creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, November 30, 2002

I Can't Believe It's Not The Advertising Slogan Generator!
Stina at 7:40 PM















Þú ert
ArnarAr


Þú ert mikill húmoristi og tónlistaráhugamaður. Þú nærð á undraverðan hátt fullkomnu jafnvægi milli tölvulúða og töffara






Taktu hvaða
bloggari ert þú prófið hér!



Stina at 6:45 PM

Geirmundur Valtýrs - Línudans með Línu
Djammið í gær var nú bara nokkuð skemmtilegt.. fórum á gaukinn.. þar voru Land og Synir að spila.. æji ég fíla ekki þessa hljómsveit.. eina lagið sem ég fíla með þeim er þjóðhátíðarlagið.. reyndar eiginlega bara þjóðhátiðarlagið "Lífið er yndislegt" sem er nú ekki einu sinni með allri hljómsveitinni..
en Hreimur var rosalega "smart" þarna.. með einhverja broddagreiðslu.. þetta var ekkert flott.. svo náttla syngur hann alltaf eins og hann sé að skíta á sig.. Við sátum bara þarna og drukkum.. fengum okkur að sjálfsögðu.. TEQUILA :) og svo var það sambúka, captain í kók og bjór.. en náði til að klára peningana.. 6000kr.. þetta fer alveg rosalega fljótt.. svo dýrt áfengið á stöðunum.. svo vorum við bara á gauknum.. hefðum betur átt að skella okkur eitthvert annað.. þetta búið kl 5.. sem okkur fannst frekar snemmt.. þá var bara farið heim og fengið sér meira áfengið.. setið og rætt við fólkið sem var vakandi.. en eins og ég segi alltaf.. áfengi er böl daginn eftir.. ég náttla þurfti að fara að vinna kl 16.. og svaf alveg til hálf.. mætti svo drulluþunn í vinnuna.. fór beint á kassa.. og skalf eins og mofó.. ég hélt að dagurinn myndi aldrei enda.. en svo loks gerði hann það.. Margir að kvarta yfir sígarettuhækkuninni, reyndar skil ég það mjög vel.. en hvað á ég að gera.? ég get ekki breytt þessu.. ég er náttla bara á kassanum að afgreiða þetta fólk en fæ samt að heyra það.. 510kr pakkinn.. þetta er orðið rán.. mig hlakkar ekki til að kaupa áfengi fyrir áramótin.. það er náttla búið að hækka líka sterka vínið.. en.. það hlaut að koma að þessu...Það er rosalega mikið af liði sem segir manni frá mjög miklu.. ég myndi aldrei fara að tjá mig svona mikið við manneskju sem væri að afgreiða í búð.. ég veit alveg rosalega mikið um fólkið þarna.. einn með asma, einn sem vill ekki taka lyf, ein sem finnst Þórhallur miðill vera djöfulinn, ég get haldið áfram að telja endalaust en bara nenni því ekki.. já.. ég er áreiðinlega bara komin að niðurstöðu um hvaða búning ég ætla að vera í.. Svalaberið held ég bara.. þar sem ég fer að djamma í þessu.. þá er um að gera að vera í einhverju svona þæginlegu.. En þetta er vinnuhelgin mín þannig að ég verð að fara að sofa snemma svo ég vakni spræk sem læk *hlær* á morgun.. svo Adios!
Stina at 6:15 PM

Friday, November 29, 2002

Audioslave - Like A Stone
Djöfull var erfitt að vakna kl 15.. fór reyndar ekkert að sofa fyrr en kl 8 í morgun.. svona getur andskotans irkið látið tíman líða fljótar en mar heldur.. en ég ákvað að vakna á þessum tíma til að vinna fyrir hann bróðir minn.. góðmennskan í hámarki.. reyndar er ég að gera það svo hann taki sunnudaginn fyrir mig.. en rosalega líður tímin hægt svona að degi til í vinnunni.. og bara leiðinlegir viðskiptavinir þá.. þekkti eiginlega ekkert af þeim.. miklu skemmtilegra fólk á kvöldin.. :) en svo var að sjálfsögðu farið í ríkið eftir vinnu og keypt sér THULE :) þannig að það verður eitthvað djamm í kvöld.. hafði hugsað mér að kíkja á gaukinn.. fæ mér bara pizzu og ölara á eftir.. svo verður rúllað af stað í bæinn.. en þótt ótrúlegt megi virðast þá er síminn minn búnað hringja í dag.. og afhverju ætli það sé.. hmmm.. kannski af því að það er föstudagur.. fólk virðist ekki hafa samband við mig á öðrum dögum.. en jæja.. Adios! :)
Stina at 11:11 AM

Thursday, November 28, 2002

Kim Larsen - Haveje
Ég ætla að lofa sjálfri mér að fara aldrei aftur að sofa fyrir kl 12.. ég enda alltaf með því að vakna um nóttina og vita ekkert hvað ég á að gera. ég vaknaði núna í nótt kl 5.. ákvað að reyna að sofna.. en allt kom fyrir ekki.. þannig að ég labbaði fram kl 7.. horfði á 70 mínútur.. eða reyndar heyrði bara eina frétt með einhverri kellingu sem henti krakkanum sínum í ruslið af því að hann skeit á sig.. það hefði bara átt að taka þessa gellu og hýðana.. ekki hefur hún verið það fullkomið barn að aldrei hafi komið bremsufar í nærbuxurnar hennar.. allir hafa nú lent í þessu.. eða munu lenda í þessu þegar þau eru orðin það gömul að þau ná ekki á klóstið í tæka tíð.. :)
en annars horfði ég nú bara á Einn Tveir og Elda.. þar sem Magni og Jónsi voru keppendur.. rosalega er Magni flottur.. ;) en mar verður bara svangur á því að horfa á svona þætti.. þannig að þetta var bara horft á í fast forward.. já.. ég leigði mér líka spólur í gær.. Goldmember og Big lewboskí.. Goldmember var nú bara nokkuð góð miða við að þetta er 3ja myndin.. ég allavega gat hlegið þónokkuð af henni.. ég mæli alveg með henni.. annars vaknaði ég bara kl 17 í dag.. beðin um að passa 4ja gemlinga.. þeir eru nákvæmlega eins og vondu dýrin í gremlings.. brjálaðir krakkar.. ég er búnað vera að þeytast um íbúðina eins og píla.. líka eru á svo skemmtilegum aldri.. hva.. 4,6,8 og 13.. held þetta sé nokkurn veginn rétt hjá mér.. mar gleymir þessu þegar það eru komnir svona margir krakkar í fjölskylduna.. en jæja.. ég ætla að fara að rota þessa krakka í svefn.. Adios!
Stina at 12:51 PM

Wednesday, November 27, 2002

Pearl Jam - Yellow Ledbetter
Var að vakna núna fyrir kltima síðan.. ekki alveg að nenna því.. en sumir þurfa að sturta sig eins og venjulegt fólk.. það sem ég þoli ekki við sturtu.. er að ég hitti alltaf sápuna í augað.. og svo þegar ég nota eyrnapinna.. þá næ ég alltaf til að stinga honum lengst inní hægrað eyrað mitt.. ekkert skrýtið að ég sé farin að heyra illa.. held ég hætti bara þessu eyrnapinna veseni.. og fari að láta pumpa úr eyranu.. það er þó allavega alhreinsun.
Annars er hún Dagmar komin með svona bloggsíðu hæfileikarík ung stúlka..
En ég ætla að fara að vorkenna sjálfri mér yfir að vera að fara að vinna.. og að það sé ekki helgarfrí eftir þennan dag.. bara 2 daga frí.. :/
Adios
Stina at 9:17 AM

Tuesday, November 26, 2002

Snilldarsíða!! :)
Stina at 5:18 PM

Var að pæla í þessu í dag.. þar sem ég var að vinna.. er fólk eins og kýr.. kýr eru virkilega heimskar.. fara alltaf sömu götuna á sama stað hvern dag.. en virðast samt sem áður aldrei rata þangað.. þannig er þetta með viðskiptavinina.. þeir fara alltaf útum sömu dyrnar.. en byrja alltaf með því að labba næstum því á gluggann við hliðná.. og þetta hefur komið alveg uppí 3var sinnum fyrir eina manneskja.. :) en jæja.. ég ætla nú samt ekki að fara að halda því fram að viðskiptavinir mínir séu heimskir.. :)
Ég var ekkert smá dauða hrædd þegar ég var lítil.. reyndar leynist ennþá hræðsla við dauðan í mér.. en þegar ég var lítil.. svona 6 - 11.. þá gat ég ekki sofið nema það væri kveikt ljósið.. ég þorði ekki að sofa á bakinu vegna þess að dáið fólk var alltaf á bakinu með hendurnar í kross.. þannig að ég hélt að mar myndi deyja þannig.. svo bað ég alltaf hana mömmu mína um að koma inní herbergi þegar hún væri að fara að sofa og tékka á því hvort ég andaði ekki alveg örugglega.. svona var mar nú líka furðulegur þegar mar var lítill.. ;)
Djöfull mætti sexí gaur til mín áðan í vinnuna.. í gallabuxum.. ber á ofan.. í dúnúlpu.. með svona bjórbumbu... ég gjörsamlega bráðnaði.. og bað um símanr.. þannig að næsta helgi er plönuð hjá mér.. :)) I´M GOING ON A DATE!
adios!
Stina at 4:45 PM





Stina at 5:40 AM

Monday, November 25, 2002

Þetta er uppáhalds síðan mín í dag.. langaði bara að leyfa ykkur að skoðana líka..
en annars var ég að koma úr vinnunni.. fékk að sjá bikarinn sem 11-11 fékk fyrir keilumótið.. veistu ég get nú bara sagt að hann hefði verið flottari ef það hefði verið fljótandi bjór í honum.. nú eða bara vodki.. :) Nú er ég að hugsa hvað ég geti verið í afmælinu hennar systur minnar.. það er grímuafmæli.. en mér dettur ekkert í hug.. nema kannski að vera garðálfur.. ætluðum reyndar að vera milli vanilli.. en þeir eru ekkert rosalega heillandi :) ég ætla að gera lista hérna yfir búningana sem ég myndi vilja vera..

1. Garðálfur

2. Mcdonalds franskar.. reyndar svoldið erfitt að gera það en mig langar að vera það ;)

3. Olga Færseth

4. Svalaber

5. kannski barbavæn

jaaa.. mér dettur ekkert í hug.. en endilega segið mér hvað ég ætti að vera af þessu.. getur vel verið að ég verði það.. ;) og skoðið þessu síðu.. Þetta er hann George Glass framtíðargaurinn minn..
Stina at 4:20 PM

Charlie Brown



I am Charlie Brown

Which Peanuts Character Are You Quiz


Stina at 5:08 AM

Sunday, November 24, 2002

cocktailsósa.. gæti verið reðurhalasósa.. ef mar þýðir fremripartin.. :)
svona pælir mar í þegar mar hefur ekkert að gera.. og er svangur..
Stina at 7:45 PM

Buuuuuuuuuuuubbi byggir,
[getum við lagað það]
Buuuuuuuuuuuubbi byggir
[ég held nú það]

Skófli, Moki, Hringla,
valti net.
Loftur, Selma, Bubbi,
gæta okkar hér.

Buuuuuuuuuuuubbi byggir,
[getum við lagað það]
Buuuuuuuuuuuubbi byggir
[ég held nú það]

Með Bubba og hinum,
gaman er.
Þau hjálpast að,
við hvað sem er.
[dúng, dún, dunrununn dúnn]

Langaði bara að leyfa ykkur að fá lagið sem ég er búin að vera með á heilanum í allan daga.. á heilann.. :)
Stina at 12:40 PM

Í framtíðinni fæ ég svona bíl þegar ég er orðin rík forsetafrú.. rúnta ég um með einkadriverinn og irka á meðan.. tala við fólk meðan ég er í hallormstaðarskógi að tína ber.. eða driverinn að tína ber..
Svo náttla má ekki gleyma síðunni sem ég klikka alltaf á til að komast í stuð.. The love site ehe :)
Stina at 11:45 AM

Jæja þá er þynnkudagurinn runnin upp.. reyndar ekki með þynnku hjá mér.. var komin heim til mín kl 2.. sem er mjög slappt finnst mér.. en það var ekkert það mikið um að vera þannig að þetta var fínt.. en annars.. þá fór ég í afmælið hjá Gummo í gær.. með Ladyj, candyman og systir hans.. þetta var alveg mjög fínt afmæli.. nóg áfengi handa manni og svona.. snittur líka.. má ekki gleyma snittunum sem mamma hans gerði fyrir þetta.. allavega var ein manneskja með andlitið ofaní þeim.. og hrúaði þessu á sinn stað.. það var hann candyman.. hann át þetta eins og hann hafi fengið borgað fyrir það.. en þetta var nú ekki gert sem skraut þannig að það var í lagi.. :) Svo var komið og sótt Ladyj þannig að við ákvaðum að fylgja með.. og fórum heim til hennar.. sátum þar og drukkum eitthvað.. svo komu Dagmar og Kisi.. og við rúntuðum aðeins með þeim.. en svo var bara farið heim.. skutla candymanninum heim.. og ég fór heim í rekkjuna mína.. svaf þangað til að mér var orðið svo heitt á löppunum að ég var að klæða mig úr sokkunum.. hata að vera heitt á löppunum.. Annars er ég farin að fíla Tatu - all the thing she said lagið.. en.. Adios! :)
Stina at 11:25 AM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs