krökkunum á jólunum.. sem betur fer eru jólin bara í nokkra daga.. já.. og svo áramótin.. hvernig ætli þau verði.. annars mér var í fyrsta skiptið núna í ár boðið í áramótapartý!! Gyða og Daði voru að bjóða mér.. vonandi verður þetta líka fyrstu áramótin sem heppnast.. :)
en.. ég ætla að fara að horfa á glitter.. segi ykkur hvað mér fannst um hana.. borgaði 250kr til að horfa á hana.. :)
adios
Stina at 4:08 AM
Sunday, December 01, 2002
Ég þoli ekki þegar fólk er nývaknað.. og byrjar að flauta.. það er eitthvað svo happy happy joy joy.. fer alveg rosalega í mig.. þegar mar vaknar þá á mar að vera grumpy og leiðinlegur.. ekki bara vakna brosandi..
Annars var ég að horfa á Sjálfstætt fólk áðan með Jóni Ársæl.. þar var landsfræga manneskjan.. Anna Kristjáns.. fallega vaxin kvennmaður, reyndar með rosalega ráma rödd.. en það skiptir engu.. hún hefur bara mök við sjálfa sig.. og það er nóg.. :) annars tók ég eftir því að hún væri á irkinu.. sýnt svona yfir á tölvuna hennar.. og þar leyndist einhver spjallrás.. ef mar bara vissi hver hún væri á irkinu.. þá myndi ég reyna að eignast nýjan vin..
En ég er að pæla í að fara að sofa.. útivinnandi manneskja.. erfitt líf.. þreytt..
Adios!
Stina at 1:04 PM