creepz
home | Myndir | email | msn | designs | blogger

Archives 10/20/2002 - 10/27/2002
10/27/2002 - 11/03/2002
11/03/2002 - 11/10/2002
11/10/2002 - 11/17/2002
11/17/2002 - 11/24/2002
11/24/2002 - 12/01/2002
12/01/2002 - 12/08/2002
12/08/2002 - 12/15/2002
12/15/2002 - 12/22/2002
12/22/2002 - 12/29/2002
12/29/2002 - 01/05/2003
01/05/2003 - 01/12/2003
01/12/2003 - 01/19/2003
01/19/2003 - 01/26/2003
01/26/2003 - 02/02/2003
02/02/2003 - 02/09/2003
02/09/2003 - 02/16/2003
02/16/2003 - 02/23/2003
02/23/2003 - 03/02/2003
03/02/2003 - 03/09/2003
03/09/2003 - 03/16/2003
03/16/2003 - 03/23/2003
03/23/2003 - 03/30/2003
03/30/2003 - 04/06/2003
04/06/2003 - 04/13/2003
04/13/2003 - 04/20/2003
04/20/2003 - 04/27/2003
04/27/2003 - 05/04/2003
05/04/2003 - 05/11/2003
05/11/2003 - 05/18/2003
05/18/2003 - 05/25/2003
05/25/2003 - 06/01/2003
06/01/2003 - 06/08/2003
06/08/2003 - 06/15/2003
06/15/2003 - 06/22/2003
06/22/2003 - 06/29/2003
06/29/2003 - 07/06/2003
08/03/2003 - 08/10/2003

Friday, August 08, 2003

Gaurinn sem talar fyrir Butthead.. í beavis and butthead.. er það sami gaurinn og talar fyrir.. King of The Hill kallinn?
Btw.. ég er að hugsa um að koma mér fyrir aftur á gömlu síðunni minni.. þar sem ég var farin að sakna urlsins á henni.. :D
Stina at 5:50 PM

Thursday, July 03, 2003

Myndir af Hróarskeldu :D
Stina at 5:09 PM

Wednesday, July 02, 2003

Jæja.. þá er ég komin heim eftir vikna dvöl í Danmörku..
Rosalega þæginlegt að komast uppí íbúð þegar mar var búnað lenda.. ekkert að vera að skella sér strax á Hróarskeldusvæðið.. svo var að sjálfsögðu kíkt í Kristjaníu.. og djammað þar í einhverna tíma.. á pöbb sem heitir Woodstock.. brjálaður Grænlendingur með engar tennur sem stalkeraði elínu þarna.. þangað til að við þurftum að fá Erlu til að reka hann í burtu á dönsku.. en hann kom alltaf aftur..
eftir það var bara skellt sér í svefnin til að vakna snemma og mæta á svæðið... tókum svo einhverjar 2 lestir daginn eftir til að komast á svæðið.. við ekkert búnað drekka.. allir skrautlega fullir í lestina að syngja og spila á einhvern kassa.. en mar tók nú samt sem áður undir.. svo náðum við þessum líka massíft góðum tjaldsvæðum.. þó við færum nú aðeins út fyrir línuna.. þá skipti það engu máli.. við fengum samt sem áður að vera þarna.. og vorum við bara við hliðná sjúkradraslinu, sturtunum, klósettunum, og brúnni sem mar kemst inná svæðið þar sem sviðin vorum.. þannig að þetta var nokkuð góður staður.. svo var bara plantað sér niður í 41 stiga hita.. og drukkið.. fundum ekkert staðinn til að kaupa okkur bjórkassana þannig að þetta kvöld lifðum við á bjórunum sem voru seldir í glösum þarna.. og var það nokkuð gott fyrir hana Guðnýju þar sem hún fann sér nýja leið til að græða peninga á svæðinu.. með því að hlaupa um allt og safna glösum.. og endaði þetta líka í 2 kössum fyrir okkur.. þannig að þetta var nokkuð gott hjá henni.. nema Siggi var ekkert voðalega sáttur þegar hún var farin að draga glösin með sér inní tjald af því að staðurinn sem tók á móti þeim lokaði svoldið snemma.. hann átti erfitt með að koma sér vel fyrir þarna.. mátti að sjálfsögðu ekki beygla glösin.. en þetta byrjaði á því að við horfðum á einhver bönd á odeon svæðinu til að byrja með þar sem það voru engar hljómsveitir að spila sem við þekktum.. og hlupum svo yfir á Arena sem var bara lengst útí rassgati frá þessu sviði allavega.. það var reyndar svoldið óþæginlegt hve sviðin eru langt frá hvor öðrum en við fórum þangað til þess að sjá The Streets.. gátum líka voðalega lítið séð þetta.. vorum bara að bíða eftir að metallica myndi skella sér á sviðið..
Stina at 8:41 AM

og svona hálfpartinn táruðumst yfir því að Dave Gahan væri á sama tíma.. en Metallica varð að sjálfsögðu fyrir valinu.. og sjáum við alls ekki eftir því.. þetta var alveg roooosalegt.. við urðum bara dolfallinn.. þetta var svo massíft.. svo voru þeir að setja inn flugeldar á milli.. sem gerði þetta bara að mestri snilld sem ég hef séð.. þetta meira að segja sló út Foo Fighters á Reading festivalinu.. eftir þetta þurfti mar aðeins tíma til að ná sér niður.. mar var búnað vera svo spenntur.. bara farið uppí tjald og drukkið sér eitthvað.. en allir voðalega þreyttir.. og vaknaði allt liðið eldsnemma um morguninn útaf þessari líka massífri sól.. allan tíman sem við vorum á Roskilde varð hitinn ekkert minni en 40.. nema náttla þegar það rigndi í 10 mín.. og við að sjálfsögðu dressuðum okkur upp og skelltum okkur uppá tónlistarsvæði í öllum regnfötunum.. lentum líka í því að fá næstum því sólsting af hita.. en dagurinn eftir Metallicu.. var líka þónokkuð góður.. þá var náttla Iron Maiden og Coldplay aðalnúmerin.. en við byrjuðum daginn á.. einhverju.. ég man ekki röðina á þessu.. þannig að ég ætla bara að segja hvernig böndin voru sem ég sá.. Iron Maiden voru ekki alveg að gera sig.. ég ákvað að læra flest öll lögin þeirra sem ég kunni ekki áður en ég færi út.. en það að sjálfsögðu tókst ekkert voðalega vel.. þar sem þeir tóku enginn lög sem ég þekkti.. en þeir voru samt sem áður alveg góðir.. flottir á sviðinu.. :D svo Coldplay.. ég fíla ekki þá hljómsveit.. en woooow.. þeir voru ekkert smá góðir.. þetta var alveg rosalegt.. hann var líka klappaður upp alveg 2var sinnum.. þetta var bara massíft.. flottur á píanó-inu.. The Sounds sáum við á seinasta deginum.. eða reyndar heyrðum við bara í þeim.. þar sem það var ekki séns að komast nálægt tjaldinu.. mjög flott hljómsveit.. góð lög.. en ég held að þetta séu bara góð lög svona live.. eitthvað sem mar myndi ekki nenna að hlusta á annars.. eina lagið sem ég kannaðist líka við með þeim var.. living in america.. held ég það heiti.. Dirty Vegas.. voru snilld.. massíf snilld.. og The Hellacopters.. þetta voru bara snilldar bönd.. misstum af Sigurrós.. af því að það voru svo rosalega margir þarna.. ekki mögulegt einu sinni að komast framhjá þessu öngþveiti.. nema að skríða... kannski.. já svo heyrðum við í Electric Six þeir voru að spila þegar við löbbuðum fyrst inná svæðið.. á fimmtudeginum.. og heyrðum við bara í Danger Danger laginu.. það var þegar við vorum að skoða bolina sem voru þarna.. það var ekkert smá flott.. og Stone Sour.. úff.. ég var búnað bíða svo lengi eftir þeim.. það var semsagt ekki The Streets sem ég dró fólkið á fyrstan daginn.. heldur Stone Sour.. og sér enginn eftir því.. þeir voru ekkert smá flottir.. svo missti ég líka af Murderdolls.. en fékk að heyra að þeir hafi ekkert verið neitt voðalega spes.. en langaði nú samt sem áður að sjá þá.. en ótrúlegt þá voru Blur nokkuð góðir þarna.. við gátum sungið úr okkur lungun með þeim.. líka bara flottir á sviðinu.. Guðný var komin að því að breika með þessu.. en sem betur fer gerðist það ekki.. :D ég man ekki eftir að hafa séð The Cardigans.. en þarf að rifja það upp með fólkinu.. getur vel verið að ég hafi séð þetta.. :) kemur í ljós í næsta bloggi ;)
Svo Queens of the stone ages.. þeir voru flottir.. rosalega er söngvarinn rauðhærður mar.. þetta var alveg rosalegt.. það var bara líst upp sviðið með hárinu hans.. en þetta var snilld.. þeir voru rosalega flottir.. :D
Björk var nú alveg að brillera á sviðinu.. þó svo að ég fíli hana ekkert.. en hún var alveg flott á sviðinu.. tók leiðinleg lög.. mar hlustaði svosem ekkert á það.. horfði bara á sviðsframkomuna.. sem var alveg rosalega öðruvísi en allt sem mar hafði séð á undan.. en hún er það nú líka sjálf.. :) allir útlendingarnir voru alveg dolfallnir yfir henni.. þeim fannst þetta svo flott.. sérstaklega fólkið frá Svíþjóð.. þetta var líka forsíðufrétt í öllum blöðunum þar..
Svo eftir sunnudagskvöldið.. þá fórum við í lestina og bara heim.. þraukuðum líka að sofa alveg til eitt að degi til.. og var það bara ég og elín.. fólkið var ekkert að vekja okkur.. fyrr en þá.. og þá skelltum við okkur í tívólí-ið.. og ætla ég aldrei aftur í það.. þetta var ógeðslegt.. við skelltum okkur í Turninn fyrst.. svona tæki sem mar sest í.. og fer alveg lengst uppí loftið.. vorum líka öll að fríka út þegar við vorum komin hálfa leiðina upp.. þetta var orðið of hátt.. sérstaklega ég.. þar sem ég er lofthræddari en andskotinn.. svo þegar við vorum komin upp.. heyrðum við svona.. tsssss hljóð.. og fundum kipp.. þá féll þetta alveg massíft hratt niður.. misstum öll andan á leiðinni.. þannig að það var ekkert hægt að öskra.. svo þegar mar var að verða komin niður... þá fór þetta hálfa leiðina upp aftur.. og féll aftur niður.. ég var farin að kveðja liðið.. þetta var ógeðslegt.. líka þegar ég fór úr tækinu.. var ég ekkert smá hvít.. þau biðu öll eftir að það myndi bara líða yfir mig.. en það gerðist ekkert.. ég varð bara hvít í 20 mínútur.. og hélt áfram í tækjunum.. fórum í öll tækin.. en ég fríkaði út í parísarhjólinu.. alveg búnað eyðinleggja mig eftir þennan turn.. ég er orðin ennþá meira lofthræddari eftir að ég fór í þetta tæki.. en allur mánudagurinn fór í tívolí-ið.. og ætla ég líka að skanna myndirnar af því þegar við ákvaðum að fara aftur í rússíbanana til að geta keypt okkur myndir.. og ætluðum svo að brosa.. en það tókst ekki alveg nógu vel.. ég og Siggi vissum ekki hvar myndavélin var.. :) svo var bara skellt sér á hard rock og drukkið með íslendingunum sem voru þar.. og þið fólk sem eruð á leiðinni til Danmerkur.. eða voru þar.. verðið að gera ykkur grein fyrir því að það eru íslendingar alls staðar þarna.. ekki vera að tala um rassinn ykkar og tott og svona.. við héldum að við myndum deyja úr hlátri þegar við vorum að labba framhjá íslendingum þarna.. umræðurnar voru alveg rosalegar..
daginn eftir vöknuðum við um 10leytið og skelltum okkur í kringluna sem var þarna.. Fiskitörven... og vorum þar í alveg nokkra tíma.. náði líka til að versla mér föt.. :D loksins.. núna er ég brún og í nýjum fötum.. topp that.. :) svo fengum við okkur bara öllara.. og ég og Elín skelltum okkur í flugið.. eiginlega bara mjög ánægðar með það.. þetta var búið að vera svo mikið.. mar þurfti að koma sér heim í rúmið sitt.. og fá sér íslenskt vatn.. hata vatnið þarna úti.. og já.. ég þoli ekki fólk sem setur stólbakið niður í flugvélum.. PAKK! var með fullt af drasli á borðinu mínu þegar þetta skeði.. beið bara eftir því að þetta færi yfir mig alla.. og það er vondur matur í flugvélum.. fyrir utan sjónvarpsefnið.. en jæja.. ég er komin heim! :)
Stina at 8:41 AM

Saturday, June 28, 2003

Jæja.. nuna er eg a hroarskeldu.. massift stud.. allir solbrenndir.. thirftum helst ad fara heim nuna.. en thetta er massift.. langadi bara ad segja ykkur thad!!!
bless!!
Stina at 10:51 AM

Wednesday, June 25, 2003

Núna eru 45 mínútur þangað til að ég legg af stað uppá flugvöll VEIIII!!! :D
3 tímar þangað til að ég fer í loftið.. og 5 tímar þangað til að ég lendi.. :D ég er bara næstum því komin..
BLESS! SKEMMTIÐ YKKUR VEL ÞVÍ AÐ ÉG VEIT AÐ ÉG MUN GERA ÞAÐ!!
Stina at 5:45 AM

VEIII.. ÉG ER AÐ FARA ÚT Í DAG!!
Og er vöknuð núna kl 10.. til að klára allt sem ég gerði ekki í gær.. djöfulsins að mar skuli hafa verið kærulaus.. ekki fattað að mar væri að fara út.. þangað að það var bara settar lappirnar uppá borð.. og horft á tómu töskuna fyrir framan skápinn.. en svo var mar byrjaður að setja í hana um 8-9leytið.. og hent óhreinu fötunum í þvottavélina.. þarna er loksins komin plús yfir að eiga þurrkara.. :)
Btw.. ég sé Metallicu á morgun.. :D og Stone Sour mar! eletric six! :D ----> Dagskráin
Jæja.. Bless!! :D
Stina at 3:32 AM

Tuesday, June 24, 2003

Við erum núna búnar að fá bolina í hendurnar.. og eru þeir hérna.. ---> The bolurs
Hvernig finnst ykkur?
Stina at 3:27 PM

Fullt af myndum af Gyðu á netinu.. fræga manneskjan.. :) tróð sér bara inná heila myndasyrpu.. hjá einhverri beyglu sem er valdis.is/dóri? en hey.. hún fór þó á netið mar.. fleiri gæsapartýs myndir.. og þar eru einhverjar myndir af mér.. :) I´M FAMOUS 2!!
Þar er þessi "gaur" víst að elta einhvern af vinum sínum.. til að "dissa" hann með því setja myndir af honum á netið útaf því að hann er að fara á land og syni á gauknum.. ætli "dissið" beinist ekki mest að henni Gyðu.. þar sem hún var víst voðalega mikið að "troða" sér inná myndirnar.. (takk bjössi fyrir allar gæsalappirnar þær koma að góðum notum núna :D) eníhú.. eru þetta ansi flottar myndir af henni.. og alltaf hægt að leiða textann frá sér.. sumt karlfólk er líka bara pakk.. :) hérna er myndaserían af henni ---> Gyða í góðum gír á gauknum við hliðná einhverjum Gunnari.. ótrúlegt og hún er Gyða Gunnars :D
Svo er önnur mynd af henni inná einhverri síðu.. og þar hefur hún stillt sér upp fyrir ljósmyndakallinum.. og ég pottþétt líka.. ---> inná gauknum?
Stina at 8:01 AM

Monday, June 23, 2003

Ég er búnað komast að því að mér finnst virkilega gaman að taka til hjá einhverjum öðrum.. sérstaklega þegar ég er ein þar.. og get dillað mér við tónlist.. nema þegar það er virkileg sprengja sem hefur komist í íbúðina.. samt er það svona.. aðeins minna skemmtilegra.. en ekkert voðalega leiðinlegt.. þannig að ég tek að mér að taka til alls staðar annars staðar en heima hjá mér.. :)
Stina at 10:59 PM

Er óeðlilegt sem krakki.. að prufa hluti.. sem eru fáranlegir eins og t.d. að vera með pumpu og pumpa uppí rassinn á sér til þess að athuga hvað gerist?
sem btw var nokkuð skemmtilegt.. gerði það að verkum að mar rak við því lofti sem mar pumpaði inn.. :D
Stina at 10:45 PM

Jæja Pabbi átti afmæli núna fyrir klukkan 12.. orðinn alveg 53 ára gamli karlinn.. og á.. alveg 12 barnbörn.. en ég á eftir að skjóta út krökkum.. alveg heilum 2.. eftir nokkur ár.. þá verða þetta 14 barnabörn.. planið er að gera það fyrir 57 ára afmælið hans.. ef ég og bróðir minn verðum ekki bara samtaka.. semsagt 16 barnabörn.. Rosalega á hann eftir að verða ánægður.. ótrúlegt.. en hann er ekki ennþá komin með grátt hár... kemur þegar börnin mín koma :D TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ PABBI :*
Stina at 5:58 PM

Hvað með nafnið á nýja disknum hjá Á MÓTI SÓL.. hver skýrir diskinn sinn FIÐRILDI ? og er ég ekki búnað safna 45 töppum fyrir þessum disk :(
Dagurinn fór í það að gera bol fyrir Hróarskeldu.. og ætla ég að vera með "I fucked the girl in Hanson" kemur vonandi vel út.. svo þegar ég kom heim.. var Gyða komin.. og dró mig með sér að finna undirföt fyrir brúðkaupið.. þannig að restin af deginum fór í það.. svo verður bara slappað af í kvöld yfir vídjó-i.. og farið að sofa snemma..
Stina at 1:29 PM

Já svo gleymdi ég að segja ykkur að Ruben STUDdard er komin með sína eigin fatalínu.. fyrir stóra kalla.. :D
Annars er ég að fara með dósir núna.. safna peningum fyrir útlandaferðina.. búnað vera að rúnta um hverfið að týna upp dósir.. er komin uppí 23 þúsund.. þetta er allt að koma.. ef þið eigið dósir handa mér.. þá eru þær vel þegnar..! :)
Svo horfði ég í fyrsta skiptið á Fast and The furious í gær.. massíf mynd.. PANT FÁ GRÆNA BÍLINN!!
Stina at 8:11 AM


Ég heiti Kristín.. kölluð Stína "Johnsen" er 19 ára gömul.. bý næstum því hjá honum Leifa sem er ágætt.. og hef gaman af því að horfa á fallega karlmenn á alþingi.. eða taka undir með góðri tónlist á Omega..

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

maystar designsmaystar designsmaystar designs