creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, November 16, 2002

Væri mar ekki til í að Date Jesus ;)
Stina at 6:47 PM

Mér finnst rosalega gaman að fara í bað.. kannski af því að við eigum fullt af svona.. fljótandi dóti.. öndum, froskum, og nashyrningum eða eitthvað.. það er rosalega gaman að leika sér með þetta.. en áreiðinlega það versta við baðið er þegar mar er að þvo á sér hárið.. og sápan fer í augun á manni.. þetta er bara óþæginlegt.. ég er alvarlega að pæla í því að hætta að nota sápu.. annars.. nei.. ég geri ekki "vinum" mínum það.. en.. ég er víst að fara að vinna á morgun kl 9.. þannig að ADIOS! :)
Stina at 6:03 PM

Results... gothic
what fucked version of hello kittie are you?

brought to you by Quizilla
Stina at 4:16 PM

Rakst hérna á eina bloggsíðu.. Trúboð ég er svo hjartanlega sammála þessum aðila.. Omega er eitthvað sem fólk ætti að horfa á minnst einu sinni á dag.. þetta er snilldarstöð.. og ef ég ætti 5000kr þá myndi e´g láta þá fá það.. áfram Omega HALLELÚJA!
Gaman þegar orðin manns koma svona á netið.. var að deila fólki frá því hvað ég mátti ekki gera þegar ég var lítil.. ég mátti t.d. ekki leika mér að kerti.. eða kertavaxi.. þá var ég stofna sjómönnunum í hættu.. þessu trúði mar.. og svo var jólasveininn í svo miklu uppáhaldi hjá mér.. að ég ákvað að vaka alla nóttina til að sjá þegar hann léti dótið mitt í skónni.. en þraukaði til 4.. og þegar ég vaknaði þá var kartafla í skónum mínum.. :/
samt þorði ég aldrei að vaka eftir tannálfinum.. fannst hann svo spúkí.. systir mín var líka búnað segja mér geðveika sögu af honum.. "hann fer undir koddann þinn og tekur tönnina sem er þar.. og fer svo til álfa drottningarinar.. og gefur henni tönnina.. svo gengur hún með tannahálsmen.. allar tennurnar sem þú ert búnað missa" Þetta var frekar spúkí fyrir mér.. alveg eins og vögguvísan.. "og úti bíður andlit á glugga" mamma söng þetta alltaf fyrir mig.. en ég fékk líka martraðir.. hver semur svona lag fyrir börn.. mar leit alltaf svona af og til.. til að tékka á því hvort það biði eitthvað andlit á glugganum.. ég veit allavega að ég syng þetta ekki fyrir barnið mitt í framtíðinni.. Adios!
Stina at 11:33 AM

Afhverju er mar bara svona vinsæll á föstudögum.. föstudögum sem mar ákveður að djamma ekki á.. þá stoppar ekki síminn.. en þegar mar ákveður að fara að djamma.. þá eru "vinir" manns með slökkt á sínu síma.. ég vildi að það væru alltaf föstudagar sem ég er ekki að fara að djamma á.. þá fær síminn minn að njóta sín..!
En jæja.. þarna heyri ég rúmið mitt og strumpana kalla.. adios!
Stina at 12:03 AM

Friday, November 15, 2002

Halli Litli frændi minn sendi lag á Jon.is og náði nú mjög fljótlega að komast sér.. eða komast í fyrsta sæti yfir vikuna.. eða reyndar fyrsta sæti yfir nýjustu lögin.. :) lag sem hann og vinur hans sömdi um vin sinn sem dó úr krabbameini núna fyrr á árinu.. RIP Hjörtur
Stina at 4:11 PM

Mér finnst of lítið af garðálfum í görðum hérna í Reykjavík.. man alltaf eftir því þegar ég sá myndina 3some hve mikið mig langaði að stela garðálf.. reyndar tókst það á einu djammi.. og sá garðálfur hefur fengið að njóta sín mjög mikið.. Hann heitir Ingibertur Garðar.. Garðar nafnið fékk hann á þjóðhátið í eyjum 2001.. en hann fór líka með til Þórsmerkur árið áður.. þar drukknaði hann með bílnum í ánni.. en það var náð að bjarga honum.. svo labbaði hann með mér yfir í langadal.. og.. algjörlega fékk að skemmta sér.. :) En ég hef ekki komist í návist vina hans.. þess vegna þarf ég að leita meira af görðum sem hafa garðálfa í sér.. þurfti að kaupa handa honum félaga sem var reyndar of lítill.. en.. ég ætla að fara að gera eitthvað af viti.. adios! :)
Stina at 1:44 PM

Thursday, November 14, 2002

Bad boy Bubby er myndin sem ég leigði sem gömul mynd í kvöld, með Spiderman.. sko.. spiderman er mynd sem ég hefði alveg viljað að væri ekki til.. ég var engan veginn að fílana.. ef ég hefði fengið að vera með fjarstýringuna í hendinni.. þá hefði ég spólað út myndina og horft á hana þannig.. en Bad boy Bubby.. þetta var snilldarmynd! Algjörlega sick kelling.. og hann náttla handónýtur.. plasta köttinn sinn inn af því að mamma hans laug því að honum að kettir önduðu ekki.. þessi mynd er bara möst sí.. ég mæli allavega með henni.. og spiderman.. fyrst hún var gefin út.. þá náttla er alveg ágætis afþreying að horfa á hana.. en bara þegar hún kemur í sjónvarpið.. ekki þess virði að eyða 500kr í.. :) adios!
Stina at 8:26 PM

Ég þoli ekki þegar karlmenn geyma veskinn sín í rassvasanum.. fyrsta lagi þá er ekkert heillandi að sjá karlmann með risaveski í rassavasanum.. leyfa manni að njóta þess að skoða rassinn í stað þess að hafa einhvern fylgihlut þarna fyrir.. í öðru lagi.. þá beygla þeir öll kortin sín.. semsagt mar þar sína tækni í það að renna beygluðu korti í gegn.. og svo ef þeir eru að borga með klinki.. þá fær mar svona heitt klink.. og heitt klink.. er alveg eins og setjast á heita klósettsetu.. sem er náttla bara óþæginlegt..
Sem minnir mig á það.. ætli það sé hægt að fá klósettsetur sem hægt er að kæla niður.. ég hef allavega einu sinni sest á mjúka klósettsetu.. það var alveg þæginlegt.. en það er eitthvað sem mar á bara að upplifa einu sinni.. PLASTKLÓSETTSETUR! þá hljóta að hitna ekkert vel.. eða bara halda sig við gamla góða koppinn sem mar notaði einn.. Jæja adios! :)
Stina at 4:04 AM

Wednesday, November 13, 2002

Það voru skátastelpur að þræða búðir í gær og syngja fyrir fólk sem vann þar.. Þetta var rosalega sniðugt og allt það... en þetta gerði það að verkum að mér kveið fyrir ÖSKUDEGINUM! :( en það verða náttla helmingi fleiri krakkar.. þetta voru bara 8 stelpur eða svo.. sungu.. mæja átti lítið lamb, atti katti nóa.. og þarna.. "æj mamma gef mér rós í hárið á mér því tveir litlir strákar eru skotnir í mér annar er blindur en hinn ekki sér æj mamma gef mér rós í hárið á mér" það fannst mér alltaf svo skemmtilegt lag.. en þegar ég var að syngja á öskudeginum.. þá tók ég alltaf alla rununa af þarna.. ömmulaginum.. "ég langömmu á sem að létt er í lund" og fékk alltaf fullt af nammi.. :)
en adios! þarf að sinna Margréti Lind :)
Stina at 4:04 AM

Tuesday, November 12, 2002

Rosalega hlýtur að vera gaman að hanga fyrir utan 11-11 á kvöldin.. það allavega var stappan af unglingum fyrir utan vinnuna hjá mér í kvöld.. þetta hlýtur að fæla viðskiptavinina frá.. þegar ég var á aldrinum 6-12.. þá var ég svvvooo hrædd við unglinga.. að ég gat varla labbað í skólan.. t.d. þegar ég var að labba göngustíg.. og unglingar komu á móti mér.. þá þurfti ég alltaf að taka langan sveig framhjá þeim.. eða ákváð að fara lengri leiðina á þann stað sem ég ætlaði að fara á.. gat ekki farið útí búð ef unglingar voru þar.. þorði ekki að labba í gegnum unglingadeildina.. ég var með unglingafóbíu á hæðsta stigi..
Jæja.. það er margt sem mætti taka úr þessari 11-11 búð til að gera líf okkar starfsmannanna skemmtilegra.. t.d. Nammibarinn.. þetta er það mest leiðinlegasta dæmið sem hefur verið komið fyrir í búð.. sérstaklega á laugardögum.. fyllist búðin af krökkum sem eru að fara að kaupa sér nammi á 50% afslætti.. og koma svo að kassanum og biðja um að vigta.. fara af því að þetta er ekki akkúrat 100kr og koma svo aftur.. og ef þetta er yfir.. þá þurfa þau að fara aftur.. taka úr.. og koma aftur.. svona er allur laugardagurinn fyrir manneskju sem er að vinna.. sem er alveg svaðalega gaman..
Annars er alveg fullt af fólki þarna sem lætur manni skemmta sér vel í vinnunni.. hresst fólk sem verslar þarna. .samt alveg rosalega leiðinlegt að lenda á fólki sem öskrar á mann fyrir hve verðið er hátt.. og að þetta skuli ekki vera jafn gott og áður.. og bla bla bla..
annars fór ég á Betu Rokk síðuna.. og dl laginu hennar.. BUTT LEIÐINLEGT lag.. og að fólk skuli segja að þetta sé skemmtilegt.. þetta er með þeim alverstu lögum sem ég hef heyrt.. að hún skuli gera sjálfri sér það að leyfa fólki að heyra þetta.. Þetta er svona.. milli vanilli nútímans.. milli vanilli var náttla skemmtilegt á sínum tíma.. og þetta lag gæti verið skemmtilegt á þeim tíma.. þar sem þetta er svo hallærislegt lag.. en váh.. ég nýt þess að láta fólk dl því.. til að heyra hve hallærislegt þetta er.. ég styð bara Dóra Feita lagið núna.. það er sko u2 miða þetta lag.. :) adios!
Stina at 4:08 PM

Monday, November 11, 2002

Æjjj hvað mér fannst ég vera fyndin í vinnunni áðan.. kom kona að kassanum með dvergkanínufóður.. og spurði "er ekki hægt að gefa kanínum þetta?" ég alveg.. uhhm.. skoðaði kassan vel.. vissi ekkert hvort það væri hægt.. svo ég ákvað að segja bara við hana "borða dvergar ekki það sama og við?"
þarna fékk ég nú að sjá í fyrsta sinn kúnna öskra úr hlátri yfir því sem ég segi.. og tímin leið hraðar þennan dag.. :)
Stina at 4:00 PM

Vinnan að fara að byrja.. ég er svo ekki að nenna að fara.. en mar víst að láta sig hafa þetta.. Mig langar mest bara að eyða deginum í það að horfa á Olgu Færseth og Sms dverginn á veggnum mínum.. en.. mar víst að fá pening til að borga eitthvað af þessu sem mar hefur verið að kaupa.. helvítis svarta kortið!!
Stina at 10:15 AM

Yndislegar myndir sem komu úr þessu rolludjammi.. ég ætla að láta nokkrar flakka.. :) Ladyj og ég ég hef áreiðinlega verið að segja eitthvað fyndið :) Lothos = Blómi og Boost^ því miður er ég það ónýtur irkari að ég man ekki alvöru nöfnin á þessu fólki.. :/ Eyesonly, ^phoebe og solly svona látum þetta nægja.. Adios! :)
Stina at 6:41 AM

Sunday, November 10, 2002

Ég var að download Yahoo messenger áðan.. svaka fínt dæmi.. :) en allavega ef þið viljið adda mér.. þá er ég undir creepzjr :)
Stina at 12:56 PM

Þetta var nokkuð skemmtilegt djamm í gær.. Byrjaði í rollupartý-i.. að deginum höfðum við ákveðið ða vera svoldið svalar.. ég og Ladyj.. og ákváðum að kaupa uppblásna kind til að fara með í þetta rollupartý.. en neii.. við fundum enga uppblásna kind.. en fundum aftur á móti lyklakippu sem var rolla.. og ef mar kreisti magan á henni þá var hún að skíta.. bara flott.. en svo mættum við í þetta rollupartý um 22.. og vorum fyrst á svæðið! :) sem er líka bara mjög gott.. svo byrjaði fólkið að hrúgast inn.. og í mesta vorum við.. hvaa.. 9.. minnir mig.. en þetta var alveg mjög skemmtilegt fólk.. léttklikkað ;) svo var talað.. og drukkið fram að hálf 2 minnir mig.. og þá var skellt sér í bæinn.. fórum inná Nellys.. þar sem það var nú alveg slatta mikið af fólki.. en mar endist þar ekki lengi.. þar sem Barinn (gamli vegas) heillaði mann meira.. áreiðinlega vegna þess að systkyni manns voru þar.. svo var Óðfluga líka að spila.. mjög gaman af því.. Siggi ákvað líka að taka einsöng með Leoncie laginu "Come on Viktor" sem varð áreiðinlega til þess að við vorum rekin útaf þessum stað.. kl var orðin um 4.. og staðurinn lokaði þá.. þannig að leiðin lá niðrá Glaumbar.. sem er mjög fínn staður.. nema bara var of troðin.. og rosalega lítið dansgólf.. það var ekkert hægt að hreyfa sig þarna inni.. sátum þar í einhvern kltíma eða svo.. og hlupum svo inná amsterdam.. settumst að þarna niðri.. Vilhjálmur Goði og Pétur úr buff voru þar.. en við erum svo frábær.. að við hlunkuðum okkur bara á borðið þeirra.. og greinilega það frábær.. að við náðum til að fæla Pétur í burtu.. en ekki Vilhjálm.. :) en þessi nótt endaði þarna inná Amsterdam.. ákváðum að drulla okkur bara heim.. vorum ekki með húslykla eða neitt.. En tilhvers eru bræður annars til.. ;)
svo var ég að finna mest snilldar lag sem ég hef heyrt í nokkra mánuði.. klikka á muzik og dl Dóra feita það er snilld.. en jæja.. adios
Stina at 7:25 AM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs