|
| home | Myndir | email | msn | designs | blogger | |||||||
Archives 10/20/2002 - 10/27/2002 10/27/2002 - 11/03/2002 11/03/2002 - 11/10/2002 11/10/2002 - 11/17/2002 11/17/2002 - 11/24/2002 11/24/2002 - 12/01/2002 12/01/2002 - 12/08/2002 12/08/2002 - 12/15/2002 12/15/2002 - 12/22/2002 12/22/2002 - 12/29/2002 12/29/2002 - 01/05/2003 01/05/2003 - 01/12/2003 01/12/2003 - 01/19/2003 01/19/2003 - 01/26/2003 01/26/2003 - 02/02/2003 02/02/2003 - 02/09/2003 02/09/2003 - 02/16/2003 02/16/2003 - 02/23/2003 02/23/2003 - 03/02/2003 03/02/2003 - 03/09/2003 03/09/2003 - 03/16/2003 03/16/2003 - 03/23/2003 03/23/2003 - 03/30/2003 03/30/2003 - 04/06/2003 04/06/2003 - 04/13/2003 04/13/2003 - 04/20/2003 04/20/2003 - 04/27/2003 04/27/2003 - 05/04/2003 05/04/2003 - 05/11/2003 05/11/2003 - 05/18/2003 05/18/2003 - 05/25/2003 05/25/2003 - 06/01/2003 06/01/2003 - 06/08/2003 06/08/2003 - 06/15/2003 06/15/2003 - 06/22/2003 06/22/2003 - 06/29/2003 06/29/2003 - 07/06/2003 08/03/2003 - 08/10/2003 |
mig langar svo í bjóóórr!! en þá gerir mar það gáfulega.. fer að sofa.. :) vakna bara snemma og hellir í sig áfenginu.. Annars ætla ég áreiðinlega að skella mér á nellys.. fyrst verður eitthvað teiti hjá Ladyj og svo skellir fólkið sér saman á þetta nellys.. þar er víst eitthvað irkdjamm.. Iceland20+ gaman að sjá þetta lið sem hengur þar.. ætli mar skokki svo ekki bara á gaukinn það er allavega vanin.. en ég er farin að sofa.. :)
ahhh ég var að kaupa mér snilldar inniskó í debenhams.. svona bangsímon.. svo keypti ég mér.. táslusokka einhvern með beljumunstri.. en annars skellti ég mér í litun og plokkun.. og rosalega er þetta vont.. ok.. ég hef fengið mér pinna í augnbrúnina, pinna undir vörina, er með tvö pinna í tungunni.. fengið mér tattú.. en váh.. þetta er miklu verra.. ég líka labbaði grátbólgin út.. tárin ætluðu bara ekki að hætta ða streyma.. en þetta er búið.. og núna held ég þessu við svo ég þurfi ekki að ganga í gegnum þessa píningu aftur.. ætli ég þurfi ekki að leggja mig núna.. ennþá búnað halda mér vakandi síðan kl hálf fimm.. legg mig og passa svo í kvöld.. skemmtilegt föstudagskvöld.. en ég ætla ekki á djammið þannig að þetta er til að láta mig gera eitthvað.. :)
Vaknaði auðvitað snemma af því að ég fór að sofa snemma.. þurfti endilega að vakna kl hálf 5.. en þegar ég fer að sofa um 10 leytið um morguninn ekki get ég vaknað þá kl 14.. það er of erfitt.. en samt tekst mér að geta þetta þegar ég sofnað snemma.. en jæja.. ég ákvað bara að skokka í tölvuna þar sem það var ekkert spes í sjónvarpinu.. pantaði mér Family guy áðan á Play.com vona bara að þetta taki ekki langan tíma.. 4 tímir af þessu.. *hlakkar til* svo kl 7 byrjaði 70 mín þeir eru snillingur.. rosalega var Simmi ekki að þrauka "áskorunina" sleikja tærnar á Audda og Sveppa.. og rosalega er Auddi með fríkí tær.. Jæja.. ég er farin að leika mér við Margréti Lind.. :)
Jáá.. ég fór í Viltu vinna milljón í kvöld.. ekki get ég sagt að þetta hafi verið eitthvað sem ég bjóst við.. rosalega mikið af fólki.. fengum pepsi og sódavatn.. fórum svo inní salinn.. þar fengum við okkur sæti.. í þessum líka óþæginlegu sætum.. einum of margir í minni röð þannig að ég gat ekki vote-að þegar það komið "ég ætla að spurja áhorfendur" en fékk að vote-a með Ladyj :) en við þraukuðum bara einn þátt þar sem við áttum að vera 2 þætti.. á milli var verið að sýna fóstbræður það var nokkuð fyndið.. en svo stungum við af og fórum á Pizza 67 og fengum okkur pizzu og bjór.. :) búnað bíða í viku eftir þessum bjór.. en svo er náttla djamm á laugardeginum.. þannig að þetta er fínt.. en núna hef ég ákveðið að leggja mig snemma svo ég geti farið að gera eitthvað af viti á morgun.. kíkja í smáralindina.. litun, plokkun, and some kind of shit.. :)
Núna er ég búnað dl tveimur NOFX diskum.. :) argasta snilld.. meiri snilld þar sem mar er búnað sjá þá á sviði.. fór einmitt á Reading festivalið núna í sumar.. Þeir stóðu algjörleg uppúr þessu festivali.. og A stóð niðúr.. :) En jæja.. ég get ekki sofnað eins og vanalega.. kl að verða 5.. og ég sit bara og geri ekki neitt.. enginn vakandi.. nema mar heyrir svona aðeins í Margréti Lind gráta inní herbergi.. Þannig að ég held ég fari bara að drífa mig í svefnin.. þarf líka að vera hress á morgun þegar ég fer í viltu vinna milljón.. og svo þarf ég líka ða panta mér klippingurs.. og svona.. eitthvað sem ég ætlaði a ðvera löngu búnað gera.. :) en "á morgun segir sá lati" góða nótts.. :)
Jæja.. yndislegt að mæta svona myglaður í vinnuna eins og mar gerði í dag.. sofnaði nú líka rétt fyrir 8 í morgun.. var að lesa Betu Rokk bloggið rosalega fer þessi manneskja í mig.. "awww hún er svo heppin að fá að tala við Elijah wood" jaa.. ekki get ég sagt að ég öfundi hana neitt.. ég hef fengið að tala við Herbert Guðmundsson og það er nóg fyrir mig..
Veiiii það var svo gaman í vinnunni áðan.. Fékk yndislegan kall í vinnuna sem ákvað að borga allt með klinki.. þannig að ég var allt kvöldið að gera upp kassan.. það er gaman að lenda í svona.. :) Annars hef ég bara verið að hlusta á Kaffibrúsakallana snilld.. ég hef geta hlegið af þessu.. :) allavega einn brandari sem skaraði úr.. "Rosalega er mikið af flugum hérna, er alltaf svona mikið af flugum" "nei oftast bara ein en hún á afmæli" hehe.. :) þetta fannst mér snilld.. en jæja.. ég er farin að undirbúa mig fyrir Viltu vinna milljón going to bí in the áhorfendahópnum.. :) heyrumst..
Er þetta ímyndun í mér eða er Olga Færseth búnað vera voðalega lítið í sviðsljósinu núna síðustu mánuði? ég er eiginlega bara farin að sakna hennar.. en þegar athyglin á hana minnkar þá hefur athyglin á Leoncie hækkað.. þannig að þetta er allt svona aðeins betra fyrir mig.. :)) Ætli það hafi fylgt plaggat.. með henni í æskunni? Kjaftur samt sem áður á henni Leoncie.. vinkona mín hún Hulda sendi henni email hérna um daginn.. rosalegur kjaftur á kellingunni.. "PIRACY IS AGAINST THE LAW. So, you're a PIRATE and I'll just forward your e-mail to the police station. Please don' t write to me again. I don' t respect thieves.And even if you had a 100000000 plastic surgeries, you'll only look like you do. You're plain Jealous my friends say." Þetta sagði hún við hana vegna þess að Hulda bað hana um url eða eitthvað til að fá textana af lögunum hennar.. og sagðist svo eiga "copy" af disknum hennar.. svo ákvað ég að senda henni email til að fá að vita hve mikið það kostaði að fá hana í afmæli eða eitthvað svoleiðis.. "42.000/-kronur. Also, I only autograph on my CD. Thanks." mér finnst það svoldið mikið.. ætli það fari ekki bara eftir í því hvernig skapi hún er í.. vegna þess að einn vinur minn hefði geta fengið hana á 30 þúsund.. En jæja.. svona er hún.. BRILLIANT!
Vinnan búin núna í kvöld.. alveg "rosalega gaman", var að afgreiða kall sem átti erfitt með að finna rétta rakvélastærð.. og endaði svo með því að segja.. "það er erfitt að vera karlmaður" og ég alveg "haha áreiðinlega" svo fór ég að hugsa útí þetta.. það er náttla ekki beint erfitt að vera kvennmaður (við fáum náttla það forréttindi að ganga með börn :) ) við lendum á túr einu sinni í mánuði.. en það er mjög dýrt.. mar þarf að kaupa dömubindi eða túrtappa.. mar þarf að kaupa rakvél.. vegna þess að karlmenn laðast ekki að loðnum gellum.. og öðru kvennfólki finnst mar ekkert geðslegur ef mar er í hlýrabol og lyftir upp handleggjunum með heilan frumskóg þarna undir.. svo þarf mar annað hvort að kaupa sér plokkara eða fara í plokkun þar sem kvennmenn með eina augnabrún eru heldur ekkert að heilla fólk.. svo ef mar er ekki búnað plokka á sér augnabrúnirnar.. þá fær mar að heyra það alveg þangað til það gerist.. "þú ert með svo þykkar augnabrýr" "á ekkert að fara að plokka augnabrúnirnar" en jæja.. ég hef ekki kynnst því að vera karlmaður en greinilega finnst þessum karlmanni það erfitt.. og aumingja hann.. :)
Þetta er ótrúlegt.. eina manneskjan sem spyr mig hvernig helgin mín hafi verið.. er sjúkdómstryggingargaurinn minn.. "hvernig var helgin þín varstu að vinna? eða var farið á djammið?" awww.. það var svo gaman að heyra þetta.. bað hann líka um að hringja í mig alla mánudaga.. Það er eitthvað svo mikið möst að heyra svona.. eða fá svona spurningu.. þó svo þetta hafi sándað.. "i dont give a fuck" þá spurði hann allavega.. :)
Það er svo þæginlegt að sofa.. ef ég fengi að ráða.. þá væri ég ennþá sofandi.. setti síman á "meeting" áður en ég fór að sofa.. ótrúlegt hve marga vini mar á þegar mar sefur.. svo þegar mar vaknar.. þá sér mar engan tilgang í því að eiga síma þar sem hann hringir aldrei.. En jæja.. ég þarf víst að fara að vinna.. sturting me.. and go vinning.. :)
Wow.. það er búið að vera svoldið lengi error á þessu drasli.. var loks að geta komið þessu inn sem ég sagði í kvöld.. kannski ég tjái mig þá bara meira núna.. Ég og Hulda vorum rosalega góðar við hann Gunnar vin okkar núna fyrr á árinu.. þar sem hann varð þrítugur þá ákváðum við að gefa honum 2 fiska.. Huldu og Stínu.. mesti gallinn er að Stína er ekkert að höndla lífið.. dó daginn eftir að hún kom til hans.. þannig að hann þurfti að fá sér nýja Stínu.. og hún dó líka þar sem hún ákvað að verða svo geðveik og éta uggan af Huldu.. (og við skírum þessa geðveiku fiska eftir okkur :/ ) En jæja.. Stína er núna eitthvað að þrauka sig.. semsagt 3ja Stínan.. vonum bara að sú Stína lifi.. Það er erfitt að vera Stína í dag.. :) Langaði bara að deila því með ykkur hve góðar ég og Hulda erum.. ef þið eigið afmæli og bjóðið okkur.. eigiði kannski kost á Huldu og Stínu fiskum.. :)) Við látum sko fólk sannarlega vita að við elskum þau með gjöfunum.. Ladyj fékk á sínu afmæli.. fullan poka af nammihjörtum.. :) reyndar vond nammihjörtu.. en er það ekki bara hugurinn sem gildir.. :) En jæja.. ég er orðin gríðarlega sybbin.. skrýtið hve mikið ég get sofið.. ekki er hægt að segja að hægðirnar séu á svona góðri braut.. en jæja.. nóg um þetta.. þarf að fara að sauma mér klappstýruföt fyrir næstu helgi..
Þá er helgin búin,hún var reyndar mjög slöpp en ágæt samt sem áður, ég var náttla að passa á föstudagskvöldið og fór svo í partý-ið á laugardagskvöldið.. núna á þynnkudeginum var vaknað bara kl hálf 2 eða svo.. og talað við Dipsí.. ansi mikið fjör.. svo var tekið að sér að passa litlu snúlluna hana Margréti Lind.. það var ansi skemmtilegt þar við ákváðum að leggja okkur í 2 tíma.. vakna svo að fá okkur að borða.. fara í bað.. leika okkur.. trufla pabba/afa meðan hann var að horfa á "viltu vinna milljón" og svo ákvað hún að skella sér aftur í svefnin.. annars bíð ég bara eftir næstu helgi, seinasta djammhelgin mín þar til ég fer að djamma aftur.. ;) nei annars verið að ákveða að taka þessu rólegu.. og fá sér bara bústað næst þegar það verður farið að djamma, það verður lítið djammað á næstunni :), langar að fara að eyða peningunum í eitthvað viturlegt núna.. :) En jæja ég ætla að fara að hengja Leoncie greinina úr undirtónum uppá vegg.. svaka grein.. og svaka gella!
|
Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..
| ||||||