creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Saturday, October 26, 2002

Jæja.. ég fór á djammið.. fór í eitthvað heimahús sem ég hef aldrei farið í áður.. en mér leið eins og ég væri í afmælishátíð ellismella þegar einn byrjaði að dansa.. má Þessi gaur láta dans"listina" eiga sig.. þetta var allavega hörmung.. og ég þraukaði ekki lengi.. var algjörlega butt þreytt.. þó ég hefði ekki búist við því.. but "shit happens" góða nótt.. :)
Stina at 9:36 PM

Er þá ekki bara málið að skella sér í RÍKIÐ!! :)
Stina at 6:52 AM

Friday, October 25, 2002

Fyrsti Föstudagurinn tekin með trompi.. ég var semsagt að vinna í dag.. tók 2 tíma í aukavakt.. 2 tímar er kannski ekki mikið.. en það er þó allavega eitthvað.. fyrir ykkur sem ekki vita þá er ég að vinna í 11-11 en á þessum tveimur tímum lenti ég í miklu.. fyrsta lagi þá komu sjúkdómatryggingamenn með eitthvað svaka trygginga dæmi.. þannig ég núna er ég skráð með sjúkratryggingu.. frábært hah.. kannski svona í lagi.. ef ég skyldi nú "falla frá" þá fá foreldranir mínir einhverja peninga útúr því.. og ef ég fæ einhvern svaka sjúkdóma.. þá er ég að fá einhvern pening uppí hendurnar.. En jæja.. þetta kvöld verður víst bara tekið rólega.. ætla bara að slappa af heima og passa litlu frænku mína hana Margréti Lind En á morgun verður bjór við hendina.. og haft það fínt í einhverju heimahúsi.. kannski mar skrifi einhverja diska fyrir þetta.. annars var ég að dl lögum með Stone Sour þar sem Corey Taylor einn af meðlimum hljómsveitarinar Slipknot syngur.. Þetta er ágætisdiskur svosem.. en samt.. :) Svo dl ég disknum með Audioslave fyrir ykkur sem vita ekki hvaða hljómsveit það er.. þá eru meðlimir Rage Against The Machine og Chris Cornell búnað setja saman þessa hljómsveit.. og þeim tókst þetta bara vel.. Ég allavega get sagt að þessi diskur er frábær.. Hann rennur algjörlega í gegn hjá mér.. eitt *klapp* fyrir þessu.. :) mæli með því að þið kaupið þennan disk (ætla ekkert að vera að mæla með einhverju downloadi :) ) En annars.. ég er að pæla í að fara og fá mér pulsu.. eða eitthvað.. :)
Stina at 1:05 PM

Thursday, October 24, 2002

Núna er víst margt búið að bættast við á þessum stutta tíma.. sýnir bara hvað ég hef mikið að gera þessa dagana.. t.d. komið inn Hugsun og margt annað :) og smá lýsingar um mig fyrir ykkur sem vita ekki hver Ég er..
Stina at 10:44 PM

Jæja núna var Temptation Island að enda.. rosalega eru þetta furðulegir þættir.. reyndar hef ég ekkert álit á þeim.. en hef samt sem áður mjög gaman að fylgjast með þessu.. bara vegna þess hve fáranlegt þetta er.. Ekkert heilbrigt par myndi gera þetta.. allavega af mér að dæma er þetta fólk ekki heilt á geði.. testa maka sinn í svona þætti.. en jæja þessir þættir virðast draga að sér áhorfi þannig að um að gera að sýna þetta.. Annars væri ég alveg til í að fá
Family Guy hingað.. Það eru snilldarþættir.. ég er komin langleiðina með því að panta fyrstu dvd seríuna.. VÚHÚ! þá verð ég komin með þetta til mín um mánaðarmótin og get "chillað" fyrir framan sjónvarpið með eitthvað sem varið er í.. Annars eru fullt af þáttum sem varið er í á Skjá einum.. en bara á það óheppilegum tíma að ég missi af þeim.. Survivor eru t.d. á mánudagskvöldum.. akkúrat þegar ég er að vinna.. hmm.. margt fleira.. en það þýðir ekki að kvarta.. i got Neighbours on my time.. :) ætli það sé ekki bara nóg..
Stina at 4:11 PM

gestabókin mín svona skrifið endilega í hana.. :) i want people to think i have some friends.. :)
Stina at 2:02 PM

Ég var víst búnað skrifa helling en það klikkaði eitthvað.. Svona eru þessar heimasíður ekki alveg nógu öruggar.. En já.. ég fékk fallegt vakn í morgun.. Dipsí hringdi í mig.. uhhmm morgun kannski alveg rétt orðað þar sem kl var 17.. en hún var að segja mér að það yrði Laugardagsteiti.. :) Mér finnst þetta ansi fallegt vakn þar sem mér hefur ekki verið boðið í teiti síðan í grunnskóla.. þar sem það voru afmælisteiti og svona "Öllum í bekknum er boðið" þannig að ég fylgdi með, ef ég hef viljað fara í teiti þá hef ég þurft að halda þau sjálf.. farið á Irkið "creepz: krakkar það er partý hjá mér á laugardaginn viljiði koma?!"
Svo endar þetta í því að við sitjum fimm eða sex heima hjá mér.. eigum erfitt með tjáningar þar sem allir hafa mest getað tjáð sig bara bakvið tölvuskjáinn.. nema svona hoppar upp ein og ein setning "sexyboy hvað finnst þér svo skemmtilegast við irkið?" "Fridur27 þú sagðir að þú værir 27 kk gbr hvernig er að búa þar?" en jæja.. þetta er allt búið að breytast ÉG ER AÐ FARA Í PARTÝ!! :)
Stina at 11:42 AM

Wednesday, October 23, 2002

Hell on a stick.. jæja.. teljarinn virðist ekkert fara í gang.. ekki nema það sé enginn að fara á þessa síðu.. endar með því að fara í mínus.. :) nú hefur nóttin mín bara farið í það að horfa á simpson.. fann einhverja spólu sem ég hef ekki séð lengi það var frábært.. núna fer restin í það að hlusta á Pearl Jam eða.. ætli ég fari ekki bara bráðum að fara að sofa.. *feik geisp* Jæja blátt pepsí bara komið, sniðugt ekki satt.. nei annars er þetta pepsí ekkert spes.. nákvæmlega eins og hitt sullið, ákvað að prufa að kaupa það vegna þess að það var bara svo heillandi.. fólk búið að vera að versla þetta allan daginn hjá mér.. þannig að ég ákvað að vera eins.. en mér tókst ekki að vera alveg eins vegna þess að þau halda áfram að kaupa þetta en ekki ég.. Mig langar svoldið að smakka þetta Diet coke með lemon bragði.. en samt ekki.. frekar mikil eftirlíking af Pepsi twist.. að blanda saman kóki og sítrónu.. þetta er eins og að blanda saman.. hvítlauki og kakó-i.. eða þarna.. jarðaberjakókómjólk.. það er viðbjóður.. Jæja nóg um þetta.. ég ætla að reyna að finna mér eitthvað að gera til dundurs.. þar sem ég hef ákveðið að láta Irkið eiga sig í einhvern tíma.. þetta er svona eins og að hætta að drekka fyrir mér.. þar yrðu fyrstu fimm helgarnar erfiðastar.. en í þessu tilfelli með irkið.. eru fyrstu tvær vikurnar áreiðinlega erfiðastar.. but i´ll þrauk.. læt mig bara falla í áfengið, tapa öllum mínum peningum, kenni svo netinu um og fer í mál.. ;)
Stina at 10:57 PM

Svona.. núna er áreiðinlega teljarinn komin líka ;) þetta er allt að koma hjá mér fólks.. annars meðan þið hafið ekkert að gera megiði endilega kíkja á kasmír síðuna mína.. :)
Stina at 7:28 PM

Jæja.. þá byrjar mar í svona dæmi.. vera eins og allir.. "inn" í dag.. :) Spurning hvað mar getur verið að segja svona í byrjun.. jaa.. kannski bara að ég hef haft það ágætt í dag.. vaknaði heldur seint um 18 leytið.. svona er þetta þegar mar vakir langt fram eftir.. en topp that.. ég afgreiddi Þorsteinn Joð áðan.. :) Ég hefði kannski átt að vera rosalega "fyndin" og koma með "er þetta lokasvar" eftir að hann var búnað segja "nei takk" þegar ég sagði "eitthvað fleira" það hefði verið svoldið spaugilegt ekki satt? :)
Svo fékk ég Pétur með glerauguí heimsókn til mín svaka stuð.. annars hefur dagurinn minn verið heldur leiðinlegur... horfa á mjólkurklukkuna í vinnunni.. fá Pétur með gleraugu í heimsókn.. fara heim.. og tja.. horfa á sjónvarpið.. fara að sofa... svona er þetta..
Stina at 6:15 PM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs